Þjóðviljinn - 26.08.1945, Page 1
10. árgangur
Sunnudagur 26. ágúst 1945.
186. tölublað.
g&asaea'fcaissi&iM
Uppgjafcirskilmálamir verða undirritaðir 2. sept.
r
Oveður teíur flutning hernámsliðsins til Japans
Norska þjóðin heiðíar skáld sitt
og frelsishetju Arnulf Överland
Hefur gefið honum skáidaheimilið „Grotten“
Flestir íslendingar munu kannast við norska stórskáldið
Arnulf Överland. Okkur mun tamast að nefna þá í sömu
andránni, Nordal Grieg og hann. Báðir létu þeir aðvaranir
dynja yfir þjóð sína á árunum fyrir stríð og hvöttu til raun-
liœfra aðgerða til að bægja nazistahættunni frá dyrunum.
Grieg er fallinn í baráttunni fyrir frelsi þjóðanna undan
'■)ki nazismans. Överland var varpað i fangabúðir og beittur
hinni verztu meðferð, þótt hann væri háaldraður orðinn,
vegna þess, að hann lét merki frelsins og sósíalismans
aldrei niður falla.
Á árunum fyrir stríð átti Överland oft í brösum við
kirkju og kenhilýð, því að hann var ómyrkur í máli um
sérgæzku, þröngsýni og hleypidóma þeirra. Á styrjaldar-
árunum var lagt út af kvœði eftir hann við guðsþjónustu i
dómkirkjunni í Reykjavík. Ekkert gat betur sýnt, lwe hin
virðulega og þróttmikla hetjubarátta þessa aldna skáld-
jöfurs gekk norskri þjóð til hjartans og fleygði burt utan-
garðsaðstöðunni, sem hann einatt hafði áður mætt í
œttlandi sínu.
Norðmenn hafa nú einhuga ákveðið að veita honum
hið fræga skáldaheimili, Grotteh, sem heiðursheimili það,
sem eftir er œvinnar.
í „Friheten“ birtist nýlega grein sú, sem hér fer á
eftir um Arnulf Överland og afstöðu þjóðarinnar til hans.
Mae Arthur tilkynnir, að flutningi hersveita
sinna til Japans hafi verið frestað um 2 sólarhringa
vegna óveðurs. — Hafa hvirfilbyljir og ofsalegar
rigningar breytt fiugvöllum í Tokio-héraði í aur-
haf, og sjógangur er svo mikill, að herskipafiota
Bandamanna reynist ókleift að halda hópinn. —
En áður hafði frétzt, að herskipin væru hætt að
sveima úti fyrir ströndum Japans og hefðu tekið
beina stefnu til Tokioflóa. — Fyrstu hersveitir
Mac Arthurs munu því fljúga til Japans á. þriðju-
daginn og undirbúa komu yfirhershöfðingjans
með aðalherinn á fimmtudaginn. — Uppgjafar-
skilmálarnir verða ekki undirritaðir fyrr en sunnu-
daginn 2. september á orustuskipi á Tokioflóa.
Arnulf Överland hefur ver-
ið veitt „Grotten“ sem heið-
ursbústaður, og allir eru því
samþykkir. Eingin rödd
hreyfir andmælum.
Hver myndi hafa trúað því
fyrir 10 árum, að slíkt væri
hugsanlegt?
Það hefði reyndar vel ver-
ið hugsanlegt þá, að þjóðin
þegar hinn mikli fjöldi hefði
skynjað snilli Överlands —
myndi vísa á bug öllum mót-
mælum andófsmannanna og
skipa skáldi sínu þann heið-
urssess, sem það verðskuld-
aði. Hann hlaut skáldalaun
á stríðsárunum gegn sterkum
mótmælum. Nú fær hann
heiðursbústaðinn, án minnstu
mótmæla. Hefir styrjöldin
virkilega valdið svo gifurleg-
um breytingum í Noregi?
Allir vita nú, að skáldið
sem þegar fyrir styrjöldina
orti hið blossandi kvæði
„Evrópa brennur", lýsti þá
því sem koma myndi af slíkri
skarpskyggni, að mann hryll
ir nærri við því enn í dag.
Jafnvel hinn aumasti odd-
borgari viðurkennir nú að
hin beiska og þrumandi gagn
rýni Överlands á gömlum
hleypidómum, :• kirkjulegri
þröngsýni og sérgæzku reynd
ist sterkt vopn hér ' heima,
þegar hreinsa þurfti andrúms
loftið og gera það óhæmt fyr-
ir nazistískum áhrifum.
En er þessi skýring nægi-
leg? Hefir þjóðin ráunveru-
lega öll komið auga á hin
ómetanlegu áhrif Överlands
á andlegt líf Norðmanna?
Við þorum varla að trúa
því. . Margir hafa vissulega
lært af styrjöldinni, en að
allir hafi lært svo mikið, er
næstum of gott til að geta
verið satt.
Sannlcþkurinn er sá, að
mikinn hluta þeirra heilla-
óska, sem Överland fær í dag
frá fyrrverandi andstæðing-
um sínum, fær hann þrátt
fyrir andleg störf sín. Það er
fanginn og frelsishetja styrj-
aldaráranna, sem nýtur þess-
arar hylli. Og þá gleyma
menn eða sniðganga hljóðlega
áhrif hans á andlegt líf þjóð-
arinnar. Hann stóð í fremstu
röð, þegar hetjulegast var
barizt til að vekja það lífs-
viðhörf, sem öll barátta vor
Rússneska sendinefndin ,er
á að vera viðstödd undirrit-
un uppgjafarskilmálanna, er
komin til Manilu. í henni eru
16 menn og komu þeir- í flug
vél frá Vladivostok. — For-
maður nefndarinnar, Devi-
anko hershöfðingi, segist
hafa tekið með sér nóg af
vodka til að halda atburðinn
hátíðlegan.
Hollenzka stjórnin segir,
að engir hollenzkir hermenn
muni verða meðal hersveit-
anna, sem fara til Japans
með Mac Arthur. — Mac Art-
hur segir, að japanskir blaða-
menn og kvikmyndatöku-
menn eigi að fá að vera við-
staddir undirritun uppgjafar-
skilmálanna og komu fyrstu
hersveitanna til Japans, og
eigi að sjá um að þeir fái
tækifæri til að fylgjast með
öllu sem bézt, því að ætlunin
sé að japanska þjóðin fái sem
greinilegastar fregnir af öllu
svo að ekki geti farið fram-
hjá neinum, hvernig komið
sé. — En hins vegar fá Jap-
anar ekki að útvarpa frá-
sögnum af þessum atburðum
til útlanda.
byggðist á öll styrjaldarárin.
Margir kváðu eldheit ljóð,
meðan á sjálfri baráttunni
stóð, enda þótt þeim auðnað-
ist ekki að kveða af
slíkri raust sem Överland.
En þeir voru fáir, sem höfðu
næga skarpskyggni, dirfsku
og þrótt til að ýta við sé.r-
gæzkunni og vekja hina værð
arkenndu, áður en baráttan
hófst.
Margir lifa einnig í þeirri
trú, að styrjöldin hafi lamað
hinn aldna örn. Að klær hans
hafi sljógvazt og vængirnir
stýfzt í fangabúðunum, svo
að nú geti þeir örugir klapp-
Japönsk blöð skýra frá
því, að fjöldi manna hafi ráð-
ið sér bana með kviðristu að
japönskum sið fyrir framan
keisarahöllina í Tokio. —
Blöðin ræða nú mjög, hvað
valdið hafi ósigri Japana.
Segja sum, að hugsunarhátt-
ur þjóðarinnar sé orðinn úr-
eltur og menntun hennar
skorti vísindaleg viðhorf, sé
nauðsynlegt að endurskoða
fræðslukerfi þjóðarinnar. —
Eitt blaðið segir, að Japan-
ar hafi raunverulega verið
búnir að bíða ósigur löngu
áður en kjarnorkusprengjan
og stríðsyfirlýsing Ráðstjórn-
arríkjanna kom til sögunnar.
Þingkosningum frest-
að í Búlgaríu
Búlgarska sijórnin hefur til
kynnt opinberlega, að þing-
kosningunum, sem áttu að
fara fram á morgun, hafi ver
ið frestað samkvæmt tilögu
eftirlitsnefndar Bandamanna.
Hafði utanríkisráðherrann
snúið sér til formanns nefnd-
arinnar og spurt um álit hans
'í orðsendingum brezku stjórn
arinnar og Bandaríkjastjórn-
ar.
Sjang Kaj-sjek vill
semja um Honkong
Mac Arthur hefur tilkynnt
Japönum að setulið þeirra í
Honkong verði að gefast upp
fyrir brezka flotaforingjanum
sem er á leiðinni þangað. —
Sjang Kaj-sjek sagði æðsta
landvarnarráðinu í gær, að
Kínverjar vildu ekki senda
herlið til Honkong, ef það
skyldi geta valdið misskiln-
ingi meðal Bandamanna. —
En hann kvaðst sannfœrður
um, að Bretar og Kínverjar
gætu samið um Honkong
með friðsamlegum hætti.
Blaðamenn hafa eftir Sjang
^að hann fari fram á, að yfir-
ráðaréttur Kínverja yfir
Mansjúríu verði viðurkennd-
ur, Korea fái fullt sjálfstæði,
Ytri-Mongolíu, sem er í
bandalagi við Ráðstjórnarrík
in, verði veitt meira sjálf-
stæði og Burma og Indó-Kína'
fái auk’na sjálfstjórn. —
Sjang Kaj-sjek hefur skorað
á Mao Tse-tung, stjórnmála-
leiðtoga kommúnista, að
koma á fund sinn ásamt Chu
En-lai sendimanni hans. —
Frá Sjunking fréttist, að kín-
verskar hersveitir muni halda
inn í Sjanghaj, Peiping, Nan-
king og fleiri borgir á morg-
un.
Sósíalistar!
Muinið fvmdinn á
þriðjudaginn
Sósíalistafélag Reykjavíkur
heldur félagsfund í Röðli
næstkomandi þriðjudags-
kvöld.
Jónas Haralz hagfræðingur
flytur erndi: Frá Svíþjóð og
Gunnar Benediktsson ræðu
um afurðasölumálin.
700.000 hús þarfnast
viðgerða í London
Aeurin Bevan heilbrigðis-
málaráðh. Bretlands skýrði
frá því gær, að í London
vœru 42000 íbúðarhús, sem
hefðu skemmst svo mjög af
völdum loftárása, að ekki
vœri hægt að gera við þau,
— og 700.000 hús þörfnuðust
viðgerðar. — 136000 menn
vinna nú við að gera við hús
í London. — Utan Lundúna
eru 10.000 íbúðarhús svo
skemmd, að ekki er unnt að
gera við þau, og 70.000, sem
þarfnast viðgerðar. —
Framhald á 4. síðu
Mikil ólga í Færeyjum
Samkvæmt skeyti, er fœreyska blaðamanninum
Sámal Davidsen, barst í gœrmorgun, eru nú miklar
æsingar í Færeyjum út af þeirri fyrirœtlan danská
amtmannsins að yfirfœra inneign Færeyja í Bret-
landi í danska þjóðbankann.
Eins og áður hefur verið sagt hafa þingmerin
Fólkaflokksins og Sjálfstæðisflokksins gengið af
þinginu í mótmælaskyni. Var ákveðið að hald.2 :
mennan borgarafund um þetta mál í Þórsh' r.i í
gær. Allmargir Færeyingar dvelja nú hér á la idi og
halda þeir fund um þetta mál hér í bænum í dag.
1