Þjóðviljinn - 04.10.1945, Síða 8

Þjóðviljinn - 04.10.1945, Síða 8
Margir íslendingar í Mið-Evrópu þarfnast nii skjótrar hjálpar Sigurður Ssgurðsson form. Rauða krossins segir frá hjálparstarfsemi Rauða krossins Rauði kross íslands hefur nú hafið fjársöfnun til handa íslendingum þeim sem nú dvelja í Mið-Evrópu- löndum og eiga margir við hin verstu kjör að búa. Sumir þeirra hafa misst allt sitt oftar en einu sinni. Fyrir atbeina Rauða krossins hafa nú komið heim milli 20 og 30 íslendingar, flestir frá Þýzkalandi. Siguröur Sigurðsson, for- maöur Rauða krossins skýrði blaðamönníun í gær frá árangrinum af för Lúö- vígs GúömundsSðnar skóla- stjóra, en hann fór sem kunnugt er til Mið-Evrópu- landa í sumar á vegum Rauða krossins til þess áð greiða fyrir íslendingum sem í nauðum voru staddir. Til að byrjá með gekk ferð hans nokkuð treglega því erfitt var að ferðast um Þýzkaland, tókst honum þó að fá leyfi til ferðalaga um Norður- og Vestur-Þýzka land og náði sambandi við mjög marga íslendinga á því svæði. í september fór hann í bíl frá Kaupmannahöfrl áleiðis til Tékkóslóvakiu, ætlaði hann að komast til Austurríkis, en vitað er þar af nokknnn íslending- um. Frelsishreyfingin Fólkið kemur allslaust heim. Vitað er nú með vissu um 22 íslendinga er komið hafa hingað á vegum Rauða krosSins, en ástæða er til að ætla að fleiri muni mí komnir fyrir atbeina Lúðvígs Guðmundssonar. Flest eru þetta íslenzkar konur giftar Þjóðverjum. Menn sumra þeirra eru eft- ir 1 Þýzkalandi, en aðrar eru nú ekkjur er koma hing að með böm sín og staada uppi allslausar. Auk þess að greiða fyrir heimför íslendinga hefur Lúðvíg einnig útvegað ís- ndingum, sem enn dvelja ei'lendis, peninga til bráð- ustu nauðsynja, því margir þeirra höfðu hvað eftir ann að misst allt sitt og stóðu Uppi allslausir. ... ■ -í*®f Samkoma — Fjársöfnun. A öðrum stað er birt á- um danska lét Rauða krossin „ , um bll þenna i té, en efíitt, y,arP,.(Rauðf., , mun nú aS ferðast rneíf! Oarso'nun til hmna nauð- stoddu Islendmga, og verð- ur því er nú safnast ein- göngu varið þeim til hjálp ar. járnbrautum í Þýzkalandi. — Bílstjórann munu margir kannast við. Hann er Jörgen Petersen (Volli> sonur Petersens sem var hér bíóstjóri. Lúðvíg hefur notið mik- illar aöstoðar ýmissa Rauða krossfélaga og staðið í sam- bandi viö Alþjóða Rauör krossinn, og enska og aust- u. víska Rauða krossinr. Þá hefur hann einnig haft sam band við yfirmann UNRRA og fUlltrúa hernámsstjórn- ar rauða hersins, en eigi er vitað hvort hann hefur fengið leyfi til ferða um hernámssvæði Rússa : Þýzkalandi. Þá hafa einnig sendileiðangrar danska og norska Rauða krossíns greitt götu hans á allan hátt og hefur veriö fullkom in samvinna milli allra þessara aðila. Hefur árangur af för Lúðvígs orðíð meiri og betri en áhorfðist í fyrstu. Þegar Lúðvíg var í Kaup- mannahöfn í haust voru teknir upp samningar við danska Rauöa krossinn um matarsendingar til islend- inga er dvelja áfram í Þýzkalandi í vetur og fara þær sendingar að sjálf- sögðu fram á kostnað Rauða krossins íslenzka. Dr. Skadhauge, er kom hingað í sumar sem full- trúi danska Rauða krossins, hefur reynzt mjög vel við að greiða fvrir fyrrnefnd um samningum við danska Rauða krossinn. íslendingar, er kömu heim með Esju, hafa boðiö Rauða krossinum aöstoð sína við fjársöfnunina og efna þeir til samkomu * 1 2 Tjarnarcafé annað kvöld til ágóða fyrir söfnun þessa. Fjórir ísíendiii«ar sendir á norrænt skátamót í Stokk- hólmi Mót norrænna skátahöfð- ingja verður haldið í Stokk• hólmi í lok þessarar viku. Forseti fundarins verður Prins Gustav, ríkiserfingi Sví þjóðar. Á fundinum verður ræft nánara samstarf skáta á Norð urlöndum, og þar á meðal: Norræn skátamót — Sam- ræmingu á skátaprófunum — Sameiginlega för Norður- landaskáta á Jamboree 1947 — Aðstoð við. stofnun skáta- félaga í þeim löndum, þar sem þau hafa verið bönnuð. Bandalag íslenzkra skáta sendir þessa fjóra fulltrúa á mótið: Jónas B. Jónsson, Gunnar Þorsteinsson, Birgir Þórhallsson og Guðstein Að- alsteinsson. Gunnlaugur Þórðar- son ráðinn forsetaritari Gunnlaugur Þórðarson lög- fræðingur hefur verið ráðinn forsetaritari frá s. 1. mánaða- mótum, í stað Péturs Eggerz sem lætur af því starfi, og verður fýrsti sendiráðsritari við íslenzkú sendisveitina í London. Pétur Eggerz varð ritari ríkisstjóra þegar það embætti var stofnað, og hefur einnig verið fórsetaritari frá stofnun þess embættis. Gunnlaugur Þórðarson, hinn nýi forsetaritari, er son- ur próf. Þórðar Sveinssonar geðveikralæknis. — Hann tók embættispróf í lögfræði á s. 1. vori með fyrstu einkunn. Jón Pálmason kjörinn forseti sameinaðs þings Steingrímur Aðalsteinsson endurkosinn forseti efri deildar, Barði Guðmundsson forseti neðri deildar Þingsetningarfundi var fram haldið i gærkvöld og fóru þá fram kosningar for- seta, varaforseta og kjör- bréfanefndar. Forseti sameinaðs þings var kosinn Jón Pálmason með 30 atkv., Bjarni Ásgeirsson hlaut 13 atkv. og Gísli Sveins son 6. 1. varaforseti sameinaðs þings var kjörinn Stefán Jó- hann Stefánsson, með 28 atkv., Bjarni, Ásgeirsson hlaut 9 atkv., auðir seðlar 12. 2. varaforseti sameinaðs þings var kjörinn Þóroddur Guðmundsson með 29 atkv., auðir seðlar 20. Skrifarar sameinaðs þings voru kosnir Sigurður Krist- jánsson og Skúli Guðmunds- son. í kjörbréfanefnd voru kosn ir: Sigurður Guðnason, Ás- geir Ásgeirsson, Hermann Jónasson, Þorsteinn Þorsteins son og Lárus Jóhannesson. Að loknum fundi í samein- uðu þingi hófust fundir þing- deilda, og fóru þar einnig fram kosningar á embættis- mönnum deildanna. Forseti neðri deildar var Barði Guðmundsson kosinn með 19 atkv., Jörundur Bryn- jólfsson hlaut 11, tveir seðl- ar auðir. 1. varaforseti neðri deildar var Garðar Þorsteinsson kjör- inn með 19 atkv., 13 seðlar auðir. * 2. varaförseti var Sigfús Sigurhjartarson kjörinn með 18 atkv.. 14 seðlar auðir. þlÓÐVILllHN Ávarp frá Rauða krossi Islands y Rauði kross Islands hefur ákveðið að beita sér fyrir fjársöfnun til bágstaddra íslendinga, sem dvalíð hafa í ófriðarlöndunum á undanförnum árum, eða hafa í hyggju að dvelja þar áfram, en hafa orðið hart úti af völdum ófriðarins. Eins og kunnugt er, sendi Rauði krossinn full- trúa til meginlands Evrópu í þeim tilgangi að hafa upp á og liðsinna þeim löndum vorum, er kynnu að vera hjálpar þurfi. Hefur eftirgrennslan þessi reynzt mjög vandasöm, én nú þegar borið eigi svo lítinn árangur. Yfir 20 manns mun þegar komið hingað til landsins fyrir milligöngu fulltrúa Rauða kross- ins, Lúðvígs Guðmundssonar, skólastjóra, og eru fleiri vœntanlegir. Er Lúðvíg nú sem stendur á ferða- lagi í Tékkóslóvakíu í þeim tilgangi að komast í samband við íslendinga, er þar dvelja. Meðal þess fóíks, sem komið er hingað, eru íslenzkar konur með börn sín. Eiginmenn þeirra dvelja áfram erlendis. Hafa sumar af fjölskyldum þessum verið mjög illa leiknar af völdum ófriðarins, misst aleigu sína oftar en einu sinni og eru nú loks hafnaðar í föðurlandi sínu, fyrirvinnulausar og sumar án aðstandenda, í þeim tilgangi að forða sér og börnunum frá hungri og kulda, sem líklegt má telja, að ríki í heimkynn- um þeirra fyrst um sinn. Þá standa yfir samningar milli Rauða kross ís- lands og danska Rauða krossins um reglulegar mat- vœlasendingar til bágstaddra landa vorra, er dvelja áfram á meginlandi Evrópu nœstkomandi vetur. Þessi starfsemi Rauða krossins hefur verið mjög kostnaðarsöm og mun hafa áframhaldandi útgjöld í för með sér. Þess vegna hefur hann ákveðið að snúa sér til þjóðarinnar og hefja fjársöfnun handa hinu bágstadda fólki. Mun öllu því fé, er safnast kann nú, verða varið einvörðungu til þessarar starfsemi Rauða krossins. íslenzka þjóðin hefUr oft á undanförnum árum sýnt ótrúlegt örlæti, er til hennar hefur verið leitað í fjársöfnunarskyni. Hér er um að ræða að styrkja hrakta og hrjáða landa vora, er hafa, sumir hverjir, orðið að líða meiri hörmungar á undanfarandi stríðs- árum en orð fá lýst, og koma í veg f-yrir harðrétti og hörgulsjúkdóma meðal þeirra, er enn dvelja þar, sem ófriðurinn hefur geisað. Skrifstofa Rauða kross íslands mun daglega kl. 1—5 veita fégjöfum móttöku í þessu skyni. Enn- fremur hafa öll dagblöð bæjarins heitið stuðningi sínum við fjársöfnUnina og taka fúslega móti þeim gjöfum, er þangað kunna að berast, Skrifarar neðri deildar voru kjörnir: Sveinbjöm Högnason og Gunnar Thor- oddsen. í efri deild fóru kosningar þannig: Forseti efri deildar Stein- grimur Aðalsteinsson með 11 atkv., auðir seðlar 5. 1. varaforseti efri deildar: Þorsteinn Þorsteinsson, með 11 atkv., auðir seðlar 5. 2. varaforseti efri deildar: Gvðm.undur I. Guðmundsson, með 12 atkv., auðir seðlar 4. Skrifarar efri deildar: Ei- ríkur Einarsson, Páll Her- i mannssori. i -♦ Tilkynning frá orðunefnd Forseti íslands hefur sam- kvæmt tillögu Orðunefndar sœmt eftirtalda menn hinni íslenzku fálkaorðu: Erik Joseph Philip, ritara konunglega tekninska háskól- ans í Stokkhólmi, stórridd- arákrossi hinnar íslenzku fálkaorðu. Harald Sigmar forseta evangélisk-lútherska kirkju- félagsins í Vesturheimi, ridd arakrossi hinnar íslenzku fálkaorðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.