Þjóðviljinn - 06.10.1945, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 06.10.1945, Blaðsíða 4
ÞJÓÐ VI.L JIUK 'i-':1 toíB ísk. Laugardagur ft. okt. 1945. Otgefandi: Sameiiúngarfiokkur aiþýðu — Sósialistaflokkurinn Kitstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson. Stjómmálaritstjórar: -Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson. Bitstjómarskrifstoía: Austurstræti 12, sími 2270. (Eftir kl. 19.00 2184). . Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19,. sími 2184. ■ Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399. Prentsmiðjusimi 2184. Askriftarverð: í Beykjavík og nágrenni: Xr. 6.00 á mánuðL Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði. Prentsmiðjá Þjóðviljans h. f. Rumskað í svefni Þær hafa verið lærdómsríkar umræðurnar sem fram hafa farið um húsnæðismál á tveimur síðustu fundum bæjarstjómar. Árum saman hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksíns í bæjarstjóm talið það sitt hlutverk að koma í veg fj rir að „einkaframtákið“ væri truflað í því „ágæta“- starfi að „leýsa húsnæðismálin“. Fyrir nokkrum árum sagði borgarstjóri, að húsnæðismálin væru baenum óviðkomandi, og á bæjarstjórnarfundi í fyrradag hélt Gunnar Þor- steinsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna, því fram að einkaframtakið leysti húsnæðisvandamálin á öllum venju- legum tímum. Við þennan óð um einkaframtakið hafa bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sofið, og látið sig dreyma um glæsilegt atvinnulíf og góðar íbúðir, meðan hinn vakandi fjöldi hefur háð baráttu sína við atvinnu- leysi og húsnæðisskort. • Svo bar það við að bæjarfulltrúar Sósíalista fluttu eftirfarandi tillögu á næst síðasta fundi bæjarstjórnar. „Bæjarstjóm ákveðuf að láta hú þegar hefja undir- búning að.byggingu eigi færri en 500 íbúða, með það fyrir augum að hafist verði handa með byggingaframkvæmdir á komandi vori.“ Þessa raunhæfu tillögu, sem sannanlega er framkvæm- anleg, og sem mundi á næstu tveimur árum leysa vanda-. mál braggábúanna og fleiri þeirra, sem við óhæft hús- næði búa, . létu blöð aftunhaldsins sér sæma að kalla skýjaborgir. Borgarstjóri slóst svo í för með þessum blöð- um, og .valdi tillögunum sama heiti á fundi bæjarstjórn- ar í fyrradag, þó honum hljóti að vera ljóst, að ef bærinn léti nú þegar hefja undirbúning, væri auðvelt að byrja á framkvæmdum að vori, en það þýðir að íbúðirnar verði tilbúnar á árunum 1946 og 47. Enginn efi er á því að bær- inn hefur aðstöðu til að ganga fyrir öðrum með bygg- ingarefni og vinnuafl, ef svo fer að annað hvort eða hvort tveggja bresti, til að fullnægja eftirspurnum, og vissulega eiga framkvæmir bæjarins, á þessu sviði, að hafa forgangsrétt. Eitt af því sem „skýjaborgamennirnir“ færðu fram til afsökunnar andstöðu sinni við að bærinn undirbyggi byggingu þessara 500 íbúða, var bað að margháttaða löggjöf vantaði um byggingamálin. Einkum voru það fulltrúar Alþýðuflokksins í bæjarstjórn, sem báru þess- ar röksemdir fram. Yfirleitt voru þær bendingar sem fram komu um vantandi löggjöf réttmætar, út af fyrir sig, þó þær vörðuðu ekkí það mál, sem fyrir lá nema að litlu ley.ti. í fyrra dag fluttu svo bæjarfulltrúar sósíalista til- lögur í bæjarstjórninni, um að bærinn léti undirbúa löggjöf, um eignarnám á lóðum, og endurbyggingu gamla bæjarins. Hvort tveggja eru þetta stórmerk mál, og mjög þýðingarmikil fyrir framtíð bæjarins, þó ekki muni laga- settning um þau leysa vandamál braggabúa, né annarra, -sem í óhæfu húsriæði eru, eins fljótt og nauðsyn krefur. Ennfremur fluttu sósíalistar tillögu um að bæjar- stjórn óskaði samstarfs við Nýbyggingarráð um frumvarp það, sem ráðið hefur í smiðum um húsnæðismál. Það vlrtist koma hinum svefnþungu fulltrúum Sjálf- stæðismanna í bæjarstjórn á óvart, að sósíalistar fylgdu tillögum sínum- um úrlausn húsnæðismálanna eftir með Útlendir Hattar Ný sending Hattabúð Reykjavíkur Laugaveg 1 0. 1 Fjölbreytt úrval af glervörum, búsáhöldum og matvöru. Verzlunin Nova Barónsstíg 27. — Sfmi 4519 L--------------------- Fiðurhreinsun KRON Aðalstræti 9B. Sími 4520. L Daglega NÝ EGG, soðin og hrá. Kaffisalan HAFNARSTKÆTI 16. L„ Samkór Reykjavíkur L fyrir Jóhann Tryggvason söngstjóra. Þórunn S. Jóhannsdóttir (6 ára) aðstoðar. Hljómleikarnir verða í Gamla Bíó sunnu- daginn 7. okt. kl. 3 s. d. Aðeins þetta eina sinn. Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sig- fusar Eymundssonar. Mótorvelstjórafélag íslands. Dánsleikur í Tjarnarcafé í kvöld kl. 10. Öllum heimill aðgangur. Sala á aðgöngumiðum frá kl. 8 í kvöld. Skemmtinefndin. Úthlufiunarskrifstofurnar. L þeim hætti, sem raun bar vitni um. Þeir byltu sér í svefninum og tóku að skrifa tillögur á fundinum. Borg- arstjóri skrifaði tillögu um að gera áætlanir um tæm- ingu bragganna. Helgi Hermann og Gunnar Þorsteinsson skrifuðu tillögu um að skora á ríkisstjórnina að útvega sem mest byggingarefni: Hvorttveggja er þetta gott, en óneitanlega hefði verið skemmtilegrá að bæjarfulltrúarnir hefðu hugleitt þetta mál, ótilkvaddir af sósíalistum, áður en þeir kcwnu á fundinn, en þeir um það, það var gott að þeir. rumskuðu, en því miður er hætt við að þei.r velti sér bara á hina hliðina og -haldi áfram að sofa. Nýkomið Afhentling skömmtunarseðla fyrir mjólk Eyðublöð, samkvæmt 2. gr. í reglum um sölu á mjólk í Reykjavík og Hafnarfirði, verða afhent í öllum mjólkurbúðum í Reykjavík og Hafnarfirði laugardaginn 6. okt.. og mánudaginn 8. okt., hvorttveggja dagana þó aðeins eftir hádegi. Úthlutun á mjólkurseðlum fer fram þriðjudaginn 9. okt. í Reykjavík í barna- skólunum og í Hafnarfirði í bæjarskrifstof- unum kl. 10 f. h. til kl. 8 e. h. Það skal sérstaklega tekið fram, að seðl- arnír verða aðeins afhentir gegn framvísun ofan nefndra skýrslueyðublaða> enda séu þau greinilega útfyllt og undirrituð, svo sem form þeirra segir til um. Eyðublöðin útfylii fólk áður en það kemur með þau á af- greiðslustaðinn. Telpukápur 2—6 ára Skólakápur 6—10 ára Drengjafrakkar 3—6 ára Skólakápur einnig saum- aðar eftir pöntun. Verzl. Barnafoss, Skólavörðustíg 17.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.