Þjóðviljinn - 06.10.1945, Page 6

Þjóðviljinn - 06.10.1945, Page 6
6 _____ .____, At1.,...... ÞJOÐVILJINN Laugardagur 6. okt. 1945. Gösta Knutsson: ......• ■■■-« John Galsworthy: Bræðralag Brandur skottlausi / FYRSTI KAFLI Allir kettir í nágrenninu fréttu, hvernig hann háfði misst rófuna og var mikið hlegið að því. Stundum slógu allir kettirnir hring um Brand litla og sungu: „Hafið þið séð köttinn, sem hefur ekkert skott? Hlægilegur er. hann. En það er bara gott“. Þetta var ekki fallegt af köttunum, en þeir gerðu það samt. Brandur litli sat í miðjum hringnum og sleikti út um. Honum lá við gráti. Stundum reyndi hann að hvæsa að þeim. En þá hlógu þeir bara enn meira og héldu áfram að syngja: „Það var bara rotta, sem rófuna af honum sleit. Rottan var svo gráðug og kattargreyið beit“. Það var ekki gaman að vera í sporum Brands. En einn góðan veðurdag — það var á sjö vikna af- mælinu hans — þá gerðist dálítið: Það kom maður akandi í bíl, heim að bænum, þar sem kettlingurinn átti heima. Hann skildi við bílinn á hlaðinu en gætti þess ekki að loka hurð- inni. Kettlingurinn sá þetta. Hann trítlaði að bílnum og gægðist inn í hann. Hann hafði aldrei séð inn í bíl fyrr, en honum leizt vel á hvað sætin voru rrijúk. Þess vegna stökk hann inn og hreiðraði um sig. Hér var bærilegt að vera. Þá sá hann skúf, sem hékk í bandi yfir aftur- glugga bílsins. Hann stökk á fætur, krækti klón- um í skúfinn, togaði í hann og beit. Þá kom rennitjaldið niður og byrgði gluggann. Kisi varð hissa og sleppti. En þá rann tjaldið upp aftur með háum smelli. Málverkasýning Jóns Þorleifssonar í sýningarskála myndlistarmanna opnuð í dag, laugardaginn 6. okt. kl. 10 f. h. Opin daglega frá kl. 10—10., NY BÖK. Sagnaþættir eftir Vigfús Kristjánsson frá Hafnarnesi. Efni: Þáttur af Þorsteini frá Úthlíð. Er þar leiðrétt það sem rangt er í bókinni ;! Pabbi og mamma. Frá Guðmundi Vigfússyni hómópata. Merkilegir draumar og fleira. Eignist þessa fróðlegu og skemmtilegu bók. Verð 20 krónur í bókabúðunum í Reykja- vík og Hafnarfirði. !L „Eg vil ekki eiga fleira sam an við þetta fólk að sælda“, sagði hún. Eg hef gert allt, sem mér hefur verið unnt fvrir frú Hughs. Eg þekki saumakonu, sem er alveg eins góð og mundi verða lifandi fegin að fá vinnu. Og það getur hvaða stúlka sem er skrifað fyrir pabba. Ef þú 'vilt fara að mínum ráðum, Hilary, leggurðu líka árar í bát við að hjálpa þessu fólki“ Hilary brosti. Það gerði hana vandræða lega og vakti reiði hennar. En hún hefði átt að vit'a, að það var þetta bros, sem eyðilagði sambúð þeirra Biöncu og hans. „Það getur vel verið, að þú hafir rétt fyrir þér“, sagði hann og yppti öxlum. „Eg hef að minnsta kosti gert það, sem í mínu valdi stóð. En nú verð ég að fara. Vertu sæll“. Hún leit um öxl, þegar hún gekk til dyra og sá hann standa frammi fyrir mynd Sokratesar. Hana tók sárt sð sjá, hve dapur hann var, en hún sá enn í anda, hvar systir hennar gekk einmana og eirðarlaus um heimili sitt, raunalega kaldhæðin á svip- inn. Og Cecilia hélt áfram út úr stofunni. „Góðan daginn, frá Dalli- son. Er systir yðar heima?“ Það var mr. Purcey, sem spurði. Hann var að stíga út úr bifreið sinni. Cecilia talaði lágt, eins og farsótt eða önnur ógæfa væri á heimiliu. ' „Nei, hún er því miður ekki heima“. „Það var leiðinlegt11, sagði mr. Purcey og svipur hans lýsti eins miklum vonbrigð- um og yfirleitt gátu sast á jáfn sællegu og sómasamlegu andliti. „Mig langaði til að aka með þau dálítinn snöl. Bíllinn þarf að hreyfa Sig“.‘ Mr; Purcey lágði höndina á bílinn. „Þér kannist við þessa teg- und, frú Dallison. Það er Daimler — fyrsta flokks Daimler. Það er það bezta sem hægt er að fá fyrir pen- inga sína. Alveg einstakir vagnar! Það væri gaman, ef bér vilduð reyna hann“. „Fyrsta flokks Daimler- bifreiðin“ blés fínustu tegund af benzíngufu, hristi sig og skók, eins og hún væri upp- véðruð af lofi eiganda síhs. Ceciiia horfði á hana „Þetta er allra fallegasti bíll“, sagði hún. „Já, er það ekki? .Má ég ekki aka yður dálítinn spöl — minn er heiðurinn? Eg er viss um, að yður fellur vel við bílinn“. Það var einhver vitund af samvizkubiti ásamt dálítilli forvitni og skyndileg upp- reisn gegn öllu andstreyminu og efasemdunum, sem varð til þess, að hún leit mr. Purcey óvenjulega mildum augum og var, áður en hún vissi, sezt inn í „fyrsta flokks Daimler-bílinn“. Hann rann af stað, rak upp tvö ýlfur og spúði benzíngufu. „Þetta var fallega gert af yður“, sagð mr. Purcey. Bifreiðin þaut framhjá bæjar pósti, hundi og brauðvagni, sem voru á fullri ferð, hver á sinn hátt, en það var eins og þeir stæðu kyrrir saman- borið við bifreiðina. Cecilia fann þægilegan vindblæ leika um vangana. Ósjálfrátt hló hún. „Þér akið mér þá heim“. Mr. Purcey kom við hand- legg bílstjórans. „Við ökum í kringum skemmtigarðinn“:. sagði hann. „Og dragið þér e'kki af ferðinni“. „Fyrsta flokks Daimlerbill- inn“ rak upp gól. Cecilia hallaði sér aftur á bak í mjúku sætinu og gaf mr. Purcey hornauga. Hann hall- aði sér líka aftur á bak. Glett ið ánægjubros lék um varir hennar. „Hvað hef ég gert?“ hugs- aði hún. „Hvernig fór hann að fá mig til þess? Eg hef aldrei vitað annað eins. En nú er ég hingað komin, op þá er ekki um annað að ræða en njóta gæðanna“. Hér var enginn Hughs. Engin „Fyrirmynd11 — allt betta ósmekklega var fc'kið út í veður og vind. Blærmn lék um vanga hennar. Og „fyrsta flokks Daimle.r-bíll- inn“ rann og rann. Mr. Purcey tók til rnáls: „Þetta er mér hrein og bein nautn. Þetta styrkir taugar minar“. „Taugar!“ tautaði Cecilia. „Hafið bér líka taugar?“ Mr. Purcy brosti og þá drógust kinnarnar saman í rauðar kúlur, yfirskegg'ð stóð beint út í loftið og hrukkur komu í ljós í kringum ljós- grá augun. „Hvo'rt ég hef taugar! Það barf ekki mikið til að koma nfeí úr jafnvægi. Eg þoli ekki að sjá barn gráta, ef ég held að það sé af sulti“. Cecilia fann til einkenni- legrar aðdáunar á þessum manni. Hvernig stóð á því, að hún sjálf, Thyme, Hilary, Stefán og allir vinir þeirra, gátu ekki verið eins og þessi maður? Hann var sterkbyggð ur og gat hrist af sér þessa meðaumkun, sem ekki lét þau í friði. Hann var sæll í fáfræði sinni og hafði ekki hugmynd um neitt sem heitir „þjóðfélagsleg samvizka“. „Fyrsta flokks Daimler- bíllinn“ nam allt í einu stað- ar af sjálfu sér, eins og hann öfundaði eiganda sinn af að- dáun hennar. „Hvað er að? — Nei, nei, verið þér rólegar. Þetta lag- ast“. „Já, þakka yður fyrir. En ég verð hvort eð er að fara út hérna. Verið þér sælir. Þakka yður fyrir. Eg hef skemmt mér í þessari ferð“. Hún staðnæmdist í búðar- dyrum'og horfði á hann, þar sem hann stóð álútur yfir „fyrsta flokks Daimler-bíln- um“.- NÍUNDI KAFLI Á veiðum. Maður eins og Hilary að- hylltist ekki samskonar fag- urfræði og mr. Purcey og hans líkar. Fagurfræði þeirra byggðist á meðvitund um eignarrétt bæði i þessum heimi og öðrum. Hann gat heldur ekki talizt til hástétt- arinnar. Trú hans og siðfræði var önnur. Afstaða flestra hástéttarmanna sem fundu til yfirburða sinna gagnvart jafnokum Purceys var í fám orðum sagt: „Bölvaður sértu!“ Hilary og hans líkar voru í augum beggja þessara manntegunda trúlausir og sneyddir siðgæðishugmynd- um. Þetta voru „prófessorar“, listaoostular, umbótamenn og aðnr Makkabear“, eins og mr. Purcey orðaði það. Hefði Hilarv verið krafinn um trúarjátningu sína, mundi hann hafa svarað eittbvað á þá leíð: „Eg trúi ekki kenningum kirkjunnar, fer mldrei í kirkju og hef engar ákveðnar hugmyndir um líf eftir dauðann. En ég reyndi að samrýmast því um- hverfi, sem ég lifi í. Heppn- rit mér einhvern tíma að komast í fullt samræmi við veröldina, verð ég hamingju- samur. Eg treysti skynsenii minni og skilningarvitum. Og það, sem þau vilja ekki fræða mig um álít ég að ég þurfi ekki að vita, því að ef maðurinn vissi crsakir alls, væri hann orðinn alheim urinn sjálfur. Eg álít bind- indi dyggð að því leyti sem það er þjóðfélaginu í heild sinni til góðs. Eg lít ekki ,á

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.