Þjóðviljinn - 22.03.1946, Blaðsíða 2
2
/
ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 22. marz 1946.
HHITJARNARBÍÓ
Sími 6485.
Bör Börsson jr.
Norsk kvikmynd eftir
samnefndri sögu.
Toralf Sandö
Aasta Voss
J. Holst Jensen
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Orðið
Gamla bíó sýnir: Flagð undir
fögru skinni.
Kaupið Þjóðviljann
Eftir leikriti Kaj Munks
Sýnt kl. 7 og 9.
Síöasta sinn
Roxie Hart
Gamanmynd. Leikin af:
Ginger Rogers,
Adolpe Menjou,
George Montgomery
Sýnd kl. 5
Bönnuð fyrir börn
f r—~~
Heiðurs- og kveðjusamsæti
fyrir fyrrverandi dómprófast Friðrik
Hallgrímsson og frú
Ákveðið hefur verið að halda fyrrverandi
dómprófasti Friðriki Hallgrímssyni og frú
hans samsæti að Hótel Borg, mánudaginn
1. apríl n. k.
Þeir, sem óska að taka þátt í samsætinu
riti nöfn sín á lista, sem liggja frammi í
Bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg
2 og Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar,
Austurstræti 18, og taki þar aðgöngumiða
til 27. marz að þeim degi meðtöldum.
Nokkrir vinir.
Bæjarverkfræðingur.
Bæjarstjórn Akraness vill ráða bæjar-
verkfræðing, þegar í stað, eða svo fljótt,
sefn frekast er. unnt. Eg veiti allar upplýs-
ingar um starf þetta og tek á móti urnsókn-
um. Umsóknarfrestur er til 9. apríl.
Akranesi, 19. marz 1946
BÆJARSTJÓRINN.
Þýðingar af og á ensku
Afgreiðslan vísar á.
Fiðurhreinsun
Aðalsíræti í)li .Sími 4520.
Sækjuni
og
Sendum
Sam-
dægurs.
Cr~
Unglingspiltur
óskast'trf léttrar vrniiu. Upplýsingar í
Prentsmiðju Þjóðviljans frá kl. 10—5
Frumvarp um ráðstafanir til að tryggja bygg-
ingarfélögum verkamanna nægilegt lánsfé
Tveir þingmenn sósíalista, Sigfús Sigurhjartar-
son og Sigurður Guðnason flytja á Alþingi frum-
varp um breytingu á lögunum um verkamanna-
bústaði.
Er breytingin sú, að Landsbankanum er gert að
skyldu að kaupa fyrir nafnverð skuldabréf, sem
stjórn Byggingarsjóðs gefur út til að afla lánsfjár
til byggingarframkvæmda. Þessi innlausnarskylda
bankans er þó takmörkuð við 20 milljónir króna.
Er þetta hið mesta nauðsynjamál. Byggingasjóð-
ur hefur boðið út skuldabréfalán að upphæð 3-5
milljónir króna, en af bréfunum hefur aðeins
selzt sem svarar einni milljón. Fjárþörf sjóðsins til
byggingalána hefur hinsvegar aldrei verið meiri
en nú.
í greinargerð segja flutn-
ingsmenn m. a.:
„Lög um verkamannabú
staði er tvímælalaust þýðing
armesta löggjöf, sem Alþingi
hefur sett til að greiða fyrir
byggingu íbúðarhúsa í kaup-
stöðum og kauptúnum. Skiln
ingur almennings hefur farið
hraðvaxandi á nytsemd þess-
arar löggjafar, og æ fleiri
byggingarfélög hafa verið
stofnuð á grundvelli hennar.
Byggingarsjóði verkamanna
bústaða hafa í samræmi við
þetta borizt fleiri og stærri
lánbeiðnir á þess-u og sáðasta
ári en dæmi eru til áður, en
aðstaða hans til lánsfjáröfl-
unar hefur ekki batnað að
sama skapi, og nú er svo kom
ið, að heita má, að lögin um
verkamannalbústaði séu ekki
framkvæmanleg, vegna þess
að byggingarsjóðurinn getur
ekki fengið þau lán, sem
hann þarf og þar af leiðandi
ekki veitt hinum einstöku
félögum þau lán, sem þau
þurfa til bráðnauðsynlegra
framkvæmda.
Eins og nú standa sakir,
hefur byggingarsjóðurinn lof
að einstökum byggingarfélög
um lánum, sem næst 6 millj.
króna að upphæð. Hjá sjóðn-
um liggja óafgreiddar beiðn-
ir sem hér segir:
Til Neskaupst... 600000 kr.
Til Hafnarfj.... 1300000 —
Til Sauðárkróks - 770000 —
Til Bolungarv... 500000 —
Til Siglufj..... 2040000 -
Samtals 5210000 kr.
Kunnugt er að stofnuð
hafa ver ð byggingarfé^ög á
Esk'firði, Eyrarhakka, Djúpa
vosi, Patreksfirði, Seyðis-
firði, Eáldudal cg í Búðar-
hrepp’. Frá öllum þessum fé-
lcgr.m má búast við lán-
beiðnum á hverr; stundu, og
ekki er hátt áætlað, að þær
nemi . samtals 5. milljónum
króna.
Samkvæmt þessu má gera
ráð fyrir, að innan skamms
liggi fyrir .h-já byggingarsjóðn
um loforð um ián og lán-
beiðnrr er nemi um 16 millj.
króna.
Til að mætá þessum þörf-
um, hefur byggingarsjóður-
inn boðið út skuldabréfalán
að upphæð 3.5 milljónir kr-,
en af þeim bréfum hefur til
þessa ekki selzt nema sem
svarar einni milljón. Við svo
búið má ekki standa, það má
ekki hindra framtak þeirra
byggingarfélaga, sem eru
reiðubúin að hefja bygging-
arframkvæmdir, en framtak
þe'rra verður hindrað, ef
ekki verður undinn bráður
bugur að því að tryggja
byggingarsjóðnum nægileg
lán. Beinasta og eðlilegasta
leiðin er að leggja þjóð'bank-
anum þá skyldu á herðar að
innleysa skuldalbréf sjóðsins,
en að sjálfsögðu hefur bank-
inn aðstöðu til að selja þau
aftur að meira eða minna
leyti á frjálsum markaði.
Sjálfsagt er þó að tak-
marka þessa skyldu bankans,
og þykir hæfilegt, að inn-
lausnarskylda nái til allt að
20 milljónum króna.
Fyrir þinginu liggur nú
frumvarp til laga um opin-
bera aðstoð við byggingar í-
búðarhúsa í kaupstöðum og
kauptúnum. í þessu frum-
varpi felst meðal annars end-
urskoðun á lögunum um
verkamannabústaði. Frum-
varp þetta var lagt fram í
efri deild í desember s. 1. og
þá vísað til félagsmálanefnd-
ar. Nefndin hefur ekki skil-
að áliti um frumvarplð, og
mun því enn nokkur dráttur
á afgreiðslu þess. í frumvarp
þetta vantar ákvæði um láns
fjáröflun til handa bygging-
arsjóðnum, en úr því mætti
bæta í meðförum þingsins,
en þó að það verði gert, er
brýn og aðkallandi nauðsyn
að gera ráðstafanir til að
opna byggingarsjóðunum
leiðir til fjáröflunar nú þeg-
ar, svo að ekki verði tafðar
eða hindraðar þær bygging-
arframkvæmdir, sem bygg-
ingarfélögin hafa í hyggju
að hefja á þessu vori. Það er
því brýn þörf, að frumvarp
þetta fái sem skjótasta af-
greiðslu. Hver dagur er dýr
þeim, sem á byggingarfram-
kvæmdir hyggja í sumar, og
húsnæðisvandræðin eru svo
mikil, að Alþingi ber skylda
til að greiða fyrir byggingu
verkamannabústaða eftir því,
sem mögulegt er“.
Sálufélagarnir
Frh. af 1. síðu.
ráðherra reyndu að koma því
inn í kollinn á þeim Bjarna
og Gísla að frumvarpið, sem
m. a. kyeður á um samræm-
ingu 'allra skóla, er ríkið
styrkir, eitt samfellt skóla-
kerfi, væri ekki með öllu
efnisvana og þýðingarlaust.
En þeir sátu við sinn keip og
heimtaði Bjami að umræð-
unni yrði frestað, til þess að
flokkarnir fengju ráðrúrn til
að afráða, hvort það ætti
fram að ganga!
Frumvörpum milliþinga-
nefndarinnar í skólamálum;
þar með talið þetta frunwarp,
var útbýtt til allra þing-
manna fyrir ári, svo nægur
tími hefði verið til að kynna
sér málin fyrir þá sem þess
hefðu óskað. Enda var auð-
heyrt á þeim félögum, Bjarna
og Gísla, að fyrir þeim vakti
það eitt að spilla fyrir þessu
stórmerka máli og reyna að
hindra framgang þess.
GZZ2ZZZZZZZ2ZZM3ZZZZZZ22ZZZZD
Aðalfundur Verka-
lýðsfélags Hvamms-
tanga
Á aðalfundi Verkalýðsfél.
Hvöt á Hvammstanga voru
þessir feosnir. í stjórn:
Fonm-: Bjöm Guðrmmd sson.
H'tari: Þorsteinn Díómeterssi
Gjaldkeri: Skúli Magnússon.
Sveinafélagið Björg
heldur aðalfund
Sveinafélagið Björg hélt að-
alfund sinn s. 1. sunnudag. —•
£tjórn félagsins skipa:
- itristrim .Krisíjánsdóttir, for
maðnr, Amdís Þórðardóttir,
jritari. og - Borghildur Magnús-
dóttir, gjaldkeri.