Þjóðviljinn - 10.05.1946, Blaðsíða 4
ÞJÖÐVILJINN
Föstudagur 10. maí 1946
þJÓÐVILIINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — SósíalistaflokKurinn
Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson, Sigurður Guðmundsson, a .
Fréttaritstjóri: Jón Bjamason.
Ritstjórnarskrifstofur; Skólavörðustig 19. Simar 22,0 og
6509 (eftir kl. 19.00 einnig 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Áuglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Áskriftarverð; kr. 8.00 á mánuði. — Lausasolu 50 aurar
eint. .... , ,
Prentsmiðja Þjóðviljans n. 1.
æ
Tími til reikningsskila við
Alþýðublaðsklíkuna
Við kosningar þær, sem nú fara í hond, fær alþýðan
tækifæri til reikningsskila við Alþýðublaðsklíkuna, þessa
klíku, sem stjórnað hefur skemmdarverkastarfmu, sem
unnið hefur verið gagnvart verkalýðshreyfingunni a und-
anförnum árum. Það er rétt, fyrst herrarmr við Alþyðu-
biaðið gefa tiléfni til þess með rakalausum þvættmgi smum
dag eftir dag, að rifja upp aðfarir og afstöðu þessarar
klíku síðustu 4 árin.
Fyrir árslok 1941 lýsti formaður Alþýðuflokksms,
Stefán Jóh. Stefánsson, þáverandi félagsmálaráðherra
þjóðstjórnarinnar alræmdu, yfir því á Alþingi, að„engm
hætta væri a kauphækkunum". Broddarnir þóttust þa hafa
verkalýðsfélögin svo í hendi sínni að þeir gætu hmdrað
verkamenn í því að hagnýta sér afnám atvinnuleysisms til
kauphækkana.
En verkalýður íslands spurði ekki þessa forsprakka um
leyfi og þegar hann reis upp til baráttu fyrir hækkuðum
launum og 8 tíma vinnudegi, ultu þeir háu herrar ut ur
þjóðstjórn þeirri, sem þeir höfðu farið í til þess að leggja
verkalýðinn undir þrælaok gengislækkunarlaganna 1939.
Verkalýður íslands knúði fram sínar miklu kauphækk-
anir 1942—44. Alþýðublaðsklíkan stóð álengdar, horfði
með innilegri gremju á sigra verkamanna, spilti fyrir, þeg-
ar hún þorði, en var með sjálfri sér sannfærð um að með
kauphækkunum þessum væri stefnt að hrum. „Framsokn-
ar“-hugmyndirnar um hrun og öngþveiti höfðu gagnsýrt
hana svo, að í hennar augum var öll kauphækkun „mold-
vörpustarf“ kommúnista, eins og bezt kemur fram í leiðara
Alþýðublaðsins 14.' sept. 1944, sem frægur er orðinn að
endemum.
En jafn vesalmannleg og öll frammistaða þessarar
Alþýðublaðsklíku var í baráttu verkamanna fyrir kaup-
hækkununum, jafn frek var hún í að reyna að stela avoxt-
unum af baráttu verkalýðsins og stinga þeim í flokkssjoð
sinn á eftir. Er þetta vafalaust gamall vani frá því þeir
stálu Iðnó og Alþýðubrauðgerðinni.
Þó þótti þjóðinni fyrst keyra fram úr hófi, er þessir
snáðar, sem hatramast börðust gegn lýðveldisstofnuninni
17. júní 1944, ætluðu að eigna sér hana einum á eftir, er
þeir höfðu gefizt upp fyrir þjóðinni og drattazt með.
En þó virðist klíka þessi ætla að slá öll met sín nú.
Hún reynar hvorki meira né minna en að eigna sér nýsköp-
unarstjórnina og afrek hennar.
Hver er sannleikurinn um afstöðu Alþýðublaðsklík-
unnar til núverandi ríkisstjórnar og málefna hennar?
Sannleikurinn er þessi:
Alþýðublaðsklíkan barðist gegn því að nýsköpunar-
stjórnin yrði mynduð. Sýndi hún þá að henni er
alveg sama um öll áhugamál alþýðunnar: nýsköpun, al-
þýðutryggingar og annað. Þessir herrar hötuðust við alla
nýsköpunarhugmyndina, töldu hana „hræsni“, „froðu-
snakk“, „skýjaborgir", „glópsku", o. fl. álíka þokkalegt.
Vitfirrt hatur þessarar klíku á Sósíalistaflokknum var öllu
öðru yfirsterkara. Það átti að hindra stjórnarmyndunina,
hvað sem það kostaði alþýðuna, enda hafði Stefan Jóhann
SONUR ÖRÆFANNA.
Sóbríus skrifar Bæjarpóstin-
um eftirfarandi bréf um áfeng-
issöluna á Borginni:
„Fyrir nokkru dvaldi frændi
minn austan úr Öræfum hjá
mér í hálfsmánaðar t'íma. Hann
er maður um þrítugt, hæversk-
ur í framkomu og barnslega
hreinskiínislegur, eins óg títt er
um þá, sem eiga jökulinn að
vin. Kurteisi hans var t.d. ein-
kennilega „frumstæð", ef svo
mætti segja og ólík þeirri hlut-
lausu kurteisi, sem við borgar-
ibúar temjum okkur í þéttbýlinu.
Hann virtist líta á það sem
sjálfsagðan hlut að taka ófan,
þegar hann kom inn í verzlun
og þakka svo fyrir afgreiðsl-
una með handabandi, áður en
hann fór út. Og eins virtist hann
álíta það skyldu sína, að kyssa
alltaf hina ungu konu mína fyr-
ir matinn, henni til sýnilegrar
ánægju en sjálfum mér til auk-
innar afibrýðisemi.
„Jæja, en það var ekki ætlun-
in að gefa ítarlega lýsingu á
kurteisum frænda mínum austan
úr Öræfum, heldur ætlaði ég að
segja frá ofurlitlu átvik'i, sem
kom fyrir hann.
EKKERT BRENNIVIN,
BARA VISKI.
„Eitt kvöldið kom hann heim
um tólf-leytið og sagði sinar
farir ekki sléttar.
„Hann hafði brugðið sér á
Borgina með einum kunningja
sínum og sveitunga. Eins og
slíkra manna er siður, fengu
þeir sér sæti á afviknum stað
og biðu átekta.
„Innan stundar kom þjónn-
J 7
; inn til þeirra og apurði, hvað
þeim þóknaðist, takk. Þeir höfðu
löngu áður komið sér saman um
pöntunina og báðu um tvo
brennivíns-sjússa, takk. Þjónn-
inn virtist hlssa, næstum móðg-
aður, er hann heyrði þetta og
sagði, að hér fengist ekki brenni
vín. Kom nú fát á Öræfabúana,
því þeir töldu sig hafa gerzt
brotlega við kurteisisreglur þess
arar göfugu stofnunar, og mun-
aði minnstu, að þeir misstu
kjarkinn og hættu við allt sam
an. En þá varð það þeim til
happs, að verið var að hella
brúnleitum vökva í glös á næsta
borði og báðu þeir um tvo
sjússa af sama vökva. Reikning
urinn, sem þeir svo fengu
hljóðaði upp á tvo viskí-sjússa
og sóda kr. 17.50, takk.
„Þessi frásögn frænda míns
austan úr Öræfum varð til þess,
að ég fór að grennslast eftir
því, hvemig áfengissölu væn
hátiáð á þeim mikið umtalaða
stað, Hóteí Borg, og hef ég það
eftir ólygnum mönnum, sem
þekkja vel til þessara mála, að
þar sé af sterkum drykkjum ein-
göngu selt viskí, gin og ákaviti
á svonefndri reistórasjón, en
á böllum fáist ekki annað cn
I viskí og gin.
„Vil ég svo að endingu biðja
Bæjarpóstinn að spyrjast fyrir
um ástæðuna fyrir þessúm furðu
legu ráðstöfunum.
Sóbrius“.
HVER ER ÁSTÆÐAN?
Bæjarpósturinn gefur þessa
skýringu frá eigin brjósti. Viskí
og gin eru miklu dýrari drykkir
en ákavíti og brennivín. Þegar
þjónninn því selur viskí og gin
fær hann miklu meiri drykkju-
peninga í eigin vasa, en þegar
hann selur ákavíti og brenni-
vín, auk þess sem stofnunin
græðir þá líka meira. Þessvegna
eru eingöngu á boðstólum hinir
dýrari drykkir. Ber þetta vott
um ógeðfelldan eiginleika, sem
margir hafa tileinkað sér nin
síðari ár og nefnist: ágirnd.
Þess skal svo getið, að ef yfir
völd Hótel Borg hafa aðra skýr-
ingu fram að færa, þá mun henni
fúslega veitt rúm hér i dálkun-
um, hvenær sem er.
KLEFALÆSINGIN er
ÓTRYGG. „THE LOCKER
IS UNSAFE“.
Annað bréf hefur Bæjarpóst-
urinn fengið frá Sundhallar-
gesti:
„Eg er einn þeirra manna, sem
ganga með þá dellu að baða r-ig
daglega, og tel ég mig ekki á
annan hátt geta uppfyilt þær
kröfur um hreinlæti, sem gera
verður til manna á 20. öldinni.
Þess vegna fer ég í Sundhöllina
á hverjum degi og þykist meiri
maður fyrir.
„Eg kann vel við mig í Sur.d-
höllinni. Hún er ein sú stofnun
hér á landi, sem ber glæsileg-
an vott um vaxandi menningu
þessarar þjóðar .engú síður cn
Háskólinn og aðrar slíkar stofn-
anir. Fyrirkomulag hennar og
starfslið er líka allt með ágæt-
lofað Heraianni því. Þessvegna barðist Alþýðublaðsklikan
eins hatramlega og hún gat gegn þeim sattmala, sem
ríkisisstjórnin nú starfar samkvæmt.
Alþýðublaðsklíkan barðist gegn stjórnarmyndun, þótt
ailt það, sem nú er framkvæmt, að alþýðutryggingunum
ekki undanteknum, fengist fram. — En þegar svo var
komið að nokkrir menn í miðstjórn Alþýðuflokksms voru
hræddari við að leggja út í kosningar, eftir að hafa neitað
endurbótum á alþýðutryggingunum og öðrum góðum mál-
um, en að ganga til samstarfs við „íhald og komma“, þá
æxlaðist það svo í miðstjórn Alþýðuflokksins að 4 menn
sátu hjá, svo að minnihluti miðstjórnar, 11 menn, fengu
það samþykkt að mynda stjórnina, gegn atkvæðum 10
manna og voru þeir Stefán Pétursson, Sigurjón Á. Ólafs-
son og aðrir æstustu kommúnistaf jendur þar í broddi fylk-
ingar í baráttunni gegn stjórnarmyndun um nýsköpun
atvinnulífsins, endurbætur alþýðutrygginganna, launalag-
anna o. fl. Atkvæðið sem réð úrslitum var atkvæði Finns
Jónssonar á ísafirði og varð hann ráðherra.
Alþýðublaðsklíkan gerði allt, sem hún gat til þess að
eyðileggja stjórnarmyndunina, hindra nýsköpunina, endur-
bætur á alþýðutryggingunum og allt, sem ríkisstjórnin
nú hefur framkvæmt. Henni tókst ekki að vinna þetta
skemmdarverk, sökum þess að f jórir menn í miðstjórn Al-
þýðuflokksins þorðu ekki annað en sitja hjá í einni örlaga-
ríkustu atkvæðagreiðslu þess flokks, þorðu ekki annað af
ótta við dóm fólksins.
Alþýðublaðsklíkan hefur á undanförnum fjórum árum
reynt að hindra kauphækkanir verkalýðsins, reynt að
koma í veg fyrir stofnun lýðveldisins, reynt að hindra
myndun nýsköpunarstjórnarinnar. Henni hefur mistekizt
þetta allt saman. En þegar aðrir hafa leitt þessi mál til
sigurs þrátt fyrir hennar skemmdarverk, þa hafa þessir
stærstu pólitísku málefnaþjófar á íslandi ginið yfir ávöxt-
unum og ætiað að gleypa þá alla.
Það er tími til kominn að þessi klíka fái sinn dóm og
sé endanlega svift möguleikunum til skemmdarverkanna.
„En samt er eitt atriði, sém
ég tel þurfa lagfæringar við. I
hverjum klefa gefur að líta svo-
látandi aðvörun: Klefalæsingin
er ótrygg. Það er ekki nema
gott og blessað, að menn fái, að
vita það, áður en þeir fara oni,
að hver sem er getur því nær
óhindrað gramsað í vösúm
þeirra, meðan þeir eru að synda
sér til hressingar, en þessi ráð-
stöfun er samt næsta hæpin. —
Setjum svo, að þjófgefinn mað-
ur vilji fá sér bað í Sundhöil-
inni. Það fyrsta sem hann rek-
ur augun í, þegar hann kemur
í klefa sinn, er skrifleg yfirlýs-
ing um það frá Sundhallar-
stjóra, að hann geti með lítilJi
fyrirhöfn brotizt inn í klefa ná-
ungans og stolið frá honum
hverju sem er, jafnvel fötunum,
ef svo ber undir. Að vísu dr
vörðurinn oftast staddur á göng
unum, en ekki hefur hann aug-
un allsstaðar.
„Þessi þjófnaðar-invítasjón er
svo líka höfð á ensku; „The
locker is unsafe“, en það gerir
víst minna tií, því ef trúa má
pýramídanum hans Jónasar
Guðmundssonar, eru enskumæl-
andi þjóðir áreiðanlega ekki
nærri eins þjófgefnar og þær,
sem tala íslenzku, rússnesku eða
önnur álíka ómöguleg tungumál.
„Sem Sundhallargestúr krefst
ég þess, að nýjar og öruggar læs
ingar verði settar á hurðir klef-
anna, og jafnframt vil ég mæl-
ast til þess að upplýsingarnar
um tilgangsleysi núverandi iæs-
inga verði teknar niður hið bráð-
asta“ Sundhallargestur.
Munið
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16