Þjóðviljinn - 28.06.1946, Page 6
6
ÞJÖÐVÍLJINN
Föstudagur 28. júní 1946.
Unglinga vantar
til að bera Þjóðviljann til kaupenda
í Austur- og Vesturbæinn.
Við sendum blaöið heim til baranna.
Þjóðviljinn.
------------------------------
Símar C-listans eru:
1096, 4757 og 4824
______________________________
Sölubörn óskast
til að selja Kosningahandbókina
Afgreidd í afgreiðslu Þjóðviljans •
J
Skólavörðustíg 19.
Há sölulaun
l_______________________________________
Hreðavatn
Við leyfum oss að vekja athygli vegfarenda
á að við höfum keypt Hreðavatnsskálann af
Vigfúsi Guðmundssyni gestgjafa og hefur
hanh ekki verið fluttur, heldur stendur á
sama stað og áður, þótt V. G. reki nú annan
skáta undir þessu firmanafni í annari land-
areign.
Við starfrækjum því í sumar
Veitingaskálann á Hreðavatni
imdir forstöðu þekkts og vinsæls veitinga-
■‘ihanns, Einars Magnússonar frá Akranesi.
Skálinn er fyrsta flokks landssímastöð
og verður áherzla lögð á góðar veitingar og
fljótá afgreiðslu. — Tjaldstæði fást leigð á
fögí;'um stöðum í Hreðavatnslandi.'
Virðingarfyllst
Hótel Hreðavatn hi.
BLUE
ilLLETTE
BLADES
Verð kr. 1.75
pakkinn með
5 blöðum.
Þa$ eru milljónir manna
un|- gjörvallan heim, sem
eiga GILLETTE að <.JVG -
þakka sparnað, flýti og
bægindi við dagle^an rakstur. GILLETTE
blöð eru öllum öðrum rakblöðum fremri.
GRfíHm GREÍfíE
Hrxhslumélaráhuneylih
„Viljið þér hafa mig af-
sakaðan eitt augnablik?“
sagði herra Rennit. „Eg held
að samstarfsmaður minn
hafi verið að koma.. . “ Hann
stóð upp frá borðinu og þeytt
ist síðan út um dyrnar fyrir
aftan Rowe með ótrúlegum
hraða Rowe sat með hend-
urnar milli hnjánna og reyndi
að fá aftur vald á heila sín-
um og tungu.. . Hann heyrði
bjölluhljóm í næsta herbergi
og leit við. Herra Rennit var
við símann. Hann leit ótta-
sleginn á Rowe og síðan á
pylsubitann eins og það væri
eina vopnið sem hann næði
til.
„Eruð þér að hringja í lög-
regluna?" spurði Rowe. „Eða
í lækni?“
„I leikhús,“ sagði herra
Rennit í örvæntingu, „ég
mundi allt í einu eftir því að
ég lofaði konunni minni.. . ‘
„Eruð þér giftur, þrátt fyr
ir alla aðra reynslu?" -
„Já.“ Herra Rennit svelgd-
ist á þegar veik rödd heyrð-
ist í símanum. Hann sagði.
„Tvö sæti — í fremstu röð,“
og skellti heyrnatólinu á aft-
ur.
„Var þetta leikhúsið."
„Það var leikhúsið.“
„Og þér voruð ekki einu
sinni spurður að nafni? Reyn
ið þér nú að taka sönsum,“
sagði Rowe. „Eg varð að
segja yður frá þessu. Þér
urðuð að heyra allar stað-
reyndir. Annað hefði ekki
verið heiðarlegt. Það yrði að
taka það til athugunar, ekki
satt, ef þér ætlið að vinna fyr
ir mig.“
„Til athugunar?“
„Eg á við — það gæti skipt
máli. Það uppgötaði ég þeg-
ar mál mitt var rannsakað
— að allt getur skipt máli.
Líka það að ég borðaði ein-
hverntíma hádegisverð aleinn
á Holborn veitingahúsinu.
Hvers vegna var ég einn ?
spurðu þeir mig. Eg sagðist
stundum vilja vera einn, og
þér hefðuð átt að sjá hvern-
ig þeir kinkuðu kolli til kvið-
dómsins. Það skipti máli.“
Hendur hans byrjuðu aftur
að titra. „Eins og ég vildi
raunar vera einn alla ævi.. . “
Herra Rennit ræskti þurr-
ann hálsinn.
„Meira að segja sú stað-
reynd að konan mín átti
fugla.. . “
„Þér eruð þá giftur?"
„Það var konan mín sem
ég myrti.“ Honum gekk illa
að segja frá hlutunum í
réttri röð: fólk ætti ekki að
spyrja ónauðsynlegra -spurn-
inga; hann hafði sann^rlsga
ekki hugsað sér að láta herra
Rennit bregða aftur. Hann
sagði. „Þér skuluð ekki hafa
neinar áhyggjur af því. Lög-
reglan veit allt um þetta.“
„Voruð þér dæmdur?“
„Eg var settur á hæli fyrir
náð Hans Hátignar. Það stóð
ekki lengi;; ég var ekki brjál
aður sjáið þér til.“ Hann
sagði með viðbjóði. „Þeir
kenndu í brjósti um mig,
þess vegna er ég lifandi. Blöð
in kölluðu það öll meðaumkv
unardráp." Mann hreifði
höndina fyrir framan andlit-
ið eins og hann væri að
banda frá kóngulóarvef.
„Meðaumkvun með henni eða
meðaumkvun með mér. Þeir
sögðu ekkert um það. Og ég
veit það varla sjálfur.“
„Eg er hræddur um,“ sagði
herra Rennit og svelgdist á í
miðri setningu, hann gætti
þess að hafa stól á milli
þeirra. „Eg get eigi tekið að
mér.. . Það er ekki • á mínu
sviði.“
„Eg skal borga meir,“
sagði Rowe. „Það er merg-
urinn málsins, eða hvað?“
og strax og hann fann á-
fergjublæ í litlu, rykugu her-
berginu, yfir hálfétnum
pylsubita og undirskál og
rifinni símaskrá, vissi hann
að hann hafði hitt naglann
á höfuðið. Herra Rennit hafði
þegar öllu var á botninn
hvolft ekki efni á að gera
kröfur. Rowe sagði, „það er
líkt með morðingja og aðals-
menn: þeir verða að borga
meir vegna titilsins. Maður
vill helzt ferðast ókunnur, en
það kemst venjulega upp.. . “
ÞRIÐJI KAFLI
Beint af augum
1.
Rowe fór beint frá Orthot-
ex til Hinna Frjálsu Mæðra.
Hann hafði skrifað undir
samning við herra Rennit um
að borga honum fimmtíu
pund á viku í f jórar vikur til
þess að leysa rannsóknirnar
af hendi: herra Rennit hafði
skýrt honum frá því að kostn
aðurinn mundi verða mikill
— Orthotex hafði aðeins
hina reyndustu starfsmenn í
þ jónustu sinni — og eini
starfsmaðurinn sem honumj
hafði verið leyft að sjá áður
en hann færi var vissulega
reyndur. (Herra Rennit
kynnti hann sem A. 2, en áð-
ur en langt um liði varð hann
utan við sig og ávarpaði
hann Jones). Jones var lítill
og óálitlegur við fyrstu sýn,
með þunnt, hvasst nef, mjúk-
an, brúnan hatt með óhreinu
bindi, í gráum fötum sem
höfðu sennilega verið allt
öðru vísi á litinn fyrir nokkr
um árum og blýant og penna
í brjóstvasanum. En liti mað
ur á hann í annað sinn sást
að hann var reynduf: það
sást í litlum, lævíslegum dá-
lítið óttaslegnum augum
hans, veikum, þrjózkulegum
munni, kvíðahrdkkum á enni
— reynsla um óteljandi hót-
elganga, um vinnukonur, sem
KOSNINGASJÓÐURINN
ÞAÐ GEFST VEL
AÐ HEITA A
KOSNINGASJÓÐINN
Maður nokkur kom á kosn-
ingaskrifstofuna í gær með
hvorki meira né minna en tvö
þúsund krónur, sem hann
kvað vera áheit á sjóðinn. —
Það er hvort tveggja, að hér
hefur þurft mikils með, enda
brást sjóðurinn vel við áheit-
inu . — Það er sagt, að lieild-
salar telji ekkert fé eins arð-
bært og það, sem þeir leggja
í kosningasjóð ílialdsins, svo
mikið græði þeir á völdum
Sjálfstæðisflokksins. Því meira
sem alþýðan styður Sósíal-
istaflokkinn, því meira græðir
liún, en því minna græða
heildsalarnir.
26. júní 27. júní
deild deild
12. 12.
16. 16'.
21. a 21.a
1. 21.b
19. 19.
21b 1.
3. 3.
10. 20.
9. 10.
22. 9.
8. 22.
23. 8.
6. 23.
26. 6.
20. 26.
11. 11.
15. 2,
27. 25.
2. 27.
28. 15.
18. 28.
7. 17.
25. 18.
14. 7.
17. 4.
4. 14.
5. 5.
FYLGJENDUR
SÓSIALISTAFLOKKSINS!
Við treystum þyí að þið
leggið ykkar skerf í kosninga-
sjóðinn og sýnið á þann hátt
skilning ykkar á málefnum
flokksins.
Sósíalistaflokkurinn hefur
ekki í annað hús að Ieita en
til ykkar uin fjárhagslegan
stuðning. Aðrir flokkar geta
látið örfáa menn bera uppi
kostnaðinn af sinni starfsemi.
Dragið ekki að leggja eitt-
hvað af mörkum en komið á
kosningaskrifstofuna að ÞÓRS
GÖTU 1 ef ekki hefur ennþá
verið leitað til ykkar af flokks
mönnum.
BíLAR á KJÖRDAG.
Þeir fylgjendur Sósíalista-
flokksins, sem vilja og geta
lánað flokknum einkabíla á
kjördag eru vinsamlega beðn-
ir að tilkynna það sem allra
fyrst í kosningaskrifstofuna
að Þórsgötu 1, símar 1096 og
4824.
Kjósendur, sem fara úr
bænum mega ekki gleyma að
citt atkvæðí getur þýtt éinn
þingmaður. — Gleymið þess
vegna ekki að kjósa áður en
þið farið úr bænum.
Ilvetjið kjósendur flokksins
utan af landi, sem hér eru
staddir til að kjósa strax í
Miðbæjarbarnaskólanum.
■>_.........................J