Þjóðviljinn - 27.08.1946, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 27.08.1946, Blaðsíða 6
ÞJÖÐVTLJINN Þriðjudagur 27. ágúst 1946. Ráðvandur piltur óskast sem SENDISVEINN í Utanríkisráðuneytiö GRfíURm OREEfíE Hræbshméhréhme^lih Vantar krakka strax til að bera blaðið til kaupenda við Miðbœinn Þingholtsstrœti Seltjarnarnes. Við sendum blaðið heim til barnanna ÞJÓÐ VILJINN Skólavörðustíg 19 — Sími 2184. Nafn: . Heimili: Matvælageymslan hi. Pósthólf 658, Undirritaður óska að taka á leigu til eins ^ árs — geymsluhólf. — Evrópumeistaramótið Frh. af 3. síðu. dyrst og fremst þoim sem fara ■•■c-g keppa. Því næst þeim mörgu góðu efnum, sem heima sátu, eða ekki voru í .fkeppninni. Má hér vitna í sundmennina og síðasta leik -%natt5pyrnumannanna. Þetta sætti að vera fleirum hvöt. Þessar keppnir ættu að hafa æannfært marga um það að í- ^rróttir eru ekki hégómi og leikaraskapur, og vonandi iaefur- íþróttahreyfingunni ♦rætst þar álitlegur hópur, gpm hún _ má_eiga._ von á að rstydci og efli málstað hennar. -Hvetji fólk til að iðka íþrótt- — Beini • æskufólkinu til ^mMra-leikja til að svala leik- sinni. Þá ætti þetta ekki sízt að ■-Aíar-—þeim hvatning sem iÉCr-akyida- til að skapa fólk- <kiu aðstöðu til að geta stundað íþróttir, en það eru hinir opinberu aðilar á hinum ýmsu stöðum. Það er þáttur þess opinbera, til þessa upp- eldisstarfs, hion þáttinn leggja áhugamennirnir til endurgjaldslaust, er þetta því sanngirniskrafa. I öllum menningarlöndum er það orðin krat’a fólksins að íþróttafólkinu sé séð fyrir viðunandi skilyrðum til í- þróttaiðkana. Það sýnir sig að okkar íþróttafólk á fullkom- lega skilið að búa við aðlað- andi og góð skilyrði. ! liggur leiðin Síðan Rowe kom aftur til Lundúna höfðu margar end- urminningar komið aftur á sinn stað — þessi kirkja og þessi búð, hvermg Piccadilly og Knightsbridge. mættust. Hann tók varla eftir því þeg- ar þær komu á sinn stað, eins og þekking heillar ævi. En það voru aðrar endurminn- ingar, sem urðu að berjast hörðum bardaga til að kom- ast að: einhvers staðar í huga hans áttu þær sér vin sem vildi loka þær úti — og heppnaðist það oft. Veitinga- hús og götuhorn og búðir birtust honum snögglega með kunnuglegu yfirbragði, og hann leit undan og flýtti sér burt eins og þar hefði orðið hörmulegt slys. Maðurinn, sem ávarpaði hann var í þess- um hópi, en það er ekki hægt að skunda burt frá manni á sama hátt og hægt er að skunda burt frá búð. „Seinast, þegar ég sá þig varstu ekki með skegg. Þú ert Arthur, er það ekki?“ „Jú, Arthur Rowe.“ Maðurinn virt.ist undrandi og sár. Hann sagði: „Það var fallega gert af þér að líta inn seinast-“ ,,Eg man ekki eftir því.“ Sársaukasvipurinn dökkn- aði eins og meiðsli. „Daginn sem jarðarförin var.“ Rowe sagði: „Því miður. Eg hef orðið fyrir slysi: ég missti minnið. Hlutar a f því eru rétt aðeins að koma aftur. Hver ert þú?“ „Eg er Henry — Henry Wilcox.“ „Og ég kcm hmgað — við einhverja útför.‘ „Konan mín fórst. Eg geri ráð fyrir að þú hafir lesið um það í blöðunum. Hún fékk heiðurspening- jEg var dálítið leiður á eftir vegna þess að þú baðst mig að kaupa af þér ávísun og ég gleymdi því. Þú skilur hvernig það er við slík tækifæri: maður hefur um svo margt að hugsa. Eg geri ráð fyrir að ég hafi verið óró- legur líka.“ „Hvers vegna var ég þá að ónáða þ:g?“ „O, þér hlýtur að hafa leg- ið á því. Eg steingleymdi því — og svo hugsaði ég: ég hitti hann á eftir. En ég hitti þig ekki aftur.“ Rowe leit á húsið fyrir ofan þá. „Var það hérna?“ „Já.“ Hann leit yfir götuna að garðshliðinu: maður að gefa máfum; skrifstofumaður gekk fram hjá með skjalatösku; vegurinn marraði ofurlítið undir fótum hans. Hann ságði „Var líkfylgd?“ „Varðliðið mætti allt. Og lögreglan og sjúkrasveitin-“ Rowe sagði; „Já. Eg gat ekki farið í bankann að selja ávísunina. Eg héít að lögregl- an áliti mig vera morðingja. En ég varð að fá peninga ef ég ætti að komast burt. Þess vegna kom ég hingað. Eg vissi ekkert um jarðarförina. Eg hugsaði ekki um annað en þetta morð.“ „Þú hugsar cf mikið um þetta“, sagði Henry. „Gert er gert,“ og hann ieit með björt- um svip á veginn sem lík- fylgdin hafði gengið. „En þetta var aldrei gert, sjáðu til- Eg veit það nú. Eg er ekki morðingi,“ sagði hann „Auðvitað ertu það ekki, Arthur. Enginn vinur þinn — enginn sannur yinur — ti'úði því nokkurn tíma að þú vær- ir það.“ „Var svq»« mikið talað um það?“ „Ja auðvitað.....“ „Það vissi ég ekki.“ Hann beindi huga sínum inn á aðra braut: meðfram hafnargarð- inum — vonleysiskennd og síðan litli maðurinn að gefa fuglunum, ferðataskan ....... hann missti af þræðinum, þar til hann mundi eftir andlit- inu á afgreiðslumanninum á hótelinu, og síðan gekk hann eftir endalausum göngum, dyr opnuðust og þar var Anna. Þau voru saman um hættuna — hann ríghélt sér við það. Það nlaut að vera einhver skýring. Hann mundi að hún hafði sagt honum að hann hefði bjargað lífi henn- ar. Hann sagði stuttaralega: „Jæja, vertu sæll- Eg verð að halda áfram.“ „Það þýðir ekkert að harma alla ævi,“ sagði Henry „Það er sjúklegt.“ „Já. Vertu sæll.“ „Vertu sæll.“ íbúðin var á fjórðu hæð. Hann óskaði þess að stigarn- ir tækju aldrei enda og þegar hann hringdi bjöllunni von- aði hann að íbúðin væri mannlaus..... Tóm -mjólkur- flaska stóð fyrir utan dyrn- ar á litlum, dimmum stiga- -pallinum; það lá seðill á henni: hann tók hann upp og las hann —- „Aðeins hálfan pott á morgun.“ Dyrnar opn- uðust meðan hann hélt ennþá á honum í hendinni, og Anna sagði vonleysislega: „Ert það þú.“ _ „Já, það er ég.“ „í hvert skipti sem bjallan hringdi var ég hrædd um að það værir þú.“ „Hvernig hélztu að ég mundi finna þig?“ Hún sagði: „Þú gazt alltaf leitað til lögreglunnar. Hún hefur skristofuna undir eftir- liti nú.“ Hann gekk á eftir henni inn. Það var ekki á þennan hátt sem hann hafði einu sinni í- myndað sér — í álögum hins einkennilega ævintýris — að hann mundi hitta hana aftur. Nú hvíldi mikill þungi á þeim báðum. Þegar dyrnar luktust fannst þeim þau ekki vera ein- Það var eins og alls konar fólk sem þau þekktu bæði væri hjá þeim. Þau töl- uðu í hálfum hljóðum eins og þau vildu ekki trufla. Hann sagði: „Eg náði í heimilisfang þitt með því að horfa á fing- ur Costs þegar hann hringdi —• þegar hann hrmgdi til þín rétt áður en hann drap sig.“ „Þetta er hræðilegt," sagði hún. „Eg hafði ekki hugmynd um að þú værir þar.“ „Fyrir mitt leyti hef ég alls enga von um það.“ Þetta sagði hann. „Alls enga von.“ Þau stóðu í litlu, Ijótu, troðfullu anddyri eins og það væri ekki ómaksins vert að halda lengra. Það líktist frem ur skilnaði en endurfundum — skilnaði sem var of sorg- legur til að eiga neina töfra. Hún var í sömu blau síðbux- unum og hún hafði verið í á hótelinu: hann hafði gleymt því hve grönn ’nún var. Hún var með klút hnýttan um hálsinn og var innilega til- gerðarlaus- Allt í kringum þau voru látúnsbakkar, steik- arpönnur, glingur, gömul eik- arkista, svissnesk gauk- klukka með þungum útskorn- um listum. Hann sagði: „I gærkvöld var ekki sérlega skemmtilegt heldur. Eg var líka viðstaddur. Vissirðu að doktor Forester er dauður og Poole?“ „Nei.“ Hann sagði: „Ertu sorgbitin — eftir þetta blóðbað á vin- um þínum?“ „Nei,“ sagði hún, „ég er fegin.“ Það var þá sem hann fékk von aftur. Hún sagði •blíðlega: „Þetta er allt sam- an á ringulreið í höfðinu á þér, veslings höfðinu á þér. Þú veizt ekki hverjir eru vin- ir þínir og hverjir eru óvin- ir þínir. Það er þeirra aðferð, er það ekki?“ „Þeir notuðu þig til að gæta mín, var það ekki. þarna hjá doktor Forester, til þess að fylgjast með því hve- nær minnið færi að koma aftur? Síðan hefðu þeir sett mig á geðveikradeildina eins og aumingja Stone.“ „Þetta er bæði rétt og rangt,“ sagði hún þreytulega- „Eg geri ekki ráð fyrir að við getum nokkurn tíma greitt úr því úr þessu. Eg vildi ekki frekar að þú fengir minnið aftur en þeir- Eg vildi ekki að þú yrðir fyrir áfalli.“ Hún sagði með hvössum kvíða; „Manstu allt nú9“ „Eg man ma-rgt og hef kom izt að mörgu. Nægilega mörgu til að vita að ég er ekki morðingi." „Já,“ sagði hún, .„auðvitað. Eg vissi það. Eg átti bara við — ó, að ég er svo fegin að þú veizt það.“ Hún sagði hægt: „Eg vil að þú sért ham- ingjusamur. Þanaig átt þú að vera.“

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.