Þjóðviljinn - 05.09.1946, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 05.09.1946, Qupperneq 8
Lofttappinn sem olli vatnsleys inu í hænum Sjálfstæðisflokkurinn hefur gefið óvinum ný- sköpunarinnar vald til að tefja og hindrá mikil- væga þætti hennar Vatnsveitustjórinn hefur nú gefið skýrslu um aðgerðir sínar til að ráða bót á vatnsleysinu. Skýrir hann fyrst frá, hvernig leitað var ýmissa orsaka en án árangurs, og segir svo: ,,Það e'na sem þá var eftir og orsakað gat slíka truflun. var, að nikill lofttappi hefði komizt í leiðsluna. Þetta átti þó ekki að vera mögulegt á þessum kafla, því samkvæmt teikningu frá árinu 1924, en pípan var lögð árið áður, áttu ekki að vera neinir loftpokar á honum, heldur átti honum iað halla öllum í rétta átt. — Þrír loftpokar voru ofar á leiðslunni, en á þeim öllum voru loftstútar, sem raunar sýndu, að ekkert loft var þar í pípunni. Það var þó ekki um annað að gera, en að rengja að pípan lægi samkv. teikningu og reyna að láta sér detta í hug, hvar loft gæti verið í pípunni á þess- um kafla. Þetta varð þó ekki igert nema með ágizkun eða líkum, því pípan er hvergi „Þrátt fyr'r það, þótt vatn- ið sé nú með mesta móti mið að við það, sem áður var, er enn full ástæða til að fara sparlega með vatnið og ég tel ekki rétt að létta vatnsbann- inu af bílaþvottastöðvunum að svo stöddu. Meðan vatnsborðið er svona lágt í Gvendarbrunn- um, er nokkur hætta á, að loft geti aftur komizt inn í pípuna, en nú þegar v'ð vit- um, hvar þess er að leita, og. lofthanar eru á pípunni á þeim stöðum, á slíkt ekki að valda truflunum- nema skamma stund, og starfsmenn vatnsveitunnar fylgjast dag- lega með vatnshæðinni í Gvendarbrunnum og geym- unum á Rauðarárholti og vita hvað gera á, ef svona truflun kemur fyrir aftur. — Það má því vænta þess, að ástandið geti haldizt svipað og nú er, þangað til lagningu nýju æðarinnar er lokið.“ f langri og alleinkennilegri grein ssm Jón Pálmason ritar í Morgunblaðinu nú í vikunni, og | nefnist „Ríkisstjórnin og þjóðfé- lagið“, segir m. a. um fram- kvaemd nýsköpunarinnar: „Ef að þeir hrunstefnumenn, sem alltaf hafa spáð ófarnaði og óska þess að spádómarnir rætist, fá nokkur álirif á stjórn Iands- ins, þá er ills að vænta“. Jón getur snúið þessu beint til flokks síns, Sjálfstæðisflokksins, því það er sá flokkur sem ber ábyrgð á því að aðaSforingi hrun stcfnumannanna, Jón Árnason, var gerður að bankastjóra Lands bankans, og þar með gefin völd til að tefja og liindra fram- kvæmd mikilvægra þátta nýsköp unarinnar, sem hann og kollegar hans í Landsbankaklíkunni hafa svikalaust gert. ! Sjálfstæðisflokkurinn hefur með því óheillabragði og fleirum, t. d. með því að fá aðalóvinum nýsköpunarinnar framkvæmdina á lögunum um stofnlán sjávarút- vegsins, unnið slík skemmdar- verk gegn nýsköpuninni, að eftir ber- Eg lét nú grafa niður á píp una á fjórum stöðum og bora á hana göt. Kom allsstaðar mikið loft úr henni, en þó sérstaklega á tveim stöðum. Á öðrum staðnum var raunar ekki hægt að ná öllu loftinu úr pípunni, nema með sér- stökum ráðstöfunum, sem þó skal ekki lýst nánar hér. Er skemmst af því að segja, að eftir að búið var að bora á pípuna á þessum fjórum stöð (um og ná loftinu úr henni, gjörbreyttist ástand'ð svo, að vatnsgeymarnir á Rauðarár-1 holti fylltust um næstu helgi, og rann upp úr þeim tvo ^ morgna í röð. Síðan hefurj jafnan verið hátt í þeim á; hverjum morgni og um síð-! ustu helgi rann einnig upp i úr þeim. Orsakir þess, að svona I mikið loft hefur komizt í pípuna, eru lágt vatnsborð í | Gvendarbrunnum: samfara mikilli vatnsnotkun í bæn- um. Vatnsborð er nú lægra í Gvendarbrunnum en verið hefur í .mörg ár. Stafar það af þurrkunum í vor og sum- ar, en þó ekki hvað sízt af þeim sökum, að vegna vinnu! við hina nýju aðalæð, varð j að tæma allt vatn úr uppi-! stöðu Rafmagnsveitunnar á Elliðavatnsengjum, og hafa! þær staðið þurrar í sumar“. | Að lokum segir hitaveitu-1 stjóri; Telpa slasast á Raufarhöfn Það slys vildi til á Raufar höfn í gærkvöld, að 10 ára telpa varð fyrir vörubifreið og meiddist töluvert. Var hún flutt í sjúkrahús- jð á Akureyri. Bifreið ekur í skurð í fyrrinótt ók bifreiö ofan i djúpan skurð á mótum Laugavegs og Lauganessvegs. Hafði skurður þessi nýlega verið grafinn, en engin ljós- merki verið sett við hann. — Var nokkuð skuggsýnt þarna. enda þótt götuljós væri þar skammt frá. Mun bifreiðar- stjórinn hafa ætlað að víkja undan bifreið sem ók með ljósum á móti honum, en lent þá í uppgreftri úr skurðinum og misst stjórn á bifreiðinni um leið. Lítur því út fyrir að óhapp þetta hafi orsakazt af því al- genga, en mjög svo vítaverða hirðuleysi, að setja ekki alls- staðar upp ljósmerki við skurði og uppgröft á akveg- um hér í bænum. Flugfarþegar F. I. voru rúm 8 þúsund s. 1.8 mánuði Síðastliðna 8 mánuði hafa flugvélar Flugfélagsins flutt 8585 farþega, innanlands og til útlanda. Flogið hefur verið innan- lands með 7 þús. farþega og 5 þús. kg. flutning. Á sama tíma í fyrra var flogið með 7700 farþega, hér innan- lands, í flugvélum félagsins. 27. maí hóf félagið milli- landaflug, og hafa verið farn, ar alls 44 flugferðir til þessa, á leiðinni Rvík—Prestwik— Kaupmannahöfn. 29 ferðir milli Rvíkur og Kaupmanna- hafnar og 15 til Prestwik, með samtals 1200 farþega og 3230 kg. flutning. Er á- kveðið að halda þeim ferðum áfram. þau er fjarstæða að telja að Sjálfstæðisflokkurinn standi heill að nýsköpunarstefnunni, ekki einu sinni sá hluti hans, sem stjórnina styður. # Það eru vcrk Sjálfstæðisflokks I ins, sem hann verður dæmdur eftir en ekki sjálfshólgreinarn- ar í Morgunblaðinu. niiig Kaj Smith endortokin Eftir hina eftirtektar- verðu danssýningu sem Kaj Smith hélt með nemendum sínum úr dansskóla hans í Sjálfstæðishúsinu í sl. mán- uði, þar sem hann sýndi ballet og samkvæmisdansa m. m., hefur hann nú vegna margra áskorana ákveðið að endurtaka þessa listsýningu föstudaginn 6. sept. kl. 9 e. h. — Dansleikur hefst kl. 10 og stendur til kl. 2. Drengur slasast í bílferð Það slys vildi til við Ytri Rangá sl. þriðjudag að drengur, sem var að fara í bíl yfir brúna, meiddist á höfði. Var hann bílveikur, og hafði stungið höfðinu út um glugga bifreiðarinnar en rakst þá á brúarhandriðið. Drengurinn heitir Birgir Eyþórsson og á heima á Kambsvegi 31. Var hann fyrst skilinn eftir á Hellu, en síðan sóttur þangað í sjúkra bifreið og fluttur heim til sín. Norska Nasjonalgalleriet kaupir mál- verk eftir Soorra Arinbjarnar Snorri Arinbjamar. Listasafnið í Osló, Nasjonalgalleriet, hefur keypt eina mynd úr íslenzku deildinni á málverkasýningunni í Osló. Var það málverk Snorra Arinbjarnar, „Hús við haf- ið“, sem varð fyrir vali hinna vandlátu dómara, sem velja myndir fyrir Nasjonalgallerí Norðmannanna. Mynd þessi var í eigu Ás- geirs Júlíussonar, teiknara, og fyrir milligöngu Vilhjálms Finsen, sendiherra, og Fé- lags íslenzkra myndlista- manna lét Ásgeir hana góð- fúslega af hendi við Nasjon- algalleriet. Vilhjálmur Finsen benti á í bréfi sínu til félags mynd listamanna, að með beiðni þessari væri íslenzkum lista- manni sýndur mikill lieiður, og cnda er þetta sennilega fyrsta íslenzka málverkið, sem norska Nasjonalgaller- iet kaupir. Mynd Snorra „Húsi, við haf ið“ er máluð 1944 og var á síðustu sýningu hans hér. Bræðslusíldarmagnið 1 millj. 165 þús. hektólítrar I Síldarsöltunin 140 þús. tunnur Dagný, Gunnvör og Narfi aflahæstu skipin Síðastliðið laugardagskvöld nam bræðslusíldar- afli allra síldveiðiskipanna, samtals 1.164.921 hl. 2. sept 1944 var bræðslusíladraflinn nokkru meiri, eða 1.861.216 hektólítrar, en 1. sept í fyrra aðeins 463.238. Á laugardaginn var búið að salta í 139.930 tunnur samtals á öllum söltunarstöðvunum. 1 fyrra, 1. sept., var búið að salta í 58.606 tunnur, en 27.507, árið 1944. Þrjú aflahæstu skipin eru: Dagný, Siglufirði, með 13 748 mál í bræðslu og 817 tunnur í salt; Gunnvör, Siglufirði, með 10 595 mál í bræðslu og 1021 tunnu í salt; og Narfi, Hrísey, með 10 441 mál í bræðslu og 784 tunnur í salt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.