Þjóðviljinn - 05.01.1947, Síða 8
el skapaðir eru utHgisleikar vié ileyk|a»
vlkiarhöfn fyrfr þeirna atviimuveg
AtvinnumálasáðliefM skesas: á &æiantjórn Eeyksa-
víkur að gem ráðstalamir til að liægt verSi aS fram-
kvæma kér síldarsöltun
Mikil síld hefur verið í Kollafirði alllengi undanfarið
og bátar fengið þar góðan afla, t. d. kom bátur nú eftir
síðasta óveðrið með hátt upp í 100 tunnur síldar er hann
fékk í Kollafirði.
Atvinnumálaráðherra, Áki Jakobsson, hefur nú skrif-
að Bjarna Benediktssyni borgarstjóra og skorað á bæjar-
stjóm Reykjavikur að gera ráðstafnir til að hægt sé að
framkvæma síldarsöitun liér við höfnina.
títlit er fyrir að liægt muni að fá nógan markað fyrir
saltáða Faxaflóasíld og hefur atvinmimálaráðherra falið
síidarútvegsnefnd að annast sölusamninga.
Ein meginástæða þess að menn hafa ekki getað not-
fært sér hina ágætu síldveiði hér rétt við landsteinana er
sú að hér við höfnina era naumast skilyrði til síldarsöltun-
ar nema gerðar verði ráðstafanir til úrbóta. Væru slíli skil-
yrði sköpuð hér eru full líkindi til að síldarsöltun gæti orð-
ið fastur atvinnuvegur hér í bænum töluverðan tíma árlega.
Bréf atvinnumáiaráðherra var Iagt fram á bæjarráös-
fundi í fyrradag en engar ákvarðánir teknar. Mun vafa-
laust verða Ieitað áíits liafnarstjóra um þetta niál, og er
nú eftir að vita hvernig hafarstjóri og meirihluti bæjar-
stjómarinnar bregðast við þessu nauðsynjamáli.
Bréf atvinnumálaráðh.
hér á eftir:
fer I gcra þegar ráðstafanir hér í
Reykjavíkurhöfn til úrbóta á
„Út af bréfi yðar, herra
borgarstjóri, dags. 20. þ. m.,
og áskorun þeirri frá bæjar-
stjórn er í bréfinu fólst, vill
ráðuneytið taka þetta fram:
Allt útlit er fyrir að nógur
markaður sé fyrir þá síld er
nú veiðist hér í Faxaflóa og
telur ráðuneytið því hættu-
laust að hefja söitun þeirrar
síldar nú þegar. Ráðuneytið
hefur þegar falið Síidarútvegs-
nefnd að leitast við að gera
sölusamninga um þessa síld og
er Síldarútvegsnéfnd byrjuð á
þeim tilraunum.
Verstu örðugleikarnir í sam
bandi við hagnýtingu þessarar
síldar stafa af því hve öli ao-
staða í landi er erfið. Þeir sem
salta vilja síld hafa enga að-
stöðu við Reykjavíkurhöín,
heldur verða þeir að flytja síld
ina langar leioir á bílum, sem
vita.ilega er mjög óhagstætt.
Við svo búij má efcki lengur
standa og er nauðsynlegt að
Faxaflóasíld
§@M Éil
Svíþjóðar
Nokkur liundruð tunnur af
Kollafjarðarsíld hafa verið scid
ar til Svíþjóðar. í gær var á
tíunda hundraði tunna slfipafi
út í Lagarfoss, sem flytur þær
til Svíþjóðar.
Síld þessi var frá Hafnarfirði,
en þar hófst síldarsöltun hjá
Jóni Gíslasyni 19. f. m., en síð-
ast var saltað 30. f. m. Samtals
voru saltaðar í Hafnarfirði rúm
lega 1200 tunnur af Faxaflóa-
síld.
þessu vandræða ástandi. Vill
ráðuneytið því leyfa sér að fara
þess á leit við bæjarstjórn
Reykjavíkur að hún geri nú
þegar eftirfarandi ráðstafanir:
1. Tiltaki ákveðna bryggju í
höfninni, sem ætluð veroi fyrir
síldarsöltun, geymslu á tómum
tunnum og saitaðri síld.
2. Láti saltendum í té hús-
næði til þess að þeir geti saltað
mnanhúss, því að búast má við
að erfitt verði að fá fólk til
söltunar úti um þetta leyti árs.
I því sambandi vill ráðuneytið
sérstaklega benda á vöru-
skemmu þá, sem setuliðið
byggði, þó að fleiri hús geti
komið til mála.
I framtíðinni þarf að stefna
að því að koma upp síldar-
bræðslu, cem jafnframt gæti
verið fiskimjölsverksmiðja til
þess að sjómenn geti fengið
eitthvað fyrir þá síld, sem ekki
reynist söltunarhæf.
Ráðuneytið vill sérstaklcga
to.ka það fram, að það telur að
síldarsöltun geti verið fastur
atvinnuvegur í Reykjavík lang
Sameinað Þýzkaland ...
Framh. af 1. síðu
ingarflökks sósíalista eingöngu
miðað við hagsmuni þýzku
þjóðarinnar, og stefni að ein-
ingu hennar. Hún sé hvergi
lituð af flokkshagsmunum,
heldur sé ætluð scm rammi
þýzks lýðræðisríki, er að verði
unnið með samstaríi allra
' flokka og stétta.
Grotewohl lýkur grein sinni
með þeim orðum að hver á-
byrgur Þjóðverji verði að
hjálpa til þess að eining Þýzka
lands verði kjarni hinnar kom-
andi stjórnmálabaráttu í
Þýzkalandi.
an tíma á liverju ári ef skapað
ir eru möguleikar í Reykja-
víkurhöfn fyrir þennan at-
vinnuveg. Ráðuneytið væntir
þess, að bæjarstjórn bregðist
fljótt við svo hægt sé að hefja
söltun í Reykjavíkurhöfn næstu
daga, en þess er nú mikil þörf,
vegna þess að síldveiði er góð,
en bátarnir geta ekkert gert
við veiðina.“
30. desember 1946.
Vmri þá ekhi
smtnra að
kaupa danskt
smjör?
Viðskiptaráð hefw nýlega
ákveðið verðhœkkun á smjör-
líki úr kr. 4,80 i kr. 7,00 í
smásölu.
Utan Reykjavíkur má
leggja á sannanlegan flutn-
ingskostnað og 18 aui'a á kg.
í um’oúðakostnað.
Smjörlíkisframleiðendur
færðu sem rök fyrir hækk-
uninni hve smjörlíkisolíur
hafi hækkað gífurlega. í bví
sambandi minnist maður þess
að bandarísku olíuhringarnir
hótuðu sölubanni til íslands
vegna bess að íslendingar
hefðu selt Tékkum og Rúss-
um síldarlýsi!
Eigi þetta verð að gilda áfram
virð'st óneitanlega betra og
sæmra að hætta smjörlíkis-
framleiðslu og kaupa í þess
stað danskt smjör, sem er
fyrsta flokks vara, enda
myndi þurfa litlu meiri er-
lendan gjaldeyri til smjör-
kaupanna en til greiðslu hrá-
efn's til smjörlíkisframleiðsl-
unnar-
Verða svifWys
jsett f skip-
feret^inaima-
skýlin?
Slysavarnafélag íslands hef-
ur í hyggju að láta svifblys —
samskonar og skotið var hér á
gamlárskvöld — í skipbrots-
mannaskýlin á söndunum í
Skaptafellssýslu. Ennfrcmur að
nota þau til hjálpar á strand-
stöðum.
Blj'sið sem skotið var hér
upp á gamlárskvöld sást í
mestri fjarlægð suður í Garði,
en þangað eru 40 km (bein
lína).
Slysavarnafélagið fékk 6 slík
svifblys si. sumar og mun geta
fengið þau eftir þörfum. Tæki
til að skjóta þeim með kostar
400 kr. en hver hleðsla 125 kr.
Þau eiga að ná 500 m. hæð óg
lýsa í 80 sek. Ljósmagn blys-
Féiagaíaía ítalska rerkalýðs^
sambem-dsins hefur raxið upp
í (þ miiijónir
Im áifálsii verkalýSssamtök ítalíu feafa aSdrei ver-
ið jafn ffölmenn
Fyrsta þing ítalska verkalýðssambandsins síðan stríð-
inu lauk, sem skipað verður eingöngu kosnum fulltrúum
/erkalýðsfélaganna, hefur verið ákveðið 15. marz n. k.
Sitt megÍÐverkefni þessa þings verður að kjósa fram-
tvæmdastjórn fyrir verkalýossambandið næsta ár. Sam-
bandið telur nú 6 millj. innan vébanda sinna.
Núverandi framkvæmdastjórn
sambandsins var að nokkru
leyti kosin af verkalýðsþing-
inu sem haldið var í Neapel
meðan Norður-ítalía var enn
undir olci Þjóðverja, - eu að
nokkru leyti var hún kosin af
verkalýðsfélögunum í Norður-
Italíu eftir að Þjóðverjar höfðu
verið hraktir brott. Þegar sú
framlcvæmdastjórn var mynd-
uð varð samkomulag um það
milli þriggja aðalflokka frelsis-
hreyfingarinnar, kommúnista,
sósíalista og kristilegra lýð-
ræðissinna að þeir skyldu eiga
jafnmarga fulltrúa hver í
framkvæmdastjórninni.
Nú verður aftur á móti kos-
ið í stjórnina án tillits til póli-
tískra flokka.
ítölsku verkalýðsfélögin eru
skipulögð á stéttaríegum gp’und
velli og núverandi félagatala
þeirra, 6 miiljónir manna er
hæsta meðlimatala hinna
frjálsu ítölsku verkalýðssam-
samtaka. Áður en Mússolini
brauzt til valda 1922 voru í
ítalíu um 2 milljónir félags-
bundinna verkamanna sem
voru skiptar í verklýðsfélög
kaþólskra, sósíalista og óháð
félög. Skortur á einingu verka-
lýðsstéttarinnar, var. eitt af því
sem auðveldaði Mússolini að
framkvæma kúgunaráform sín
gegn ítalskri alþýðu. (ALN).
Ný bók
VerMegar
fraiiifarir á
Öeir^ir í Pola
wiö Adríaliaf
Fjórir menn féllu og 16
særðust í óeirðum sem urðu
í fyrradag í borginni Pola
við Adríahaf, er Júgóslavar
reyndu að hindra a.ð Italir
flyttu verksmiðjuvélar burt
úr borginni■
Pola var ítölsk flotahöfn,
en ákveðið hefur ver'ð í
ítölsku friðarsamningunum
að hún skuli framvegis vera
í Júgóslavíu.
Hefur áður komið til ó-
eirða út af svipuðu tilefni, en
aldrei eins alvarlegra á-
rekstra.
anna er 400 þús ljóskerti og
gefa þau því mjög góða birtu
á stóru svæði.
Blysum þessum er haldið uppi
með fallhlíf, en skothylkið
sjálft er i annarri fallhlíf og
svífur svo hægt niður að engin
hætta á að stafa af því þegar
það fellur.
Væru blys þessi og tæki til
að skjóta þeim með sett í skip-
brotsmannaskýlin austur á sönd
unum gætu skipbrotsmenn er
þangað næðu notað þau til að
eftir þeim yrði tekið.
Blys af þessari tegund voru
fyrst notuð í síðasta stríði og
hafa þau m. a. verið notuð til
að lýsa upp flugvelli við nauð-
lendingu.
Þjóðviljanum hefur borizt bók
Thorvalds Krabbe fyrrverandi-
vitamálastjóra, um verklegar
framfarir á islandi: Island og
dets tekniske Udvikling gennem
Tiderne.
Þetta er mikil bók, yfir 360
síður, skipt í 13 aðalkafla um
helztu verklegar framfarir á Is-
iandi, vegalagnir, brúagerð,
póst og síma, hafnir, vita, raf-
virkjun, jarðhita, byggingar,
iðnað o. fl. Sex kort er sýna
verklegar framkvæmdir á land-
inu eru í bókinni. Ennfremur
fjöldi ágætra mynda.
Bók þessi mun vafalaust
mörgum kærkomin, þar sem lít-
ið hefur verið ritað samfellt
um þróun atvinnuhátta hér á
landi, en höfundur bókarinnar
mun óvenju kunnugur þessu
efni, því hann var skipaður
landsverkfræðingur 1906 og
vitamálastjórastarfinu gegndi
hann frá 1910 til 1937, eða
nærri þrjá tugi ára.
Útgefandi er Dansk-Islands-
samfund en samgöngumálaráðu
neytið hefur veitt styrk til út-
gáfunnar.
Innbrot í Ferjukoti
í fyrri nótt var bortizt inn í
verzlun sem bóndinn í Ferjukoti
hefur í húsi sínu os stolið pcn-
ingakassa með um 300 kr.
Bóndinn, Kristján Féldsted,
varð þjófanna var og hringdi til
sýslumannsins í Borgarnesi, en
hann bað lögregluna á Akranesi
að sitja fyrir þjófunum — en
þeir voru í bíl. Þegar hún kom
á Hvalfjarðarvegamótin sá hún
þar bílför og taldi þjófana farna
hjá. Var nú Reykjavíkurlögregl
unni stefnt upp á Kjatarnes, en
hún varð engra þjófa vör.
Rannsóknarlögregian í Reykja-
vík hafði þetta mál með höndum
í gaer og er sennilegt að hafizt
upp á þessum óboðnu næturgest
um í Ferjukoti.