Þjóðviljinn - 17.01.1947, Page 5
Föstudagur 17. janúar 1947
Þ JÓÐVILJINN
5
Barátta innan samein
uðu þjóðanna gegn
kynþáttakúgun
„YFIRBÁÐ hvítra manna i
iheiminum eru að verða svo
mikið mál innan sameinuðu
þjóðanna, að þess er farið að
gæta mjög í atkvæðagreiðsl-
um um alþjóðamál“, ritar
Israel Epstein, New York
fréttariari ALN, fréttastofu
Alþjóðasambands verkalýðsfé
laganna.
„TIL SKAMMS TÍMA virtust
Sovétríkin vera í stöðugúm
minnihluta í atkvæðagreiðsl-
um um deilumál við Banda-
rikin og Bretland. En á sið-
asta þingi sameinuðu þjóð-
anna fylktu átta ný ríki sér
um afstöðu Sovétrákjanna til
nýlendna og kynþáttakúgun-
ar. Ráki þessi voru Indland,
Kína, Egyptaland, íran, írak,
Filippseyjar, Mexíkó og
Guatemala.
ÞESSAR ÞJÓÐIR felldu tillögu
Suður-Afríku, sem hefur í
gildi verstu kynþáttakúgunar
lög í heimi, um innlimun Suð
vestur-Afríku, sem hún hefur
stjórnað ti! þessa i umtooði
Þjóðatoandalagsins. Ef Suður-
Afrika hefði haft sitt fram,
hefði hún get'að látið kyn-
þáttakúgunarlög sín, sern
halda launum niðri í smá-
vegis þóknun, ná til þúsunda
Negra á hinu nýja landsvæði.
EN SUÐUR-AFRÍKA hafði beitt
of margar þjóðir kynþáttakúg
un til þess að sleppa, þar á
meðal allstóra hópa Indverja
og Kínverja innan landa-
mæra sinna. — Hvítir menn
eru i miklu minnihluta í Suð
ur-Afríku, og þfeir komust að
raun um að þeir voru einn-
ig í miklum minnihluta á
heimsmælikvarða er samein-
uðu þjóðirnar neituðu em-
dregið beiðni þeirra.
ATKVÆÐAGREIÐSLAN gerði
að engu þá hugmynd að ein-
ungis vinstristjórnir greiði at-
kvæði með Sovétríkjunum.
Kína; Egyptanland, Iran, Irak
og Filippseyjar hafa öll hægri
stjórnir, og langt er fró því
að índlandi og Latnesku-
Ameriku sé stjórnað af kom-
múnistum.
ÞESSI RÍKI greiddu atkvæði
með Sovétrikjunum sem hafa
lagt bann við kynþáttaofsókn
um i sjálfri stjórnarskrá
landsins. Þau greiddu atkvæði
gegn Bretlandi vegna með-
ferðar Breta á nýlenduþjóðr
upi, sem sum þeirra þekktu
af eigin reynslu. Bapdaríkin
lentu i minnihluta vegna kyn
þáttakúgunarinnar hér i
landi.
ÞAÐ ERU 2000 milljónir manna
á hnettinum, og aðeins fjórði
tover maður hvítur. „Litaðar“
þjóðir hafa fæstar getað látið
rödd sina heyrast hingað til,
verandi „eign“ hvitra þjóða.
iEn þær sem nú hafa náð
sjálfstæði og eru orðnar með
limir sameinuðu þjóðanna eru
Samfylking verkalýðsflokkanna er sú orkulind,
sem pólska stjórnin treystir á i kosningunum
19. janúar
Per Meuriiny hinn hunni sœnski rithiMundur ritar
frá PóUandi um stjórnmálaá&tandið og horfur
í kofmingaharáitunni
Kosningabaráttan fyrir
kosningarnar 19. janúar 1947
er hafin.
Það var 22. júlí 1944 að
Osubka Morawski og sam-
steypustjórnin, sem hann
myndaði í Lulblin er rauði
herinn tók að hrekja naz-
istanna burt úr Póllandi.
birti ávarpið, sem endur-
reisti pólska ríkið á lýðræðis
grunni- Síðan hefur þjóðin
gert geysiátak. Mikilvæg-
ustu atriði þróunarinnar eru
þessi:
1. Hinn 6. sept. 1944 var
sarrtþykkt landbúnaðhrlög-
gjöf, er mælti fyrir um
skiptingu landeigna pólska
lénsaðalsins til smábænda,
er fengu 12—15 hektara
hver, en með því skapaðist
ný og frjáls sjálfseignar-
bændastétt í Póllandi.
2. Hinn 2. jan. 1946 voru
þjóðnýttir al-lir auðhringar
og fyrirtæki er höfðu fleiri
en 50 verkamenn að vinnú
samtímis, en við þá breyt-
ingu urðu um 40 prósent
pólskra iðnaðarverkamanna
starfsmenn ríkisins.
3- Samtímis voru gerðai
ráðstafanir til að vernda
og örfa smáfyrirtæki og það
einkaframtak sem þau tákna,
í stuttu máli, að vernda bg
mynda frjálsa millistétt
sjálfseignarmanna-
4. Hinn 21. sept. 1946 var
lögtekin áætlun um allan
þjóðarbúskapinn, unnin af
iðnaðarráðherranum Hilary
Minc og samstarfsmönnum
hans, hin svonefnda þriggja
ára áætlun, og verða einnig
einkafyrirtæki að laga sig
eftir henni, enda háð ríkinu
með hráefni og útflutnings-
og innflutningsleyfi.
5. Áður hafði pólska þjóð-
in — með. þjóðatkv.greiðsl-
unni 30. júní 1946 — sam-
þykkt nokkur grundvallarat-
riði um stjórnmál:
a. Með 7844522 já-atkvæð-
um móti 3686029 nei-atkvæð
um svaraði þjóðin þeirri
spurningu, hvort hið pólska
þingræði skyldi þyggt á ó-
ihelmingur af íbúatölu jarð-
arinnar. Þróunin innan sam-
einuðu þjóðanna bendir til
þess ðð Bandarikin verði að
horfast í augu við þá stað-
reynd eða bíða álitshnekki al-
þjóðlega að öðrum kosti“, ■ ■
skiptu þingi- Þjóðin lýsti sig
andvíga deildaskiptu þingi.
Hún óttaðist, að öldunga-
deild (senat) yrði afturhalds
vígi.
b. Með 8896105 já-atkvæð-
um móti 2634446 nei-atkvæð-
um samþykkti þjóðin nýsköp
un landþúnaðarmálanna og
þjóðnýtingu mikilvægustu
iðnaðarfyrirtækja og náttúru
auðæfa.
c. Með 10534697 já-atkvæð
um móti 995854 nei-atkvæð-
um samþykkti pólska þjóðin
hin nýju vesturlandamæri,
sem sameina Póllandi Slé-
síu, hluta af Pommern og
Austur-Prússlandi og mynda
við Oder- og Neisse-fljót-
in eðiilega varnarlínu gegn
endurvaktri „austurþr.á“
Þjóðverja.
★
Hvernig er þá stjórnmála-
ástandið í Póllandi nú, afleið
ing þeirrar þróunar, sem hér
hefur verið rakin í aðaldrátt-
um? , Þeirri spurningu er
ekki eins auðsvarað og mað-
ur gæti haldið. Ástandið er
marglitt og ósamstætt. Hinn
19. janúar 1947 halda Pól-
verjar fyrstu kosningar t'il
sejmsins, pólska þingsins,
eftir stríð- Nýja þinghúsið
með súluskreytta framhlið
rís enn ófullgert í smíðareif
um við Viejskagagötu í
Varsjá, og í Sejmowy-hótel-
inu skammt frá hafa mánuð-
um saman kjörstjórnir frá
öllum héruðum lalndsing ver-
ið að ganga á háífsmánaðar
námskeið í nýju kosningalög
unum, sem samþykkt voru á
síðasta fundi bráðabirgða-
þingsins 21. sept. 1946. Fjöldi
pólskra borga er í rúst og
fólkið í hreysum. Fjórar
milljónir Pólverja frá öllum
hlutum landsins hafa flutzt.
til hinna nýju héraða og kom
ið þar í stað Þjóðverjanna,
er burt fluttu.
Við slík skilyrði er erfitt
að sémja kjörskrár. Við bað
bætist að landið logar enn
af innanlandsbaráttu á stjórn
málasviðinu. Kosningabarátt
an er ákaflega hörð og bit-
ur. Ríkisstjórnin — sem er
skipuð jafn ágætum mönn-
um og Bierut forseta,
Osubka Morawski forsætis-
ráðherra, Gomolka varafor-
sætisráðherra, Zymerski land
várnarráðhérra — er studd
af Lýðræðisbandalaginu, en
í því eru þessir flokkar:
1- Verkamannaflokkurinn
(kömmúnistaflokkur) PPR.
2. Sósíaldemókrataflokkur-
inn — PPS.
3. Þjóðflokkurinn — SL.
4. Lýðræðisflokkurinn —
SD.
Þessir fjórir flokkar hafa
myndað sameiginlega nefnd
til að stjórna kosningabar-
áttunni. Tveir stærstu flokk-
arnir, kommúnistar og sósíál
demókratar, sem hafa hvor
um sig um hálfa milljón
meðlima, gerðu í nóvember-
lok 1946 skriflegan samning
um samvinnu til langs tíma.
Samfylking verkalýðsflokk-
ahna er sú orkulind, sem
stjórnarblökkin treystir í
kosningunum 19- janúar.
Utan Lýðræðisbandalags-
ins er Kaþólski verkalýðs-
flokkurinn — SP, ennfremur
flokkur Mikolajczyks vara-
forsætisráðherra, Pólski
ibændaflokkurinn — PSL, og
klofningur úr þeim flokki
★
— PSINY (Frelsi). í nýju
héruðunum hafa SP og
PSL ákveðið að ganga í Lýð-
ræðisbandalagið til að af-
stýra kosningabaráttu mil'li
pólsku íbúanna þar.
Aðalstjórnarandstaðan safn
ast um persónu og flokk
Mikolajczyks. En ekki or
auðvelt að fá að vitá stefnu
herinar. Eg átti tal við
Mikolaczyk, og staðfesti
hann hiklaust fylgi sitt við
nýsköpun landbúnaðarmál-
anna, og á ekki gott með ann
að sem foringi smábænda-
flokksins, enda þótt hann
hafi með undarlegum hætti
náð inn í borgirnar og safn-
að að sér borgaralegu stjórn-
arandstöðunni þar. Auk þess
er nýskipun landbúnaðarmál
anna tæpast deiluefni leng-
ur. Þróunin er það langt
komin að vandamálið ,er
ekki sjálf nýskipunin, heldur
takmarkaðri framkvæmdamál
hvernig bændur geti aflað
sér skóa, fata, véla, búfén-
aðar og útsæðis, og hvernig
hægt er að fá fólkið til að
flytja úr hinum óbyggðu
sveitum til iðnaðarborganna.
Mikolajczyk kvaðst einnig
fylgjandi þjóðnýtingu stór-
iðjunnar og þriggja ára áætl-
uriinni. Hánn telur 'l sig
einlægan fylgjanda vinsam-
legrar sambúðar við Sovétr,
en hún, ásamt fastheldni við
hin nýju vesturlandamæri,
eru hornsteinar í pólskri ut-
anríkispólitík. Framhald-
fPfititétéiileik-
ar Einars
Markiissonaa*
Ungur píanóleikari, Einar
Markússon, efndi til pianóleíks
i Gdriilá Bíó síðastl. föstudag.
Hefur Einar stundað nám í
Ameríku undanfarin ár, og var
meginhluti efnisskrárinnar helg
aður amerískum Hollywood
filmkornpónistum.
Heldur virtist fara lítið fyr-
ir listgildi þessara tónsmíða.
Að vísu voru „umbúðirnar ef-
laust vsétt“ en „innihaldið lóð“
eða tæplega það. Þó var takk-
ata og fúga Tochs þar undan-
tekning, en framsetning Einars
á þessu verki var oft svo óljós,
að erfitt var að gera sér fulla
grein fyrir byggingu þess.
Meðferð Einars á verkum
Chopins var mjög misheppnuð.
Andi Chopins sveif þar áróið-
anlega ekki yfir vötnunum. í
skertsóinu í b-moll lét hann
mjög vaða á súðum og skeytti
hvorki um nákvæmni í hljóð-
fálli eða hraða. Var stundum
svo hratt leikið að ókleift
reyndist að innbyrða alla þá
tóna, sem með þurfti og var
þeim þá fleygt fyrir borð.
Aukalag, etýða eftir Chopin
var ekki ósnóturlega léikin.
Einar liefur yfir allmikilli
tækni að fáða, hann býr einnig
yfir þróttmiklu „for£fe“ og blæ-
fagurri mýkt í leik sínum, en
því aðeins kemur allt þetta að
fullum notum, að það sé látið
þjóna anda þess tónverks, sem
túlka skal. Væri vel, ef Einari
mætti takast þetta.
G. M.
Nýja Bíó
Frídagar skipasmiðsins
Frómt sagt er þessi kvikmynd
svo sem ekki neitt. Skipa-
smiður nokkur ætlar að nota
friið sitt til að baða sig og baða
sig aftur og aftur og aftur þang-
að til fríið væri úti, því að hann
hafði svo gaman áf að baða sig
Framhald á 7. síðu,