Þjóðviljinn - 19.01.1947, Blaðsíða 1
<2. árgangur.
lflLJINN
Sunnudgaur 19. janúar 1947
15. tölublað
«-----------------1
Flokkurinn
Deildarfundir falla niður
n. k. þriðjudag. — Formenn
dcildanna eru vinsamlega
beðnir að hafa samband við
skrifstofuna á morgun.
Pólskir fasist-
ar æsa til npp-
reisnar
Pólska lögreglan tilkynnti í
gærkvöld, að hin fasistísku
leynisamtök í landinu hefðu
tekið að dreifa út áróðursbækl
ingum, þar sem þau skoruðu á
menn að gera uppreisn gegn
pólsku stjóminni. Áður hafði
Osubka Moravski forsætisráð-
herra sakað Mikolajczyk, for-
ingja bændaflokksins um að
standa í nánu sambandi við ó-
lögleg fasistafélög, sem í
væru 10.000 manns. Stjórnin
hefur boðið út 300.000 her-
mönnum til að halda uppi reglu
við kosningarnar í dag. Hafa
óaldarflokkar hótað að myrða
háttsetta embættismenn og
gera árásir á kjörstaði til að
hleypa upp kosningunum. For-
seti Hæstaréttar Póllands hef
Sænska stjómin varaði islenzku stjórnina við að
láta undan kröfum Bandaríkjanna
Vafasamt að Sovétríkin hefðn lireyfi Svalbaróamálinu
ef Bandarikin hefðu ekki svní slíkan áhuga fyrir að ná
hernaðaradstöðu á fslandi
Stokkhólmsblaðið „Dagens Nyheter'' segir í grein
um Svalbarðamálið, að sænska stjórnin haíi óform-
lega varað íslenzku ríkisstjórnina við að láta und-
an kröfum Bandaríkjanna um herstöðvar á íslandi.
Hafi sænska stjórnin bent á, að það gæti haft í för
með sér, að Sovétríkin teldu sér ógnað og gerðu
gagnráðstafanir er kæmu niður á hinum Norður-
löndunum. Londonfréttaritari blaðsins, sem þessi
frétt er höfð eftir, segir að menn þar í borg telji vafa-
samt, að Sovétríkin hefðu hreyft Svalbarðamálinu,
ur tilkynnt, að undanfarna daga í ef Bandaríkin hefðu ekki áður sýnt slíkan áhuga
hafi óaidarfiokkar framið | fyrir að ná hernaðaraðstöðu á íslandi.
Fyrirsögn greinarinnar í
,,Dagens Nyheter“ er: „Svíar
vöruðu Islendinga við því að
slaka til við Bandaríkin11.
Segir blaðið, að nú sé mjög
rætt um það, hver hafi stofn
að til kapphlaupsins milli
stórveldanna um stöðvar í
fjölda pólitískra morða.
Kosningamar í Póllandi verða áreii-
anlega sigur fyrir framfarir á sviði
félagsmála og menningar
segir sendiherra Póllands á íslandi, hr. Mieczyslav
Rogalski
„Kosningamar í Póllandi verða áreiðanlega sigur fyr-
ir þær framfarir á sviði félags- og menningarmála, sem
allir Pólverjar þrá eftir margra ára skelfingar þýzks her-
náms“, segir Mieczyslav Kogalski sendiherra Póllands í
Noregi og á íslandi, í viðtali við norskan blaðamann.
„Pólska þjóðin hreifst djúpt
af því að fá sjálfstæði sitt á ný,
og hefur með ákafa hafið end-
urreisn atvinnuvega og menn
ingarlífs. Sem stendur er mikil-
vægasta verkefnið endurreisn
vesturhéraðanna, koma fyrir
þeim sem snúa heim til ætt-
lands síns, skippuleggja pólskt
landnám, auka kolanámið,
byggja hafnir og verksmiðjur
og framkvæma nýsköpun land-
búnaðarmálanna. Þriggja ára
áætlun um endurreisn landsins
ei í framkvæmd. Mikla þýðingu
hefur endurreisn höfuðborgar-
innar, Varsjá, sem var gereyði
lögð af Þjóðverjum.“
„Hvað er að frétta af menn-
ingarmálunum", spyr frétta-
maðurinn.
,,Eg get nefnt nokkur dæmi“,
svarar hr. Rogalski. „Síðan
stríði lauk, hafa verið gefnar
út 6000 nýjar bækur og 200
blöð og tímarit koma út. Allir
pólsku háskólarnir eru teknir
til starfa, í Varsjá, Kraká,
Poznan, Torum, Vroslav, Lodz
og tveir í Lublin. Æðri tækni-
skólar eru að starfi í Varsjá,
Gdansk, Vroslav og Lodz auk
margra sérskóla, verzlunar-
skóla, búnaðarskóla, sjómanna-
skóla og listaskóla í Varsjá og
Kraká. Leikhús starfa í öllum
pólskum borgum. Óperur eru
í Varsjá, Kraká, Poznan og
Katowice. Endurreisn á sviði
menningarmála hefur gengið
ótrúlega vel, þegar þess er
gætt að á hernámsárunum
mátti heita að allt menningar-
lif lægi niðri.“
„Eins og kunnugt er, er nú-
verandi ríkisstjórn Póllands
mynduð af fulltrúum allra
sanni’a lýðræðisflokka í land-
inu“, segir hr. Rogalski enn-
fremur. „Óróaöfl eru í landinu,
mest fólk sem hefur spillzt á
árunum sem hernám Þjóðvérja
stóð, og lætur æsa sig til of-
beldisverka af erlendum agent-
um. En þeim fækkar með
hverjum degi.
Pólska þjóðin hefur liðið
meira en flestar þjóðir. Nú
óskar hún friðar til að byggja
upp landið og mun rétta öllum
lýðræðisþjóðum heimsins bróð-
urhönd.“
heimskautalöndunum.
Fréttaritarinn segir biæzka
blaðið „Economist“ benda á
að kröfur Sovétríkjanna
varðandi Svalbarða séu hiið-
stæðar þeim, sem Bandaríkin
hafi áður sett fram varðandi
ísland og Grænland.
*
Hér er það komið á dag-
inn, sem Þjóðviljinn hefur
margoft sagt, að Norðurlanda •
þjóðirnar eins og aðrar smá-
þjóðir heims hlytu að vera
andvígar því, að stórveldi
væru veittar herstöðvar hér
á landi, og slíkt gæti leitt af
sér, að réttindum þeirra yrði
stefnt í hættu.
Svo virðist sem utanríkis-
ráðherra hafi farið mjög
leynt með aðvörun sænsku
ríkisstjórnarinnar og sýni-
lega ekki kært sig um að
fara. að tilmælum þessarar
vinsamlegu frændþjóðar
vorrar. Aftur á móti var hald
ið hátt á loft orðsendingu
brezku stjórnarinnar. sem
ögrun við íslendinga til að
láta herstöðvar af hendi.
Enn eitt stjórnmálahneykslið í Bandaríkjunum
Frambjóðandi Ku Klux Klan sezt
með ofbeldi í ríkisstjóraembættið í
Georgíu
Ásíaiidið f Georgíu iiaiimir
á Þýzkaland 1033 segir
fréitaritari BBC
Fréttaritari brezka ríkisútvarpsins, BBC, í New York
Iýsti í gærkvöld ástandinu í Georgíuríki í Bandaríkjunum,
þar sem frambjóðaiidi leynifélagsskaparins Ku Klux Klan
hefur með ofbeldi sezt í ríkisstjóraembættið. Hann heitir
Herman Tahnadge og er sonur hins nýlátna ríkisstjóra,
sem kosinn var í haust.
Ku Klux Klan er illræmt
leynifélag, sem hefur kyn-
þáttahatur efst á stefnuskrá
sinni og hefur staðið fyrir
flestum þeim negramorðum,
sem hafa verið svo tíð í Suð
urríkjunum.
Ríkisþing Georgíaríkis um
kaus Herman Talmadge rík-
isstjóra að föður hans látn-
um án þess að hafa nokkurn
rétt til þess. Settist hann að
í ríkisstjórabústaðnum og
setti vörð við dyrnar á ríkis-
stjóraskrifstofunni til að
varna George Arnall fyrrver
andi ríkisstjóra að gegna rík
Tsaldaris
missir meiri-
ifiluta
Stjórn Tsaldaris í Grikk-
landi hefur misst meirihluta
Framhald á 8. síðu
Afstaðan til
VieÉ Nam;
Franskir kommúnist-
ar vilja semja,
kaþólskir láta beita
valdi
Sósíaldemókratinn Rama-
dier, sem er að reyna að
mynda stjórn í Frakklandi
sagði í gærkvöld, að sér
hefði miðað mikið í áttina a§
mynda stjórn á breiðum
grundvelli. Hann hefur boðið
Framhald á 2. síðu
isstjórastörfum þangað til
nýr ríkisstjóri hefði verið
löglega kjörinn- Vörðurinn
var 230 punda beljaki og
hrópaði hann ókvæðisorð að
Arnall, er hann kom og ætl-
aði að gegna embættisstörf-
sínum. Arnall er frjáls-
lyndur og hefur beitt sér
gegn kynþáttakúgun. Hann
greip hljóðnema af útvarps-
fréttaritara, sem þarna var
staddur, og kvaðst ekki vilja
efna til handalögmáls og
myndi hann því setja upp
nýja ríkisstjóraskrifstofu,
því að hann láti ekki undan
lögbrotum og stormsveitar-
mönnum. Beljakinn greip
hvað eftir annað fram . fyrir
honum og hrópaði inn í hljóð
nemann: „Þetta er helv........
lýgi“!
Fréttaritari BBC kvað
marga líta á þetta sem hvern
annan grínleik, en fyrir
menn eins og sig. sem hefðu
dvalið í Þýzkalandi 1933 þeg
ar Hitler hrifsaði völdin
væri ekkert hlægilegt við
þetta, þeir hefðu séð hlið-
stæða atburði: Kosið í c'v,-
bætti þvert ofan í lög og f t
irmæli og stormsveitarmrr i
notaðir til að berja á and-
stæðingum og þeir hraktir
úr embættum með ofbeldi.