Þjóðviljinn - 19.01.1947, Síða 6

Þjóðviljinn - 19.01.1947, Síða 6
6 Þ JOÐVILJINN Surnudagur 19. janúar 194” Hvar er húsið hans MJarvals? Framhald af 4. síðu. l>á, er fá aðkenningu af heilög- 'um anda. Heilagur andi er ódæll viðfangs, og sá, er kemst í týgi við hann, kemst einnig stundum að því svo dýrkeyptu, að hann ó ekki, aflögu fyrir húsi handa sér. Vegur, sannleikur og líf þjóð arinnar speglast og skýrist í verkum þeim,"er listamenn henn 3r vinna. Það ætti því að vera gæfu hennar og heiðri einhvers virði að sýna listamönnum sýn nm nokkurh sóma. Sá, sem vinn •úr 'til þess að lifa látinn, vinnur •elrki til þfess að vera lifandi drépinn. Jóhannes Kjarval varði iífi sínu í það að opna augu þjóðar sinnar fyrir landi hennar. Einu sinni opnuðust augu þeirra er völdin hafa, fyrir lista- mennsku þessa manns^ og þeir hétu honum nýju húsi: Efndir þess loforðs hafa sennilega ekki verið hugsaðar sem prófsteinn á opinbert siðgæði á fslandi. En fái Kjarval ekki sitt hús, haía hinir veglyndu gefendur þess gert sjálfum sér ofurlítinn sið- ferðilegan grikk, þvá að það þarf ekki fyrst og fremst fjár- muni og mannafla til að • reisa slíkt hús, heldur almennt sið- gæði og drengskap gagnvart menningunni í landinu. Bjarni Benediktsson frá Hofteigi. TorolS Elster: SAGAN UM GOTTLOB Dóttir okkar S I G B Ú N verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, mánudaginn 20. þ. m., kl. 2.30. — Athöfninni verður útvarpað. Svanhvít Stefánsdóttir Jónatan Jakobsson. Elsku litli drengurinn minn AGNAK S. STURLUSON andaðist 17. þ. m. Jóna Sturludóttir. •4.4_H~fr4~fr4~fr4~fr-fr-HH~frH-HH~fr4~fr-fr-frH"fr4~fr4-fr+4~fr-fr-frH~frH-H+ Tilkynning irá gkrlfstnfn Um afben ingarsl Eins og Tryggingastofnun ríkisins hefur þegar auglý$í fer afhending tryggingaskír- teina og mótiaka tryggingaíÖgjálda í Reýkjá- vík fram í skrifstofu tollstróra, Haínarstræti 5, og hefst mánudaginn 20. þ. m. kl. 10 f. h. Fullt almennt tryggingaiðgjald, fyrir árið 1947 er í Reykjavík svo sem hér segir: Fyrir kvænta karla....... kr. 380,00 — ókvænta karla ...... — 340,00 ; •— ógiftar konuf . — 25CU)0 Af gjaldi þessu ber mönnum að greioa í • t l'; • ív '; 11; i j januar: Karlar (kvæntir og ókvæntir) kr. 170,,00 Konur (ógiftar) ........... — 120,00 Auk þess ber mönnum að greiða með jan- úariðgjaldinu skírteinisgjald, kr. 30,00, sem aðeins skal greitt í eitt skipti, þegar skírteini er fyrst afhent. - r./f Reykjavík, 1&. jan. 1947. Tollstjj óraskrifstofan Hafnarstræti 5. , ej-H-H~H~H~H"H~fr-H"H-4-3"H-f-H~H~H-H~H~i~HH~H~H-H~H"H — Ekki það ? Og þér, hr. Antoníus, þér ritið bækur og yrkið. Ef þér einn góðan veð urdag vöknuðuð við það, að þér væruð orðinn frægur, kannski í Englandi, kannski i Ameríku, munduð þér þá ekki yfirgefa allt, sem heldur yð- ur hér, slíta öll bönd og flýta yður yfir í frægðina, pening- ana og möguleikana til þess að geta ort og unnið eins og yð ur mundi langa til — enda þótt flótti yðar hefði í för með sér miklar hættur og erfið- leika fyrir vini yðar ? j Brúnó svarar ekki strax. | Hann á bágt með að umbera | fólk, sem talar eins mikið og 1 er jafn djúpviturt og hann sjálfur. En hann vill ekki láta j spurninguna fara fram hjá sér j án þess að gera henni skil. — Maðurinn er hverflyndur, segir hann. Það er engin ný j uppgötvun. Við munum víst öll dæmi Hebbels um óstöðugleik sálnanna: Sumir eru uppreisnar menn og sósíalistar í dag, en eru orðnir umboðsmenn stjórn- arinnar á morgun. En það eru ekki allir, sem gefast upp. Og annar tekur við verki hins og heldur því áfram. — Og þér, hr. Páll. Nú eruð þér einnig einmana maður. Þér voruð einu sinni mikill forystu- maður, réðuð yfir þúsundum og báruð ábyrgð á lífi þeirra og velferð. Draumar og vonir. Ef til vill gætuð þér komizt í sömu aðstöðu aftur. Þér gætuð öðlazt örugga afkomu, eignazt snoturt heimili og börn, sem vaxa og dafna. Munduð þér þá vilja minnast æskuhugsjóna yðar, ef svo skyldi vilja til, að einhvern tíma aftur yrði farið að berjast fyrir þeim? Áður voru það at- burðirnir sjálfir, sem komu yður í fangelsi og gerðu yður land- flótta, en ef þér í næsta sinn mættuð velja? Munduð þér kannski aftur skilja við konu yðar? Páll hristi höfuðið. — Þací er tií einskis að vera að hugleiða þessa hluti. Ef slík- ir tímar koma, mun það sýna sig, hvort ég er nógu sterkur. — Hvort þér eruð nógu sterk ur, — já, þannig lítið þér á mál- ið. Og þér frú Anna eruð áreið- anlega sterkasti persónuleikinn af ykkur öllum. Og sá óham- ingjusamasti.... Það er í senn eitthvað hríf- andi og eitthvað skrýtið við Jaróslav. Andstæðurnar milli iú;is fátæklpga umhverfis og hihnar öruggu mannþekkingar; semf:þó^eh' bíiíticiað flónsku og tilgerð. Anna svarar reið: — Hafið þér mig undanskilda. — Ef þér skylduð uppgötva að maður yðar liefoi gefizt upp við að ráða fram úr því máli, sem þér eigið við að stríða, hvað munduð þér gera? — Skyldu mína. — Vitanlega, en kannski skilningur ýðar á því, iivað er skylda yðar, hafi breytzt. — Hvað skyldi nú ganga að Sagha. Hann ætti að vera kom- inn aftur fyrir löngu. — Bara að hann hafi ekki lent í gildrunni. — Eg skal svipast að honum, segir Jaróslav og kastar yfir sig tötralegri kápu. — Jæja, hvaða álit hafið þið á því, sem Jaróslav sagði, hvísl- aði Páll, svo að konan heyrði það ekki. — Hann er undarlegur mað- ur, segir Brúnó. Miðað við að- stæður mjög óvenjulegur mað- ur. En fyrst og fremst er hann þó leikari, og skoðanir hans eru sóttar í lélega reyfara. — Já, ef til vill, en það er þó þrátt fyrir allt eitthvað til í því, sem hann segir. Dyrunum er hrundið upp með braki, og þau hrökkva við skelfd. Þetta er Sagha. — Jæja, þú ert búinn að vera lengi burtu, sástu nokkuð? Hann hristi höfuðið. •—• Nei, ég skildi eftir boð um það á veitingahúsinu, að við værum hér. LÖgreglan hafði sett þar allt á annan endann og á- sakaði vertinn um að hafa hjálpað okkur. En hann er á- gætur, hefur ekki sagt eitt ein- asta orð. Á eftir skauzt ég upp að kofanum; lögreglan er þar ennþá. Hún hefur snuðrað um allt, sá ég; allt dót okkar var í haug á miðju gólfi. •— Helvítis frekja. — Sástu nokkuð annað. — Nei, það er að segja, ég fann þetta hérna. Hann tekur upp hjá sér litla, bláa bók. Þau líta á hana. Það er sænskt vegabréf. Jóhann D. Gottlob. — Hver er það? Engin getur gefið skýringu. Þau athuga það nákvæmlega. —• Greinilegt. Norðmaðurinn hefur átt þetta. — En þetta er ekki myndin af honum. Jaróslav kemur aftur. Hann segist hafa heyrt á götunni, að komið hafi til óeirða í Slóvakíu. Margir eiga að hafa verið drepn ir. — Það er sýnilega eitthvað að gerast. — Vitanlega er eittlivað að gerast. Það er þess vegna, sem þeir eru að taka flóttafólk fast. Það fer að dimma. Jaróslav kveikir á litlum heimatilbúnum lampa, sem kastar gulri skímu á dökkgráa veggina og föl and- litin. Það kyrrir um úti. Aðeins daufur niður í kjarrinu, og Pilsudskis heyrist æða fram og aftur. Neðan af götunni heyr- ast drunurnar í strætisvögnun- um. Allir eru rnðursokknir í eig- in hugsanir. Þáu reykja og fylgja reyknum'með augunum, þegar hann bréipir’ úb isér í loijt*. inu. Jaróslav; ■ {og j j ík’oha ; hang gánga fram ogl'Áftúr/jÚjástrá við hitt og þetta, gefa börnún- um að borða og kasta beinum út til Pilsudskis. Við og við stingur Jaróslav setningu að einhverjum í hópnum, venju- lega án þess að fá svar. Páll glamrar án afláts pípunni við tennurnar, Sagha rissar með notaðri eldspýtu og hrukkar ennið áhyggjufullur. Brúnó greinir kringumstæðurnar fyi’ir sjálfum sér, það sést, þegar hann telur á fingrum sér — einn, tveir, þrír, fjórir, fimm — hristir höfuðið og rífur í hárið á sér. Andrés horfir dapur niður á gólfið. Anna kveikir án afláts í sígarettustubbum, tek- ur nokkra reyki og drepur svo í þeim. Sagha tekur upp vasaúr og sýnir hinum á það. Klukkan er hálf sjö. Páll upptir öxlum. Andrés stendur upp órólegur. -— En hvað eigum við að gera? Enginn svarar. •—• Hvað getur hafa komið fyrir Elsu? Við verðum að að- hafast eitthvað. Við getum ekki setið hér aðgerðarlaus. Með- an.... Brúnó teiknar taflborð á papp ír, og Sagha sezt við hliðina á honum. Þegjandi byrja þeir að tefla, rólegir og hugsandi. An- drés stendur andartak kyrr og horfir á þá, svo fer hann að ganga fram og aftur um gólfið á ný. Þau hrökkva við, þegar þau heyra rjálað við dyrnar. Jaróslav lýkur rólega upp og hleypir Pilsudski inn. Frú Jaró slav ber gestum brauð, en sjálf borða þau kálsúpu. Brúnó vill taka upp peninga til þess að borga, en óþyrmilegt tak Páls um höndina á honum fær hann til þess að hætta við það. I fimmtugasta sinn fer Páll að ræða kringumstæðurnar. — Við verðum, hvað sem það kostar, að finna einhverja út- leið. Það gagnar ekki að sitja hér og horfa hvert á annað, með an allir vinna gegn okkur og svikari er mitt á meðal okkar. Eitt okkar veit, hvar Elsa er ef hún er enn á lífi. Kannski hún verði , flutt yfir landamærin strax í nótt. Við getum ekki látið þetta afskiptalaust eftir öll þessi ár, sem við höfum bú- ið saman. Og við höfum ekki mikinn tíma til þess að athafna okkur — meðal annars af því, að það þarf ekki að líða langt, þangað til lögreglan finnur okkur. En öllum hlýtur að minnstakosti að vera ljóst, að það gagnar ekki að sitja hér. Allir eru mæddir á svipinn. í fyrsta lagi er það, sem þau höfðu öll hugsað um, orðið opin bert — að Elsa muni ef til vill hafa orðið bráð samsærismann- anna, svikarans meðal þeirra. Anna snýr sér snöggt við: — En hvað hefurðu hugsað þér að gera? Hefurðu hugsað þér að strjúka. Enginn yfirgef- ur þennan kofa, fyrr en við vitum, á hvað við getum treyst, —• Þgð er svo, Anna, segiý 'PéÍÍ. ’ — Jæja, í stingdu upp á ein^ hverjy, segir Brúnó gramur. Stihga úpp á. — Stinga upp hvæsir Aniía. Væri ekki betrá, að þú reýndir að útskýra málið nánar? Þú sást EIsu síðast. . Andrés er staðinn upp: —- Mér fyndist nær að þú segð ir okkur nánar frá vinnu þinni hjá Fuchs, Anna. Eða kannski sé bezt fyrir þig að sleppa því alveg af einhverjum ástæðum. Mér virðist málið vera lagt upp í hendurnar á þér. Anna verður svo reið, að hún fer að tala ungversku. En Jaró- slav lemur allt í einu í borðið. — Nú er bezt að þið gerið svo

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.