Þjóðviljinn - 30.04.1947, Page 5

Þjóðviljinn - 30.04.1947, Page 5
Miðvikudagur 30. april 1947 Þ JÓ Ð V I L J I N. N & Hið Yinnandí félk verður að mynda með sér samtök, er fryggl því meirihluta á Alþingi Rseða liryiifélís B|arnafs«»nar vlé eldliiisdagsuinræéuriiar I fyrra kvold og ná aðstöðu til að geta gert þau óvirk, með því áð leggjá Stofnlánadeildina undir stjórn Lands- bankans. 1 öðru lagi skyldi heildsölunum gefinn kostur á að reka nokkum veginn ótakmarkaða gróðaverzlun og eyða til þess þeim gjaldeyri, sem ekki var festur á nýbyggingarreikningi. Þetta tókst með aðstoð Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokks- ins í skjóli viðskiptamálaráðherra.. Alþýðuflokkur- inn fékk því ráðið, að aðeins 300 millj. af þeim 580 millj., sem Islendingar áttu erlendis 1944 voru lagð- a.r á nýbyggingarreikning. í þíúðja lagi skyldi af- henda. Bandaríkjamönnum herstöðvar. Fyrir því var mjög almennur vilji í öllum flokkum, nema Sósíal- istaflokknum. Margir liéldu að aðstaða verkalýðsins yrði sterk í ríkisstjórninni sjálfri, þar sem verkalýðsflokkarn- ir áttu 4 ráðherra á móti 2 ráðherrum Sjálfstæðis- flokksins. En reyndin varð önnur. Aldrei kom það fyrir í nokkru ágreiningsmáli, sem eihhverju skipti, að ráðherrar Alþýðuflokksms og Sósíalistaflokks- ins stæðu saman gegn ráðherrum Sjálfstæðisflokke- ins. Það brást elcki, að ríkisstjórnin skiptist þannig, að annars vegar voru sósíalistar, hins vegar Sjálf- stæðismenn og Alþýðuflokksmenn. Þegar á reyndi átti alþýðan aðeins tvo ráðherra í stjórninni gegn hinum fjórum. Svona var ástandið, þegar gengið var til kosn- inga sl. sumar. Um hvað var kosið s. 1. sumar? Það voru 2 stórmál, sem kjósendur áttu að skera úr um með atkvæði sínu. Annað var það, hvort ný- sköpunin ætti að halda áfram og hitt hvort veita skyldi nokkru erlendu stórveldi hernaðarréttindi hér á landi. Þess vegna lagði Sósíalistaflokkurinn þá fyrir- spurn fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Alþýðuflokkinn, hvort þeir vildu halda samstarfinu áfram að lokn- um kosningum á eftirfarandi grundvelli: í fyrsta lagi: halda nýsköpuninni áfram og gera nýtt sam- komulag um áframhaldandi framkvæmdir, 1 ö.ðru lagi: engar herstöðvar verði veittar neinu erlendu herveldi. í þriðja lagi: geroar verði ráðstafanir til að vinna bug á dýrtíðinni. Flokksstjórnirnar fengust ekki til að gefa neitt ákyeðið svar. Allir frambjóðendur voru krafðir afdráttarlauss svars um það, hvort þeir vildu heita því, að standa gegn því, að nokkru erlendu herveldi yrðu veitt hernaðarleg fríðindi hér á landi. Allir þingmenn Sósíalist.aflokksins og nokkrir aðrir þingmenn gáfu strax afdráttarlaust svar, að þeir myndu vísa öll- um slíkum tilmælum erlendra hervelda skilyrðis- laust á bug. Aðrir reyndu að skjóta. sér undan, með því að svara ekki eða gefa loðin svcr. Sósíalista- flokkurinn skoraði á kjósendur að ljá engum fram- bjóðenda atkvæði sitt, sem ekki svaraöi skýrt og án undandráttar. Þegar á leið kosningabaráttuna varð flokksstjórnum hinna grunuðu flokka það Ijóst, að vilji þjóðarinnar í þeásu máli var svo ein- dreginn, að ekki var hægt að komast hjá að taka afstöðu. Sjáifstæðisflokkurinn lýsti því yfir, að hann mundi undir engum kringumstæðum ljá máls á herstöðvum á friðartímum. Framsókn gaf svipaða yfirlýsingu. Alþýðuflokkurinn gekk þó lengst. Hann lét festa stóran borða fyrir utan kosningaskrifstofu 'sína, þar sem á var letrað: Gegn afsali landsrétt- inda. Á lista flokksins í Reykjavík var- settur efstur ungur maður, sem tekið hafði sérstaklega skelegga afstöðu gegn ásælni Bandaríkjanna — allt í þeim tilgangi að safna atkvæðum grunlauss og heiðarlegs fólks á landsölulið- Alþýðuflokksins, eins og síðar kom í Ijós. Frambjóðendurnir tóku nú hver í kapp við annan að færa kjósendum heim sanninn um, að öllu væri óhætt, þeir mundu standa örugglega á verði um landsréttindi Islands. Allir nema einn, Jón- as Jónsson frá Hriflu, voru kosnir í trausti þess, að þeir mundu aldrei fallast á neinn samning um hern- aðarleg ítök á íslenzku landi. Sömuleiðis keþptust frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins við að lýsa afdráttar- lausu fylgi sínu og hollustu við nýsköpunina. Jafn- vel Framsóknarmenn höfðu nú endurfæðzt í trúnni á nýsköpunina. Svo afdráttarlaus var vilji fólksins. Aðvörun Sósíalistaflokksins Sósíalistaflokkurinn varaði þjóðina við öllum þessum fagurgala. Við útvarpsmnræðurnar sagði ég: Það er veruleg hætta á því, að horfið verði aft- ur að afturhaldsstefnu gömlu þjóðstjórnarinnar, nema skipun Alþingis verði breytt, nema Sósíalista- flokkurinn komi mun sterkari út úr kosningunum. Ennfremur sagði ég í þessari sömu ræðu, orðrétt: ,,Það kemur áreiðanlega ný málaleitun frá Banda- ríkjunum eftir kosningar. Svarið við þeirri málaleit- un veltur á því, hversu sterkur Sósíalistaflokkujr- inn kemur út úr kosningunum“. Nú er allt þetta komið á daginn. Nákvæmlega eins og við sögðum, fyrir. Bandaríkjunum hefur verið afhent herstöð á íslandi fyrst um sinn til sex og hálfs árs. Stjórnar- samningurinn frá 1944 er rofinn og ný stjórn tekin við, sem afturhaldsöflin í landinu og andstæðingar nýsköpunarinnar standa að. Það er samstarf þjóð- stjórnarflokkanna frá 1939. Ekkert af þessu vildi þjóðin. Yfirgnæfandi meiri- hluti kjósenda var andstæður herstöðvasamningn- um. Yfirgnæfandi meirihluti vildi, að nýsköpuninni yrði haldið áfram. Samt kaus þessi sami meirihluti þá menn, sem bera ábyrgðina á því hvernig komið er. Aðvörunum Sósíalistaflokksins var ekki sinnt, nema af alltof fáum. Kjósepdur Sjálfstæðisflokksins trúðu fagurgala forystumannanna. Hinum taum- lausu, samvizkulausu og siðlausu blekkingum Al- þýðuflokksins var trúað af alltof mörgum. Alvöru- orð Sósíalistaflokksins, sem allir mega nú sjá, að var sannleikur og eklcert nema sannleikurinn, voru ekki tekin til greina. Þetta getur orðið dýr reynsla fvrir þjóðina, en hún er líka dýrmæt. Alltof dýrrnæt. til þess að hún megi falla í gleymsku. Stjórnarsömvinnan rofin. -— Bandaríkjun- um afhent hersiöð. Þegar Keflavíkursamningurinn var gerður við Bandaríkin í fullkomnu pukri, án þess fulltrúar Sósíalistaflokksins fengju að vita, hvað var að ger- ast, var stjórnarsamningurinn rofinn á svo óskamm- feilinn hátt, að slíks munu fá dæmi. Þar með var grundvöllurinn fallinn undan stjórnarsamstarfinu. Sósialistaflokkurinn hafði frá upphafi lýst því yfir, að það varðaði samvinnuslitum, ef geröur yrði samn- ingur um hernaðarréttindi erlendu ríki til handa gegn vilja flokksins. En þetta var ekki eina ástæð- an fyrir því, að stjórnarsamstarfið var úr sögunni, nema nýr samningur yrði gerður eins og Sósíaiistá- flokkurinn hafoi gert skýlausa kröfu til, þegar fyr- ir kosningar. Afturhaldiö var að stöðva nýsk-öpun- ina. Landsbankinn var að stöðva allar framkvæmd- ir með neitunum um lán. Það var imnið að því vitandi vits, að. gera lögin um stofnlánadeildina og lögin um aðstoð við opinberar byggingar að ónýtum papp- írsgögnum án þess að gagnráðstafanir væru gerðar af hálfu ríkisstjórnarinnar. Því varð ekki lengur slegið á frest að gera ráðstafanir, gegn hinum taum- lausa verzíunargróða og gjaldeyrissóun heildsala- stéttarinnar. Tillögur Sósíalistaílokksins um nýjan stjórnarsamning Flokksþing Sósíalistaflokksins, sem haldið var í nóvember sl. lýsti því yfir, að flokkurinn væri reiðu- búinn að taka upp samstarf við hvem þann þing- meirihluta, sem vildi fallast á þau skilyrði hans, er- veittu örugga tryggingu fyrir þeim tveim megin— atriðum: 1. að staðið væri á verði um óskorað fullveldi og;_ friðhelgi landsins. 2. að nýsköpmi atvinnuveganna yrði haldið áfram og fullnægjandi ráðstafanir gerðar til þess að tryggja þjóðhagslegan.grundvöll hennar. 12 manna nefnd var sett á laggirnar skipuð full— trúum allra flokka til þess að ræða um samstarf ‘ þessara flokka. Fulltrúar Sósíalistaflokksins lögðu hinar ýtarlegu tillögur, sem samþykktar voru á. flokksþinginu, fram í þessari nefnd. Meginatriði þessara tillagna voru í sem stytztu máli: Ráðstafanir til tryggingar sjálfstæði landsins. *í 9 liðum, þ. á m. að samningnum við Bandaríkin um Keflavíkurflugvöllinn verði sagt. upp strax og ís~ lendingar hafa rétt til þess, og samningar hafnir • við aðrar þjóðir um að tryggja íslendingum 10 mílna landhelgi og einkarétt til fiskyeiða á land— grunni íslands. Að komið verði lieildarstjórn á nýsköpun atvinnu- lífsins með áætlunarbúskap fyrir augum, þar sem tryggð verði óskoruð yfirráð ríkisstjórnarinnar og; Alþingis yfir bönkunum og f jármálapólitík landsins— M. a. gert ráð fyrir sérstökum seðlabanka. Að sett verði á stofn innkaupastofnun þjóðarinn- - ar, sem annist innkaup á öllum vörum til landsins'. að svo miklu leyti, sem þao ekki er falið samvinnu- samtökum og öðr.um innkaupastofnúnum neytenda.. og hinn hóflausi verzlunargróði heildsalastéttar- innar þannig þjóðnýttur. Ríki og bæjarfélög taki aft sér rekstur fyrirtækja og framleiðslugreina, sem hagkvæmt sé að hafa á einni hendi eða skila óeðli- lega miklum gróða í vasa einstaklinga. Keyptir verði 25—30 togarar til viðbótar við þá.. sem þegar hafa verið keyptir og bæjar- og sveitar- félögum gert kleift að eignast þá. Ríkið láti byggja fullkomin fiskiðjuver á 4—6 tilteknum stöðum, þ. á. m. í Vestmannaeyjum, ísa- firði, Hornafirði og Suðurnesjum. Auk þess verði gerðar ráðstafanir til þess að koma upp sem full- komnustum fiskiðjuyei-um víðsvegar um land og bæjar- og sveitarfélögum gert kleift f járhagslega aft v ráðast í slík fyrirtæki. Þá er ýtarleg áætlun um nýjar verksmiðjur og iðfyrirtæki, einkum til # hagnýtingar sjávai’afurða, um hafnargerðir fyrir bátaútveginn, um raforku og stóriðju og stórvirkar umbætur í landbúnaði. Enn- fremur tillögur um byggingarstofnun ríkisins og fyrirkomulag á byggingarframkvæmdum til þess aft tryggja byggingu íbúðarhúsa í miklu stærri stíl og ódýrara en verið hefur. Þá eru tillögur um endur- bætur á alþýðutryggingunum, um byggingu sltóla og sjúkrahú.sa ,um öryggi við vinnu, um efnahagslegt jafnrétti til menntunar o. fl., um margháttaðar ráð- stafanir gcgn dýrtíðinni. Sósíalistaflokkurinn hefur nú lagt margar þessar - höfuðtillögur sínar fram í frumvarpsformi á AI- þingi, m. a. um fiskiðjuver, um byggingu íbúðar- húsa, um aðstoð ríkisins við útvegun lánsfjár til byggingar skóla, sjúkrahúsa og annarra opinberra bygginga, um öryggi við vinnu, um 12 stunda hvíld- artíma á togurum, um endurbætur á alþýðutrygg-- ingai'lögunum, um orlofsdvalarheimili- fyrir verka- menn og margt fleira. Gefst þingmönnum nú kostui á að taka afstöðu til þeirra og er nauðsynlegt að almenningur fylgist vel með því. . • Hinir flokkarnir fengust ekki til að ræða þessar tillögur alvarlega og tillogunum, sem þeir sjálfir lögðu fram í nefndinni, var helzt að líkja við köngu- lóarvef. Sérstaka athygli vakti það, hve tillögur Al- þýðuflokksins voru aumar, eftir öll stóru orðin und - anfarið og þó einkum fyrir kosningar. Fór þá ýmsa að gnina, að eitthvað óhreint mundi undir búa, eina • og líka kom á daginn. (Framhald)..

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.