Þjóðviljinn - 31.08.1947, Blaðsíða 5
Sunnudagur 31. ágúst 1947.
ÞJ ÓÐ VHJINN
| S K Á K 1
| Ritstjóri: Guðmundur Arnlaugsson 14 :
Tíu manna skáksveit frá
Tékkóslóvakíu ferðaðist til Hol
lands og Englands í júnímán-
uði og tefldi við úrvalslið þess
ara landa. Tékkarnir unnu Hol-
lendinga með 12 y2 vinning gegn
71/2, Englendinga með 12 gegn
8 og úrvalssveit frá miðhéruð-
um Englands (Midland Counti-
es) með 13% gegn 6y2.
Tékkar hafa átt góða skák-
menn og virðast nú búnir að
ná sér á strik aftur eftir styrj-
öldina. Athyglisvert er það að
komið hafa fram nýir skák-
menn er standa görnlu kempun
um fyllilega á sporði. Þannig
'ter skákmeistari þeirra Ludek
Pachmann ekki nema tuttugu
og þriggja ára. Lesendur Skák
dálksins eru ekki alveg ókunn-
ugir þessum manni, því að hann
hafði hvítt gegn Alexander í
tafiinu sem birt var á sunnu-
daginn var.
Annars hefur Cenek Kott-
nauer vakið einna mesta at-
hygli hinna nýju manna. Hann
er nokkru eldri, fæddur 1910,
en nafn hans var alveg óþekkt
þar til í fyrra að hann stóð sig
bezt Tékkanna í hinni hörðu
keppni milli Prag og Moskva.
Einkenni hans er einkum seigl-
an, en hann kann líka að beita
flugeldum, eins og lesendur
geta séð af þeirri skák hans
er birtist hér í dag. Þriðji efni
legasti maður hinnar nýju kyn
slóðar er Jaroslav Sajtar. Hann
er fæddur 1921
Af hinum eldri er Karel Opo-
censky kunnastur. Hann er
hálfsextugur, hefur teflt á
mörgum skákmótum í Evrópu
fyrir stríð og orðið skákmeist
ari Tékkóslóvakíu fimm sinn-
um. Jan Foltys og Frantisek
Zita hafa teflt fyrir hönd
Tékkóslóvakíu á alþjóðamótum
og orðið skákmeistarar Tékkó-
slóvakíu einu sinni hvor. Skák-
in er sýnilega í góðu gengi i
Tékkóslóvakíu og mikil stund
lögð á hana. Foltys er skák-
kennari við Ironvors-Vitkovice,
stærstu iðjuvcr Tékkóslóvakíu.
Opocen§ky og Kottnauer eru
skákfregnritarar við fræðslu-
mála- og utanríkisráðuneytin.
SIKILEYJARVÖRN
Galia Kottnauer
Vínarborg 1947.
1. e2—e4 c7—c5
2. Rgl—43 d7—d6
3. d2—d4 c5xd4
4. Rf3xd4 Rg8—f6
5. Rbl—c3 a7—a6
6. Bfl—e2 e7—e5
Svona leikur hefur verið tal
inn skussaleikur hér á íslandi
(eins og annarsstaðar) og ekki
sést ofar en í öðrum flokki
þangað til Yanofsky lék hann á
móti Árna Snævarr í fyrra og
fékk jafntefli. Yanofsky var
þá nýkominn frá skákmótinu
í Groningen og hafði lært leik
inn þar af rússneska meistar-
anu Boleslavsky. Leikurinn er
óálitlegur vegna þess að hann '
skapar veilu á d6 en það kem
ur í ljós að hvítur á erfitt með
að hindra d6-peðið í að komast
til d5 en þá hefur svartur losn
að við veiluna og stendur vel.
7. Rd4-—b3 Bc8—e6
8. BeJ —g5 Rb8—d7
9. f2—f3 Bf8—e7
10. Ddl—d2 0—0
11. Hal—dl Ha8—c8
12. 0—0 Dd8—c7
13. Kgl—hl Hí8—d8
14. a2—a3 Rd7—b6
15. Dd2—el d6—d5
Hvítur reyndi allt hvað hann
gát að hindra peðið en það
komst samt. áfram og nú stend
ur svartur betur. Reyndar gat
hvítur gert eitt enn til að
þrýsta á d5, en það var að leika
Be2—f3 í 8. eða 9. leik.
16. e4xd5 Rf6xd5
17. Kc3xd5 Rb6xd5
18. Bg5xe7 Dc7xe7
19. Be2—d3 De7—g5!
Svartur sækir á. Leikurinn
hótar Rf4 með tvöfaldri hótun:
Dxg2 mát og Bxb3,cxb3,Rxd3
eða öfugt. Hvítur getur ekki
svaráð með 20. Dg3 vegna
Dxg3 og Re3 og svartur vinn-
V
ur skiptamun ....
20. Del—{12
.... en þessi leikur bjargar þó
öllu, því að nú kemst riddarinn
ekki á e3 því að þar er hann
lepþur drottningarinnar og hyít
ur vinnu hann með Hfel.
20. ----Rd5—e31!
Hann kemst þó! Óvenjufalleg-
ur leikur! Hvítur sér nú að 20.
Hf 1—el strandar á Hd8xd3!
22. cxd3 Hc2! og vinnur drottn
inguna. Svartur hótar þessu
nú þegar og við því er aðeins
eitt til:
21. Hdl—cl li7—116
Svartur valdar drottninguna
og gefur kónginum rúm svo
að hann á ekki á hættu að
verða mát í borðinu. Hvítur get
verða mát áborðinu. Hvítur get
ur enn ekki leikið Hfel vegna
22. — Hxc2! T. d. a) 23:Hxc2
Hxd3! 24. Dcl Rxc2 b) 23.
Dxc2 Rxc2 24. Bxc2 Bxb3. 25.
Bxb3 Hd2 og vinnur.
22. Hfl—gl Be6xb3
23. c2xb3 Hc8xcl
24. Hglxcl e5—e4!
Það er auðvelt að leika af
sér unnu tafli: 24. — Hxd3 25.
Hc8f Kh7 og nú drepur drottn
ingin hrókinn með skák!
25. f3—f4! Hxd3
26. Dil2xe3
26. Dxd3 er ekki betra: exd3
27. fxg5 d2 og vinnur hrókinn.
26. -----Hd3xe3
27. f4xg5 h6xg5
28. b3—b4 He3—e2
29. Khl—gl He2xb2
og svartur vann.
(Eftir Chess Review).
Að lokum létt skákdæmi eft-
ir Boswell.
Hvítt: Kc8 — Da4 — Pb6
Svartur: Ka8 — Ba7 — Rb8 —
Pa5, b7 og d5.
Hvítur á að máta í þriðja
'leik.
áVARP
um f jársöfnun
vegnabrunansá
Laugarvatni
Sunnudaginn 17. ágúst brann,
sem kunnugt er, mikill hluti að
albyggingar héraðsskólans á
Laugarvatni.
Laugarvatnsskólinn, sem hef
ur stárfað í nær 20 ár og haft
innan sinna vébanda 2000 nerri-
endur úr öllum héruðum land-
ins, er fyrir löngu orðin þjóð-
kunn stofnun. Á sumrum hefur
eitt stærsta gistihús landsins
verði starfrækt að Laugarvatni
og hefur það notið sérstakra
vinsælda hinna mörgu gesta, 'er
þar hafa dvalizt lengri eða
skemmri tímá. Auk þess hafa
árlega verið haldm þar fjöl-
mörg námskeið, ,þing og mót
ýmissa félaga og sambanda,
enda hefur staðurinn átt óvenju
miklum vinsældum að fagna.
Laugarvatn á því marga unn
endur um land allt og gefst
þeim nú kostur á að sýna hug
sinn í verki við endurreisn skól-
ans. Margir hafa þegar sýnt á-
huga í orði og verki. Þessi áhugi
er nú að verða svo almennur,
að við undirritaðir, Laugvetn-
ingar og aðrir unnendur skól-
ans, höfum ákveðið að gangast
fyrir almennri fjársöfnun. Til-
gangur hennar er að bæta tjón
hinna 18 starfsstúlkna á Laug-
arvatni, er misstu aleigu sína
í brunanum og ennfremur
styðja að endurrcisn skólans t.
d. með kaupum á húsbúnaði eða
öðrum hlutum, er skólanum
verða til gagns og prýði.
Hérmeð skorum við því á a.Ia
neméndur Laugarvatnsskólans,
eldri og yngri og aðra unnendur
hans að styðja þessa fjársöfn-
un með fjárframlögum, stórum
eða smáum, eftir efnum og á-
stæðum, og sameinast þannig
um það takmark, að Laugar-
vatnsskólinn rísi sem fyrst að
nýju, jafn glæsilegur og áður
og að tjón þeirra, sem misstu
eigur sínar í brunanum verði
bætt.
Fræðslumálaskrifstofan, Arn-
arhvoli í Reykjavík, hefur góð-
fúslega lofað að verða miðstcð
fjársöfnunarinnar og ber að
senda þangað fjárframlög í
pósti eða á annan hátt. Enn-
fremur hafa dagblöðin í Reykja
vík lofað að taka við fjárfram-
lögum.
Reykjavík, 30. ágúst 1947.
Björn Björnsson skrifstofu-
stj., Daníel Ágústínusson, full-
tr., Emil Björnsson cand. theol.,
Fríða Stefáns’ íþróttakennari,
Friðgeir Sveinsson gjaldkeri,
Gísli Guðmundsson verzlm.
Gunnar Eggertsson tollv., Jón
Emil Guðjónsson frkvstj. Liba
Einarsdóttir frú, Lúðvík Hjálm
týsson framkvstj.., Svavar Guð
mundsson kaupm. Sigurmuncf "
Gíslason tollv., Ásgeir Stefán -
son forstj. Hafnarfirði, Hal!-
dór Kiljan Laxness rith., Mos-
fellsv. Helgi Hallgrímsson Rvík,
Jónas Jónsson alþingism. Rvík,
Jónatan Hallvarðsson hæstrétt
6
Á HVlLDARDAGINN
12. apríl samþykkti alþingi
lög um tolla á aðfluttum
varningi og var áætlað að
þeir myndu nema 45 millj.
króna á einu ári. Með þessu
þóttist ríkisstjórnin hafa
komið ár sinni vel fyrir borð
og geta vaðið í peningum um
ófyrirsjáanlega framtíð.
Jafnframt tóku hannesar
afturhaldsins sér stöðu á
hverju horni og brýndu fyr-
ir þjóðinni að þessar tolla-
hækkanir væru hin mesta
nauðsjn, þær tryggðu rík-
isstjórninni fé til mikilla og
glæsilegra framkvæmda. Nú
væri um að gera fyrir þjóð-
ina að kaupa sem mest af
aðfluttum varningi, þá yrðu
t tollatekjurnar miklar, at-
haínirnar stórvægilegar og
framtíðin rósum stráð.
A
Síðan eru liðnir fáeinir
mánuðir og fagnaðarsöngur
stjórnarinnar hefur breytzt
í harmagrát. Nú cr boðskap-
urinn ekki lengur aukin
kaup á aðfluttum varningi
og miklar tollatekjur, heldur
sparnaður, skömnftun,. inn-
flutningsbann. Og enn
standa hannesar afturhalds-
ins á göíuhornunum, haf-
aadi selt einn lúxúsbálinn á
fæiur öðrum á svörtum
markaði, og færa þjóðinni rú
þann boðskap að hún verði
að spara sitt daglega kaffi
og ganga á gauðslitnum
skóni, svo að landið verði
ekki gjaldþrota!
★
Þessi tvö mjög svo and-
stæðu „bjargráð“ eru gott
dæmi um vinnubrögð ríkis-
stjórnarinnar, þar sem hið
síðara vegur þvert gegn liinu
fyrra. Hvað verður nú um
tolltekjur ríkissjóðs, þær 45
milljónir, sem áttu að bjarga
framtíð landsins fyrir fá-
einum mánuðum ? Tolltekj-
urnar minnka með hverri
nýrri takmörkun á innflutn-
ingi, enda segja fróðir menn
að ekki sé minna tóinahljóð í
ríkiskassanum en hcilabúi
sumra ráðherranna. Borg-
arstjóri Rc.ykjavíkur hefur
skýrt frá því að ríkissjóð-
ur hafi í fátækt sinni ekki
getað staðið við skuldbundn-
ar greiðslur, þrátt fyrir í-
trekaðar kröfur. En vænt-
( anlega verður ráðherra hinna
gulu seðla ekki ráðþrota
þótt ríkissjóður komist í
greiðsluþrot.
★
Annars má segja að hin-
ar mjögumtöiuðu skömmtun-
arráðstafanir Emils Jóns-
sonar Iiafi lýst furðu mikilli
hugkvæmni og tryggð við
hin andstæðu „bjargráð“.
Hin svokallaða skömmtun,
sem hafði að yfirvarpi gjald-
eyrissparnað og átti að vera
hluti af síðara bjargráðinu,
var framkvæmd þannig að
fólk fékk hömstrunaræði og
keypti aiit sem liönd á festi,
jók sem sé tollatekjurnar,
seni voru liður í fyrra bjarg-
ráðinu. Var þetta auðsjáan-
lega gert ao yfirlögðu ráði,
til þess að fresta útgáfu
guira seðia, þótt ekki væri
nema nokkra daga. Á því er
t. d. enginn vafi að aðfar-
irnar við kaffiskömmtunina
Jiafa orðið til þe.ss að kafíi-
kaup almennings verða meiri
á þessu ári en nokks-u sinni
fyrr. Annars iná segja að
kaffiskömmtun, þótt til
heimar hefði verið stofnað
á heiðarlegan hátt, sé næsta
lítið og vesæit bjargráð og
mæíavel samboðið núver-
andi ríkisstjórn. Gjaldeyris-
sparnaðurinn af kaffi-
skömmtun nemur á mánuði
sem svarar andvirði tveggja
lúxusbíla, en þeir halda sem
kunnugt er át'ram að streyma
inn í Iandið. Hann er að-
eins brot af heimanmundi
einnar ameríkugiftrar heild-
saladóttur og injög svo ó-
verulegur hluti af fé því sem
heildsalaf j7rirtæki — eins og
S. Árnason & Co. — liafa
svikið undan til útlanda.
★
Enda er kaffiskömmtun-
inni vissulegá ekki ætlað að
bjarga gjaideyrismálum
þjóðarinnar. Ilins vegar
hugsar stjórnin sér að hún
he.fi nokkur sálræn áhrif.
Hver k.affibolli, sem menn
neita sér um á að færa þeim
heim sannian um það að
fjárhagur landsins sé börmu
legur, nú sé aðeins fram-
undan niðurskurður, at-
vinnuleysi, hrun og dollara-
lán.
Mosialisgar I UMgvei8|alaMtIi
Framhald af 1. síðu.
Þjóðfylkingin heitir því að
standa einhuga um sjálfstæði
landsins, gegn erlendri íhlutun
ardómari, Rvík, Magnea Jósefs-
son frú, Rvík, Páll Hallgrínis-
son sýslum. Selfossi, Sigurgeir
Sigurðsson biskup Rvik, Sigur-
laug Erlendsdóttir frú, Bisk-
upst., Tryggvi Ófeigsson Rvík,
Vilhj. S. Vilhjálmsson blaðam.
Rvík, Vilhjálmur Þór framkv.-
stj., Rvík. Þorst. Einarsson í-
þróttafulltr. Rvík.
um innanlandsmál Ungverja-
lands.
„Undirstaða lýðræðisstjórn-
ar í Ungverjalandi er samvinna
og náið bandalag bsenda, verka
manna og frjálslynda mennta-
manna“, segir í ályktuninni að
lokum. „Því lýsa Þjóðfylkingar-
flokkatnir yfir að þeir muni
einnig eftir kosningarnar halda
áfram samvinnu og efla frið-
samlega þróun þjóðfélagsins,
hag ungversku þjóðarinnar og
landvarnir.“