Þjóðviljinn - 14.09.1947, Qupperneq 1
*
12. árgangur. Sunnudagur 14. sept. 1947.
Viðskipti A.- Evrópuþjóðanna byggj-
ast á traustum grundvelli vaxandi
ydmegunar
Samtímis stefna Vestur-Evrópuríhin3 með
—aðstað™ MtamdMríhjanna út í harðeítuga
auð tmidshr ep pu
Víðtækir viðskiptasamningar landanna í
Austur- og Mið-Evrópu vekja sivaxandi at-
hygli sem vottur um það að viðreisn þessara
landa eftir styrjöldina sé komin í öruggan far-
veg.
Pólski viðskiptamálaráðherrann Hilary
Minc lét svo ummælt er hann var nýlega á ferð
í París í viðskiptaerindum, að Pólland hefði
fullan hug á því að auka viðskipti sín við Vest-
ur-Evrópu eins mikið og frekast væri unnt.
Það væri fjarri lagi sem einkum hefði veriði
haldið fram í brezkum og bandarískum blöð-
um að Pólland eða löndin í Austur-Evrópu yf-
irleitt, vildu slíta viðskiptabönd eða stjórn-
málatengsl við Vesturlönd, þó þau neituðu
þátttöku í Parísarráðstefnunni.
Pólland hefur nú verzlunar^
viðskipti við 26 lönd og fasta
viðskiptasamninga við 12 af
þeim 16 ríkjum, sem þátt
taka í Parísarráðstefnunni.
í nýútkominni skýrslu frá
ráðuneyti utanríkisviðskipta
í Tékkóslóvakíu, sést að
Tékkar hafa verzlað við 27
þjóðir á þessu ári, og gert
yfir 20 milliríkjaviðskipta-
samninga síðan stríði lauk.
Það vekur sérstaka athygli
í viðskiptaheiminum, að sam
tímis því að lönd eins og
Bretland, Frakkland, Ítalía og
Belgía eru að lenda í alvar-
legum efnahagski’eppum og
viðskiptakreppa fer að breið-
ast út frá Bandaríkjunum,
heldur atvinnuþróun og end
urreisn truflunarlaust áfram
í löndum Austur-Evrópu, er
gert hafa innbyrðis mikla við
skiptasamninga síðustu mán-
uði.
Hinn 5. júlí var undirritað-
ur viðskiptasamningur milli
Tékkóslóvakíu og Póllands,
er ákváðu að skiptast á fram
leiðsluvörum og hefja víð-
tæka samvinnu um atvinnu-
og viðskiptamál.
13. júlí gerðu Sovétríkin og
Tékkóslóvakía með sér við-
skiptasamning til 5 ára um
gagnkvæm kaup á fram-
leiðsluvörum landanna. Á
næsta ári selja Rússar Tékk-
um 200 þús. . tonn af hveiti,
200 þús. tonn fóðurs, 65 þús.
tonn áburðar og 20 þús. tonn
af baðmull en kaupa í staðinn
tékkneskar vélar, búfénað,
sykur, skó og vefnaðai'vörur.
15. júlí var undirritaður
viðskiptasamningur milli Sov
étríkjanna og Albaníu.
25. júlí gerðu Sovéti’íkin og
Júgóslavía með sér viðskipta
samning, og selja Rússar vél-
ar, baðmull, sellólóse og drátt
arvélar en kaupa af Júgóslöv-
urn blý, sink, kopar, tóbak,
hamp og landbúnaðarafui’ðir.
26. júlí var undirritaður
þriggja ára viðskiptasamning
ur Ungverjalands og Júgóslav
íu, er leggur grundvöll að
miklum viðskiptum.
Fyrstu dagana í ágúst var
gerður víðtækur viðskipta-
samningur milli Búlgaríu og
Tékkóslóvakíu.
‘Um sama leyti hittust Dimi
troff og Tito í Bled, og undir-
rituðu samning milli landa
sinna, Búlgaríu og Júgóóslav-
íu, um nána samvinnu land-
anna í framleiðslu-' og við-
skiptamálumm.
Brezka blaðið „Daily Work
er“ segir um þessa samninga
m. a.
,;Það er mikilvægt að láta
sér skiljast, að í Austui’-Ev-
rópu eru að þróast áætlunar-
bundin milliríkjaviðskipti.
í fyrsta sinni í sögunni eru
viðskipti skipulögð á grund-
velli hinna sívaxandi inn-
flutnings- og útflutnings-
möguleika sem tryggð eru
með framkvæmdum hverrar
áætlunar í búskap samn-
ingsþjóðanna. Áætlanirnar
verða þannig til gagnkvæms
öryggis.“
M> ndin er af einu nýbýli
ír Gyðinga í Palestínu
Fyrir íáum árum var
þessi staður ófrjó eyði-
mörk.
208. tölublað.
Stannsókn á fóður-
Eiirgðum álfunnar
Hið nýja alþjóðlega mat-
vælaráð hélt fyrsta fund sinn i
Geneva í fyrradag.
Skipuð var nefnd til að rann-
saka fóðurbirgðir í Evrópu og
gera tillögur um dreifingu
þeirra. Nefndina skipa fulltrú-
ar Bretlands' ,Danmerkur,
Frakklands og Hollands.
Skæruliðar efa
arðheldni grísku
stjórnarinnar
Gríska þingið samþykkti í
gær eftir lreitar umræður frum
varp um sakaruppgjöf til skæru
liða, ef þeir legðu niður vopn.
Skæruliðar hafa svarað fyrri
tilboðum stjórnarinnar um sak
aruppgjöf með því að benda á
að ráðamenn hennar séu enn
þeir sömu, er hafi svikið alla
gerða samninga um lýðfrelsi og
notað sér að andstæðingar af-
hentu- vopn sín til þess að hef ja
ofsóknir gegn þeim um allt
land.
Á fjallsbrún upp af Eyjafjarðardölum. Þokan hálffyllir
dalinn framundan.’ Varðan til hægri heitir „Sankti Pétur“
og var lilaðin sem vegvísir á dögum Bjarna amtmanns á
Möðruvöllum. (Sjá grein á 8. síðu).
Bretar verða að leggja hart að sér til
að auka útfiutninginn
Sir Stafford Cripps boðar nýjar takmarkanir
á heimamarkaðinum
Sir. Stafford Cripps hélt útvarpsræðu í fyrrakvöld og
lýsti yfir að brezka þjóðin yrði að leggja enn meira að sér
til að auka útflutninginn. Bretar yrðu að auka heildarút-
flutning sinn um þriðjung, og beina Iionum einkum tií
þeirra landa sem birgja Breta að matvælum.
Cripps lagði áherzlu á að ekki yrði hægt að ná þessu
marki nema méð því móti að Bretar neituðu sér eða spör-
uðu við sig ýmsar nauðsynjavörur, og mundi það eins og
venjulega koma harðast niður á húsmæðnmum.
Ráðherrann kvaðst vongóð-
ur um að hægt yrði að auka út-
flutninginn verulega, og hefði
stjómin sett sér það mark að
flytja út næstu níu mánuði: 140 '
tonn fyrir hver 100 sem flutt
hefðu verið út árið 1938, og
halda svo áfram aukningunni
svo að út yrðu flutt 160 tonn
fyrir hver 100 fyrir stríð.
íhaldsblöðin taka þessari yf-
irlýsingu Cripps mjög illa og
ráðast harðlega á stjórnina fyr-
ir hinar boðuðu ráðstafanir.
Hins vegar er ræðunni vel tek-
ið af leiðtogum verkalýðsfélaga,
að því er brezka útvarpið skýr
ir frá.
Ný verkföll virðast vera í
uppsiglingu í Yorksshire. Hafa
6000 námamenn boðað verkfall
eftir hálfan mánuð, og nær það
til 150 náma. Segjast verka-
menn hafa- átt í samningum
við stjórn kolanámanna síðan í
maí í vor og hafi hvorki gengið
né rekið.
Hannsókná vopna
hléi Hollendinga
og Ménesa
Konsúlar sameinuðu þjóð-
anna í Batavíu eru í þann veg-
inn að hefja rannsókn sína á
því hvernig Hollendingar og
Inónesar hafi lialdið vopnahléð,
sem sett var að tilhlutun ör-
yggisráðsins.
Báðir aðilar hafa verið sak-
aðir um brot á hlutleysisskil-
málunum og hafa bardagar.
blossað upp öðru hvoru víðs-
vegar um landið.