Þjóðviljinn - 25.09.1947, Side 1
Vinstri öflin kuguð og ofsótt á banda
riska hernámssvæðinu í Kóreu
Verkalýðs- ©g alþýðnleiðtogar fangelsaöir
þúsiindniii saman
Fjöldahandtökur og ofbeldisverk, sem hófusí4
um miðjan ághst, hafa neytt flest samtök vinstri
manna í suðurhluta Kóreu, sem hemuminn er af
Bandarikjamönnum, til að starfa á laun, segir
Hugh Deane, fréttaritari bandarísku fréttastofunn-
ar AFL. Deane hefur á þriggja vikna ferðalagi um
bandaríska hemámssvæðið kynnt sér ástandið
þar. Hann segir, að afturhaldsöflin, sem dr. Syng-
man Rhee veitir forustu og fara með stjórnina,
vinni markvisst að því að kúga alla andstöðu-
flokka.
Verzlunarráð-
stefan í Genf fer
út um þúfur
Vegna ósamkomulags
Breta og Bandaríkja-
manna
Afsal sjálfsákvörð
unarréttar skil-
yrði fyrir aðstoð
Bandarískir stjórnmálamenn
eru varfærnir í dómum um
skýrslu Parísarráðstefnunnar.
Hafa ýmsir þingmenn lýst því
yfir, að þingið muni athuga
gaumgæfilega, hvort þarfir Evr
ópuríkjanna séu í raun og veru
jafn miklar og ráðstefnan vill
vera láta. Þá hafa þeir lýst þvi
yfir að ef aðstoð verði veitt,
verði hún bundin ýmsum skil-
yrðum, hið helzta þeirra, að
kommúnistar hafi enga hlut-
deild í ríkisstjórnum þeirra
landa, er aðstoðina fá. Ekki er
tekið fram, hvaða aðferðum
Orðsending frá sósí-
alistafélagi Reykja-
víkur.
Þeir flokksfélagar sem
eiga ógreidd flokks-
gjöld eru vinsamlega
beðnir að gera skil á
skrifstofu félagsins.
Stjórnn.
Meiri afköst á fimm
daga vinnuviku
Kolaframleiðsla i Bretlandi í
ágúst var aðeins 100.000 lestum
fvrir neðan takmark stjórnar-
innar þrátt fyrir Grimethorpe-
verkfallið. Segir stjórn kolanám
anna, að fullreynt sé, að náma
menn vinni meiri kol á fimm-
daga vinnuviku en sex daga.
hlutaðeigandi ríkisstjórnir eigi
að beita til að halda kommún-
istum niðri en ef dæma skaí
eftir aðförunum þar sem banda-
rísk aðstoð hefir þegar verið
veitt, svo sem í Grikklandi, eru
það morð og fangabúðir.
Til þess njóta þau stuðnings
bandarísku' hemámsyfirvald-
anna og fjömennra „æskulýðs-
samtaka,“, sem eru ekkert ann-
að en dulbúnar stormsveitir,
sem notaðar eru til ofbeldis-
verka.
Dreymir um „Stór-Kóreu“
Fyrsta takmark hægri afl-
anna er að setja á stofn sjálf-
stæða and-kommúnistastjórn i
Suður-Kóreu, sem haldið sé uppi
af bandarísku f jármagni. Hægri
flokkarnir búast við — og vonast
eftir — stríði milli Bandarikj-
anna og Sovétríkjanna, og for-
mælendur þeirra eru þegar farn
ir að krefjast þess, að „Stór-
Kórea“ fái sneið af Mansjúríu
og Kyrrahafsströnd Sovétrikj-
anna.
Funda og prentfrelsi afnumið
Fram í miðjan ágúst voru
samtök vinstrimanna að hálfu
leyti lögleg og hálfu leyti leyni -
leg. Nú er nær algerlega búið
að bæla niður vinstri flokkana,
verkalýðsfélögin, bændasam-
bandið og önnur slík samtök
með lögreglukúgun og ofbeldi.
Þeir af kunnum leiðtogum
vinstri manna, sem ekki eru í
fangelsi, fara huldu höfði í borg
unum eða hafa flúið til fjalla.
í höfuðborginni Seoul eru ,enn
gefin út tvö eða þrjú vinstri-
blöð, enda þótt stormsvej.tir
geri stöðugar árásir á prent-
smiðjur þeirra. Engin vinstri-
blöð koma út annarsstaðar í
Suður-Kóreu. Fundahöld voru
bönnuð snemma í ágúst.
2000 handteknir á fjórum dög-
um.
Kúgunarherferðin gegn vinstri
öflunum var áköfust dagana frá
11. til 15. ágúst. Fyrir henni
stóðu ríkislögreglan undir
stjórn Sjó Pjúngok, flokksbr.
Syngman Rhee, og stormsveitir
hermdarverkamanna. Banda-
rísku hernámsyfirvöldin gáfu
kóreönsku lögreglunni lausan
tauminn á ráðstefnum yfir-
manna beggja, sem haldnar
voru rétt fyrir handtökurnar.
Alls voru 2000 menn handtekn-
ir í Suður-Kóreu til 15. ágúst,
um helmingur þeirra var aftur
látinn laus næstu daga. Gagn-
njósnadeild bandaríska her-
námsliðsins framkvæmdi einn-
ig nokkrar handtökur. Flestir
hinna handteknu voru forustu-
menn þeirra 24 fiokka og sam-
taka, sem standa að Alþýðlega
lýðræðisbandalaginu, svo sem
Verkamannaflokksins (komm-
únista), Alþýðlega lýðveldis-
flokksins, verkalýðsfélaga,
bændasamtaka, samvinnufélaga,
trúarfélaga, menningarfélaga,
kvenfélaga og æskulýðsfélaga.
Fjöldi kennara, rithöfunda, lista
manna, blaðamanna og lögfræð
inga, ásamt tveim leiðtogum
Sambandsins til verndar mann-
réttindum voru meðal hinna
handteknu.
' Misþyrmingar og rán
Dagana 11. til 15. ágúst
gerðu ofbeldismenn í Seoul og
víðar húsrannsóknir, mis-
þyi'mdu vinstri mönnum og
þeim, sem þeir grunuðu um að
vera vinstrimenn, fangelsuðu og
píndu vinstrimenn í einlcafang-
elsum sínum og rændu skrifstof
ur og prentsmiðjur vinstri flokk
anna.
Eftir handtökurnar tilkynntu
yfirmenn kóreönsku lögreglunu
ar og John R. Hodge hershöfð-
ingi, yfirmaður bandaríska her-
námsliðsins, að komizt hefði
upp um víðtækt kommúnista
samsæri „stjórnað frá Norður-
Kóreu“, til að eyðileggja og
kollvariia bráðabirgðastjórninni
í Suður-Kóreu. Enn sem komið
er hafa engar frekari upplýsing
ar um það verið gefnar og eng-
in af þeim sönnunargögnum,
sem liernámsjTirvöldin þykjast
hafa komizt yfir, hafa verið
bLrt.
Fulltrúi Breta á viðskiptaráð-
stefnunni í Genf lýsti því yfir i
gær, að allar líkur væru á, að
ráðstefnan færi algjörlega út
um þúfur. Veldur því ósam-
komulag milli Bandaríkjanna
annars vegar en Breta og
brezku samveldislandanna hins-
vegar.
Clayton, fulltrúi Bandaríkj-
anna á ráðstefnunni dvaldi í
London um síðustu helgi og
ræddi ágreiningsmálin við Sir
Stafford Cripps, verzlunarráð-
herra Breta. Viðræðurnar báru
engan árangur. Neita Bretar al-
gerlega að afnema forgangsrétt
indi þau í viðskiptum, er gilda
innan brezka heimsveldisins,
nema Bandaríkjamenn lækki
stórlega innflutningstolla sina.
Miðstjórn Verkamannaflokksms
krefst að stjórnin banni starfsemi
fasista
Sendinefnd frá verkalýðsfélögunum og flokks
deildunum gengur á fund innanríkisráðherra
Miðstjórn brezka Verkamannaflokksins kom saman
á fund í gær undir forsæti Shinwells eldsneytismálaráð-
lierra, sem er formaður flokksins. Samþykkt var einróma
áskorun á ríkisstjórnina að banna alla starfsemi brezkra
fasista.
Sérstaklega vill miðstjórnin
að bönnuð séu fundarhöld fas-
ista í þeim borgarhlutum, þar
Alþjóöabankinn á raldi
handaríska auöraldsins
sem Gyðingar eru fjölmennir.
Telur miðstjórnin brýna nauð-
syn bera til, að stjórnin verði
við þessari áskorun.
Fjölmenn sendinefnd, skipuð
fulltrúum úr öllum greinum
verkalýðshreyfingarinnar, geng
ur bráðlega á fund innanríkis-
ráðherrans Chuter Ede og mun
krefjast þess, að starfsemi
brezkra fasista verði bönnuð.
Fasistaóeirðir í London
Arthur Long, fréttaritari
ALN í London segir að starf-
semi fasista þar hafi farið si-
vaxandi síðan stríðinu lauk. Fas
istaóeirðir eru nú reglulegur
viðburður um liverja helgi.
Hvatt er til Gyðingaofsókna á
opinberum fundum. Skipulagðir
flokkar fara um göturnar hróp
andi nafn Mosleys, brezka fas-
istaleiðtogans. Horst Wessei
söngurinn heyrist sunginn.
Verkalýðssamtökin krefjast að-
gerða.
Alþjóðabankinn er að nafninu til ein af stofnmium S Þ en í
raun og veru er hann á valdi bankaauðvaldsins í Wall Street,
sem leggur honum til starfsfé. Hér sést formaður kauphallar-
innar í Wall Street, EmU Schram (í miðið) ásamt forseta
bankans John McCloy (til hægri) og Kyriakos Varvaresos
bankastjóra. Þeir halda á pappírsræmum, sem á eru letraðar
sölur á fyrstu verðbréfaútgáfu bankans, 250 millj. dollara, sem
seldust upp á þrem klukkustundum.
Ein af þeim fáu ályktunum
sem fólu í sér gagnrýni á rikis-
stjórnina og samþykki náðu 4
Sseinasta þingi brezku verkalýðs
félaganna varðaði linkind stjórn
arinnar gagnvart fasistum.
Krafðist þingið þess, að einbeitt
ar ráðstafanir yrðu gerðar til
að þagga niður í þeim.