Þjóðviljinn - 25.09.1947, Side 5

Þjóðviljinn - 25.09.1947, Side 5
Fimmtudagmn 25. sept. 1947. ÞJOÐVlLJINN 5 Það þarf ai halda áfram togarakaupum Islend- ingaf þannig að 25 togarar hafi bætzt við hina 32 nýju fram að 1952 * Píið er hægt að tryggfa erlendan gjaldegri fgrir þessum togarahaupum með því að leggfa 25% af útflutningsrerð mæti því* sem ngju togararnir skapa. til hliðar næstu 5 ár Flóttiim til Búlgaríu HRUNSTJÓRNIN sem nú er að leggja hlekki atvinnuleys- isins að íslenzkum verkalýð. samtímis áróðri fyrir verð- hruni íslenzkra afurða, veit að hún stendur frammi fyrir þjóðinni rúin síðustu blekk- ingaspjörunum. I ALGEÍRU RÖKÞROTI og upp- gjöf hafa afturhaldsblöðin, málgögn hrunstjórnarinnar, ákveðið að flýja til Búlgaríu. Það er svo miklu' þægilegra fyrir þessi uppgefnu blöð að skrifa um vonda kommúnista í Búlgaríu en .atvinnuleysið sem hrunstjórnin er að leiða yfir þjóðina. ÁN ÞESS að Þjóðviljinn leggi neinn dóm á Petkoffmálið er rétt að benda á hræsni aftur- haldsblaðanna í því máli sem athyglisverða staðreynd. Sömu blöð sem hæst láta út af dóminum á Petkoff hafa t. d. skriðið fyrir þýzka naz- ismanum (Morgunblaðið) eða dást að stjómarfari sem leiðir af sér rgttarmorð og fangelsanir verkalýðsleið- toga og frjálslyndra manna, í Grikklandi og fleiri lönd- um (Mbl., Aiþýðubl., Vísir, Timinn). Alþýðublaðinu hef- ur heldur ekki þótt neitt at- hugavert við það að ríkis- stjórnir undir forustu sósíal- demókrata hafi sýnt „lýð- ræðissósíalisma“ sinri í því að banna stjórnarandstöðuna og ofsækja og fangelsa for- ustumenn hennar, eins og gert hefur verið í Brasilíu. STJÓRNMÁLAÁSTANDINU í Búigaríu hefur verið lýst hér í blaðinu nýlega af heims- kunnum sósíaldemókrata, Georg Branting, er hefur kynnt sér það af dvöl í land inu. Væri sérstaklega holt fyrir Alþýðublaðið að kynna sér álit þessa „flokksbróð- ur“, en sú grein var birt í aðalblaði sænskra sósíaldemó krata. Að lokum nokkrar Það virðist nú loks svo kom ið, að kaup hinna 32 nýju togara, — sem helztu núver- andi fjármáladrottnar lands- staðreyndir til samanburðar við moldviðri hrunstjórnar- blaðanna. ★ I búlgörsku stjórninni, sem mynduð var að aflokn- um síðustu kosningum og nú situr að völdum eiga sæti 9 kommnnistar, 5 Bænda- flokksmenn, 2 sósíaldemó- kratar, 2 Sveno-flokksmenn og einn utanflokka. ★ Bændaflokksráðherrarn- ir fara með þessar stjórnar- deildir: Landbúnaðarmál, dómsmál, ríkisrekstur fyrir- tækja og járnbrautamál, Einn ráðherra Bændaflokks- ins er varaforsætisráðherra og sósíaldemókratar eiga einnig varaforsætisráðherra. ★ Stjórnarandstaðan hlaut 101 þingmann en stjórnar- flokkarnir samtals 364. Til stjórnarandstöðunnar telst klofningsdeild úr Bænda- flokknum og úr henni voru 23 þingmenn er þingið taldi að hefðu fyrirgert þingsetu- rétti sínum vegna þátttöku í samsæri Petkoffs, en vara- mönnum af framboðslistum Bændaflokksins var boðið að taka sæti þéirra. ★ Stjórnarandstaðan hefur ekki verið „bönnuð“. Þrír Framhald ó 7. síðu. ins þá kölluðu fásinnu, — séu orðin viðurkennd sem hið happadrýgsta verk fyrir ís- lenzku þjóðina af öllum al- menningi. En það er ekki nóg að við- ur kennt sé eftir á, þegar á- gaeti verksins kemur 1 ljós, að rétt hafi verið ráðið. Það þarf að halda áfram þeirri forsjálni í að tryggja fram- tíð þjóðarinnar, sem fram kom í togarakaupunum 1945. Og það er hægt. Og það dug- ar ekki að sleppa tækifærun- um, nú til þess að semja um slíka togara til afgreiðslu á árunum 1949 og þar á eftir. Og þjóðin á nægan gjaldeyri til þess að kaupa 25 togara í viðbót á næstu fimrn árum, — eða réttara sagt hún hefur ekki efni á að sleppa því að setja fé sitt í slík togarakaup, ef hún ætlar að búa skynsam- lega í haginn fyrir sig og tryggja sér batnandi lífskjör á næstu árum. Skal nú sýnt fram á hvernig útvega má þann erlenda gjaldeyri, sem til þarf. Þegar allir hinir nýju 32 togarar eru komnir á veiðar, þá munu þeir, ef reiknað er með veiði þeirra og fiskverði, sem undanfarin reynsla af þeim sýnir, framleiða fyrir 92 milljónir króna á ári, að því er Morgunblaðinu reikn- ast til. Ef 25% af útflutnings- I verðmæti þessu væri lagt til hliðar árlega, til nýrra togara kaupa, þá mundi sú upphæð nema 23 milljónum króna á ári, ef núverandi verðlag helzt. Það yrði 115 milljónir króna á fimm árum (1948— 1952, að báðum meðtöldum). Núverandi togarar munu kosta um 3,3 milljónir hver. Gera mætti ráð fyrir nýjum togurum dýrari, ekki sízt, ef komið yrði fyrir fiskimjöls- vinnslu o. fl. í þeim. En vart mun þó þörf að reikna með meiru en 90—100 milljónum kr. fyrir 25 nýja togara af svipaðri stærð og nýsköpun- artogarana. Það er fyllilega kleift að spara gjaldeyri þann, sem er beinn ávöxtur af þeim 100 milljónum króna, sem lagðar voru í nýsköpunartogarana, svo sem hér er lagt til. Til þess þarf aðeins stjórnsemi og for-sjálni. Ekki myndi skorta áhugann hjá þjóðinni fyrir slíkum sparnaði, eftir hrifnmgu hennar af hinum nýju togurum að dæma. En núverandi ríkisstjórn og hennar fylgifiskar hafa þegar sýnt öllum slíkum hugmynd- um fullan fjandskap. Fyrir þessari ríkisstjórn virðist ekk ert annað vaka en drepa nið- ur allan kjark hjá þjóðinni, samtímis því sem hún steypir henni í efnahagslega kúgun og niðurlægingu. Við umræður fjárhagsráðs- frumvarps stjórnarinnar í vor flutti Sósíalistaflokkurinn breytingatillögu þess efnis að (Framhald á 7. síðu). „Sjálfstœðishúsinu“ hérna. um kvöldið. - Svoleiðis var, að sá merki jlokkur, sem hefur allan veg og vanda af stjórn þessa bœj- ar, boðaði til fundar um bœj- armálin. Slíkt skeður ekki ýkjaoft, kannski tvisvar á kjörtímabili, og bjuggust menn því við nokkrum tíð- indum. Þegar forystulið ,,Sjálfstœð isflokksins“ í bæjarmálum hafði talað lengi kvölds um daginn og veginn án þess að leita álits háttvirtra áheyr' enda um nokkurn skapaðan hlut, stóð upp einn af kunn- ustu framtaksmönnum flokks ins, Sigurjón á Álafossi, og bar fram eftirfarandi tillögu: Bœrinn taki upp þá ný- breytni, . að rækta í gróður' húsi sínu í Reykjahlíð græn~ meti í staðinn fyrir nellikur, Tillagan var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. *3. SrgauRttr- mtMkttol&zut' m>pt. !W7. ffroAaÍvgar aðftfrir er ttrrtar nrtfddu iiyð Hnga úr riðwtia tUtíamamutttMplm* é land Þjóðviljanum barst nýlega vera annaðhvort andlega bil- eftirfarandi bréf: aður eða einhver sá auðvirði- „Til ritstjóra Þjóðviljans. Ugastl lygari’ sem dæmi eru til um. Það þarf ekki að út- Vegna ummœla blaðs yðar skýra fyrir ykkur, hvernig sú um landgöngu Gyðinganna af landganga gekk, það vitið þið brezku skipunum i Hamborg, vel, það hefði ékki verið hægt viljum við láta í Ijósi and- að fara betur að þeim en styggð okkar á yður, blaði Bretar gerðu. Og verið þér yðar og þeim, er hefur skrif- viss um það ritstjóri að svona að greinina, en sá hlýtur að löguð lygi verður blaði yðar og flokk til stórhnekkis, það er ekki, sem betur fer, hœgt að Ijúga svona að almenningi. Tveir ungir Reykvíkingar“. Hvort sem það er nú Breta- vinátta eða Gyðingahatur eða hvorttveggja, sem hefur hlaupið í þessa ungu og orðprúðu samborgara okkar, þá vonum við að þeir endur- skoði álit sitt, er þeir hafa virt fyrir sér myndimar hér að ofan. Þar ery. hlið við hlið hlutar af forsíðum Þjóðvilj- ans og danska blaðsins Poli- tiken 10. þ. m., daginn eftir að landsetningu Gyðinganna i Hamborg lauk. Politiken er útbreiddasta blað Danmerkur og mjög vinveitt Bretum. En eins og lesendur géta séð, eru fyrirsagnir blaðanna svo svip aðar, að varla skeikar orði. Fréttaritari Politiken í Ham- borg, Edivard Clausen, sem var viðstaddur landsetning- una, segir í skeyti sínu: ,,Eng lendingarnir eru hvað eftir annað óþarflega harðleiknir, Ungur Gyðingur er dreginn á hárinu og síðan barinn í bak- ið, svo að hann dettur á grúfu.“ Kannske taka hinir tveir ungu Reykvíkingar sig nú til, skrifa ritstjóra Poli- tiken, lýsa andstyggð sinni á honum og frœða hann á, að hann sé andlega bilaður eða auðvirðilegur lygari. Ef þeir, vita ekki utanásknftina, geta þeir fengið har.'r ' !á okkur.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.