Þjóðviljinn - 12.11.1947, Side 5
Miðvikudngrur 12. nóv. 1947.
Þ JÓÐVILJINN
5
6. þing Sósíalistaflohksins:
ÁLAÁLYKTUN
6. þing Sameinmgarflokk:- a'.þýðu Sósíalista-
flokksins fagnar þeim mikla árangri, sem náðist fyr-
ir alla alþýðu og íslenzku þjóðina í heild sinni þau
tvö ár, sem flokkurinn tók þátt í stjórn landsins.
Framfarir þessara ára hafa markað djúp spor, sem
erfitt verður að afmá og haft gagnger áhrif á alla
þróun þjóðfélagsins og íslenzk stjórnmál.
Fiskiskipafl. var tvöfaldaður, f jórföldun flutnings-
skipafl. tryggð, nýjar síldarverksmiðjur reistar, sem
tvöfalda afköstin, ný hraðfrystihús reist og hafist
handa um að koma upp fullkomnum verksmiðjum
til vinnslu sjávarafurða. Lánsfjárskilyrði útgerðar-
innar voru stórbætt og fiskverðið til sjómanna og
útgerðarmanna hækkað um 45%. Nýrra markaða
var aflað, sem hafa úrslitaþýðingu fyrir þjóðarbú-
skap Islendinga og alla afkomu þjóðarinnar. Komið
var á fullkomnara skólakerfi og öll skilyrði fvrir
menningarþróun íslendinga stórbætt, bæði alþýðu-
fræðsla, æðri skólamenntun, sérmenntun og vísinda-
starfsemi. Alþýðutryggingamar voru st.ó’uim endur-
bættar og ýmsar aðrar félagslegar umbætur fram-
kvæmdar.
Verkamenn, fiskimemi og opinberir starfsmenn
bættu kjör sín allverulega á þessu tímabili, meðal
verkalýðsins tókst meiri eining en nokkru sinni fyrr
og allnáin samvinna við útvegsmenn og hinn fram-
sæknari hluta millistéttanna yfirleitt, - samvinna
sem mun hafa ómetanlega þýðingu fmr framsókn
íslendinga og Sósíalistaflokkurinn leggur meginá-
herzlu á að ekki rofni, heldur megi eflast og aukast.
Stjómarsamvinnan, sem yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar fylgdi af alhug og kjósendum var lofað
í kosningunum 1946 að halda skyldi áfram, var rof-
in fyrir áhrif erlendrar íhlutunar. Fyrir kosningar
tókst Sósíalistaflokknum að fá því framgengt að
kröfu Bandarikjanna um herstöðvar, var vísað á
bug. Það var ekki fyrr en eftir kosningar að Banda-
ríkin töldu tímabært að endumýja kröfu sína og hin-
ir íslenzku vinir þeirra dirfðust að uppfylla hana,
þrátt fyrir öll loforð og eiða frammi fyrir kjósend-
um. Þar með var grundvöllurinn undir stjómarsam-í
starfinu rofinn. En það var fleira, sem olli því, að
ekki var hægt að halda stjómarsamstarfinu áfram,';
nema nýr málefnasamningur yrði gerður. Samtímis ■
því, sem afturhaldið í Sjálfstæðisflokknum og Al-
þýðuflokknum fékk kjark til þess að afhenda ame-
riskU heimvaldashmunum herstöðvar, tók það að
spymá fæti við nýsköpuninni og öilum þeim ráðstöf-
ununi'sem þurfti til að tryggja hana. Barátta Sósíal-
istafl. fyrir þri að spara innstæður íslendinga
erlendis, að svo miklu leyti sem þeim var ekki ráð-
stafað til nýsköpunar, fyrir bankapólitík og ráð-
stöfunum í verzlunarmálnm, er tryggðu gmndvöil
nýsköpunarinnar, bar ekki árangur, og mikil tregða
var á því að tryggja viðskiptasambönd við lönd, ut-
an áhrifasvæðis hins vestræna auðvalds.
6. þing Sósíalistaflokksins staðfestir afstöðu mið-
stjómar og fulltrúa flokksins í ríkisstjórn til þess-
ara staðreynda og þær ályktanir, sem af þeim voru
dregnar af þingflokki og flokksstjórn. Þingið lýsir
sig samþykkt stefnuskrá þeirri fyrir áframhaldandi
stjóraarsamstarfi, sem flokkurinn lagði fram og því
tiiboði flokksstjómar og þingflokks að taka þátt í
ríkisstjóm, með hverjum þeim þingmeirihluta, sem
með honum vildi vinna í samræmi við þau megin-
sjónarmið, sem þar em sett fram.
Stefna afturhaldsstjómarinnar hefur reynzt eins
og Sósíalistaflokkurinn sagði fjTÍr um. Hún liefur
stöðvað nýsköpunina, stofnað atvinnulífi Islendinga
í hættu með viðskiptasamningum, sem miðaðir eru
við hina afturhaldssöðiu utanríkispólitík hennar og
hagsmuhi verzlunaráuðvaldsins, án tillits til hags-
muna íslenzku þjóðarinnar. Hún hefur þegar bakað
þjóðarheildinni tugmilljóna króna tjón, með tilraun-
um sínum til að rýra lífskjör verkaiýðsins og mjmdi
ekki hafa hikað við að stöðva sílda.rvertíðina, ef ekki
hefði verið tekið í taumana af hálfu samtalca verka-
manna og útgerðarmanna sameiginlega. Verkalýðs-
stéttin hefur reynzt nógu samhent og öflug til þess
að hrinda árásum hennar af höndum sér. En ríkis-
stjómin trúir á kreppu og stefnir beinlínis að at-
vinnuleysi. I skjóli þess býst hún nú til allsherjar
atlögu til þess að rýra kjör verkalýðsins og ann-
arra vinnandi stétta, og hneppa verkalýðssmtökin í
f jötra þvingunarlaga. Hún hefur hótað að stofna enn
á ný, til víðtækra vinnudeilna sér til stuðnings í
fyrirhuguðum ráðstöfunum af hálfu ríkisvaldsins,
gegn almenningi. Hún vinnur að sundrungu meðal
þjóðarinnar, að því að etja stéttunum hyorri gegn
annarri.
Það eru miklar hættur framundan, ef þessi ríkis-
stjórn verður áfram við völd. Það er hætta á því að
hún sigli atvinnuvegum landsmanna í strand og geri
þjóðina efnahagslega og stjómmálalega háða er-
lendum stórveldum.
Þetta verður íslenzka þjóðin að koma í veg fyrir.
Hún má ekki láta stjórninni takast sundrungarstarf
sitt.
Enginn ágreiningur um framtíðarskipun þjóðfé-
lagsins, má standa í vegi fyrir sameiginlegu átaki
allra þeirra afla með þjóðinni, sem vilja spyrna fæti
við hinum þjóðhættulegu fyrirætlunum afturhalds-
ins og sækja fram á vegum nýsköpunarinnar. Sósíal-
istaflokkurinn miðar allt starf sitt og stefnu á
hverju stigi þróunarinnar við hið sósíalistíska mark-
mið sitt. En næsta verkefni hans er ekki þjóðnýting
í stómm stíl eða gerbreyting framleiðsluháttanna í
sósíalistískt horf nú þegar, heldur barátta fyrir
efnahagslegu og stjórnarfarslegu sjálfstæði lands-
ins, fyrir stórstígum atvinnulegum framkvæmdum,
sem grundvöll fyrir bættum kjörum og auknu öryggi
alls almennings, fyrir menningarlegum og félagsleg-
um framförum, fyrir eflingu alþýðusamtakanna, og
tryggingu virks lýðræðis og samtakafrelsis fólks-
ins, gegn ógnun hins nýja fasisma. Flokkurinn verð-
ur því að einbeita kröftum sínum að því, að sam-
tfylkja öllum framfaraöflum þjóðarinnar um þessi
gverkefni, án tillits til skoðana manna á þjóðmálum
.að öðru leyti, eða annarra ágreiningsefna vegna
, mismunandi afstöðu þeirra til framleiðslunnar.
Framleiðslustéttirnar og samtök þeirra og allir
þeir, sem eiga afkomu sína undir því, að framleiðsla
landsmanna aukist og eflist, að stýrt verði hjá
kreppu og atvinnuleysi, að Island verði efnahags-
lega sjálfstætt, verða að taka höndum saman til
þess að koma þessari stjóm frá, áður en henni tekst
að vinna frekari skemmdarverk og sameinast um
nýja stjórn, er styðst við samtök fólksins í landinu.
Þessi samtök geta verið allsráðandi, ef þau koma
sér saman. Sósíalistaflokkurinn mun vinna að því,
eftir því sem hann framast megnar, að slíkt sam-
komulag geti tekizt. Þingið telur að það verði að
byggjast á eftirfarandi meginatriðum, sem nánar
er gert grein fyrir í samþykktum þingsins um liina
einstöku málaflokka:
1. Barátta fyrir algerðu sjálfstæði þjóðarinnar og
utanríkisstefnu, er sé óháð erlendum stórveldum.
Herstöðvarsamningnum sé sagt upp þegar Is-
land hefur rétt til þess. Staðið sé á verði um samn-
ingsbundin réttindi Islendinga og allri frekari á-
sælni vísað á bug.
2. Áframhald nýsköpunarinnar og einbeiting allra
krafta þj.óðarinnar, vinnuafls, fjármagns og gjald-
eyris, að framleiðslunni í sjávarútvegi, landbúnaði
og iðnaði, þannig að tryggt sé að hver hönd hafi
jafnan verk að vinna við þjóðnýt störf.
3. Lögð verði rík áherzla á að afla nýrra, öruggra
markaða og viðskiptasambanda, með það fyrir
augum að tryggja þjóðina, svo sem framast er
kostur fyrir kreppum og viðskiptasveiflum auð-
valdsheimsins. <
4. Skipulagning á innflutningi til laudsins og nýt-
ingu fjármagnsins með þarfir framleiðslunnar
og nýsköpunarinnar og heildarhagsmuni þjóðar-
innar fyrir augum. Heildarstjórn, samkvæmt á-
ætlun, á atvinnulífi þjóðarinnar, að svo miklu
leyti sem kostur er með ríkjandi framleiðsluhátt-
um.
5. Ráðstafanir til að lækka verðlag og framleiðslu-
kostnað, með aukinni tækni og afköstum, betra
skipulagi á atvinnu- og verzlunarmálum, er létti
byrðum óhófslegs gróða braskara og milliliða af
framleiðslunni og öðrurn þeim ráðstöfunum, sem
nauðsjmlegar kunna að reynast og framleiðslu-
stéttimar koma sér saman um.
6. Markviss framfarastefna í félagsmálum og menn-
ingarmálum.
Vitaskipið Hermóður
Framhald af 8. siðu
Aðalvél skipsins er 390 hest-
afla Atlas-Diesel, og mestur
hraoi þess 12 sjóm. á klst.,
Ljósavél er 30 hestafla Skandia
vél. Á þilfari eru 4 rafmagns-
vindur',. nefnilega akkerisvinda,
bátavinda og tvær vindur til los
unar og lestunar. Stýrisvél er
olíuknúin.
Skipverjar verða 10 og eru
vistarverur þeirra rúmgóðar og
vistlegar. Fyrir háseta eru tvö
tveggja manna herbergi, en
annars allt eins manns herbergi.
Auk þess er eitt farþegaher-
bergi, fyrir tvo, og í káetu eru
hvílur fyrir tvo farþega. I þil-
farshúsinu miðskipa er rúmgóð-
ur matsalur, eldhús, kæliklefi
og salerni, en í brúnni er stórt
stýrishús, kortaklefi og her-
bergi skipstjóra. I skipinu er
miðstöðvarhitun, og rafljós
bæði frá Ijósavél og rafgeym-
um.
Af siglingatækjiun hefur skip
ið m. a. bergmálsdýptarmæli,
miðunarstöð og talstöð. Áttavit
inn er af nýrri gerð og stendur
uppi á þaki stýrishússins, og
sér sá er stýrir á hann í gegn
um sjónpípu (eins og á nýju
ísl. togurunum). Hér í Reykja-
vík verður sett í skipið hátalari
(loud-hailer), ljóskastari og
rafknúinn stýrisliússgluggi
(clear view screen).
Fyrirkomulagsteikningar af
skipinu eru gerðar á Vitamála-
skrifstofunni af Pétri Sigurðs
syni í samráði við Guðm. B.
Kristjánsson skipstjóra, er lézt
síðastliðið vor, en hann var frá
upphafi, og meðan honum ent-
ist aldur til, skipstjóri gamla
Hermóðs. Eftirlit með smíði
skipsins höfðu þeir Ólafur Sig-
urðsson skipaverkfræðingur og
Jóhann Björnsson vélstjóri.
Skipstjóri nýja Hermóðs er
Guðni Thorlacius og 1. vélstjóri
Guðjón Sigurðsson. Aðrir skip-
verjar eru aðallega þeir, sem
áður voru á gamla Hermóði, en
hann er nú orðinn svo útslitinn
að honum mmi verða lagt upp
fyrir fullt og allt, enda 56 ára.
ítalir biðja um um-
boðsstjórn í Eritreu
ítalíustjórn liefir farið þess
á leit við stjórnir Frakklands,
Bretlands, Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna, að þau feli
henni umboðsstjórn í Eritreu,
fyrrverandi nýlendu Itala við
Rauðahaf. Rannsóknarnefnd
fjórveldanna er nú á leið til
Eritreu til að kynna sér óskir
íbúanna um framtíð landsins.
Abbesinía hefir gert kröfu til
Eritreu.
Kosningar á Ítalíu
7. marz
Ákveðið hefur verið að þing-
kosningar fari fram á ítalíu 7.
marz í vetur eða þrem mánuð-
um fyrr, en áður var ákveðið.
Stafar það af því, að stjórn-
lagaþinginu, sem nú situr, og
kosið var í júní 1946, hefur mið
að vel áleiðis að Ijúka við að
semja stjómarskrá fyrir ítalíu.