Þjóðviljinn - 04.04.1948, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 04.04.1948, Blaðsíða 1
13. árgangar. SuiMiudagur 4. apríl 1948- 76. tölublað. Bandaríkin og Brefland nota sfríSsóttan fil að hafa sitt fram segir aðalblað egipzku stjórnarinnar Aðalmálgagn egypzku ríkis- stjórnarinnar Ieggur áherzlu á að Egyptaland ætli sér ekki að láta draga sig inn í hernaðar- bandalög, hvorki vestrænt né austrænt. Blaðið segir að Bandarikin og Bretland hugsi sér að æsa upp styrjaldarótta og nota hann síð- an til að fá lönd er vilji vera hlutlaus í stórveldaátökunum eins og Egyptaland til þess að slaka til á sjálfstæði sínu og samþykkja herstöðvakröfur. Egyptaland mun ekki láta styrjaldaræsingamar sem ?iú eru upp hafa áhrif á utanríkis- pólitík sína, segir blaðið því þær eru aðallega til þess gerð- ar að hafa áhrif á ítölsku þing- kosningamar. r larnsr smna i Montgwmeiry á ferðalagi mm frýzkaimid MarshalllögÍH undirrituð Truman Bandaríkjafor.seti imdirritaði í gær lögin um Mars halliánin, en samkvæmt þeim dollara lán til Evrópu og Asíu- þjóða. Eiga 5000 milljónir doll- ara að lánast Evrópuþjóðum en um 1000 milijónir dollarar fara sem hjálp til fastista- stjórna Sjang Kaiséks í Kína og ríkisstjórna Grikklands og Tvrk lands. Hefur bandaríska utanrikis- ráðuneytið beðið stjórnir hinna sextán „Marshalllanda" að láta í té nákvæmar skýrslur um þarf irnar næstu þrjá mánuði, Gert er ráð fyrir að á morg- un, mánudag, ræði fulltrúar Marshalllandanna í París um endanlegan texta samnmgsins við Bandaríkjastjórn, en fundur fulltrúa allra landanna sextán verði 12. apríl. Kvenfélag sósíalista heldur fund n. k. mánudag á Þórsg. 1. Brezk yfirvöld í Þýskalandi og Bretlandi* báru til baka æsifregnir þær, er blöð í Bret landi og víðar hafa flutt frá Berlín undan- farna daga. Lögðu hinir brezku embættis- menn áherzlu á að lífið í Berlín gengi að langmestu leyti sinn vanagang. Talsmaður brezka utanríkisráðuneytisins lét svo um mælt í gær, að þó samgöngutak- markanir Rússa væru að ýmsu leyti óþægi- legar, hefðu engin meiri háttar vandamál risið af þeim. Var augljóst af ummælum hinna brezku embættismanna að þeir eru farnir að óttast afleiðingarnar af æsingafregnum þeim sem dreift hefur verið út síðustu sólarhring- ana og hafa vakið þær hugmyndir að stríð væri í þann veginn að brjótast út í Þýzkalandi. Opinher stjórn- Sósíalistafélag Reykjavík ur-heldur opiuberan stjóm-. málafund í sanilíomusal nýju Mjólkurstöðvarinnar þriðjudaginn 6. apríi kl. 8,30 e. h. Ræðumenn: Brynjólfur B.jarnason. Sigfús Sigurhjartarson. Stefán Ögmundsson. Tekið verður á móti nýj- um áskrifendum að Þjóðvilj- anum og nýjuni meðlimum í Sósíalistaíélagið á fuiMJinum. Næstæðsti foringi brezka liðs- ins í Þýzkalandi taldi bó ástæðu til að lýsa yfir þeirri skoðun sinni að samgöngutakmarkanir þær er rússneska hernámsstjórn in í Berlín hefur komið á, séu til þess gerðar að hrekja setut lið Bandaríkjanna frá Berlín. Lagði foringinn áherzlu á að hernámslið Breta, Bandaríkj anna og Frakka hefðu nána er heimilt að veita 6000 millj. samvinnu- Á fundi herstjórnarmnar í Berlín í gær ítrekaði fulltrúi Sovétríkjanna þá yfirlýsingu að Rússar mundu ekki talca þátt í störfum ýmisra sameigin- legra nefnda hernámsliðanna framvegis, og lagði til að störf- -J um þeim sem nefndum pessum voru ætluð, yrði komið fyrir á annan hátt. Fulltrúi Breta taldi einnig að þannig mæt.ti koma störfum þessara nefnda hag- kvæmar fyrir. Bandaríkjasetuliðið í Berlín liefur látið lieldur ófriðlega og reynt á ýmsan hátt að trufla störf rússneska setuliðsins, m. a. með því að láta vopnaða her- menn meina rússneskum em- bættismönnum aðgang að aðal- miðstöð samgöngustjórnr r Ber- línar, sem hefur aðsetur á her- námssvæði Bandaríkjaanna. Montgomery, herráðsforseti brezka hersins er á ferðalagi í Þýzkalandi. Kom hershöfðing- inn til Rínarlanda í gær, og er væntanlegur til Berlínar á þriðjudag. Eins og til að leggja áherzlu á þær fregnir að allt væri með sæmilega kyrrum kjörum í Ber- lín flutti brezka útvarpið í gær- kvöld þá fregn að hópur brezkra skólabama hefði komið til Ber- línar í gær til að eyða skóla- leyfum hjá foreldrum sínum. iæði flrabar og lyðingar hafna Ríkisstjérnin segir orðrérainn m nýjar herstöðvakröfnr ástæðnlansan Þjóðviljanum barst í gær eftirfarandi tilkyiming: „í tilefni frásagnar dagblaðsins Þjóðviljans lauga rdag- inn 3. apríl 1948, um, að uppi sé mjög hávær orðrónmr um [tað að Bandaríkin haf'i farið fram á [iað við íslenzku ríkis- stjómina að fá að senda herlið til Iandsins vil! utanríkis- ráðuneytið taka frani, að engin slík málaieitan hcfur verið borin fram af hálfu Bandaríkjanna við íslenzku líkisstjórn- ina. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 3. apríl 1948“. Cunningham hershöfðingi, landstjóri Breta í Paiestínu, flntti í gær útvarpsávarp til Araba og Gýðinga og skoraði á þá að gera vopnahlé tafarlaust. Vitnaði Cunningham til áskor ana öryggisráðsins um vopna- hlé í Palestínu og taldi tvímæla laust að bak við þá áskorun stæði vilji alls mannkyns. Æðsta ráð Araba hefur með öllu neitað að taka vopnahlé til greina, nema horfið verði frá skiptingu landsins. Hinsvegar hefur stjóm Jew- ish Agency lýst því að hún telji vopnahlé því aðeins mögu- legt að lialdið sé fast við ákvörð un sameinuðu þjóðanna um skiptingu Palestínu. II bannar. fu Belgíska stjórnin bannaði í gær fjöldafund sem kommúnist ar höfðu boðað til í Brussel. Palme Dutt, varaforseli Komm- únistaflokks Bretlands, atti að ávarpa fundinn. Vesturveldin krefjast uppföku Italíu og T rans- jórdaníu íSÞ Stjórnir Bretlands, Banda- ríkjanna og Frakklands hafa farið þess á leit við öryggisráð sameinuðu þjóðanna að það erd- urskbði afstöðu sína til inntöku- beiðni Italíu og Transjórdaníu í bandalag sameinuðu þióðanná Síðast þeg'ar inntökubeiðni Italíu í sameinuðu þjóðirnar vr.r rædd í öryggisráðinu taldi full- trúi Sovétríkjanna rétt að sam- þykkja jafnframt inntökubeiðn ir Ungverjalands, Rúmeníu og Búlgaríu, en það aftóku Vestur- veldin þá. Finnar senda ný fyrir- mæli til Moskva Finnska ríkísstjórnin sam- þykkti eftir stuttan fund í gær ný fyrirmæli til fiiuisku sendi- nefndarinnar í Moskva. Verða fyrirmæli þessi send fhtgleiðis til Moskva í dag. Miklar viðræður hafa farið fram meðal stjórnmálamanna í Helsingfors undanfama daga, um hina væntanlegu camninga, og hafa hermálaráðunautar Paasikivis forseta tekið þátt i þeim. Þ jóðvil jasöfnunin: 645 nýir áskrifendur Sunnuhvolsdeildin sækir vel fram í gær höfðu safnazt alls 645 nýir áskrifendur. Langmest var sóknin enn lijá Kieppsholtsdeildinni,, sem hefur bætt við sig 20% frá því á skírdag. Sunniihvoísdeikl hefur iótt mjög fram, bætt við sig; 14% og Laugamesdeild og Barónsdeild 11 og 10%. Röð deildanna er nú þessi: 1. Klcppsholtsdeild 225 % 2. Barónsdeild 163 — 3. Þingholtadeild 133 — 4. Bolladeild 110 — 5. Laugarnestieiid 109 — 6. Skerjafjarðardeild 60 — 7. Sunnulivolsdeikl 57 — 8. SkóladeiUl 55 — 9. Njarðardeild 50 — 10. Vogadeild 47 — 11.- —12. Hiíðadeild II. 43 — Meladeild 43 — 13. Túnadeild 38 — 14,- —15. Skuggahverfisdeild 33 — Hlíðadeihl I 33 — 16. Vesturdeiid 28 — 17. Valiadeild V - 18. Hafnardeild 17 — 19. Laufásdeihl .10 — Nú styttist óðum tíminn til 1. maí, og verða deildiraar að vinna vel til að ná markinu! Ný morð Aþenu- stjórnar Stjórnin í Aþenu hefur enn látið taka 13 handtekna konr múnista og aðra viiistrí menn af lífi. Stjórúln héfur ákveðið, að taka smátt og smátt af lífi 800 fanga, sem setið hafa í haldi síðan í borgarastyrjöldinnl 1944. Dómstólar gegn verkalýðsfélögum Truman Bainlaríkjaforsetl 'heU ur krafizt þess að dómstóiarnir dæmi ólögiegt verkfail banda- rískra koianámumanua, sem staðið hefur í þrjár viknr. Leiðtogi námumannasam- bandsins, John Lewis. hefum lýst yfir að það sé á valdi námu manna sjálfra hvort þeir hverfr til vinnu við svo búið éða ekki. - f

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.