Þjóðviljinn - 08.06.1948, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 08.06.1948, Blaðsíða 6
ÞJÖÐVILJINN v 6 Þriðjudagnr 8. júní 1948. 200. 1 ... Samsæríð mikla [ eftlr í MICHAEL SAYEES oa ALBEBT E. KAHK Um þetta leyti voru í rauninni til tvaer pólskar ríkis- stjórnir. Auk útlagastjórnarinnar í London var bráða- birgðastjórn, hin svonefnda Varsjárstjórn, í Póllandi sjálfu. Varsjárstjórnin, sem byggðist á bandalagi andfas- istiskra stjórnmálaflokka Póllands, lýsti ógilda hina fas- istisku Pilsudiskistjórnarskrá frá 1935, sem Pólverjar í London héldu fast við. Varsjárstjórnin var fylgjandi víð- tækum efnahags- og stjórnmálaumbótum í Póllandi af- námi lénsgóssanna og náinni, vinsamlegri sambúð við Sovétríkin. ■ Á Jaltaráðstefnunni í febrúar 1945 ræddu Roosevelt, Churchill og Stalín framtíð Póllands ýtarlega og komu sér saman um, að Varsjárstjórnin skyldi „endurskipu- lögð á breiðari, lýðræðislegiun grundvelli með þátttöku lýðræðissinnaðra leiðtoga í Póllandi sjálfu og meðal Pól- verja erlendis," og síðan viðurkennd sem lögleg bráða- birgðastjórn landsins. Pólsku útlagarnir í London og brezkir og bandarískir bandamenn þeirra snerust öndverðir gegn Jaltasamkomu- laginu. Það var fordæmt sem ,,svik við Pólland." Dipló- matisk launráð voru brugguð til að hindra framkvæmd Jaltaákvarðananna. Hinar sovétfjandsamlegu æsingar og ráðabrugg varð- andi Póllandsmálin náðu hámarki í maí 1945 er sovét- stjórnin tilkynnti, að hún hefði látið handtaka 16 erind- reka útlagastjórnarinnar í London og ákært þá fyrir sovétf jandsamlegt samsæri.. Pólsku útlagarnir í London lýstu yfir, að þessi framkoma- soyétstjómarinnar væri skýrasta dæmið um þá fyrirætlun Moskvamanna, að kæfa „pólskt lýðræði" og þröngva „rauðliðaeinræði upp á pólsku þjóðina.... Nafnkunnastur þessara 16 Pólverja, sem sovétstjórnin lét handtaka, var Leopold Bronislaw Okulicki hershöfð- ingi, fyrrverandi herráðsforseti útlagahersins. Þessi her hafði leikið aðalhlutverkið í hinni sovétfjandsamlegu her- ferð pólsku útlaganna..... Þessi pólski her var í upphafi stofnaður1 í Sovétríkj- unum árið 1942 með sovét-pólsku samkomulagi til þess að berjast við hlið Rauða hersins gegn Þjóðverjum. Honum var stjórnað af Wladislaw Anders hershöfð- ingja, fyrrverandi meðlim í „ofurstaklíkunni," sem hafði ráðið öllu í Póllandi á tímum einræðisstjórnar Pilsudskis. Til að æfa og útbúa her Anders til hernaðaraðgerða gegn Þjóðverjum veitti sovétstjórnin 300.000 rúblna vaxta-, laust' lán og gerði honum fært að afla nýliða og setja upp j herbúðir. En samt voru Anders hershöfðingi, Okulicki og aðrir pólskir hernaðarsinnar á laun andvígir bandalag- inu víð Rauða herinn. Þeir héldu að Sovétríkin hlýtu að bíða skjótan ósigur fyrir Nazista-Þýzkalandi og hög- uðu sér eftir því. Skýrsla frá Berling ofursta sem síðar varð yfirmaður heráfla Varsjárstjónarinnar, leiðir í ljós, að 1941, skömmu eftir myndun fyrstu pólsku hersveitanna í Sovétríkjunum, hélt Anders hershöfðingi ráðstefnu með foringjum sínum og sagði þá: j Þegar rauði lierihn hrynur saman undan högg- um Þjóðverja, sem ekki verður seinna en eftir nokkra mánuði mun okkur takast að brjóta okkur leið til Iran um Kaspiahaf. Þar sem við verðum eina vopnaða valdið á þessu svæði, munum við hafa \B.TRAVEN: K E R 74. DAGUR. R A N veitanda gagnvart skuldugum vinnuþiggjanda. Lög- reglustjórinn sagði hreinskilnislega, að stúlkan væri enginn þjófur, þetta væri auðsjóanlega fölsk ákæra. Læknirinn sagðist ætla að tala við konuna sína. Konan sagðist ætia að reyna stúlkuna. Hún tól. Rosario til prófs, og var svo ánægð með vinnubrögð hennar og þrifnað, að hún fékk manninn sinn til að borga sektina. Þannig seldi lögregiustjórinn lækninum Rosario upp í sektina og málskostnaðinn. Kona læknisins var ekki nærri sér, hún borgaði Rosario óheyri- lega hátt kaup — hvorki meira né minna en sjö pesos á mánuði, og lét stundum þá atliugasemd fylgja, að Rosario verðskuldaði að minnsta kosti tuttugu pesos á mánuði, því hún væri fullfær um að stjórna heimili hjálparlaust. En Rosario varð nú að vinna kauplaust í átta mánuði, til að borga skuldina. Hún var ennþá j fangi, og það var hægt. að „stinga henni inn,“ ef I hún reyndi að strjúka, áður en skuldin var greidd að fullu — læknirinn hafði fengið lögreglustjórann til að samþykkja það. Auðvitað þarfnaðist Rosario ýmislegs — nærfata, kápu og þessháttar. Hún varð að fá lánaða pen- inga hjá frúnni fyrir því, og þannig óx skuidin. En átta mánuðum seinna var hún skuldlaus, og gat farið hvert sem hún víldi. Hún ætlaði til Tuxtla, því hún vissi, að þar var kaupið miklu hærra, en læknisfrúin bauð henni tíu pesos á mán- uði, og Rosario gekk að því. Þessi launahækkun varð til þess, að allir betri borgarar í bænum bann- færðu frúna, fyrir að spilla þjónustuetúlkunum og hrista grundvallarstoðir þjóðfélagsins/ Rosario var i tvö ár hjá læknishjónunum. Að öll- um líkindum hefði hún orðið þar'í tvö ár til, ef allt hefði gengið að óskum. En lækninn fór að langa í tilbreytingu — hann þekkti konuna sína orðið állt of vel; hún fullnægði honum ekki lAgur. Og hanrt fór að gefa Rosario hýrt auga, eins og hann bygg- ist við að hún gæti gefið honum eitthvað meira en konan hans. Dag riokkurn fór frúin í heimsókn til grannkon- unnar. Læknirinn var einn. Hann.bað stúlkuna að koma inn á viðtalsstofuna. og sagð! við hana: „Rosario, ég hef tekið eftir því, að þú ert eitthvað veil í lungunum’ — þú getdr hæglega verið með , berkla.“ ! Hann skýrði fvrir henni hvað berkla.r væru, og hræddi hana með því, að hún gæti dáið, eða orðið svo mögur og ljót, að enginn karimaður vildi líta við henni, og ef henni hlotnaðist einhver, þá myndu börnin þeirra hrynja niður, og hver óhamingjan á fætur annarri dynja yfir hana. Þetta síðasta reið baggamuninn. Rosario langaði til að giftast st.rax og hún fyndi rétta manninn. Hún var of heilbrigð kona, til að geta þola.ð t.il lengdar að vera án ‘samneytis við karimann. Og fvrst og fremst langaði hana til að ala. manninum sínum hraust og heilbrigð börn. Hún lét lækninn rannsaka sig, eftir að hann var búinn að tala lengi við hana, og hræða hana álíka og prestarnir skriftabörn sín, þegar þe.r ógna þeim með eilífum helvítiskvölum, svo að þau gefi nógu- örlátlega í guðskistuna. Hann sagði, að það væri eins og sig hefði grunað, annað lungað væri illa farið, það væru síðustu for- vöð að hefjast handa. En þetta varð kostnaðarsöm lækning. Hann ætlaði nú ekkert að taka í verka- laun, þar sem hún vann á heimilinu, en meðöiin — sprautuefnið —- varð hún að borga. Hann sprautaði hana strax, til að stöðva sjúk- dóm, sem liún hafði aldrei fengið snert af. Hún var svo hraust og heilbrigð, sem aðeins blóðhrein Indíánastúlka getur verið. Þegar hann var búinn að hreinsa sprautuna sagði hann: „Sprautan kostar sex pesos, en ég skal sleppa þér með tvo. Þú þarft að fá að minnsta kosti þrjár sprautur í viku, ef þú átt að ná fullri heilsu.“ „Já, en senor doktor — lierra læknir,“ sagði stúlk- an, „hvernig á ég að borga sex pesos á viku, þegar kaupið mitt er ekki nema tveir og. hálfur?“ Hann rjátlaði við lækningaáhöldin — eða bótt- ist gera það. ' 1 Síðan snéri hann sér að henni og sagði:'„Eg skil það vel, Rosario —* þér er um megn að borga það. En ég get ekki gert þetta endurgjaldslaust. Þetta er nú sérgrein mín, atvinna mín. Það er andstætt stéttarheiðri okkar læknanna að gefa vinnu okkar. Námið er dýrt, lækningaáhöldin kosta stórfé, og meðölin eru hryllilega dýr. En hvað er að fást um það, ef það getur bjargað lífi þínu — þig langar líklega ekki til að deyja?“ „Nei, nei! Eg.vil ekki deyja,“ sagði hún. „Góði senor doktor, hjálpið mér svo ég deyi ekki“. Hann varð ísmeygilegur á manninn og d&gði: „Það var rétt. Iívers vegna ættir þú líka að deyja, þegar þú getur lifað og orðið hamingjusöm með eiginmanni og börnum?" Rosario hló, en augu hennar voru vot. „Eg hef verið að hugsa um þetta, Rosario,“ sagði hann. „Sjáðu nú til, ég þai-f að segja þér svo- lítið, en þú mátt ekki segja frunni það, því þá ber hún þig. Frúin er ekki alveg frísk «em stendur, þó hún líti út fyrir að vera það. Hún getur ekki sofið hjá mér — skilurðu livað ég á við?“ „Já — ég skil það,“ sagði hún.og grunaði strax áffámhaldið. Þetta- var nokkurnveginn það sama -og fyrsti húsbóndi hennar hafði sagt — bara ruddaleg- ar og berorðar. Hann hafði beitt valdi við hana, barið hana og jafnvel hótað að skjóta hana, ef hún vildi ekki ganga sér í eiginkonu stað. „Jæja., Rosario," sagði læknirinn, „þú skilur mig þá. Eg verð að hafa kvenmann. Eg get ekki farið mánaðarlega til ffapachula eða Tonala til að fá mér kvenmann. Eg skal gefa'þér þrjár sprautur viku- lega, og þú borgar — ég á við að þú vérðir. svo til- kippileg við mig á eftir hverri sprautu. Svo mikils hlýturðu þó að meta heilsu þína og líf —■ og barn- anna þinna, eða hvað finnst þér ?*‘ Hún hugsaði sig um. „J-a-á. En ég vil ekki eigr barn með yður, senor doktor, því þá get ég aldrei eignast góðan eiginmann — það vitið þér vel, senor doktor.“ Hann klappaði henni friðandi á öxlina og sagði: „Eg er þó læknir — er það, ekki? Eg skal sjá um það. Eg vil ekki eiga í neinum erjum við Esposu mína, því máttu trúa. Ef þú verður- barnshafandi, Hitler Pólverjum að hrifsa Tschenhérað frá Tékkum þegar Tékkóslóvakíu var skipt. Árið 1939, rétt áður en nazistar réð- ust á Pólland, neituðu pólsku hernaðarsimiarnir enn að hverfa frá sovétfjandsamlegri stefnu sinni þótt hún þýddi sjálfsmorð fyrir þá, þeír höfnuðu tillögu um hernaðarbanda- lag við Sovétrikin og vildu ekki leyfa Rauða hernúm að fara yfir Pólland gegn her nazista. Afleiðingar þessarar stefnu fyrir Pólland voru skelfilegar, og næstum strax eftir innrás nazista flýði pólska stjórnin úr landi og tók með sér pólska gullforðann. 1 Pralcklandi og síðar í Englandi héldu fulltrúar þessarar pólsku stjórnar, sem kölluðu sig pólsku útlaga- stjórnina, áfram hinu sovétf jandsamlega ráðabruggi sem hafði leitt.ógæfu yfir þjóð þeirra. 1 þessu ráðabruggi nutu þeir stuðnings sterkra afla meðal leiðtoga í efnahagsmálum, stjórnmáium og trúmálum, sem álit.u .sigur Soyétríkjanna í stríðinu við Nazista-Þýzkaland ógna hagsmunum sinum. . D A V I Ð I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.