Þjóðviljinn - 08.06.1948, Blaðsíða 8
Sjómannadagurinn:
Skipverjar á Ákiira^ og llluga mm
kappréðnrinn í þriðja sinn — ién Kjartansson vann
snndbikarana í annað sinn
Sjómannadagurinn var hátíðlegur haldinn I. sunnudag í
björtu og fögru veðri, með höpgöngu, útsamkomu á Austurvelli
og um kvöldið var hóf að Hótel Borg.
Á laugardagskvöldið fór fram kappróður, staklíasund og
björgunarsund.
Sjómannadagurinn var hátíðlegur haldinn í fjölmörgum bæj-
iim úti á landi.
þingishússin Emil Jónsson sigl-
ingamálaráðherra, Jakob Haf-
stein, fulltrúi útgerðarmanna og
Jóhann Tómasson, fulltrúi sjó-
manna.
Vamt báða bikarana
*
í amtað sran
Hópgangan
Hópgangan hófst úr Vonar-
etræti kl. 1,30 og gengu sjó-
menn undir fánum félaga sinna
og íslenzkum fánum um Suður-
götu, Túngötu, Ægisgötu,
Tryggvagötu og Pósthússtræti
og staðnæmdust undir fánum
sínum við styttu Jóns Sigurðs-
SJémanstadagur-
inn á Siglufirðl
Prá fréttaritara Þjóðviljans
Siglufirði í gær:
Sjómannadagshátíðahöldin
hófust hér kl. 2 e. h. á íþrótta-
Vellinum. Þórarinn Dúason for
.naður sjómannadagsráðsins
setti hátíðina. Eyþór Hallsson
talaði fyrir hönd skipstjórafé-
Sagsins Ægis, fyrir hönd Þrótt-
ar talaði Óskar Garibaldason og
'Jóhann G. Möller fyrir Í.B.S.
Þá fór fram 1600 m. boðhlaup
milli K.S. og P.Í.S. og hand-
knattleikur milli sömú félaga,
ennfremur reipdráttur milli
verkamanna hjá síldarverk-
smiðjum ríkisins og stúfarafé-
iagsins.
Veður var mjög kalt ,norðan
hraglandi við og við og af þeim
sökum féllu nokkur skemmtiat-
riði niður, þ. á. m. reipdráttur.
Sjómannadagsmerki voru
seld á götunum, og rennur á-
góðtnn af merkjasöluuni eins
og að xmdanförnu til endurbygg
ingar sundlaugarinnar, en hún
hefur ekki verið starfrækt und-
anfarin 4 ár.
Alls hafa sjómenn safnað til
laugarinnar um kr. 18000
aö meðtöldum ágóða af merkja
söluuni í gær.
Síðast liðinn föstudag drápu
Snæfellingar 5 stóra hvali í
líií'sós. Höfðu hvalirnir synt
inn í ósinn og lent á þurru.
llnnu Snæfellingar á þeim með
ijáum að hætti Færeyinga,
Að undanförnu hefur verið
ágætur afli fyrir báta við Snæ-
íellsnes og í sambandi við hina
miklu fiskigengd hefur nokk-
nð borið á hvölum. —■ Þegar
búið verður að skera hvalina
Bem drepnir voru í Rifsós, verð
■ur spikið af þeim sent til
bræðslustöðvarinnar í Hval-
iivöL
sonar á Austurvelli. Lúðrasveit
Reykjavíkur lék í göngunni.
Minnzt láiinna
sjómanna
Athöfnin á Austurvelli hófst
með því að lúðrasveitin lék Rís
þú unga íslands merki, en því
næst flutti biskupinn, Sigurgeir
Sigurðsson, ræðu og minntist
látinna sjómanna. Samtímis var
lagður blómsveigur á leiði 6-
þekkta sjómannsins og minn-
ingu látinna sjómanna vottuð
virðing með einnar mínútu
þögn.
I stjömufánanum voru í þetta
sinn 10 stjörnur, og er tala
drukknaðra sjómanna á þessu
ári lægst sem hún hefur verið
áratugum saman.
Þá fluttu ávörp af svölum Al-
Sjémannadagur-
inn á larlfirli
Pná fréttaritara Þjóðviljans
Norðfirði í gær.
Hátíðahöld sjómannadagsins
hér hófust kl. 10 með 500 m.
kappróðri milli stúlkna úr neta
gerðinni og íshúsinu, og unnu
stúlkumar úr netagerðinni. Þá
kepptu sveit skipstjórafélagsins
Þjálfa og Verkalýðsfélags Norð
fjarðar og vann skipstjórafélag
ið. Þá kepptu í róðrinum tvær
sveitir af Agli rauða.
Þá fór fram guðsþjónusta og
lagður blómsveigur á leiði ó-
þekkta sjómannsins.
Samkoma hófst í sundlaug-
inni kl. 4.30 og var þar óvenju-
lega mikill mannfjöldi saman
komin. Var þar sýnt stakka-
sund, björgunarsiond og björg-
un úr dauðadái,
Þá fór frani reiptog, sem er
einstætt íyrir Norðfjörð, milli
bæjarfulltrúanna og starfs-
manna úr dráttarbrautinni.
Keppninni er hagað þannig
að sveitirnar togast á yfir laug-
ina og er sú sveitin sam tap-
ar dregin út í laugina.
Keppnin var mjög spennandi
og mátti lengi eklii á milli sjá,
en að lokum vom bæjarfull-
trúarnir dregnir út í laugina.
Þá flutti Sigurjón Ingvars-
son skipstjóri ræðu.
Knattspyrna fór fram milli
Þróttar og skipverja af Agli
rauða og vann Þróttur, Um
kvöldið var dansað.
Sören Sörensen kvikmynd-
aði hátíðahöldin.
Þá afhenti Henry Hálfdánar-
son formaður sjómannadags-
ráðsins verðlaun í keppnunuxn
kvöldið áður.
Sigurvegari í stakkasundinu
varð Jón Kjartansson og einnig
í björgunarsundinu og er þetta
í annað skipti sem hann vinnur
báða bikarana.
Verðlaun í stakkasundinu er
bikar gefinn af Sjómannafélagi
Reykjavíkur en björgunarsunds
bikarinn er gefinn af Fél. ísl.
útgerðarmanna, hvorttveggja
hinir fegurstu gripir.
Stakkasundið synti Jón Kjart-
ansson á 52,7 sek., annar varð
Finnur Torfason á 1,5,9 mín.,
þriðji Þór Björasson á 1,8,5
mín.
Björgunarsundsvegalengdina
synti Jón Kjartanss. á 40,4 sek.
Haraldur Jónsson synti á 46
sek. Þátttakendur í sundkeppn-
ini voni 5.
Sklpvesjaz á ákmey
I
miM í þriðfa siitn
1 kappróðrinum fyrir skip
stærri en 150 lestir unnu skip-
verjar af Akurey og er þetta í
þriðja sinn er þeir vinna í kapp
róðrinum. 1941 þá á Arinbimi
Hersi og 1942 á Snorra Goða.
Verðlaunin em fiskimaður
Morgunblaðsins og unnu þeir
einnig lái-viðarsveig sem veittur
er þeirri skipshöfn er skemmst-
um tíma nær.
Sbípveqax á Illuga
uimia í fmðfa siim í röð1
Skipverjar á Illuga unnu í
kappróðrinum milli skipshafná
á smærri skipum en 150 lestir.
í hitteðfyrra voru þeir á Fiska-
kletti, í fyrra á Stefni og nú 111-
bga.
Verðlaun þeirra em June-
k'unktell-bikarinn er Gísli John-
sen gaf.
Allir þessir gripir eru far-
andgripir sem ekki vinnast til
eignar. — 16 skpshafnir tóku
þótt í keppninni.
Framhald á 7. síðn
iær Sreiim?
SI. liuigarSágskvöM brnnn!
bæriiuí Brakasdi í Hörgárdai til
öskn og varð litlu sem engu
bjargað.
Gamall torfbær var á Brak-
anda. Upptök eldsins eru ókunn
og var keimafólk við útistörf
er eldurinn kom uppp.
ÍÓÐVILIINH
Alþýðublaðið eg nýsköpuuin
Til afréttingar fyrir Stefán Pétnrsson
Alþýðublaðið var ekki alveg eins þimnt í roðinu á sunnu-
m •
daginn og endranær, hafði dubbað sig upp sem „hátíðablað“ til
að kría út nokkrar stórar auglýsingar. Innan um þær var óvenju-
mikið mgl um nýsköpimina, eitthvað hefur stigið ritstjóranum
svo til höfuðs að honiun sýndist svart hvítt, honum sýndist
Aiþýðuflokkurinn eiga nýsköpunina!
Ef verða mætti til að rétta ritstjórann af birtir Þjóðviljinn
hér með orðum Alþýðublaðsins hina sönnu afstöðu Alþýðu-
flokksins til nýsköpimarinnar, úr ritstjómargrein Alþýðublaðsins
í tilefni af þvi að Einar Olgeirsson birti þjóðinni í útvarpsræðu
frá Alþingi haustið 1944 hina djarflegu áætlun lun nýsköpun
atviimulif sins:
Þar segir aðalmálgagn Alþýðuflokksins:
„Ræða Einars Olgeirssonar stóð ekki nema hálfa klukku-
stund. En svo lengi að minnsta kosti fékk þjóðin að lifa í paradís
þeirra skýjaborga, sem hann var svo fljótur að byggja úr froð-
imni einni saman. En þar með var líka draumurinn búinn og í dag
spyr þjóðin sjálfa sig hvernig það sé mögulegt að slíltir trúðar
skull vera komnlr inn á Alþingi og hafa leyfi tii þess að leika þar
slíkar hnndakúnstir. Eða hvar skyldi Einar Olgeirsson ætla sér
að selja allt það afurðamagn sem hér yrði framleitt eftir fimm
ára átlun hans, ef við getum ekki einu sinni haft svo mikinn
hemil á dýrtíðinni í landinn á þessari stundu, meðal annars fyrir
möldvörpustarf hans og félaga hans að við getum haft von nm
að selja áfram erlendis það iitla, sem framleitt er með okkar
iatæklegu núverandi framleiðslugögnum ?“
Þetta var stórhugur Alþýðuflokksins og Alþýðublaðsins til
nýsköpunarinnar haustið 1944. Þetta er og hefur verið hin
sanna afstaða Alþýðuflokksins og Alþýðublaðsins til nýsköpnn-
ariimar.
Lá wið stérslysi
SI. laugardag varð árekstur á Kársnesbrant milli jarðýtu
og fólksbifreiðar. Mnnaði litln að stórslys hlytist af.
Þessi óvenjulegi árekstur
varð er bifreiðin G-1477 ók
vestur Kársnesbraut. Stóð jarð-
ýta þar á veginum og var vél
hennar í gangi. Bifreiðin stað-
næmdist rétt aftan við ýtuna
og flautaði, en stjórnandi henn-
ar sá ekki bifreiðina og heyrði
ekki hljóðmerkið vegna hávað-
ans frá vélinni.
Skipti það engum togum að
jarðýtan var sett af stað aft-
urábak og rakst þá törn hennar
í framrúðu bifreiðarinnar,
braut hana og ýtti bifreiðinni
18—19 m. afturábak.
Kona bifreiðarstjórans sat
hjá honum í framsætinu en
barn þeirra hjá foreldrum hans
í aftursæti. Tókst bílstjóranum
að komast út úr bifreiðinni með
Waðor vann
Akurnesinga
I íslandsrqóti meistaraflokks
kepptu Akurnesingar og Valur
í gær og vann valur með 3:0.
Veður var hvasst og spillti það
leiknum.
Enginn leikur verður í kvöli
og óvíst hvenær næsti leikur
mótsins verður, því næst verð-
ur keppt við sænska knatt-
spymuflokkinn.
konima og gat þá gefið merki
um að stöðva jarðýtuna. Mátti
það ekki seinna vera til að stór
slysi yrði afstýrt, því bifreið-
in var komin afturábak að grjót
urð, og ekki annað líklegra en
hún myndi hafa lagzt saman
með þeim er í henni voru.
Merkfali í prsat-
myndagerðunura
Vinnustöðvun hófst hjá
prenímyndagerðunum í gær.
Sveinafélag prentmyndagerð-
armanna var stofnað á s.l.
hausti, en um kjör sveinanna
hefur aldrei verið samið.
Sveinar og mcistarar hafa
átt einn fund saman. Kröfur
sveinanna eru að kaup hækki
úr kr. 163 á viku í kr. 175, en
atvinnurekendur vilja semja um
óbreytt kjör. Þá vilja sveinarn-
ir ennfremur hætta vinnu á há-
degi á laugardögum allt árið, en
áður hafa gilt sömu laugar-
dagsfrí og hjá prenturum.
Félagið hefur vísað málinu
til sáttasemjara.
Það eru heldur kaldar kveðj-
ur sem þetta unga félag fær er
það í fyrsta sinn vill semja um
kjör meðlimanna. ■