Þjóðviljinn - 06.07.1948, Qupperneq 3
Þriðjudagur 6. júlí 1948.
3
Ritstjóri: FRÍMANN EELGASON
Hörðúr Öskarsson setti öll mörkin
Annar leikur Finnanna fóf
fram á sunnudagskvöld, og lauk
með sigri íslenzka liðsins, 4:1.
Eftir . gangi leiksins var þessi
sigur alitof stór. Finnar höfðu
mörg markatækifæri, en skot-
menn þeirra voru mjög óheppn-
ir eða veikir á því sviði. Úti
á vellinum sýndu þeir yfirburði
í samleik og leikni, en þegar
innað marki kom, fór allt út um
þúfur. Meiri hluta síðari hálf-
leiks lá alveg á Fr-K.R. og sköp
uðu Finnar sér þá mörg og góð
tækifæri, en flest fóru skotin
framhjá eða fyrir ofan. íslend-
ingar léku þó óvenjulega létt
og náðu oft, sérstaklega í fyrri
hálfleik, nokkuð góðum samleik,
sem þeir Sæmundur og Óli. B.
undirbjuggu í flestum tilfellum.
Strax á annarri mínútu hefur
Ríkarður þrotist í gegn, en skot
ið fer yfir. Þegar 4 mín. eru
af leik fá Finnar á sig horn.
Knötturinn lendir í þröng við
markið, Hörður fær komið fæti
á hann og gert mark. Næstu 20
mífi. skiptast liðin á að gera'á-
hlaup, hafa báðir nokkur tæki-
færi, og er offlétt yfir þessum
áhlaupum. Tilþrif Finnanna eru
skemmtilegri, það er meiri leikni
og hugsim í þeim, en maður
hefur það á tilfinningunni að
markið. sé þeim lokað. Skotin
eru af of löngu færi. Það er
eins og þá vanti baráttukjark
til að brjótast inní vörnina og
skjóta þaðan. Annað markið set
ur Hörður, eftir að markmaður
hafði misst knöttinn. Það hefðu
Finnar átt að sleppa við. Þriðja
' markið setur Hörður með skalla
frá hornspyrnu og þannig endar
liálfleíkurinn..
Síðari hálfleikur byrjar með
sókn frá Fr-K.R., en liún er
brotin á bak aftur og halda
Finnar nú uppi sókn en ekki
tekst þeim að gera mark fyrr
en 20 mín-.- eru af leik, og gerði
miðframherji það.
Er á leið gerðu Fr-K.R. þó á
hlaup við og við. Úr einu þeirra
er 7 min. voru eftir, er dæmd
aukaspyrna . sem Sæmundur
spyrnir vel fyrir og Hörður nær
að skalla í mark. Þarna átti
markmaðurinn að. verða fyrri
til. Eftir það skeði ekkert mark-
vert,
Sem sagt, of stór_ sigur. 2:1
hefði verið nær sanni eða eftir
öllum tækifærum hefði 4:3 ver-
ið réttara, og' vissulega ájttu
okkar menn ta'kifæri sem ..þ.eir.
misnotuðu.
Framlína Fr-K.R. var óvenju
virk, þó bæði Hörður og Ríkarð
ur séu einstaklingshyggjumenn í
leik, ef til vill hafa þeir Öli B.
og Sæmundur bundið liðið s’am-
an. Hörður gerði mörkin og var
vel vakandi fyrir tækifærum, en
samleikurinn við hina var ekki
í lagi, og svipað er um Ríkarð
að segja. Hann hefur dugnað
og skothörku en ekki samband
við samherjana. Gunnar hefur
ekki tekið þeim framförum sem
búast hefði mátt við eftir leikj-
um hans í vor. Samleikur þeirra
Hermanns og Þórhalls var oft
laglegur. Aftasta vörnin var
nokkuð sæmileg, en með lakari
framverði er hætt við að stað-
setningsveilur þær sem fjrrir
komu, hefðu getað haft slæmar
afleiðingar. Adam var nokkuð
öruggur í markinu, en útspörk
hans eru slæm ennþá. Annars
féll liðið nokkuð vel saman.
Lið Finnanna var nokkuð
breytt frá landsleiknum, og ekki
eins sterkt og þá (því ér alltaf
auglýst að félögin keppi við
landslið Finna? Var það ekki í
fyrsta leiknum?)
Beztu menn í liði Finna voru
miðframherjinn, hægri fram-
vörðurinn, innherjarnir og mið-
framherjinn.
Það óhapp kom fyrir að mark
maður Finnanna, kastaðist með
höfuðið á aðra marksúluna og
varð að hætta. Áhorfendur voru
margir og veður gott. Dómari
var Haukur Óskarsson og slapp
engan veginn vel frá því starfi.
rílíaiót „SkarpléSins" í
’órsártúni
UMF Seifoss hlau! ílest siig og vann íarandgripinn
11.23
12.23
Ibróttamóti Héraðssambandsr
ins Skarphéðinn, hinu -34. í röð-
inni, lauk ‘ s. 1. sunnudag að
Þjórsártúni.
Eins og að undanfarin ár var
mótið tvískipt, fyrri hluti þess,
sundmótið, fór fram í sundlaug
Hveragerðis, í maí s. 1. en
frjálsu íþróttirnar svo og glíma
fór fram sem fyrr segir að
Þjórsártúni.. Þátttakendur voru
alls 100 frá 11 félögum, í sund-
inu kepptu 45 og í frjálsíþrótt-
unum 55.
Mótið var sett á sunnudags-
morguninn með ræðu Sigurðar
Greipssonar, skólastjóra íþrótta
skólans að Haukadal. Sigur-
björn Einarsson, dósent, flutti
ræðu. Að henni lokinni gengu
keppendur fylktu liði með ís-
lenzka fánann í fararbroddi, inn
á leikvanginn. ' Lúðrasveitin
..Svanur, lék öðru hvoru undir
stjórn Lanzky-Otto. Mótgestir
voru mjög margir og undu sér
vel, veður var hið fegursta.
Árangur var yfirleitt góður, 80 m. hlaup kvenna (úrslit):
þegar tekið er tillit til þess hve Slgr- Stefáns<i. Umf. Hvöt n,3
2. Gíslína Þórarins. Umf. Vöku 11,4
3—4. Ragnh. Gíslad. Umf. Vöku 11,S
3—4. Bjarkey Sigurðardóttir
Umf. B.aldur 11,8
11,28, hlupu 4 keppendur undir
eldra ,,Skarphéðinsmetinu“. í
þrístökki stökk Oddur Svein-
björnsson, Umf. Hvöt 13,75 og
í langstökki 6,65 m. I langstökk-
inu stukku 5 keppendur yfir
6 m. Sigfús Sigurðsson, Selfossi
kastaði kringlunni 37,69 m.
Árangur í einstökum greinum:
3000 m. lilaup:
1. Eiríkur Þorgeirss. Umf.
Hrunamana
2. Sig. Sighvatss. Selfossi
3. Vilhj. Valdemarsson Umf.
Ingólfur 12,27
4. Helgi Halldórs. Umf Baldur 12,29
Hástökk:
1. Kolb. Krisins. Selfossi 1,75
2. Ásg. Sigurðs. Selfossi 1,70
3. Matth. Guðmunds. Selfossi 1,65
4. Gisli Guðmunds. Umf. Vaka 1,65
Stangarstökk:
1. Kolb. Kristinss. Selfossi 3.50
2. Guðni Halldórs. Selfossi 3.00
3. Friðrik Friðriks. Selfossi - 2.50
4. Sigfús Sigurðss. Selfossi 2,40
Jón Helgason innleiddi dag-
skrána með erindi um Arn-
grím lærða. Á fáa menn er öllu
betra að hlusta, bæði sakir
raddar, flutnings og efnismeð-
ferðar. Eg varð þó fyrir vissum
vonbrigðum: ég hef alltaf
haldið, að Arngrímur lærði liafi
verið stórum merkari persóna en
prófessorinn vildi vera láta, og
auðvitað tek ég hann miklu trú-
anlegri um það efni heldur en
sjálfan mig.
Það hafa nú
allmargir
spreytt sig á
Heyrðu og
séðu, og allir'
sem ég hef
hlustað á,
hafa verið
með tærnar
bakvið hælinn
á þeim, er ruddi þessum þætti
braut í fyrrasumar, enda tókst
útvarpinu fljótlega að losa sig
við hann. Sá, sem hlustað hef-
ur á þætti Gimnars Stefánsson-
ar, spyr sig gjaman einnar
spumingar: Hve lengi er hægt
að tálga sömu litlu spýtuná ?
Sá sem hefur gaman af landa
fræði, eins og - undirritaður,
hlustaði opnum eyrum á erindi
Baldurs Bjamasonar um
Alaska og nálæg lönd. Það var
fróðlegt, en ekki vel flutt, og
ég held málið hafi ekki verið i
bezta lagi. Er ekki þetta ólógísk
setning: Enginn vissi, þegar
það var keypt, lyrr en löngu
síðar. En þetta er nú víst smá-
atriði.
Og síðan lás Níels Dungal
afla úr væntanlegri.bók sinni,
Blekkingu og þekkingu, og
fjallaoi þessi um viðskipti kirkj-
uiinar við læknisfræðina: Var
það satt að segja ófagur lest-
ur, og er prófessorinn ekki um
að saka, heldur þá mammons-
ambátt fyrri tíma, er nefndist
kristin kirkja og var voldug-
asta glæpafyrirtæki miðalda.
Leikur mörgum forvitni á að
lesa þessa bók, og væri hún ail-
þörf, ef hún gæti opnað augu
einhverra lesenda sinna fvrir
skaðsemi trúarbragða og þeim-
skemmdarverkum, sem unnin
eru í nafni þeirra og undir yfir-
skyni guðs.
Frú Melitta Urbantschi.^^n
flutti erindi um býflugur. Á
Akureyri var býflugnabú og
vissi að höfuðgötunni. Þegar
leið að vori hylltist ég til að
lcrækja fj7rir þetta bú, því ég
var hræddur við það eins og
alla staði, þar sem von er á
smákvikindum. En ég hlustaði
mjög ,,góðfúslega“ á erindið og
iðraðist þess ekki, því það var
þrungið þeirri einlægni, sem
sjaldgæf er í ræðum íslendinga,
og auk þess fullt af skáidskap,
þótt urn flugur væri. En eng-
in fjarstæða væri að ætla, að
næsta erindi Kvenréttindafé-
lagsins fjallaði um hrossarækt
eða áveitur.
Það getur vel verið, að leik-
rit Arvids Brenners hafi átt að
vera gott. Samt bilaði það, þar
sem mest á reyndi: í karakter-
lýsingu Sigríðar. (Hvers vegna
leið henni svóna illa ?) Og háðið
í síðasta atriði er svo slitið og
margþvælt, að engu tali tekur.
Og man ég nú ekki meir,
enda fer úvarpsáhugi minn
dvínandi með hverjum degi og
þrýtur vafalaust með öllu, áður
en langt um líður. B. B.
Knattspyrnufélagið Valur víglr
félagsheimili sitt
völlurinn er’slæmur. Sett voru
6 „Skarphéðinsmet": Sigrún
Stefánsdóttir, Umf. Hvöt hljóp
80 m. í undanrás,á 10,8 sem er
pndir ísl. metinu, sýndu 3 klukk ‘
ur sama tíma, en ræst var með
klúti. Friðrik Friðriksson, Sel-
fossi hljóp 100 m. í undanrás
á ll,5. Eiríkur Þorgeirsson Umf
.Hrunamanua lvijóp. 3000- m. n
100 m. hlaup karla, (úrslit):
1. Sigfús Sigurðs. Selfossi 11,6
2. Símon Kristjáns. Selfossi 11,3
3. Friðrik Friðriks. Selfossi 11,7
4. Skúli Gunnlaugs. Umf.
Hrunamanfta 11,9
Framhald á 7. síöu.
Knattspyrnufélagið Valur
hefur að undanförnu imnið að
því að koma sér upp félags-
heimili á landi sínu Hlíðarenda
við Laufásveg.
Á laugardag fór vígsla heim-
ilisins fram og framkvæmdi sr.
Friðrik Friðriksson hana, en
Friðrik má kalla föður Vals.
Sagði Friðrik þar frá atvikum
frá fyrstu dögum félagsins á
sinn skemmtilega hátt.
Þá flutti Einar Björnsson
snjallt erindi úm aðdraganda
þessa fyrirtækis og fleira. Borg-
arstjórinn flutti ávarp og full-
trúar frá ýmsum félögum og
samböndum sem Valur er að-
ili að. Var vígsla þessi öll hin
hátíðlegasta. Veitingar voru
þar góðar og sáu stúlkur fél-
agsins um það með mikilli
prýði.
Um kvöldið var dansleikur í
heimilinu fyrir félagsmenn og
skemmtu menn sér þar hið
bezta frani eftir kvöldi.
Félagsheimili Vals er í alla
staði hiá vistlegKsta, og er þar.
séð fyrir bæði þeim, sem koma
til íþróttaiðkana og eins því að
öll fundarstarfsemi og annað fé-
lagsstarf getur farið þar fram.
Fundarsalurinn er rúmir 70 fer-
metrar, veggir klæddir að neð-
an með mahognivioi, og er Jiinn.
smekklegasti. Á veggnum i öðr-
um enda salsins er merki fé-
lagsins, mjög haglega gert úr
snúnum koparvír eftir Sigurjón
Ólafsson myndhöggvara. Hús-
gögn eru þar öll hin vö.nduð-
ustu. Þá er þar einnig rúmgóð-
ur búningsklefi og böð, bæði
steypiböð og svo stór og rúm-
góð kerlaug, sem' íþróttamenn
■geta gengið í eftir æfingar og
leiki. Þó ekki sé komið á land
félagsins nema þetta heimili, þá
cr ætlunin að koma upp æfinga-
völlum fyrir knattspyrnu, hand-
knattleik, tennis og svo keppn-
isvelli með áhorfendasvæfum.
Ef til vill er möguleiki að koma
þar upp útisundlaug, sem starf-
rækja mætti yfír sumarmánuð-
ina og nota til þess -vatn frá
hitaveitunni.
Framliald á 7. síðu.