Þjóðviljinn - 07.07.1948, Blaðsíða 4
4
PJOÐVILJINN
Miðvlltudagur 7. júli 1048.
þlÓÐVILIiNN
Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
l Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb).
Préttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Ritstjórn,- afgreiðsla, auglýsingar, prentsmlðja. Skólavörðu-
Btíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur)
Áskriftarverð: kr. 10.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Sósíalistafloltkurinn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár línur)
SMáM _
Það hlýtur hvern íslending að svíða undan þeirri smán,
sem íslandi nú er gerr af ríkisstjórn þess. Aldrei hefur
ísland verið ríkara en nú, aidrei hefur þjóðin staðið betur
að vígi, til þess að hagnýta auðlindir sínar sjálf og njóta
sjálf þess arðs vinnu sinnar, aldrei hefur land vort haft
betri aðstöðu til þess að vera raunverulega sjálfstætt um
efnahagsmál sín en nú.
Og þá ofurselja valdhafar landsins ríkisstjórn erlends
stórveldis og auðfyrirtækjum þess rétt til þess að hafa
áhrif um hagnýtingu íslenzkra auðlinda, geta krafizt ís-
ienzkra efnivara með ,,sanngjörnu“ verði, geta skipulagt
framleiðslu þeirra, jafnvel með amerísku auðmagni, geta
bannað íslendingum að selja vissar vörur til annarra landa,
geta fyrirskipað Islendingum að safna birgðum af ákveðn-
um vörum handa Bandaríkjunum, o. s. frv.
ísland undirgengst skyldur, einhliða skyldur gagnvart
Bandaríkjunum, — þau takast engar skyldur á herðar.
ísland afhendir réttindi, sem það hingað til hefur varðveitt
sem sjáaldur auga síns, — ísland fær engan rétt, Bandarik-
in láta ekki svo mikið á móti sem skylduna til þess að
kaupa þær vörm', sem íslendingar vildu selja, í dollurum,
svo íslendingar gætu þó borgað aftur í dollurum hugsan-
leg lán. En amerískt auðmagn fær rétt til starfsemi á Is-
Jandi, þ. e. a. s. samkvæmt reglunni- blóta má, en þó á
laun. Ameríska auðvaldið virðist eiga að leppa auðmagn
sitt hér, svo þægir „sjálfstæðisleiðtogar" fái að gerast
leppar og ráðherrarnir séu ekki einir um leppmennskuna.
Þessi samningur er sú argasta smán, sem Islandi hef-
ur verið gerð. Oss rak engar nauðir til þessa réttindaafsals,
— vér hungruðum ekki Islendingar eins og sumar þær
Evrópuþjóðir, sem nú krupu undir okið. Og jafnvel þó oss
hefði eitthvað skort, þá var oss ekki vandara mn en for-
íeðrum vorum. Vér mættum minnast andans frá 1908, ef
úm slíkt hefði verið að ræða, þegar þá var ort urn afstöðu
'til Dana, það, sem nú ætti við um Bandaríkjamenn, svo sem
vísa Stephans G. segir:
„Glaður vildi ég vera frjáls,
Vita ei björg til næsta máls,
Heldur en vera æti orðinn
Út’ við dönsku húsgangsborðin".
En það fer lítið fyrir þeim anda nú hjá syni Benedikts
Sveinssonar og öðrum ,,sjálfstæðis“leiðtogum.
Marshallsamnmgur B,jarna Ben. er efnahagslegur land-
ráðasamníngur. íslenzka afturhaldið skýtur lokiun frá
hurðum til þess að lileypa amerísku auðmagni inn í landið.
Það ætlar sér þar með að fá sterkan baiulaimam í baráttu
við íslenzkan verkalýð, íslenzka samvinnuhreyfingu, ís-
ienzkt sjálfstæði.
Það er auðséð á málsvörn afturhaldsblaðanna, að þau
vita ekkert hvernig þau eiga að verja réttindaafsalið.
Eitt segir að ísland verði að taka. þátt í viðreisn Vest-
ur-Evrópu! Hvaða þátttaka er það í viðreisn Vestur-Evr-
ópu að gefa Bandar. yfirráðarétt yfir islenzku atvinnulífi?
Annað segir að við þm-fum að tryggja okkur dollara! —-
Það er ekkert atriði í samningnum, sem tryggiir okkui’ dollara-
greiðslur fyrir vörur okkar!
Þá er sagt að við þurfum að fá lán. — Bandaríkin hafa neit-
að okkur um lán, nema við göngum að pólitískum kúgunarskil-
málum. En rikisstjórnin hefur hvorki reynt fyrir sér með lán
í Alþjóðabankanum, — og á þó ísiand 2 milljón dollara hluta-
fé þar og í Gjaldeyrissjóðnum, né Sviss, af því ríkisstjórnin
vildi fá átyllu til þess að svíkja landið undir Marshallokið.
Það er smánin, sem mun svíða alla ærlega íslendinga sárast
nú. En nú verður að sameina þjóðina um að berjast.gegn. af-
Jeiðingum þeirra svika, sem í þessum samning felast.
AUtaf er það sama
sagan
Margir eru þeir sem minnast
á viðskiptanefnd, ríkisstjórn og
önnur stjómarvöld á þessum síð
ustu og verstu tímum, og alltaf
er það sama sagan: allir hafa
þeir einhverja kvörtun fram að
færa, enginn finnur hjá sér
þörf til að þakka þeim herrum
fyrir neitt (að undanskildum
þeim 200 ríku, — og þeir hafa
vit á að vera ekki að flagga með
þakklæti sitt).
I dag birti ég eitt þeirra
mörgu bréfa sem stöðugt ber-
ast frá mönnum í öllum flokk-
um, sem öll hafa inni að halda
lunkvartanir út af gerðum
stjórnarvaldanna. í þetta sinu
er það bréf frá verzlunarmanni,
svohljóðandi:
★
Fyrirsporn til
viðskiptanefndar
,,Það er orðin venja þegar tal-
að er við einhvern nefr.darmann,
og hann beðinn að taka til með-
ferðar beiðni um innflutning, að
hann biður um að ný umsókn
sé send, þar sem ómögulegt sé
að finna áður senda umsókn.
1. spurning: Týnir viðskipta-
nefnd umsóknum er liafa verið
lagðar inn á skrifstofu nefndar-
innar?
2. Eða eru umsóknirnar allar
í einum graut, þannig að ómögu
legt sé að finna einstakar um-
sóknir ?
3. Er það skilyrði fyrir því að
fá innflutningsleyfi að maður
tali persónulega við einhvern úr
nefndinni. Hvað á að segja er-
lendum firmum, sem beðið hafa
í 3—4 mánuði eftir því hvort
vörur þeirra fást innfluttar og
ekkert svar fáanlegt frá nefnd-
inni ?“
Verzlunarmaður.
★
Er ekkert verðlagseftir-
Iit á fatahreinsun ?
Hér er svo annað bréf svip-
aðfar tegundar frá G.J.:
„Nýlega fór ég og sótti föt er
ég átti í hreinsun. Mér voru
sögð þau gleðitíðindi að þau
væru tilbúin svo ég þyrfti ekki
að gera mér aðra fer til að
sækja þau, en þegar mér var
sýndur reikningurinn brá mér í
brún, því hreinsunin kostaði
helmingi meira en á-s. 1. hausti,
þegar ég lét hreinsa föt hjá
einmitt þessari sömu fatahreins
un.
Getur þú ekki sagt mér bæjar
póstur góður hvernig á þessti
stendur. Er virkilega ekkert eft-
irlit með verðlagi á fatahreins-
un? — G.J.“
Bæjarpósturinn býður verð-
lagseftirlitinu hérmeð rúm til
þess að svara þessu.
*
Furðuleg kureisi
„Gamall fótboltamaður” skrif
ar Bæjarpóstinum alllangt bréf
um komu fiuasku knattspymu-
mannanna hingað .fil lands, og
segir meðal annars: „ . . . Þeg-
ar svo kom að fyrsta leiknum,
hinum svonefnda landsleik, var
ég auðvitað mættur á velliuum
með þeim fyrstu og beið eftir
hinni venjulegu ræðu og byrj-
un leiksins. Innan skamms
ganga hin glæsilegu lið inná
leikvanginn og raða sér upp
fyrir framan stúkuna og síðan
eru leiknir þjóðsöngvarnir. En
nú skeður það merkilega. Knatt
spyrnumennimir hlaupa út á
völlinn og raða sér upp til leiks,
án þess að nokkur af knatt-
spyrnufrömuðunum finni livöt
hjá sér til að bjcða þá velkomna
hvað þá bera fram óskir um
áframhaldandi samvinnu land-
anna á íþróttasviðinu.
Þetta þykir mér allfurðuleg
kurteisi, ekki aðeins vegna þess
að þessi ágæta venja er lögð
niður, heldur einnig vegna þess
að hér er um að ræða fulltrúa
þeirrar þjóðar, sem fyrir nokkr-
um árum varðaði allt að þvi við
Iög að nefna án þess að kalla
hana frændþjóð okkar. — Þetta
skyldi þó ekki hafa gengið dá-
lítið öðruvísi fyrir sig á þeim
árum“.
Þetta ev vissulega ekki falleg
saga, en því miðui' hefur Bæjar-
pósturinn fengið alláreiðanlegar
fregnir um að hún sé sönn.
Ingólfiir Amarson og Egill
Skallagrímsson komu af veiðum í
gær og fóru til útlanda.
EIMSKIP:
)
Brúarfoss er í Iæith. Fjallfoss er
i Reykjavík. Goðafoss er i Ant-
werpen, fer þaðan væntanlega 7.7.
til Reykjavikur. Líigarfoss er á
Akranesi. Selfoss fór frá Reykja-
vík kl. 22.00 í gærkvölcl 6. 7. vestur
og norður. Reykjafoss fór frá Lar-
vik 5.7. íil Hull og Reykjavíkur.
Tröllafoss er í N. Y. Horsa fór frá
Leith kl. 24.00 4.7. tii Reykjavíkur.
Madonna lestar í Hull 7.7.
IIÍKISSKIP:
* \
Slíjaldbreið, Heióubreið, Súðin
og Þyriil eru í Reykjavík. Esja er
í Glasgow.
SKIP S. í. S.
Hvassafell er á Siglufirði. Varg
fór frá Hull i fyrradag álelðis til
Reyðarfjafðar. Vigör cr væntan-
legt til Isafjarðar. Plicu fór frá
Álaborg 1. þ. m. til ísafjarðar.
Stefán Islandi, óperusöngvari,
syngur í Austurbæjarbíó kl. 7.15 í
kvöld með aðstoð Fritz Weiss-
happel.
Heilsuverndarstöðln i Templ-
arasundi 3, fyrir ungbörn og barns
hafandi konur,-verður lokuð fyrst
um sinn, um óákveðinn tímá vegna
vlðgerða. Auglýst verður siðar
hvenær stöðin tekur aflmr til
starfa.
I-ausn frá emÍMettú Á rikisráðs-
fundl 3. þ. m. var Guðmundi Hann-
essyni, bæjarfógeta á Sisrluílrði
veitt lausnfrá embætti frá i. ágúst
n. k. að teija.
Útvarplð f dag:
19.30 Tónleikar: Lög leikin árbanjó
og balalaika (plötur). 20.30 Út-
varpssagan. 21.00 Tónleikar: Sym-
fónía nr. 2 i D-dúr eftir Sibeliús
(endurtekin). 21.30 Þýtt og endur-
sag.t Myndir úr tónlífi Vínarborgar
fyrir aldamótin (J6n Þórarinsson).
22.05 Danslög (plötur). 22.30 Veður
fregnir. — Dagskrárlok.
KROSSGÁTA NR. 68
Lárétt skýring: 1. Voði, 4. Lög,
5. Samhljóðar, 7. Þukl, 9. Blundur,
10. 1 hálsi (eignarf.), 11. Drykkjar,
13. Komast, 15. Kurteisistitill, 16.
Gabba.
Lóðrétt skýring: 1. Upphrópun,
2. Segja fyrir, 3. Ókyrrð, 4. Ham-
ingjusaman, 6. Talar, 7. Ölstofa,
8. Skemmd, 12. Pest, 14. utun, 15.
Hvað ?
Ráðniiig á krossgátu nr. 67.
Lárétt: 1. Grýta, 4. Ló, 5. Kú,
7. Áta, 9. Fól, 10. Raf, 11. Ask,
13. Ræ, 15. Úr, 16. Floti.
Lóðlétt: 1. Gó, 2. Ýft, 3. Ak.
4. Lafir, ð. Úlfar, 7. Ála, 8. Ark,
12. Sko’, 34. Æf, 15. Mi.
Ræðismaðui' Islands í Rió de
Janeiro. Á rikisráðsfundi 3. þ. m.
skipaði fprseti Islands, John Kemp
Litey, íæðisnmnn Islands í Rio d3
Janeiro.
IIjónaefai: Nýiega hafa opinbex'-
að trúlofun sína Soffía Kristbjörns
dóttii', Bei'gstaðastræti 6c og Ólaf-
ur Stephensen, stud. med., Hring-
braut 154. — Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína Katrin Einars-
dóttir, Hringbraut 137 og Bragi
Sigurðssoa, stud. jur., sama stað.
Nætnrakstur í nótt annast
Hreyfill. — Sími 6633.
Næturiæknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum. —
NætnrvörSur er í Ingólfsapóteki.
— Sími 1330.
Veðrið í dag. Suð-vesturland og
Faxaflói: Norðan eða norðvestan
gola eða kaldi. Víða léttskýjað.
fealdið samsæti
Síðastliðhm þriðjudat; hélt
Itáskólí ÍHhuids kveldverð; ► bo V
í Tjarnarcafé til heiðurs Sir
William A. Craij>ie hiunm mik-
ilsvii'ta málfræðliigi og heiðurs-
doktor háskólans.
Varaforseti háskólaráðs, pró
fessor Ásmunduir Guðmundsson
stýrði hófinu, en meðal boðs-
gesta voru sendiberrn Breta,
háskólakennar í ísleuzkum fræð
nm, fulltrúar Bókmeuntafélags-
ins, Rímnafélagshis og Kvæða-
mannafélagsins og nokkrir aðr-
ir firæðimenn. Skemmtu menn
sér hið bezta við ræður og
rímnakveðskap, m. a. hélt heið-
ursgesturinn merkiiega ræðu.
um fyrstu kynni sin af íslend-
higum og um ferðir sínar hér
á landi.