Þjóðviljinn - 29.07.1948, Page 4

Þjóðviljinn - 29.07.1948, Page 4
1 Þ JÖÐVIL31NN K í'immtudagur 29. júlí 1948 þJÓÐVILJINN Dtgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — SósíalistaflokkurínD Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb). Fréttaritstjórl: Jón Bjs.rnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Toríi Ólafsson, Jónas Árnason. Áskriftarverð: kr. 10.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðu- Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. Sósialistaflokkurinn, I>órsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár linur) Yfirfjárhagsráð Fjárhag'sráð ríkisstjómarinnar, sem hefur haft það hlut- verk að skipuleggja í rúst atvinnulíf landsins, hefur að vonum verið mjög illa þokkað af þjóðinni. Það hefur að kalla má alræðisvald yfir allri fjárfestingu landsmanna, er á mörgum sviðum valdameira en Alþingi, og alkunnugt er hvernig það hefur notað vald sitt til þess að draga úr öll- um framkvæmdum, lama athafnaþrek og lifsþrótt þjóðar- innar. Þetta alvalda stórráð, sem hefði með réttri og já- kvæðri stjóraarstefnu getað orðið hin nytsamasta stofnun, hefur í staðinn orðið dragbítur á alla framþróun. ★ En valdadagar þessa mikla stórráðs eru nú taldir., Ekki svo að skilja að það verði lagt niður, en það fær yfir sig volduga húsbændur erlenda, bandarískt stórráð. Hin „sér- staka sendinefnd" sem Bandaríkin senda hingað samkvæmt Marshallsamningnum verður einskonar yfirfjárhagsráð, og sérréttindi hennar og völd eru öllu öðru ofar. Hún á að hafa sömu „sérréttindi og forréttindi" og erlend sendiráð. Henni á að „láta í té þau hlunnindi og aðstoð, sem nauð- synleg eru.“ Ríkisstjórnin á að „hafa fullkomna samvinnu við hina sérstöku sendinefnd . . . Skal sú samvinna ná til hverskonar upplýsinga og fyrirgreiðslu sem nauðsynleg «ru". Og þannig mætti lengi telja. ★ Enn er ekki kunnugt um það hversu f jölmennt þetta yf- irf járhagsráð verður eða hvenær þfss er von. Þess ber þó að geta að í fylgiskjali með samningnum er skráður við- auki sem sýnir glöggt hversu glæsilegum árangri íslenzka ríkisstjómin hefur náð í viðskiptum sinum við „hið vest- ræna lýðræðisríki." Hann er þannig að ríkisstjórn Banda- ríkjaima „muni hafa í huga, að æskilegt er að takmarka svo sem hægt er f jölda. þeirra embættismanna, sem fullra sér- réttinda er óskað fyrir.“!! Ber að sjálfsögðu að þakka rík- isstjórninni á verðugan hátt fyrir þennan stórvægilega ár- angur. ★ En þótt bandaríska yfirfjárhagsráðið sé enn ókomið til landsins er íslenzka undirf járhagsráðið þegar farið að laga sig að hinum nýju aðstæðum. Eins og Þjóðviljinn 'hefur þegar skýrt frá er nú hafin mikil skýrslugerð handa Banda- ríkjamönnum um efnahagsmál Islendinga. Á yfirfjárhags- ráð síðan að fara yfir skýrslurnar, Ieggja blessun sína yfir það sem leyfilegt verður en fordæma annað. Fyrsta verk- efnið er innflutningsáætlun Islendinga, og eiga hinir er- lendu menn m. a. að ákveða hvaða vörur við megum flytja inn og hverjar séu ónauðsynlegar, og þá að sjálfsögðu einn- ig hvar við megum kaupa þann varaing sem heimill er. Það er saga dönsku einokunarinnar sem endurtekur sig á ný- tízkan hátt. k Ekki er annars getið en undiif járhagsráðsmenn sætti sig amætavel við þessa nýju skipan. Langlundargeð íslenzkar auðstéttar virðist ótæmanlegt, og stoltið og sjálfsvirð- ingin eftir því. Sumir virðast jafnvel því ánægðari sem þeir geta beygt sig dýpra fyrir hinu erlenda valdi. Já, það er dásamlegt að vera íslenzkur þegn, meðlimur frjálsrar og óháðrar þjóðar og búa við endurreist lýðræði «ftir sjö kúgunaraldir. Verðið á nýja kjötinu Nú hefur verðið á nýja kjöt- inu verið auglýst: 21 — íuttugu og ein króna — fyrir kílóið. „Er ríkisstjórnin að verða vit- laus?“ spurði maður einn, þegar hann frétti þetta. Áreiðanlcga hefur verð á ísl. kjöti alclrei komizt svona hátt. Ekki slæ- lega rekin baráttan gegn dýrtíð- inni! — Það sem meira er, nýja kjötið hefur engin áhrif á vísi töluna. Og þetta verð á því skal gilda fram í miðjan september. Það á ekki að flokka kjötið fyrr en um miðjan september. — Já, hver var annars að tala um, að hún væri ekki vel lukkuð „fyrsta stjórnin sem Alþýðu- flokkurinn myndar?“ * Of margir þátttakendur okkar á Olympíuleikj- • unum ? Surnir eru þeirrar skoðunar, að þátttakendur okkar á 01- ympíuleikjunum séu of margir. Hér er bréf um það efni: .....Hljótá allir, sem eitthvað fylgjast með íþróttamáium okk- ar, að sjá, að svo stór hópur frá okkur, er alls ekki fullskip- aður afreksmönnum, sem til greina kemur að geti vakið á sér athygli þarna. Eg gæti jafn • vel trúað, að sumir keppendur okkar kæmu varla til greina i venjulegum undanrásum, hvað þá i úrslitum. Það er alveg rétt sem stóð í blaði nýlega, að þetta gæti orðið vafasöm land- kynning. Auðvitað áttum við að láta nægja að senda nokkra af allra færustu mönnum okka-. D“. ★ Það var siður að sópa gólfið . . . Það er lítið vatn í Tjörninni núna og hún því ekki ásjáleg. Gremja manna útaf þessu hefur víða komið fram í blaðaskrifum. Eftirfarandi bréfkafli fjallar um þetta:. „Eg veit ekki hvort sú er orsökin tíl vatnsleysis Tjarnarinnar, að fram eigi að fara hreinsun. Það er ekki ólík- legt. En þá má líka benda hlut- aðeigendum á það, að þarna velja þeir óheppilegasta tíma til að framkvæma hreinsunina. Eiu mitt núna kemur margt er- lendra ferðamanna til bæjarins, og er það hreint ekki góður vitnisburður, sem Tjörnin gefur okkur: Ólykt og sóðalegt út- lit . ... “ — Annar maður hefur komið að máli við Bæjarpóstinn og látið í ljós svipaðar skoðan- ir. „Það hefur verið venja á fs- Iandi,“ sagði hann „að sópa þó ekki væri nema af miðju gólfi, þegar gesti bar að garði. Núver- andi ástand Tjarnarinnar er herfilégt brot á þeirri góðu, gömlu venju.“ * Vegurinn upp með ' Sunnuhvoli Þá er það bílstjóri, sem spyr: „Er það meiningin að hafa fram vegis sama fyrirkomulag og nú er þar sem vegurinn liggur frá Hringbraut og upp með Sunnu- hvoli. Það hefur verið lögð gang stéttarbrún þarna, en það er hvergi neitt skilti sem bannar manni að aka þar upp. Og þessi gangstéttarbrún er til mikilla óþæginda fyrir okkur og fer illa með bílana. Raunar skilst manni, að meiningin sé, að ein- hverntíma komi vegur upp þar sem Sunnuhvoll stendur nú, en allir vita að svoleiðis fram- kvæmdir geta dregizt nokkuð lengi. Þess vegna mundi ég vilja leggja til, að brúnin verði tekin og látin bíða. þangað til að kom inn er hinn fyrirhugaði vegur. , — Bílstjóri:“ ★ Danska freigátan Niels Ebbe- sen kom með Hans Heðtoft í gær. Helgafell fór á vciðar. Dýpk- unarskipið Grettir kom frá Vest- mannaeyjum. Auk þessa eru nú í höfninni: Westhorn^Horsa, Þyriil, Herðabreið, Súðin og Tröllafoss. Isfisksalan Síðan Akurey seldi sl. mánudag hafði aðeins einn íslenzkur tOi;ari selt afla sinn, þegar blaðið átti tal við skrifstofu Fiskifélagsins i gær. Var það Neptúnus, sem seldi 324,5 tonn í Bremerhaven. RIKISSKI’P Hekla er á norðurleið um Aust firði. Esja er á leið til Glasgow frá Reykjavík. Súðin kom hingað síðdegis í fyrradag af Vestfjörðum og Húnaflóahöfnum. Herðubreið kom hingað síðdegis í fyrradag að austan og norðan. Skjaldbreið var í gær á Húnaflóa á norðurleið. Þyrill er hér. Skip Einarssonar og Zoega Foldin og Westhorn eru 1 Reykjavík, Vatnajökull er á Breiðafirði, Lingestroom er í Ant- wcrpen, Vlingstroom fer frá Amst- erdarn 29. þ. m. um Antwerpen'og Hull til Reykjavíkur. EIMSKIP Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss er í Hamborg. Goðafoss kom til New York 26. júlí frá Reykjavik. Lag- arfoss fór frá Gautaborg kl. 22 30 27. júlí til Leith og Reykjavíkur. Reykjafoss fór frá Akranesi í gær- kvöld 28. júlí til Reykjavikur. Sel- foss fór frá Antweipen í gær til Hull og Leith. Tröllafoss er -í Reykjavík. Horsa fór frá Reykja- vík í morgun 29. júlí til Akraness og Keflavikur, Vestmannaeyja og Hull. Madonnæ fór fiá Reykjavik 22. júlí til Leith. Sutherland fór frá Hull 27. júlí til Reykjavíkur. Marinier fór frá Reykjavík 22. júlí til Leith. Útvarpið í dag: 15.30 Miðdegisútvarp. 16.25 Veð- urfregnir. 19.30 Tónleikar: Óperu- lög (plötur). 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 20.20 Útvarpshljóm- sveitin (plötur): a) Mars eftir Sousa. b) Gamalt enskt lag. o) Nocturne og „1 garðinum” eftir Rosse. d) „Morgenblátter" eftir Strauss. 20.45 Frá útlöndum (Jón Magnússon fréttastjóri). 21.10 Dag- skrá Kvenréttindafélags Islands. — Erindi: Dagur er runninn (Þór- unn Magnúsdóttir rithöfundui). 21.35 Tónleikar: Sorenade í D-dúr fyrir strengjatrió eftir Beethoven (plötur). 22.05 Vinsæl lög (plötur). VIBSJÁ Vísis segir frá því í gær, að jafn sakleysislegt orð og „John“ geti i skeyti tií duimálsskrif stof u Bandarflsjanna þýtt „bylting". Aðr- ar heimltdir liernia að jafnsakleysis- legir stafir og V. S. V. geti þýtt „atóinsprenglng í Reykjavíkurhöfn”, og óskil.janlegt tákn eins og St. Jóh. St. geti þýtt: „Marshall, I love you!“ Ferðaféiag Templara • efnir til þriggja daga skemmtiferðar vest- ur á Snæfellsnes .laugardaginn 31. júli n. k. Farið verður frá G. T,- húsinu kl. 2 e. h. og ekið vestur að Búðum og tjaldað þar. Sunnu- dagurinn 1. ágúst verður svo not- aður til þess að koða, Búðahraun og umhverfi, og síðan ekið út að Stapa. Þaðan til Ólafsvikur og til Stykkishólms um kvöldið. Komið getur til mála, að þeir sem þess óska fari ekki til Ólafsvíkur, held- ur til Grundarfjarðar. Þó þvi að- eins að fullskipaður bill fari þang- að. Mánudagurinn 2. ágúst verður notaður til að skoða Stykkishólm og umhvcrfi, m. a. verður gengið á Helgafell. Séð hefur verið fyrir mat og kaffi fyrir ferðafólkið, atla dagana. Einnig verður séð fyrir tjöldum i ferðina fyrir þá, sem þess óska. Vegna þess að bilakost- ur er takmarkaður ,en þátttaka verður sennilega mikil, er það nauðsynlegt að þátttakendur hafi gefið sig fram og tekið farmiða í Bókabúð Æskunnar Kirkjuhvoli fyrir kl. 6 í k\ájld. Gefið ykkur tíma tll að iesa auglýsUtgarnar í blað- inu. , Bótusetning gegn barnavciki heldur áfram og er tóik minnt á s,ð láta endurbólusetja börn sin. Pöntunum veitt mottaka í sima 2781 alla daga kl. 10—12 nema laugardaga. VISIR birtir í gær heilan leiðara um höggmynd af Stalín. sem bandarískt rit hefur sagt, að fyrrv. ríkisstjórn hafi pant- að, og hefur Vísir af því áhyggju mikia, livar sú hugg- mynd muni niðurkomin. — Lang- ir mundu ieiðarar Vísis, ef hann fengi allt í einu löngun til aö vita hvað orðið hafi af þeim nillljóna- gjaldeyri, sem ákveðnar persónur hafa stoiið undan til Bandaríkj- anna. — En hvers vegna bregður Kristján Guðiaugsson sér eltki í kafarabúning með Hannesi á horninu? Veit hann þá ekki það, sem allir vita ,að Stalín er í pakk- anum dularfulla í Reykjavíkur- höfn? Skrifstofa borgarlæknis, Póst- hússtræti 7,'er opin alla virka daga á venjulegum skrifstofutíma. Við- talstími er kl. 10—11. Sími 1200. Næturakstur í nótt annast Bif- reiðastöð Reykjavikur. Sími 1720. Næturvörður er í Iðunnar apó- teki, BÍmi 7911. Barnaheimilið Voiboðinn Rauð- hólum. Allar heimsóknir strang- lega bannaðar á heimilið. Söfnln: Landsbókasafníð er opiS kl. 10—12, 1—7 og 8—10 alla virka daga nema laugardaga, þá kl. 10— 12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið kl. 2 —7 alla virka daga. Þjóðminjasafn- ið kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga. Listasafn Einars Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu- dögum. Bæjarbókasafnið kl. 10—10 alla virka daga, nema yfir sumar- mánuðina, þá er safnið opið kl. 1—4 á laugardögun? og lokáð & sunnudögum. t-M~-»4-I-i-l~H-H' M-H-I-I-l-M ! 'l-h Veðrið — Faxaflói: Suðaust- an og austan gola. Skýjað með köflum en víðast úrkomulaust. *.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.