Þjóðviljinn - 14.12.1948, Síða 6

Þjóðviljinn - 14.12.1948, Síða 6
6 ÞJ ÓÐVILJINN Þriðjudagur 14. desember 1948. IMÓÐVILIINN ti^ctuuUl: Sa.meiningaiflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn Ritstjórar: Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson (ábj. Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðia. Skólavörðu- stíg 19 — Sími 7500 (þrjár línur) Askriftarverð: kr. 12.00 á mánuði.—Lausasöluverð 50 aur. eint. I’rentsmiöja Þjóðvlljans h. f. Sóslalistaflokkurlnn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár línur) 33.0Í3 aaiíisa fser Hr. Guðbrandur Jónsson er sem kunnugt er einn ihelzti andlegur leiðtogi Alþýðuflokksins, enda fékk hann gervi- prófessorsnafnbót að launum leiðsagnar sinnar. Hér áður var hann einn af forustumönnum flokksins út á við, fram- bjóðandi hans o. s. frv., en síðustu árin hefur hann af henti- semiástæðum verið látinn vinna störf sín í kyrrþey að tjaldabaki. Hefur hann mótað mjög stefnu flokksins og tekið forustumenn hans í tíma í drenglvndi, staðfestu 3g heiðarleik, enda sýna verkin merkin. Einkum og sérílagi hefur verið hlýtt milli hans og núverandi forsætisráð- herra, sem ævinlega mun leita til þessa prófessors Al- þýðuflokksins þegar mikilvægar ákvarðanir bíða úrlausnar. Stúdentafélag Akraness lét þennan læriföður Alþýðu- flokksins í fögrum dyggðum flytja ræðu 1. desember s.l. Ræðan hefur nú verið birt í ruslakistu þeirri sem kennd er við mánudag og er athyglisverð að því leyti að þar er reifuð ein helzta hugsjón forsætisráðherrans: að gera ís- land að herveldi. Prófessorinn tekur það að vísu fram af þeirri háttvísi sem honum er eiginleg „að þetta mál hefur aldrei borið á góma milli mín og ráðherrans“, en eins og kunnugt er eru skriftafeður þagnarskyldir og sannleiksást hefur aldrei verið talin öndvegisdyggð prófessorsins. Enda er túlkun prófessorsins í algeru samræmi við annað sem vitað er um stefnu Alþýðuflokksins í þessum málum. En nú er bezt að gefa þessum læriföður Stefáns Jóhanns Stefánssonar orðið. Hann telur að íslendingar eigi að taka sér til fyrirmyndar „konungsríkið Montenegro, sem leið undir lok 1918. Þar var hver vopnfær maður án tillits til aldurs skyldur til herþjónustu. Xbúar landsins voru röskar 200.000 og herstyrkurinn var frá 36.000—50.000 manns. Með þessum herstyrk fóru Montenegrobúar hvað eftir annað í ó- frið á öldinni sem leið og fyrri 'hluta þessarar aldar, meira að segja í árásarstríð við sér miklu sterkari ríki, og báru sig ur úr býtum.... Ef við hervæðumst með sama hætti ættum við að geta haft 24.000 til 33.000 manna her, eða sem svarar tveim herfylkjum vopnfærra manna, en önnur störf hernum samfara svo sem birgðastörf, hjúkrunar- og spítalastörf, skrif stofustörf og annað gætu óvopnfærir menn og konur unnið .... til stuðnings þyrfti að vera örlítill floti, aðallega fær um að leggja tundurdufl.... Flugvélar þær er við eigum mundu og geta fullnægt þörfum landvarnanna fyrir loftþjónustu. Með þessu liði, sæmilega útbúnu, mætti verjast landgöngu af sjó og úr lofti....Við gætum meira að segja þá að líkindum valið við hverja við vildum helzt binda trúss .... og jafnvel áskilið okkur yfirstjórn þess herafla, er færi með hina end- anlega vörn landsins .... Hitt væri vitaskuld útilokað að nota þennan her til annars en varna, það útilokar lega landsins.“ Eins og sjá má er þessi ráðgjafi Alþýðuflokksforustunnar ekki lítið stórhuga. Menn höfðu ímyndað sé.r að Stefán Jóhann myndi láta sér nægja 5000 manna lið, en prófessorinn telur sjálfsagt að annarhver karlmaður hervæðist. Veitir það hæfileikum forsætis- ráðherrans að sjálfsögðu stórum meiri möguleika og ekki er hitt síðra ef hann getur „áskilið" sér „yfirstjóm þess herafla“ sem J3andaríkin senda hingað. Yrði Stefán Jóhann þá einn álitlegasti hershöfðingi heims. Um hlutverk prófessorsins sjálfs meðal hem aðarþjóðarinnar íslenzku getur ekki, en væntanlega yrði hann yfirmaður herleyniþjónustunnar, öndvegisspæjari, hann hefur sem kunnugt er reynslu á því sviði. Þannig er boðskapur þess manns sem telja má einn helzta andlegan leiðtoga Alþýðuflokksins. Væntanlega lætur forsætis- ráðherrann snara honum á bandarísku hið bráðasta til að sýna yfirboðuranum mikilleik sinn og hefur hann með sér þegar hann fer að taia við þúbræðurna á nýjaleik nna áraxnótin. .. . ; : Athyglisverð bók. Merkilegar þjóðlífs- íýsingar. Atvinnu- saga. Frásagnir af i m ■ kunnustu mönnum þjóðarinnar. Gunnar Olafsson ENDURMINNINGAR Um helgina kom í bókabúðir sjálfsævisaga hins kunna athafnamanns Gunnars Ölafssonar kaupmanns og konsúls í Vestmannaeyjum. Gunnar Ólafsson er nú kominn hátt á’85. aldursár og hefur því lifað tvenna tímara, eins og hann minnist á sjálfur í eftirmála í bók sinni. Harðinda- og liaf- ísur 19. aldar þegar fólk flúði landið í stórum hópum, sakir. bjargarskorts og vonltysis um bættan hag, og svo nýju tímana, sem 20. öldin færði með batnandi veðrittu, er mest af öllu glæddi framtíðarvonir þjóðarinnar og jók afl hennar og áræði til framkvæmda á flestum eða öllum sviðum. !v;w: wmrnmmMi Gunnar hefur því lifað all viðburðaríka ævi. Hann lagði stund á skósmíðanám, sjómennsiku og verzlunarnám. Hann var verzlunarmaður í Reykjavík á árun- um 1896—1899, en fluttist þá til Víkur í Mýrdal og veitti þar forstöðu verzlun J. P. Bryde. Árið 1909 fluttist hann til Vestmannaeyja og hefur rekið þar síðan umfangsmikla útgerð og verzlun. Á þessum langa lífsferli, við margvisleg störf kynntist hann mönnum og mál- efnum betur en flestir aðrir, og segir hann frá þessu öllu í bók sinni á djarfan og skemmtilegan hátt. Mun óhætt að fullyrða, að bók þessi er eitt bezta innlegg, í meltningarsögu þjóðarinnar. Endurminningar Gunnars Ólafssonar er bók, sem vandlátustu bókaunnendur kjósa sér til að lesa um jólin. —

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.