Þjóðviljinn - 17.02.1949, Page 4

Þjóðviljinn - 17.02.1949, Page 4
4 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. febrúar 1B49. ÞIÓÐVILIINN liigeíandt: Samelnlngarfiokkur alþýðu — Sósíalistaílokkurinn > Ritstjórar: Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson (áb> Fréttaritptjórl: Jón Bjarnason. Biaðam.: Ari Kárason, Magnús Toríi Ólaisson, Jónas Ámason. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja. Skólavörðu- stig 19 — Sími 7500 (þrjár línur) Askríftarverð: kr. 12.00 á mánuðl. — Lausascluverð 50 aur. elnt. Prentsiniðja Þjóðvlljans b. f. Sósíalistaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Simi 7510 (þrjár línur) Leikslok jjsriija þáttar Ba’idaríkjaagentarnir reyna nú að endurtaka leik sinn frá árunum 1945—1946: stuðninginn við kröfur Bandaríkja- manna, svardagana, svikin. Fyrsti þátturinn var leikinn um síðustu áramót, þegar Ólafur Tliors og Stefán Jóhann Stefánsson eggjuðu þjóðina á að láta hernema sig sem fyrst og skríða í hæpið skjól morðtóla og vígvéla til sóknar og árásar. Annar þátturinn stendur hú sem hæst, svardagarn- ir: okkur hefur aldrei til hugar komið að hér yrði nerstöð á friðartímum og munum berjast gegn því af alefli! Og loddaraleikurinn er slíkur að sömu mennirnir, Ólafur Thors og Stefán Jóhann Stefánsson, eru látnir leika aðalhlutverk annars þáttar. Enginn efast um að þeir muni einnig leika aðalhlutverk þriðja þáttar. Það ber þó að veita því sérstaka athygli hvernig svar- dagar Sjálfstæðisflokksins eru orðaðir. Það „ber að stefna að því ... að liér verði ekki herstöð á friðartímum og ekki herskylda." Ekki er nú reisnin mikil. Það er meira en greinilegt að hinir ,,stefnuföstu“ Sjálfstæðisforsprakkar gera ráð fyrir því að verða fyrir ó.vfirstíganlegri torfæru á braut sinni. Og það er sérstaklega athyglisvert að tor- færan er ekki aðeins herseta heldur einnig herskyída; það ætti ekki sízt að vera umhugsunarefni fyrir íslenzka æsku. Þótt leikur bandaríkjaagentanna heppnaðist 1946 mun hann mistakast nú; því þeir hafa gert sig seka um örlaga- rík mistök. Þeir komu upp um úrslit þriðja þáttar þegar í fyrsta þætti, þannig að svardagaþátturinn blekkir engan. Og það er sjálfur aðalleikandinn, Ólafur Thors, sem kom upp um fyrirætlanirnar í áramótagrein sinni, og orð hans ber íslenzku þjóðinni að meitla inn í hugskot sitt, til að vera viðbúin því sem í vændum er. 31. desember 1948 sagði Ólafur Thors íslendingum að hlutleysi væri „ó\'ita hjal“ og að „ekkert sé til varnar annað en sterkustu víg\ælar og öflugustu morðtæki, svo sterk og öflug tæki til varnar og árásar að engir þori að ráðast á þá.“ Þessum tækjum yrði að koma upp liér, einmitt hér á íslandi, og það sem fyrst: „Við skulum hugsa okkur að varnarbandalag Atlanz- hafsríkjanna sé myndað án þátttöku íslands. Setjum svo að Vestur-Evrópa sé orðin ein vígvél. Norður- Arneríka önnur helmingi sterkari. Hvar mundi sá, sern slíka styrjöld hefur, byrja? Á hvern mundi hann fyrst ráðast? — Er ekki a. m. k. ákaflega sennilegt að hann sneri sér fyrst að þeim, sem hernaðarlega er mikil- vægur, en jafnframt óvarinn.“ Og Ólafur Thors kemur upp um að það er ekki um- hyggjan fyrir íslenzku þjóðinni sem stjórnar skrifum hans, heldur stríðsæsingamönnum hins „vestræna heims“. Hann segir svo um hernaðarbandalagið: „Er þá röðin komin áð okkur íslendingum, því sagt er, að eitt skilyrði þess sé, að Island og Portúgal gerist meðlimir bandalagsins þegar í upphafi.“ Því eru þessar tilvitnanir endurteknar hér, að þær gefa skýra mynd af því sem koma skal, svo skýra að hún verð- ur ekki falin með neinum blekkingum. Þær eru í engu sam- ræmi við hina nýju svardaga — en hinsvegar eru þær í samræmi við þá atburði sem eiga að vera leikslok þriðja þáttar. Það er nú Ijóst hvernig landsölumenn hugsa sér þróun- ána. Þjóðin á að ganga í hernaðarbandalag, sem sé sakleys- IIÆ JAUP«S1IH!\\ Tíkin sem ruglaðist. Á sveitabæ einum var fyrir nokkrum árum öldruð tík, sem allt í einu tók upp svo undar- lega háttu, að slíks þekktust ekki önnur dæmi. Birtist þetta einkum í því, að hún réði sér ekki fyrir flaðri utaní aðkomu- menn, en sat sig hinsvegar aldrei úr færi að urra framaní heimilisfólkið. Einsog gefur að skilja var mikið rætt um þessi duiarfullu sinnaskipti tíkurinn- ar; og hölluðust menn helzt að þeirri skoðun, að einhver ó- þrif hefðu búið um sig í heila dýrsins, líklega bandormur. Hlutleysi útvarpsins. Sagan um þessa merkilegu tík rifjaðist upp fyrir mér í sam bandi við hlutleysi útvarpsins nú að undanförnu. Þeir furðu- legu hlutir hafa nefnilega gerzt, að þetta margrómaða hlutleysi gefur ekki lengur frá sér annað en urr og gelt, þegar íslenzkur málstaður er annarsvegar; ligg- ur hinsvegar hundflatt og dillar rófunni framaní málstað útlend- inga. Örlög þess eru sem sé ná- kvæmlega hin sömu og tíkurinn- ar, sem missti vitið á efri árum. — Og aftur verður skýring flestra á fyrirbærinu svo til hin sama: Illkynjuð óþrif hafi búið um sig í sálarlífi útvarpsráðs, ó- þrif sem að vísu séu ekki band- ormur, en byrji þó á sömu bók- stöfum. • Blekkingaryfirlýsing íhaldsins. Nýjasta dæmið um viðbrögð hins elliæra útvarpshlutleysis, birtist almenningi í fyrrakvöld, þegar fréttatíminn var að stór- um hluta undirlagður þeirri blekkingaryfirlýsingu, sem land sölupartur íhaldsins hafði gert til hvatningar þjóðinni að sam- þykkja yfir sig ógnir hernaðar- bandalags. — Hvað eftir annað höfðu mikilhæfustu menn þjóð- arinnar varað hana við þessum ógnum, og öll fjölmennustu fé- lagasamtök í landinu voru búin að samþykkja mótmæli gegn þeirri samningsgerð, er mundi bjóða ógnunum heim. — Þjóðin var risin einhuga til andstöðu. En vilji hennar var bannfærður í fréttaflutningi út- varpsins. Hlutleysi þess urraði framaní heimilisfólkið. — Síðan var gerð samþykkt um málið undir stjórn þeirra manna, sem ganga með stærstan landráða- átimpii á enninu; — og hlutleysi útvarpsins varð himinlifandi. Tíkin dillaði rófunni. Það voru aðkomumenn á ferð. * En nú hafa þeir meðlimir iit- varpsráðs, sem ala óþrifin í sál- pgap arlífi sinu, gengið einu skrefi of langt. Það er ekki hægt að trampa með fasistískum fóta- burði þvert yfir íslenzka þjóð án þess henni ofbjóði. ★ Hefur þjóðin frekar ráð á því? Gróa skrifar: „Það er kunnra en frá þurfi að segja, að ríkisstjórnin telur þjóðina ekki hafa ráð að kaupa kvensokka. . I verzlunum landsins finnast ekki kvensokkar frekar en ull í geitarhúsi... Samt hafa flestar stúlkur ráð með að ná í reiting af þessari vöru, sem sé á svarta markaðinum ... Þær eru neyddar til að kaupa sokkana okurveroi á svarta markaðinum. Og nú spyr ég í einfeldni: Hefur þá þessi fátæka þjóð frekar ráð á að láta viðskiptin færast æ meir yfir á svartan markað, en að flytja inn vörurnar og hafa þær til sölu með lögíegu móti? — Gróa.“ sundi og Vestmaimaeyjum. Vatna jökull fór frá Menstad í fyrradag til Austfjarua. Katla fór frá Rvík 13. 2. til N. Y. Gullfaxi sneri við til Pi'estvíkur í gærkvöld, vegna þess að ólendandi var hér sökum snjókomu og roks. Hekla og Geysir voru í Reykjavík í gær. Ekkert flogið innanlands siðustu dagana vegna veðurs. Hjónunum Svöfu Sigurðardóttur og Sigurði Ingimund- arsyni, Vitastíg 7, fæddist sonur (16>,i mörk), 16. febrúar. HÖFNIN: Bjarni Ólafsson kom af veiðum í fyrradag og fór í fyrrakvöld á- leiðis til útlanda. Enskur togari kom hingað í gær. Élliði, Siglufjarð artogarinn kom af veiðum í gær og fór áleiðis til Englands. Tröllafoss fór í gærkvöld áleiðis tii útlanda. Dettafoss var væntanlegur úr strandferð í dag. * ISFISKSALAN: í fyrradag seldi Ingólfur Arnar- son 4626 kits fyrir 14524 pund x Grimsby. BIKISSKIP: Esja er á Austfjörðum á suður- leið. Hekla er í Álaborg. Hei'ðu- breið er á leið frá Austfjörðum til Reykjavíkur. Skjaldbreið er vænt anleg til Akureyrar i dag. Þyrill er á leið fi-á Reykjavík til Dan- merkur og Hollands. Súðin er á leið til ítalíu. Hernióður fór frá Reykjavík í gærmoi-gun til Djúpa- víkui', Hvammstanga-, Blönduóss og Skagastrandar. Skip Einarsson & Zoega: Foldin er í Reykjavík. Lingest- room fermir í Amsterdam þann 18. og Hull 21. þ. m. Reykjanes er á leið til Grikklands. E I M S K I P : Brúarfoss fór frá Hamborg í fyrradag til Leith og Reykjavíkur. Dettifoss fór fi'á Djúpavogi kl. 18.00—19.00 í gær til Reykjavíkur. Fjallfoss fór frá Rvik 6. 2. til Hali- fax. Goðafoss kom til Grimsby í gær fi'á Reykjavik. Lagarfoss er í Reykjavík. Reykjafoss er í Ant- wei'pen. Selfoss er á Akureyri. Tröllafoss fór frá Reykjavík í gær kvöld 1:1. 20.00 til N. Y. Horsa kom til Rvíkur í fyi'i'adag, frá Ála- islegt á yfirborðinu og þar sem minnzt er á að stefna beri að því að firra íslendinga hersetu og herskyldu. Þegar f jöt- ur hernaðarbandalagsins hefur síðan verið lagður á þjóðina koma fyrir einhverjir „ófyrirsjáanlegir atburðir" sem gera þessi atriði bæði óhjákvæmileg. — Það eru þessi Ieikslok sem þjóðin sjálf verður að koma í veg fyrir. e Endurskoðunarskrifstofu opnar í dag Eyjóifur 1. Eyjólfsson, í Tún- götu 8. ,/■ 18.30 Dönsku- ^ kennsla. — 19.00 Enskukennsla. .25 Þingfréttir. 20.20 Útvarpshljóm sveitin (Þórarinn Guðmundsson stjórnar): a) For- leikur að óperunni „Rakarinn i Sevilla" eftir Rossini. b) La Part- ida eftir Alvarez. c) „Souvenir" og Serenade eftir Geehl. 20.45 Lestur fornrita: Úr fornaldarsögum Norð- urlanda (Andrés Björnsson). 21.10 Tónleikar (plötur). 21.15 Dagskrá Kvenréttindafélags Islands. — Er- indi: Konan og alþjóðamálin (frú Ásthildur Jósefsdóttir). 21.45 Tón leikar (plötur).21.45 Spurningar og svör um islenzkt mál (Bjarni Vil- hjálmsson 22.05 Passíusálmar (Emil Björnsson cand theob). 22.15 Haýdn-tónleikar (plötur): a) Tveir þættir úr symfóníu í B-dúr nr 102. b) Harpsikordkonsei't í D- dúr op. 21. c) Symfónía í G-dúr („Paukenschlag"). Flutningastöðin heitir nýtt fyrir- tæki hér í bænum. Það annast allskonar búslóðaflutninga o. þ. h. Leikfélag Reykjavíkur byrjar sýn- ingar að nýju á Galdra-Lofti annað kvöld. Leikfélag Hafnarfjarðar hefur frumsýningu á „Gasljósum" eftir Patrik Hamilton ,annað kvöld kl. 8,30 í Bæjarbíó. Nýlega opinberuðu trúlofun sína ung- frú Gróa Bærings- dóttir frá Bjarnar- höfn á Snæfells- nesi og Haraldur Þórðarson, starfs- maður hjá Agli Vilhjálmssyni. ___ Nýlega opinberuðu trúlofun sína, ungfrú Margrét Björnsdóttir frá Norðfirði og Aðalsteinn Jochums- son sjómaður, Bergþórugötu 20, Reykjavík. Aimennur kvennafundur verður haldinn i Iðnó í kvöld kl. 8,30 að tilhlutan Kvenréttindafélags ls- lands. Fjárhagsráði, viðskiptanefnd og skömmtunarstjóra er boðið á fundinn. Nastun-örður er í Ingólfsapóteki, -r- Simi 1330. Næturaktsur í nótt annast Hreyf- ill. Sími 6633. Lönguhlíðaríbúðirnar. Þjóðviljinn hefur verið beðinn að geta þess í sambandi við grein- ina um úthlutun Lönguhlíðaribúð- anna sem birtist hér í blaðinu í fyrradag að Steinar Kristjánsson, sem þar er nefndur, búi ekki í Þt'iggja herbergja íbúð heldur tveggja og liafði áður búið með fjölskyldu sinni í einu súðarher- bergi. — 1 greininni misprentaðist að tala umsækjenda hefði verið 108;hún var 180. Níi'turheknlr er í læknavarðstof- bnnl. A.usturbæjarskólanum- Sími 603a Veðurspáln í gærkvöld: Vestan og suðaustanátt. Hvassviðri eða stormur í nótt, hægari í dag. Éljaveður.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.