Þjóðviljinn - 26.02.1949, Qupperneq 1
14- árgangur.
vaugardagur 26. febrúar 1949.
45. tölublað.
HEþioða-skömmt-
um á feitmeti og
ðiínm afnimin
„Alþjóðamatvælanefnöin
(International Emergency Food
Committee), sem stofnuð var á
striðsárunum, hefur hinn 10.
febrúar þ. á., samþykkt að af-
nema alþjóða skömmtun á öllu
feitmeti og olium. — Verkefni
það, sem nefndinni var falið að
gegna á striðsárunum, er þar
með fallið brott, en nefnöin mun
haida áfram störfum í sambandi
við matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna."
a Bnga sisíalisía m Fraiasókearmeltt Snlka nsáis
Fundur æskulýðsfélaganna í Austurbæjarbíó í
gærkvöld sýndi alger máleínaleg rökþrot og ósigur
landsöluliðsins gegn markvissri túlkun ungra sósí-
alista og Framsóknarmanna á málstað íslands.
Að þeim var þetta sjálfum ljóst — og hve mjög
þeir óttuðust fólkið — sýndi bezt sú gerræðis fyrir-
skipun Bandaríkjaþjónsins dómsmáiaráðherrans,
Bjarna Benediktssonar,að banna að setja hátalara
utan á húsið og koma þar með í veg fyrir að þúsund-
ir Reykvíkinga gætu hlustað á unga sósíalista og
Framsóknarmenn flytja rök íslendinga gegn því að
innlima íslenzku þjóðina í hernaðarkerfi Bandaríkj-
anna. Ætlun þessa Bandaríkjaþjóns var að láta
Heimdellinga"og málalið íhaldsins fylla húsið og
loka því síðan fyrir íslendingum. Þetta mistókst ger-
samlega. Fundarmenn hlustuðu með aihygli á hin-
ar rökföstu ræour ungra sósíalista og Framsóknar-
mánna.
Hinsvegar tókst dómsmálaráðherranum með ger-
ræðisfyrirskipun sinni að koma í veg fyrir að þús-
undir Reykvíkinga, sem ekki komust inn í húsið,
fengju að hlýða á ræður þeirra.
Fyrsti ræðumaður á fundin-
um var Stefán Jónsson fyrir
hönd urígra Framsóknarmanna.
Aðrir ræðumenn fundarins sem
túlkuðu málstað íslendinga voru
sósialistarnir Magnús Kjartans
son og Bjami Benediktsson frá
Hofteigi og Framsóknarmaður-
inn Skúli Benediktsson. Sýndu
þeir með ljósum rökum að þátt
taka Islands í hernaðarbanda-
lagi getur undir engum kring-
Ofsóknir gegn frönsk
tint kommúnlsfttm
Franska ríkisstjórnin hefur fyrirskipað oísóknarlier-
ferð gegn Kommunistaflokki Frakklands og hefur sósíal-
demókratinn og verkalýðsböðullinn Jules Moch innanríkis-
ráðherra riðið á vaðið.
umstæðum orðið til annars en
ófarnaðar fyrir íslenzku þjóð-
ina, stofnað þjóðerni, tungu og
menningu í bráða hættu og jafn
vel leitt yfir þjóðina algera tor-
tímingu.
Gegn þessu áttu landssölu-
mennirnir, ræðumenn Sjálfstæð
isflokksins og Alþýðuflolcksins,
engpn rök, heldur reyndu þeir
að dulbúa þjónustu sína við
bandaríkjaauðvaldið með utan-
aðlærðum slagorðum og fölsun
um af annarri síðu Morgunblaðs
ins, enda átti málflutningur
þeirra hverfandi litlu fylgi að
fagna á fundinum.
Fógeti Bandaríkjanna á
íslandi, Bjarni Benediktsson
dómsniálaráðherra, gaf málaj
Iiði íhaídsins þá fyrirsfeipun
að mæta á undan öllum öðr-
um og hindra að íslendingar
kæmust inn í húsið. Var
Heimdellingum lofað alls-
kyns fagnaði ef þeir fram-
kvæmdu þetta vel og dyggi-
lega. Með banninu á að setja
hátalara utan á húsið ætlaði
hann að koma í veg fyrir það
að málstaður fslands heyrð-
ist á fnndinum. I>etta mis-
tókst algerlega.
Það var Jóhann Hafstein,
framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins, sem kom upp um
þessa fyrirætlun. Þessi virðu-
legi alþingismaður hagaði sér
eins og versti götustrákur á
fundinum, æpti látlaust fram í
fyrir andstæðingunum og Heim
dellingarnir bauluðu á eftir hon!
um eins og stutt væri á hnapp,
unz fundarstjóri skipaði honum
sérstaklega að þegja og hótað
var víðsvegar um salinn að
henda honum út ef hann hætti
ekki skrílslátum sínum. Tók
hann þann kostinn að þegja og
þegar foringi baularanna var
þagnaður sá hjörðin sitt ó-
vænna.
Helgi Sæmundsson lék þarna
sína venjulegu revíu og kom
sjaldan nálægt umræðuefninu,
hélt sig við skrípalætin ein, enda
Framhald á 7- síðu
Ummæli Mayhew aðstoðar-
utanríkisráðherra Bretlands á
fundi efnahagsráðs SÞ ný-
lega. að endurreisn Bretlands
sé nú afst.aðin, hefur dregið
þann dilk á eftir sér, að hávær-
ar raddir hafa heyrzt um það
í Bandarikjunum, að þá hafi
Bretar ekkert að gera með yfir
900 millj. dollara Marshallað-
stoð, sem þeim er ætluð á næsta
Marshallári. Kemur utanríkis-
málanefnd öldungadeildarinnar
saman á fund í Washington á
mánudag samkvæmt kröfu
Vanderbergs öldungadeildar-
manns til að ræða sérstaklega
Marshallaðstoðina til Breta.
WtúM-gap&kir prestar júta
rijésuÍM' iigrir Vesimrveldin
I gær hófust réttarhöld í Sofía yfir 15 prestum mót-
mælendakirkna í Búlgaríu, og eru þeir sakaðir um iand-
ráð, njósnir fyrir erlend ríki og ólöglega gjaldeyrisverzlun.
ESS’IBÍŒS’ÍIwf!.**®*1 S'*'' tr- Bi socj
Ivanoff var síðan yfirheyrður
Tveir sakborninganna voru
yfirheyroir í gær og játuðu báð
ir sekt sína. Nikola Namoff úr
trúfélagi babtista kvaðst hafa
starfað fyrir leyniþjónustur
Vesturveldanna síðan 1938. Eft
ir stríðið hclt hann áfram að
safna hernaðarlegum, efnahags
legum og pólitískum upplýsing
um fyrir Bandaríkjamenn og
þáði fé fyrir. Hann brast í grát
í lok yfirheyrslunnar, kvaðst
nú iðrast verka sinna og bað
dómstólinn sýna sér mislcun.
Meþódistápresturinn Janko
og var því ekki lokið er reíti
var slitið í gær. Hann kvaðst
hafa alizt upp innan meþódista
kirkjunnar, sem var stofnuð af
bandarískum trúboðum og að
mestu kostuð af fé frá Banda-
rikjunum, og því hefði hann
leiðzt til þjónustu við Banda-
ríkjamenn.
Við réttarhöldin eru 35 er-
lendir blaðamenn frá öllum
hlutum lieims og fulltrúar frá
sendiráðum Bretlands og Banda
ríkjanna í Sofia.
Moch, sem er hataður af frönsk
um verkalýð fyrir það, er hann.
lét lögreglu og herlið skjóta,
niður verkamenn í kolaverk-l
fallinu s. 1. haust, lét leynilög-
regluna í fyrrinótt ráðast á
skrifstofur þriggja útgáfufyrir-
tækja kommúnista í París og
cina af deildarskrifstofum
franska Alþýðusambandsins. i
Hafði lögreglan á brott með sér!
skjöl og myndir í þúsundatali.
Innanrikisráðuneytið tilkynnti,
í gærkvöld, að ritstjóri viku-|
blaðsins ,,Regard“ hefði verið
handtekinn fyrir að bera á scr
skjöl „varðandi varnir landsins“
og að enn fleiri „landvamar-
skjöl“ hefðu fundizt við hús-
rannsóknirnar. Parísarblaðið
„France Soir“ sagði í gærkvöld,
að átta menn hefðu verið hand
telinir og yrðu þeir dregnir
fyrir herrétt.
Fjöldaaögerðir, ef verkalýðs-
foringjar eru handteluiir.
Stjórn franska Alþýðusam-
bandsins lýsti yfii’ í gærkvöld,
að ef blakað verði við foringj-
um franska verkalýðsins, verði
gripið íil fjöldaaðgerða.
Franski dómsmálaráðherrann
hefur beðið þingið að svipta _tvo
þingmenn kommúnista þing-
helgi. Eru það Mareel Cachin,
hinn áttræði ritstjóri l’Human-
ité,“ aðalmúlgagns franskra
kommúnista og aldursforseti
franska þingsins, og Florimond
Bonte formaður þingflokks
kommúnista.
Elnar Olgeirsson og Aki Jakobsson flytja á Alþingi
fmmvarp um breyiing á íögunum um stofnlánadeiM sijáv-
arútvegsins, og miða breytingarnar að því að tryggja á-
fFambaldandi starfsemi síofnlátiadeildarinnar og að hún
fái haldið upphaflegu stofnfé sínu og geti tryggt sjávarút-
veginum ódýr stofnlán.
í greinargerð segir:
„Þegar stofnlánadeild sjávar
útvegsins var stofnuð við Lands
bankann, var tilgangur löggjaf
ans sá, að tryggja sjávarútveg
inum ódýrt stofnfé, einkum til
þeirrar nýsköpunar, sem átti
sér stað i sjávarútveginum á
þeim árum, sem stofnlánad'eikl
in var stofnuð. Það hefur hins
vegar sýnt sig, eins og af ýms-
um var búist við, að þær 100
® * a
milljónir króna, sem seðlabank-
inn upprunalega lánaði stofn-
lánadeildinni, nægði ckki fyrir
hinn nýja togara- og bátaflota
Það þarf nú að tryggja meira
fé í stofnlánadeildina. Nú er þaö
hins vegar svo. að samkvæmt
6. gr. laganna greiðir stofnlána
deildin seðlabankanum jafnóð-
um þær afborganir, sem liún
fær frá skuldunautum sínum,
þannig að veltufé stofnlána-
deildarinnar fer síminnkandi, þ.
e. a. s. sá hluti, sem til A-lána
fer, og mundi, ef þessi laga-
grein væri óbreytt, engum nýj-
um aðila verða lánað A-lán úr
Framhald á 7. síðu.