Þjóðviljinn - 11.09.1949, Side 4
4
ÞJÓÐVIUTNN
Sunnudagur 11. september 1949
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíaiistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason
Biaðam.: Arl Kárason, Magnús Toríl ólafsson, Jónas Arnason
Anglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson
Ritstjórn, aígreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
stig 19 — Sími 7600 (þrjár linur)
AakriftarverC: kr. 12.00 á mánuði — Lausasöluverð 60 aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Sósi&iistaf!okkurinn, Þórsgötu 1 — Síml 7610 (þrjár Iinur)
Hverjir vilja Stefáns Jóhanns-stjdrn
Það er þetta, sem barist verður um í kosr.irsgunuin:
Hverjir vilja Stefáns J.óhanns-stjórn áfram ? — Þeir greiði
atkvæði með Stefáns Jóhamis-flokkunum: Ihaldi, Alþýðu-
flokk eða Framsókn. — Þeir, sem vilja nýja og betri stjóm,
greiða atkvæði með Sósíalistaflokknum.
Getur þetta. verið satt? — munu margir spyrja. Er
hugsanlegt að stjóraarflokkamir ætli að bjóða þjóðinni
upp á svona lélega stjórn eftir öll kosningaloforðin, sem
nú dynja yfir? — Svarið er: Ekki aðeins svona lélega,
beldur enn verri en hún hefur verið.
Við skulum athuga staðreyndimar:
Það var borið fram vantraust á stjórn Stefáns Jó-
hanns 28. marz. AUir þessir þrir fokkar greiddu henni at-
kvæði þá. Engixm þingmaður úr þeim greiddi atkvæði gegn
henni. — Þeir voru sammála stefnu hennar þá. Hvaða
Jíkindi eru til að þeir verði andstæðir slíkri stefnu eftir
kosningar, ef þjóðin ekki fordæmir þá í kosningum ?
Svo skulrnn við athuga hvað þessir, stjóraarflokkar
ætla að gera eftir kosningar.
Þeir hafa á undanfömu stjórnartímabili sínu sýnt vilja
sinn í verki til þess að rýra kjör almennings. Þeir bundu
vísitöluna við 300 með lögum. Þeir lækkuðu raunverulegt
gengi krónunnar með tollum og álögum og svarta markaði.
Þeir lýstu því yfir að það væri glæpur að hækka launin.
Og þá vantaði ekki viljann til að hindrta launahækkanir. En
þá skorti hugrekkið og valdið. Þeir voru hræddir, af því
það var komið of nærri kosningum. Þess vegna hækkuðii
þeir við starfsmenn ríkisins og létu undan síga gágnvart
verkalýðsfélögunum. Nú reyna þeir að ná sér niðri méð
hækkunum á mjólk og öðrum nauðsynjum, með aukningu
dýrtíðarinnar.
Hvað gera nú þeir flokkar, sem svona haga sér milli
kosninga, þegar þær eru liðnar hjá?
Þeir verða margfalt verri. Þeir lækka gengið á krón-
unni miklu meir en orðið er. Þeir banna kauphækkánir með
lögum og refsa fyrir þær sem glæp. Og þeir verja þetta
með því að komin sé kreppa „allir verði að fóma" o.s.frv.
(Þess vegna þegja þeir svo vendilega um kreppu nú og eru
reiðir, ef á hana er minnst, því hún á að koma á eftir sem
afsökun fyrir kosningasvikunum).
Verður það þá virkilega Stefáns Jóhanns-stjómin,
sem verður látin framkvæma þessar svívinMngar ?
Engum manni blandast hugur um að Stefán Jóhann
vill vera forsætisráðherra áfram, bara ef hann fær það,
hvað sem stjórnin gerir. Engum, sem þekkir klókindi íhalds
ins, blandast hugur um að íhaldið vill nota hann og Al-
þýðuflokkinn til skítverkanna, — láta hann veita forustu
stjórn, sem yrði eins hötuð eins og þessi er fyrirlitin, —
og geta svo á eftir þvegið hendurnar með því hve forustan
hafi vefiö ómöguleg. Framsókn verður ekki spurð, ef stóra
og litla íhaldið eru í meirihluta. Eysteinn fær bara að skriða
í ráðherrastóliim eins og 1947, með því að strika yfir allar
kröfur, eins og Framsókn líka býr sig undir með yfirlýsingu
miðstjórnarinnar.
Stefáns Jóhanns-stjórain heldur áfram eftir kosnihg-
a.r, aðeins verri og svívirðilegri en nú, — ef hún aðeins
hefur vald og hugrekki til þess. Og eina. ráðið til ,þess að
svifta hana valdinu og draga úir henni kj^irkinn.tiþ óhæfu-
verkamia, er að gera Sósíalistaflolckinn svo síerkap.að þeir
ifari ekki í nýja árásarstjóm á alþýðu landsins.
BÆ J ARP® ÍlÍRINN
iHÍihÍHilÍi iliÍlÍHiÍii liíiÍfiHui
Hvernig ríbisstjórnin býr
að þeim sem erfiðast
eiga.
Maður, sem legið hefur rúm-
fastur í mörg ár, gefur í eftir-
farandi bréfi ófagra lýsingu á
því hvemig ríkisstjórn aftur-
haldsflokkanna býr að því fólki
sem erfiðast á í lífsbaráttunni,
örkumla fólki: —
„Kæri bæjarpóstur. — Það
hefur mikið verið rætt og ritað
um dýrtíðina að undanfömu og
ekki að ástæðulausu, þar sem
hún hefur aukizt svo að segja
dag frá degi síðan núverandi
ríkisstjóm tók við völdum í fe-
brúarmánuði 1947. Og til að
reyna að vega eitthvað á móti
hraðvaxandi dýrtíð hafa laun-
þegasamtökin orðið að grípa til
þess ráðs að hækka grunnkaup
sitt. En þetta hefur gerzt í
harðri andstöðu við núverandi
ríkisstjórn, sem hefur aldrei
séð annað ráð gegn dýrtíðinni
en kauplækkanir og nýjar og
nýjar skatta- og tollaálögur.
En alveg sérstaklega hefur
þessi stjóm verið hrifin af nef
sköttum, enda er Alþýðublaðs-
flokkurinn hér æðsti koppur í
búri.
★
Hvemig er búið að þeim
sem erfiðast eiga?
„Já, ég sagði áðan að launþeg
amir hefðu neyðzt til að hækka
kaup sitt, og við það hefði ríkis
stjórnin ekkert getað ráðið. En
hvernig hefur svo „fyrsta ríkis-
stjórnin sem Alþýðuflokkurina
myndar á Islandi" búið að því
fólki, sem erfiðast á uppdráttar
í lífinu, og sem ekki getur bor-
ið hönd fyrir höfuð sér, því
fólki, sem lögin um almanna-
tryggingar átti fyrst og fremst
að hjálpa í lífsbaráttunni. Því
er fljótsvarað: Skammarlega,
svo ekki sé meira sagt, enda
hefur þessi alræmda ríkisstjórn
ætíð og ævinlega ráðizt á garð-
inn þar sem hann er lægstur,
en það er algengur háttur lítil-
menna. „Lífeyrir“ þessa fólks
hefur ekki hækkað í tíð núver-
andi stjórnar heldur lækkað og
það er víst áreiðanlega það
eina sem hefur lækkað hér inn-
anlands undanfarinn 31 mánuð,
enda er þetta eini sigurinn, sem
fyrsta stjóm Alþýðuflokksins
hefur unnið gegn verðbólgu og
dýrtíð.
Hitt er svo aftur annað mál,
hvort þjóðin sér ástæðu til að
óska ríkisstjórniani til ham-
ingju með þennan sigur sinn.
1k
105 brónur á mánuði!
„Eg, sem þessar línur rita,
varð fyrir því mikla óláni að
missa heilsuna á bezta aldri og
hef legið rúmfastur í mörg
löng ár. Það má nærri því heita
merkilegt, að ég og mínir líkar
skuli vera til frásagnar, eins
og búið hefur verið að svona
fólki undanfarin ár. Allur minn
lífeyrir frá almanr.atryggingun-
um er 75 krónur í grunn á mán
uði, plús 40 prósent hækkun líf-
eyris, af því að ég er algerlega
rúmfagtur og þarf þar af leið-
andi sérstakrar ummöQnunar
við. Svo minn mánaðarlífeyrir
er 75 krónur + 30 kr. =105
krónur í grunn. Segi og skrifa
105 krónur í grunn á mánuði.
En það geta allir séð hvað 105
krónur í grunn á mánuði muni
segja mikið til lífsframfæris
rúmliggjandi manni í þeirri ægi
legu dýrtíð sem nú er.
★
Sósíalistar vildu 25%
hæhbcn.
„Þegar lögin um almanna-
tryggingarnar voru til umræðu
á Alþingi vildu sósíalistar hafa
lífeyrisgreiðslurnar 25 prósent
hærri en þær voru ákveðnar
við lokaafgreiðslu málsins, en
afturhalds- og auðvaldsöflin á
Alþingi töldu slíkt fáheyröa
f jaratæðu. Þetta væri lireinrækt
aður kommúnismi og ekkert ann
að og gott ef þeir nefndu ekki
Stalín og Moskva í því sam-
bandi. Gamall kunningi minn
úr Reykjavík, sem heimsótti
mig í sumar, spurði mig hvort
ég hefði ekki sæmilegan lífeyrir
frá almannatryggingunum, þar
sem ég væri svona illa kominn.
Eg sagði honum hvað ég fengi.
Hann ætlaði lengi vel ekki að
trúa mér, en sagði svo: „Þetta
eru bara vasapeningar." Ólík-
legt er að félagsmálaráðherrann
okkar sé á sama máli og Reyk-
víkingurinn, sem heimsótti mig
síðla sumars 1949. —
Noiðlendingur."
fjarðar, Vestmannaeyja og Isa-
fjarðar. Frá Akureyri verður flog
ið til Siglufjarðár og Ólafsfjarðar.
1 gær var fiogið til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja, Siglufjarð
ar, Blönduóss, Keflavíkur, Djúpa-
vikur og Isafjarðar.
Gullfaxi er væntanlegur í dag
kl. 17.45, fer á þriðjudagsmorgun
til Prestvíkur og London.
jys 11.00 Messa í Dóm
kirkjunni (séra
Jón Auðuns). 15.15
Miðdegistónleikar
(plötur). 16.15 Út-
varp til Islendinga
erlendis: Fréttir og erindi (Thor
olf Smith biaðamaður). 18.30
Barnatími, helgaður Steingrími
Arasyni kennara (Þorsteinn Ö.
Stephensen): a) Ávarp (Helgi
Elíasson fræðslumálastjóri). b)
Steingrimur Arason les úr minn-
ingum sínum. c) Kvæði og leik-
þáttur eftir Steingrím Arason.
19.30 Tónleikar: „Amorikumaður í
París," hljómsveitarverk eftir Ger
shwin (plötur). 20.20 Einleikur á
fiðlu (Björn Ólafsson): a) Rondó
eftir Hummel-Heifetz b) „Á vængj
um söngsins" eftir Mendelssohn-
Achron c) ,;Sólarljóð“ eftir
Rimsky-Korsakov. d) Caprice nr.
13 eftir Paganini. 20.40 Erindi
Ævaforn Gamlatestamentis-hand-
rit fundin (Ásmundur Guðmunds-
son prófessor). 20.55 Upplestur:
„Rauða snekkjan," smásaga eftir
Antonio Beltramelti (Ævar Kvar-
an leikari). 22.05 Danslög (plötur).
23.30 Dagskrárlok.
Næturakstur í nótt annast
Hreyfill, sími 6633.
Helgidagslæknir er Stefán Ólafs-
son. Sími 3181.
l
Sjötugsafmæli.
Nsestkomandi mánudag 12. þ.
m. verður sjötugur Sveinn Teits-
son Laugaveg 57.
ferðir),
Innritun í Gagnfræðaskólana fer
1 dag er áætlun- fram þriðjudaginn 13. og miðviku
arflug til Vestm,- daginn 14. þ. m. Aðstandendur
eyj, Siglufjarðar og væntanlegra nemenda ættú að at-
Keflav. Á morgun huga auglýsingar um þetta, en.
til Akureyrar (2 þær verða birtar í þriðjudagsbiöð
Neskaupstdðar, Seýðis- unum.
Smurningsstöð vor í Hafnarstr. 23
(gamla Zimsensportinu)
er nú þegar tekin til staría.
Ny og mjög íullkomin
smurningstæki.
Vönduð vimia
Fljót og góð afgréiðsla.
Hið íslenzka steinolíuhlutafélag.
i K.R.R.
I.S.Í.
K.S.I.
KNftlTSFYi
Nú heíst Kalstaðmótið í dag kl. 2.
Fyrst leika Fram og Valur og strax á eítir
K.R. og Vkkingur.
titniiniiiiimiiiiiHiufiiiiiiKiiiiiiiiiiitiiiniriiiriiiiii