Þjóðviljinn - 04.01.1950, Page 4
Þ JÓÐVIL JÍNN
Miðvikudagur 4. janúar 1950.
pIÓÐVILIINH
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmuridsson (áb.)
Fréttastjórl: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Arl K&rason, Magnús Torfl Ólafsson, Jónas Árnason
Áuglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson
Bltstjóm afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
■tíg 19 — Sími 7500 (þrjár línur)
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Áskriftarverð: kr. 12.00 á mán. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Sóaiallstaflokkurlnn, Þórsgötu 1 — Síml 7510 (þrjár línur)
Afurðasölumálin
& Um þessi áramót hafa margir af voldugustu mönn-
Tim þjóðarinnar flutt henni boðskap sinn gegn um út-
ivarpið, lýst ástandi því, sem þeir telja vera í efnahags-
málum hennar, og framtíðarhorfum öllum.
Munu áreiðanlega vera nokkrir áratugir síðan ann-
að eins hefur dunið yfir þjóðina í einu af dökkum lýs-
ingum, hrakspám og fullyrðingum um að nú verði þjóðin
iað fara að fórna þeirri afkomu sem 'hún hefur síðustu ár
fbúið við ef bjarga eigi frá algerðu efnahagslegu hruni.
flHefur þessi nýársboðskapur því. síður en svo verið almenn-
jngi fagnaðarboðskapur. n :
,! Um ástæðumar til þess að nýársboðskapurinn er á
fþennan veg nú um áramótin má ýmislegt segja.
■' Formaður eins stjórnmálaflokksins, Framsóknar,
heldur því m. a, fram í sínum boðskap, að þetta sé því
að k;enna að íslendingar hafi keypt of marga nýja tog-
ara, of marga nýja vélbáta og of mikið af vélum og
öðrum atvinnutækjum. Vitnar hann m. a. í orð fjármála-
ráðherra, þau, að hér hafi verið ráðizt í of miklar fram-
kvæmdir á of stuttum tíma. Engan þarf að undra þótt
yið þennan tón kveði úr þeirri átt, því þetta hefur verið
aðalinntakið í boðskap þessara samherja, síðan stjómar-
skiptin urðu 1944.
En það er annar þáttur, sem ekki er bent á af
þessum sama kór, og það eru markaðsmál okkar, nema
‘aðeins er það upplýst að verð á afurðum okkar fari
lækkandi. Hins er ekki getið, hvemig þríflokkastjórnin
fyrrverandi eyðilagði þá markaði, sem búið var að opna
og nú hefðu getað forðað okkur frá kreppu og e. t. v.
hruni, ef á þeim málum hefði verið vel haldið.
Þeir sem minnast áróðurs borgarablaðanna á stríðs-
árunum, muna einnig að gegn um hann gekk sú full-
yrðing ætíð eins og rauður þráður að um leið og friður
yrði saminn myndi verðlag á afurðum okkar hrynja.
Núverandi fjármálaráðherra kvað einna gleggst að
þessu í blaði sínu Vísi er hann.sagði þau eftirminnilegu
'orð, að allt framleiðslukerfi þjóðarinnar stæði á leirfót-
/um er mundi hrynja þann dag er friður kæmist á í álf-
;unni. Friður komst á í álfunni, eh' markaðir íslendinga
íhrundu ekki, heldur stórbötnuðu. Sú einokunaraðstaða
sem Englendingar höfðu haft hér var allt í einu rofin
við það að nú tókst að ná til þjóða, sem engin tök voru
á að semja við áður um neinskonar viðskipti. Voru
Sovétríkin þar í fremstu röð þótt einnig mætti nefna
mörg fleiri.
Vorið 1946 var gerður viðskiptasamningur við
ÍSovétríkin um kaup á íslenzkum sjávarafurðum og nam
Ilipphæðin rúmum 90 millj. kr. Verðið hækkaði frá því
'sem verið hafði, í stað þess að lækka eins og áróðurs-
'málgögn borgaraflokkanna höfðu fullyrt að verða mundi.
'Snemma á árinu 1947 var einnig send samningánefnd til
Sovétríkjanna. í skýrslu sem þessi nefnd sendi íslenzku
ríkisstjórninni hafði þess verið getið, að samningamenn
Rússa teldu verð það sein Islendingar kröfðust of hátt.
Þessi ummæli hefur Bjarni Benediktsson utanríkisráð-
'herra flutt þjóðinni í næstum hverri útvarpsræðu sem
ibann hefur flutt síðan, og þar á ofan hafa þau verið
margtuggin í blöðum borgaraflokkanna allra nú hátt á
þriðja ár.
ÁrangTirinn er sá, að fjöldi Islendinga trúir því að
Víil barnasýningar á
„Bláu kápunni.“
. * 3 \ “ f.
Ung móðir, sem oft hefur
áður rætt við okkur hér í dálk
unum, hringdi til mfn í gær og
sagði: „Eg brá mér í Iðnó núna
um jólin og sá „Bláu kápuna.“.
Það fannst mér góð skemmtun.
En mér datt í hug: Hvers
vegna eru ekki hafðar sérstak
ar bárnasýningar á þessari á-
gætu óperettu? Hún er létt og
fjörug, full af dönsum og
hressilegum söng, að mínum
dómi í alla staði vel til þess
fallin að vekja hrifningu
barna. Ennþá stendur yfir jóla
frí í skólunum, og þessvegna.
einmitt upplagður tími til að
hafa bamasýningar á „Bláu
kápunni“ eitthvert kvöldið. Bið
ég Bæjarpóstinn að skila þess-
um tilmælum mínum til Léik-
félagsins.“ — Það er hér ‘rieð
gert.
□
Vill að „Hvíta drepsótt-
in“ og „Krakatít“ verði
sýnd aftur.
Kj. skrifar: „Skömmu fyrir
jólin voru sýndar tvær ágætar
tékkneskar kvikmyndir hér í
Reykjavík, „Hvíta drepsóttin,"
sem sýnd var á Hafnarbíói, og
„Krakatit," sem sýnd var í
Stjömubíói........ Vil ég nú
mælast til að báðar þessar kvik
myndir verði sýndar aftur. Eg
er sem sé viss um, að miklu
færri sáu þær en vildu, þar eð
þær voru sýndar á þeim tíma
þegar annríki fólks er svo mik-
ið, að það hefur yfirleitt lítinn
tíma til að fara í bíó. — Kj.“
Þessum tiimælum vil ég láta
fylgja skilaboð frá ungri
stúlku, sem biður forráðamenn
Stjörnubíós að sýna „Steinblóm
ið“ endilega kl. 9 eitthvert
kvö'dið núna. Hún hefur ekki að
stöðu til að fara i bíó kl. 5 (en
á öðrum tíma er hætt að sýna
„Steinbtómið"), og svo er ef-
laust um fjölda annarra, sem
enn hafa ekki séð þessa ágætu
kvikmynd, en hafa þó mikla
löngun til þess.
□
Athugasemd út af vöru-
bílunum í sorpheeinsnn-
inni.
Á gamlársdag birtist bréf,
þar sem „Vesturbæingur“ sagði
frá því, að sorpinu úr hverfi
. hans væri ekið burt á venju-
legum vörubílum. Ut af þessu
hefur Jón Sigurðsson, borgar-
læknir, beðið mig fyrir ofyrlitla
Framhald á 7. síðu.
*
Í1EISSKIF:
Hekla var væntanleg til Akur-
eyr síðdegis í gær á vesturleið.
Esja er á Austfjörðum á suðurleið.
Herðubreið er í Rvík. Skjald-
breið verður væntaniega á Akur-
eyri síðdegis í dag. Þyrill er á leið
frá Gdynia til Rvíkur. Helgi
fór frá Reykjavík í gærkvöld
til Vestmannaeyja.
E I M S K I P :
Brúarfoss fór frá Flatey 31. 12.
til Frakkiands. Dettifoss kom til
Rvíkur 1. 1. frá Huli. Fjallfoss fór
frá Rvík 30. 12. til Káupmanna-
hafnar og Gautaborgar. Goðafoss
fór frá Reykjavlk 30. 12 til Ant-
werpen, Rotterdam og Hull. Lag-
arfoss fór frá Gdynia 31. 12. til
Kaupmannahafnar. Selfoss kom til
Reykjavíkur 30. 12. frá Leith
Tröllafoss fór frá Siglufirði 31.
12. til N. Y. Vatnajökull fór frá
Vestmannaeyjum 2. 1. til PóIIa.nds.
Katla fór frá N. Y. 30. 12. til
Reykjavíkur.
Skipadeiid S. 1. S.
Arnarfell fór frá Gdynia á gaml-
árskvöld og er væntanlegt til Ak-
ureyrar á föstudag. Hvassafell er
í Aalborg.
þarna hafi samningar strandað á því að Islendingar hafi
krafizt of mikils verðs,
Þannig getur ein lítil setning, slitið úr samhengi og
mistúlkuð orðið til ao blekkja tug þúsundir manna. Sann-
leikurinn er að þessir samningar strönduðu ekki. Sann-
leikurinn er að þrátt fyrir þes3i ummæli hins rússneska
samningamanns, var gerður viðskiptasamningur, sá
stærsti er íslendingar hafa gert á friðartímum, eða um
vörusölu upp á 96VÍ> millj. kr. án þess að verðið lækkaði.
Þótt íslendinga brysti vörumagn til að notfæra þau
réttindi ér samningurinn veitti þeim, þá sýnir það að
eins hve mikilsverður árangur hafði náðzt á þessum tveim
árum er liðin voru síðan stríðinu lauk.
En sagan er ekki hér með búin. Hinn 3. júlí 1947
nokkrum vikum eftir að þessi stóri og hagfelldi við-
skiptasamningur var gerður, undirritaði Bjami Benedikts-
son Marshallsamninginn. Með þeirri undirskrift skuldbatt
ríkisstjórnin sig til að draga. úr viðskiptunum austur á
bóginn. Árið 1948 voru þau sama sem engin og árið 1949
alls engin. Hvers virði það mundi vera okkur nú, þegar
brezka stjómin neitar að kanpa af okkur freðfiskmagn
það sem hún hefur verið kaupandi að síðustu ár, ef opin
væri sú leið til.viðskiptasamninga, sem opnuð var 1946,
og notuð með svo góðum árangri 1946 og 1947, getur
hver maður skilið sem líta vill raunhæft á þessi mál.
En hinir vísu landsfeður, sem fluttu þjóðinni fyrr-
nefndan nýársboðskap gleymdu þeirri sögu.
Næturakstur í nótt annasð
Hreyfill, sími 6633.
NæturvörSur er i Laugavegsapó-
teki. — Sími 1618.
Næturiæknir er í læknavarðstof-
30. desember opin-
beruðu trúlofun
sína ungfru Björg
Bogadóttir, skrif-
stofumær, Bjarg-
arstíg 2, og Árni
Benediktsson frá
Hofteigi. — Á gamlárskvöld opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Sig-
ríður Sigurða^dóttir, Flókagötu 4,
Reykjavík og Björgvin Árnason
frá Þórshöfn. -— Á nýársdag opin-
beruðu trúlofun sína, Sigríður
Halldórsdóttir frá Úlfsstöðum í
Landeyjum og Óskar Sigurjóns-
son frá Torfastöðum í Fljótshlíð.
— Á gamlárskvöld opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Sonja Kristien-
sen hárgreiðsiumær og Jón Krisb-
insson, Sólvallagötu 12. — Á ný-
ársdag opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Kristrún Guðnadóttir,
Hólmum, Austur-Landeyjum og
Hörður Guðmundsson, skrifstofu-
maður hjá Vegágerð ríkisins.
18.30 Islenzku-
kennsla; I. fi. —
19.00 Þýzku-
kennsla; II. fl.
19.25 Þingfréttir.
— Tónleikar. 20.30
Kvöldvaka: a) Séra Halldór John-
son flytur nýárskvéðjur frá Is-
lendingum vestan hafs. b) Tón-
leikar af plötum: Gömul kórsöngs-
lög. c) Sigfús Elíasson les frum-
ort kvæði: „Norska jólatréð". d)
Herdís Þorvaldsdóttir leikkona les
smásögu: „Fjárhús í Betlehem"
eftir Jules Superville. Tómas Guð-
mundsson þýddi og endursagði.
22.10 Danslög.
Á nýársdag
voru gefin saffl-
an í hjónaband
á Akureyri,
ungfr.ú Annella
Stefánsdóttir,
Oddeyrargötu 24 og Magnús Ól-
afssOn stud. med. Reykjávík. —
Á gamlársdag voru gefin saman í
hjónaband af séra Halidóri Kol-
beins, Benónía Jónsdóttir, Vest>-
mannaeyjum og Þórarinn Eiríks-
son, Vestmannaeyjum. — Á gaml-
ársdag voru gefin saman í hjóna-
band af séra Garðari Þorsteins-
syni, ungfrú Gerður Ásgeii-sdóttir,
Hafnarfirði og Gunnar Hallgríms-
son, Reykjavik. Heimili brúðhjón-
anna verður fyrst um sipn á Norð
urbraut 25 B Hafnarfirði.
Ármótamóttaka forseta ts-
lands. Forseti íslands hafði mót-
töku í Alþingishúsinu á nýárs-
dag, svo sem venja hefur verið.
Meðal gesta voru ríkisstjórnin,
fulltrúar erlendra ríkja, ýmsir
embættismenn og fleiri.
Nýárskveðjur til forseta Islauds.
Meðal nýárskveðja, sem forseta
hafa borizt eru kveðjur frá Há-
koni VII. Noregskonungi, Paasi-
kivi Finnlandsforseta, Reza Pahl-
avi Iranskeisara og Francisco
Franco ríkisleiðtoga. Sjánar.
Heiðursmerki: Forseti Islands
hefur í dag sæmt eftirtalda menn
heiðursmerkjum fálkaorðunnar,
svo sem hér segir: Stórriddara-
krossi: Guðmund Ásbjörnsson,
kaúpmann, forseta bæjarstjórnar
Reykjavíkur s.l. aldarf jórðung.
Jón Maríasson, bankastjóra Lands
bankans, Magnús Gíslason, skrif-
stofustjóra i fjármálaráðuneytinu,
og Sigurð Halldórsson, trésmiða-
meistara. Riddarakrossi: Bjarna
Jónsson, skipstjóra, Reykjavík.
Davið Jónsson, frv. hreppsstjóra,
Kroppi, Eyjafirði, og Sigurð Sig-
urðsson, sjómann, Kaplaskjólsveg
15, sem stundað hefur sjómennsku
undanfarin 60 ár, á öllum tegund-
um fiskiskigá og er ennþá við
sjómennsku.
(Frétt frá orðuritara, 1, 1. 1950.)
Gjafir til B. Æ. R.
Kr. 10.00 hafa gefið: Jonny Jak>-
obsdóttir, Hrafnhildur Guðbrands-
dóttir, Kristín Guðmundsdóttir,
Hulda Guðmundsdóttir, Guðrún
Eiríksdóttir. Kr. 5.00: Elín Krist-
insdóttir, Katrin Guðjónsdóttir,
Helga Isaksdóttir.