Þjóðviljinn - 14.02.1950, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 14.02.1950, Blaðsíða 8
ir ser Sigurjón viðurkennir að ósæmilegt sé að laiiílmeen atkvæði um hagsmiinamál sjómanna en vill s^reiði Íáta þá halda áfrain að kjósa sig í stjórn Valið í bridse- Framhaldsaðalfundur Sjómannafélags Beykjavíkur í fyrraiíag var eins og hinn fyrri óvenjuíega vel sótíur, og sýndi að sjómenn þeir er i landi voru liöfðu mildnn áhuga á máh Jíví er þar var til umræðu. Hófst fundurinn á fram- i landsliðið soguræðum þeirra Karls Sigurðssonar og Einars Guð- mundssonar nm fyrirliggjandi breytingartillögur á lögum félagsins, en efni þeirra hefur áður verið rakið hér í blaðinu. Að framsögum loknum hóf- ust umræður, og er skemmst frá því að segja að gömlu landherrarnir brugðust ókvæða við máli sjómanna. Talaði Sigur jón langt mál, kvaðst viðurkenna að eltki sæmdi að landmenn greiddu atkvæði um kjör sjómanna, en hins vegar hefði hann ekkert við iþað að athuga að landmenn héldu áfram að kjósa sig og hina gömlu mosavöxnu félaga sína í stjórn. Síðan lagðist hann fast gegn breytingartillögum sjómanna og bar fram tillögu þess efnis að lagabreytingunum yrði vísað til félagsstjómar. Á þann hátt vildi hann koma í veg fyrir að tillögur sjómanna kæmu undir atkvæði á íundinum. Sigurjón vildi láta afgreiða tillögu sína með handaupprétt- ingaraðferðinni gömlu atkvæðagreiðsla um tillög- una skyldi vera leynileg. Samt tókst stjórninni, með liðsafla úr landi er neytti þess að mestur hluti sjómanna var á sjó, að fá því ráðið að tillaga Sigurjóns var samþ. með 196 atkvæðum gegn 135 og þar með hafði klíka þeirra Sigur- jóns og lcexverksmiðjuforstjór- ans tryggt sér eins árs gálga- frest. íslenzk dagskrá í ianska átvarpine Stjórn Bridgesambands Is- lands hefur valið keppnilið, sem væntanlega tekur þátt í Evrópukeppni í bridge, sem fram fer í Brighton á Englandi og hefst 4. júní n. k. í liðinu eru: Einar Þorfinns- son, Hörður Þórðarson, Krist- inn Bergþórsson, Lárus Karls- son, Sigurhjörtur Pétursson og Örn Guðmundsson. Fyrirliði liðsins er Hörður Þórðarson. Ákveðið hefur verið að leyfa meistararliði að skora á lið þetta eftir nánari reglum, sem sambandsstjórnin setur og ef það lið vinnur þetta lið, mun sambandsstjórnin taka til at- hugunar endurskipun liðsins. Áskorun þessa verður að senda til stjórnar Bridgesambands ís- lands fyrir 1. marz n. k. I Danmörku tíðkast það, að útvarpið sendir út dagskrár- liði, sem einkum eru ætlaðir skólum. Miðvikudaginn 8. marz n.k. verður undir þessum lið útvarpað íslenzku efni, sem frú Inger Larsen, kona danska en féltk því ekki framgengt, i sendikennarans liér, hefur undir því fundarmenn samþykktu' búið, með 147 atkv. gegn 12G að verðnr Siórgjöf Heilsuverndarsjóði Náttúru- lækningafélagsins hefur borizt 10.000 kr. gjöf frá velunnara, sem ekki vill láta nafns síns getið. Sjóðstjómin þakkar hjartanlega þessa rausnarlegu gjöf og vonar að fleiri verði til að styrkja þetta nauðsyn- lega mál svo að heilsuhæli Náttúrulækningafélagsins megi rísa af grunni sem fyrst. Smitandi sjúkdómur: Gluggagægir handsamaður Aðfaranótt sunnudagsins varð stúlka nokkur, sem býr í Hlíðahverfinu, þess vör er hún var að háíta, að maður kom á herbergisgluggann og gægð- ist inn. Stúlkan tók þessari gestkomu með hinni mestu rósemi. Brái œtlaður. hún sér snöggvast að símanum, hringdi til lögreglunnar og bað hana að fjarlægja þennan gluggagægi, en hélt síðan áfram að afklæðast eins og ekkert hefði í skorizt. Gluggagægirinn var líka hinn rólegasti þar til lögreglan kom á vettiTiag og tók hann höndum. Maður þessi reyadist vera Engilsaxi. Sama dagskrá | endurtekin daginn eftir 'Frú Larsen bauð fréttamönn í. gær að hlusta á útvarpslið þennan áður en hann verður sendur utan. Útvarpsliður þessi er einkum ætlaður börnum 11 til 14 ára. Svo er til ætlazt, að kennararnir hafi undirbúið börnin, svo að þau hafi efnis- ins sem mest not. Útvarp þetta stendur yfir í 25 mínútur, og bregður upp svipmyndum úr sögu íslands og menningu frá upphafi til þessa dags. Það er mesta furða, hvað frúnni hefur tekizt að koma miklu efni fyrir í ekki lengra máii. Þarna getur að heyra bæði bundið mál og óbundið, ennfremur söng. Að gefn* tilefni er rétt að taka það fram, að ekkert er í útvarpi þe3Su, sem ætti að þurfa að hneyksla íslenzka eða danska hlustendur, og vafa- laust hafa dönsku börnin gam- an og gagn af þætti þessum, en þeim er hann fyrst og fremst Verkfallsalda Framhaid af 1. síðu febrúar hafi samningar um kaupkröfur þeirra ekki tekizt áður. Verkfallið, ef til kemur, mun að líkindum leiða til að 22.000 aðrir símastarfsmenn leggi niður vinnu. ListíræSsla Handíðaskólans StxíSsæsingainaz Framhald af 1. síðu. : hluta Ameríku, sem uæ'stur er Sovétrxkjunum. Frostið á; þéss- um slóðum er nú um 50 stig á Celcius. Eru þetta .mestu vetr- aræfingar stm farið -hafa fra*) í Norður-Ameríku. ‘ frá Bayeux í næsta erindi sínu um mynd- list, er Björn Th. Björnsson listfræðingur flytur í Handíða skólanum annað kvöld, mun hann skýra frá klæðinu mikla frá Bayeux. Myndklæði þetta, sem er rúml. 70 metra langt, er eflaust merkasti liannyrða-grip ur, sem nokkru sinni kefur ver- ið unninn í Norður-Evrópu. Klæði þetta mun að líkindum vera gert í Englandi nál. 1080 og segja myndir þess, sem eru mjög skemmtilegar, frá orrust- unni við Hastings árið 1066. I erindi sinu mun Bj. Th. Bj. rekja alla myndasögu kiæðis- ins og sýna samband þess við norsk og íslenzk klæði. Bayeux-klæðið er að mörgu leyti sérstaklega athyglisvert fyrir okkur, þar eð myndir þess lýsa mjög vel búnaði, vopnum og skipum, eins og tíðkast mun hafa hér á landnámsöld. Aulc þess hefur klæði þetta þá sér- stöðu, að vera unnið. með sams. kpnar saum (keðjusaum og flátsaum) og íslenzku a’taris- klæðin gömlu, en annars staðar þekkist sá saumur aðeins í einu norsku klæði. Erindi Bjöms, sem flutt verð ur ,í teikjnisal HandíðaskiS-laas, Laugav. 118, hpfst kl. 3,30 S.d. DlÓÐVILIINM Sinstein lýsir yfir: Vetnissprengjan, m Tniman vill framleiða, opar tilveru mannkynsms Réttlæting Randaiíkjastjóinar á vígbúnaðaiæðinu hættaleg bbkking segir þessi heimsfrægi vísindamaðar Nóbelsverðlaunamaðurinn Albert Einstein gerði í fyrradag í New York grein fyrir skoðunum sínum á kjarn- orkuniálunum og staðfesti það, sem reyndar var áður vitað, að þe ;si heimskunni vísindamaður, sem fyrstur setti fram kennlngar þær, sem kjarr.orkurannsóknir og kjamorku- vinnski byggjast á, er andvígur stefnu Bandaríkjastjórnar á kjarnorkusviðinu og telur hana stofna friðinUm og mann- kyninu í voða. Bandaríkjastjórn hefur svo sem alkunnugt er, reynt að afsaka þá ákvörðun, að fyrir- skipa vinnu að smíði vetnis- sprengju, sem ætlunin er að gera margfalt öflugri en þær sprengjur, sem hingað til hafa verið smíðaðar, með því að hún ætti ekki annars úrkostar til að tryggja öryggi Bandaríkj- anna en að láta smíða stöðugt stórvirkari og ægilegri vopn. Geislaverkun einnar sprengju er nóg til að myrða allt mannkynið Einstein, sem lýsti skoðun um sínum á kjamorkumálunum í sjónvarpsdagskrá, sagði, að sú stefna, að ætla að afla sér öryggis með kjarnorkuvígbún- aði, væri hættuleg blekking, sem aðeins gæti leitt trl ófam- aðar. Kjamorkukapphlaup milli ríkja um sífellt stórvirkari kjamorkuvopn væri vísasti vegurinn til styrjaldar. Ein- Guðjón M. Sigurðsson sfstur með 3 ¥2 vinning. f. umferð Skákjjingsins var tefld í fymadag. Þar fóru leikar svo, að Guðjón M. Sig- urðsson vann Benóný Benedikts son, Þórir Ólafsson vann Bjarna Magnússon, Baldur Möller vann Hauk Sveinsson, Friðrik Ólafs- son vann Jón Ágústsson, Stein- grímur Guðmundsson vann Pétur Guðmundsson, Árai Stef- ánsson vann Óla Valdimarsson, Ingvar Ásmundsson vann Þórð Jörundsson, Hjálmar Theódórs- son vann Gunnar Ólafsson, Guðmundur S. Guðmundsson vann Kára Sólmundarson. Jafn- tefli gerðu Eggert Gilfer og Lárus Johnsen. Biðslcákir urðu hjá Árna Snævarr og Sveini KrístinssjTii, Birni Jóhannes- syai og Guðmundi Ágústssyni. Fimmta umferð skákþihgsins verður tefld. í kvöld, og hefst kl. 8 að Þórskaffi. stein kvaðst álíta, að ef í fram- kvæmd tækist að gera eins öfluga vetnissprengju og út- reikningar sýna að möguleg sé, yrði geislaverkunin, er hún springi, svo óhemju mikil, að nægja myndi til að gera útaf við allt mannkynið. Einstein hélt á ný fram þeirri skoðun, að stofnun al- heimsríkis væri eina fullnægj- andi lausnin á kjamorkumálun- um. (1 nóvemberhefti tímaritsins „Atlantic Monthly" 1947 skrif- aði Einstein grein um kjam- orkutillðgur Bandaríkjastjórn- ar, sem kenndar hafa verið við Baruch, og Bandaríkjastjórn heldur enn fast við sem eina umræðugrundvöll um alþjóð- legt kjarnorkueftiriit. Einstein kvað þessar tillögur sama og engar og gagnrýndi Bandaríkja stjóm harðlega fyrir að neita að lofa að nota ekki kjamorku- vopn að fyrra bragði. og reyna með því að nota aðstöðu sína til að ógna öðrum ríkjum). Leyndin kemur Banda ríkjamönnum sjálfum I koll I sömu sjónvarpsdagskrá og Einstein tóku einnig til máls frú Elenanor Roosevelt, Opp- enheimer, æðsti vísindaráðu- nautur kjarnorkunefndar Bandaríkjastjórnar og Lilient- hal formaður kjarnorkunefnd- arinnar. Oppenheimer fordæmdi þá leynd, sem að fyrirskipan Bandaríkjastjómar hvílir yfir öllum kjarnorkurannsóknum og sagði hana þegar hafa orðið til tjóns fyrir bandariskar kjarn- orkurannsóknir. Lilienthal sýndi sjónvarpsáhorfendum tveggja punda uraníummola og sagði, að á því stigi sem kjarn- orkuvinnslan stæði nú gæti hann gefið af sér jafn mikla orku og 1000 tonn af kolum. foisetinn kominn heim Forseti íslands er kominn heim aftur að lokinni rannsókn í sjúkrahúsi, en verður. enn um sinn að halda kyrru fyrir að heimili sínu. (Frá forsetaritapa.)]

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.