Þjóðviljinn - 21.02.1950, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 21.02.1950, Blaðsíða 4
ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagúr 21. febrúar 1950, Útgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sóaíalistaflokkurinn Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Slgurður Guðmundsson (áb.) - Fréttastjór1 JOn Bjamaaon. BlaSam. Arl Kárason, Magnús Torfi ólafsson, Jónas Arnason Auglýsingaotjórl: Jónsteinn Haraldsson Ritstjóm afgraiSsIa, auglýslngar, prentsmlðja: SkólavörOu- stíg 18 ^Smi 7500 (þrjár línur) Askriftarverð kr 12.00 á mán. — Lausasöluverð 60 aur. elnt. Prentsmiðja ÞjóSviljans h.f. Sóslalistaflokknrinn. Þórsgötu 1 — Siml 7610 (þrjár Ifnur) irtöfiuskorturinn Vöruskortur hefur undanfarin ár verið „eðlilegt á- stand“ hér á íslandi. Stórnarvöldin telja gjaldeyrisskort vera ástæðuna. en sannleikurinn er sá að allt of oft staf- ar vöruskorturinn af óstórn og hirðuleysi. Þegar Tíminn segir t. d. í fyrradag að skortur á ljósaperum stafi af gjaldeyrisvandræðum, er það augljós þvættingur. Ástæðan er óstjórn, ski rilagsleysi á meðferð galdeyris. Það þarf ekki að skyggnast dýpra en virða fyrir sér ilmvatnsglösin sem enn tróna r flestum búðargluggum til að sjá það. En ömurlegasta dæmið um óstjórn viðskiptamálanna er kartöfluskorturinn. Kartöflur eru algengasta og óhjá- kvæmilegasta neyzluvara almennings, þær eru að heita má nauðsynlegur liður í hverri máltíð. Þeir menn sem við- skiptamálunum 'tjórna ættu því að telja það frumskilyrði í starfi sínu ao almenningur hafi aðgang að kartöflum. En þessu fer sem kunnugt er víðs fjarri. Kartöflur eru -oft ekki til viktmum saman, auk þess sem þær eru not- aðar ár eftir ár til að falsa vísitölu, svo sem alkunnugt er. Það ætti þó að vera einfaldur hlutur að sjá íslending- nm fyrir nægilrgum kartöflum. Þau mál eru í höndum eins aðila, Grænmetiseinkasölu ríkisins, og það ætti ekki iað vera sérlega flókið reikningsdæmi að leysa þann vanda hversu mikils þjóðin neytir á ári og fá vitneskju um hversu mikið hefur verið framleitt á árinu hér innanlands. En þó er það dæmi sem erfitt virðist að láta ganga upp. Ein- íhverju kann að valda að forstjóri einkasölunnar er svo störfum hlaðinn við háleit vandamál að kartöflurnar eru í yzta útjarðri verksviðs hans. Hann er fulltrúi í fjárhags- ráði, sem nú hefur einnig lagt viðskiptanefnd undir sig, og hefur ekki viðtalstíma í grænmetiseinkasölunni nema fyrir klukkan níu á morgnana! En hvort sem annir forstórans valda kartöfluskortin- •um eða eitthvað annað, er þetta hneykslisástand sem al- menningur sættir sig ekki við. Það eru vissulega ekki bú- ihyggindi að stórna viðskiptamálunum á þenn hátt að kartöflur séu ófáanlegar, heldur sinnuleysi og óstjórn. k siðmenning Á laugardagin var birti Morgunblaðið á fimmtu síðu stóra mynd frá Bandaríkjunum, hinu andlega föðurlandi (Morgunblaðsinanna. í texta sem blaðið birti með mynd- inni segir svo: „Þessi mynd er tekin í fangelsinu 1 Jackson, Mississiþpi. Á henni sjást móðir, systir, þrír bræður og frænai manns nokkurs, sem var myrtur. Þau voru viðstödd, ásamt fleirum, er morðingi hans var tek- inn af lífi, og myndin er tekin af þeim, um leið og straumnum var hl'eypt á rafmagnsstólinn. Það er ekki of- sagt, að rnynd j essi er í senn Ijót og óskiljanleg.“ Nánari skýringar er ekki að finna í Morgunblaðinu, en frekari n álavextir eru þessir: Sá sem tekinn var af lifi var negrapiltur, og aftakan fór fram á 18 ára afmæl- isdegi hans. TT n hafði verið dæmdur til dauða sextán ára iyrir „morð“ á bvítum manni, en mjög var sú dómsniður- staða dregin I < fa. Síðan var hann látinn bíða í tvö ár •eftir því að iunn næði þeim aldri að leyfilegt væri að .steikja hann Jifandi. Og á 18. afmælisdegi hans var sem .sagt boðið ti? þess veizlufagnaðar sem Morgunblaðsmynd- in sýnir. Morgunblaðinu finnst myndia „Ijót. og öskiljanleg.“ „Aðgát skal höfð.....“ Kolakraninn hafði ennþá ekki fengið frí úr vinnunni þeg- ar við komum niðrá höfn núna um daginn í afbragðsfögru en frosthörðu veðri klukkan langt gengin sjö tveir vinir mínir og ég. Hann var að flytja kol á milli bingja og það risu svart ir rykmekkir uppí lognið þegar sturtaðist úr kjaftinum. Við stóðum lengi þegjandi á hafnarbakkanum og hlustuð- um á kolakranann, hvernig hann rakti raunir sínar. Því það er hinn mesti misskilning- ur, sem sumir halda, að kola- kraninn sé ekki annað en venju leg tilfinningalaus grind úr stáli. Eg hef að minnsta kosti aldrei verið í vafa um að hann væri gæddur viðkvæmum til- finningum, — að ég nú ekki tali um alla þá vitsmuni sem erfið lífsreynsla hefur þroskað með honum. — Já, það þarf ekki annað en hlusta á hann til að sannfærast um þetta. Hið undarlega hljóð, sem hann gef ur frá sér við vinnuna og virð- jst kannski í fljótu bragði ekki stafa af öðru en sljórri leti, það reynist við nánari athugun hafa að geyma tregafullan tón, sáran söknuð þess hins ógæfu- sama, sem er misskilinn í líf- inu. — Eg ætla mér ekki þá dul að útskýra til fullnustu þetta fyrirbæri, en oft hefur mér dottið í hug, að kolakran- inn teldi það ósamboðið hæfi- leikum sínum að vera í kola- vinnu. □ Harpa hafnarinnar og Debussy Það var mikið flóð; höfnin slétt einsog tinnuspegill í myrkr inu; glampaði sumstaðar af gljásvörtum skipsbógi svo að myndaðist lýsandi bugða sem fór í gegnum yfirborðið án þess að slitna og hélt þaðan áfram með öfugri sveiflu oní djúpið, samskonar fögur og háleit bugða sem sagt er að verið hafi mest prýði hrossanna hans Fals í Eystridal, sú bugða sem heldur lífinu gangandi. Ljósin frá möstrum og luktarstaur- um loguðu til manns hinu- meginfrá hafnarinnar, titruðu einsog hörpustrengir í yfirborð- inu, — og alltíeinu fóru ákveðn ir tónar að leika við hlustir manns, lýriskir tónar úr lagi eftir Debussy, því að þetta var sama stemningin. Svo kom lóðsbáturinn og sigldi gegn- um strengi hcrpunnar þannig að þeir brustu sundur í bliki ó- teljandi smágeisla, nákvæmlega einsog þegar tónarnir tvístrast skyndilega og hrynja sem perl- ur yfir allt hljómborðið hjá Debussy. — Síðan varð sjór- inn aftur sléttur og strengir hörpunnar stilltir, — og kom- in að nýju kyrrð á í huga De- bussy. □ Fjórir skarfar á sjö krónur stykkið Maður nokkur kom gang- andi eftir hafnarbakkanum og hélt á fjórum fuglum, tveim -í hvorri hendi, og vinir mínir urðu óðara veraldlega þenkjandi þegar þeir sáu hann. „Hvaða dauðu fuglar eru þetta?“ sögðu þeir. „Skarfar“, sagði maðurinn og stanzaði hjá okkur. Haim var hár vexti og þrek- inn og hafði ekki getað út- vegað sér nógu stóra peysu því að ermamar á henni náðu aðeins með naumindum niðrá miðjan framhandlegg, berhent- Ur einsog ekkert væri sjálf- sagðara í öllu þessu frosti, með sígarettu í munninum og sogaði allan reykinn oní sig án þess nokkuð kæmi upp aft- ur, — einn þessara hraustu manna sem aldrei fá nógu sterkt tóbak. „Hvar skauztu þá?“ sögðu vinir mínir. „Kringum Engey“, sagði mað urinn. „Varstu lengi?“ sögðu þeir. „Við vorum tveir á trillu síðan átta í morgun“, sagði hann. „Á hvað seljiði þá?“ sögðu þeir. „Sjö krónur stykkið í Fisk- höllinni“, sagði hann. „Það er lítið kaup fyrir tvo menn í heilan dag“, sögðu þeir. „Það er betra en ekki neitt“, sagði hann, kvaddi og var far- inn. □ Debussy einráður að lokum Eftir þetta höfðu vinir mín- ir ekki eirð í sér að standa lengur og hlusta. Þeir fóru að Framhald á 7. síðu. um land til Akureyrar. HerðuDteið fer frá Reyltjavik í kvöld austur um land til Sigiufjarðar. Skjald- breið er á Húhaflóa á suðurleið. Þyrill er í Reykjavík. Skaftfelling- ur á að fara frá Reykjavík í dag til Vestmannaeyja. EIMSKIP: Brúarfoss kom til Ábo í Finn- landi 18.2. fer þaðan væntanlega 23.2. til Kaupmannahafnar. Detti- foss er á Ólafsvík, fer þaðan til Stykkishólms, Grúndarfjarðar og Vestmannaeyja, lestar frosinn fisk. Fjallf.oss kom til Ðjúpavogs 19.2. er á Reyðarfirði, fer þaðan austur um land til Akureyrar. Goðafoss kom til N. Y. 17.2. frá Reykjavík. Lagarfoss kom til Hull 19.2. fer þaðan til Leith og Reykja víkur. Selfoss fór frá Sauðárkróki 19.2. tii Kaupmannahafnar. Tröila- foss fór frá Reykjavík 14.2. til N.Y. Vatnajökull fór frá Ðanzig 17.2. til Reykjavíkur. Frá rannsóknarlögreglunni. Á laugardaginn kl. 10.25 varð á- rekstur milli vörubifreiðar og jeppabifreiðar á gatnamótum Reykjahlíðar og Miklubrautar. Á- reksturinn var harður og miklar skemmdir urðu á báðum bifreið- unum. Lögreglúnni ér kunnugt um að tveir menn voru að moka úr ofaníburði á umræddum gatna- mótum, því sennilegt að þeir hafi séð er áreksturinn varð. Rann- sóknarlögreglan biður menn þessa að hafa samband við sig hið allra fyrsta. Vér þökkum bæjarbúum, kærlega fyrir þann mikJa velvilja er þeir sýndu Kvennadeild Slysavarnafé- lagsins i Reykjavík við merkja- söluna 19. þ. m. og einkum sölu- börnunum dugnað þeirra og skil- vísi. Merkjasölunefndin. Föstudaginn 17. þ. m. voru gef- in saman í hjónabánd af séra Jóní Thor- arensen, ungfrú Steinunn Lárusdóttir og Ólafur Þ. Ögmundssón, trésmíðameistari. ---- Heimili brúðhjónanna er í Höfðaborg 64. — <y'y ISFISKSALAN. X gær, 20. febr., seldi Gylfi 2445 kits fyrir 5485 pund í Grimsby. Einarsson Zoega Foidin er í Reykjavílc. Linge- stroom er í Amsterdam. EIMSKIPAF. REYKJAVIKUK Katla fór laugardagskvöidið 18. febrúar frá Napoli áleiðis til Pira eus í Grikklandi. Ríkisskip Hekia er í Reykjavík. Esja fer frá Reykjavik á morgun vestur Það er kurteislegur áfellisdóxnur. Verst er þó að þessi at- burður. er ekki undantekning, heldur aðeins eitt dæmi af mörgum um kynþáttahatrið og negraofsóknimar í önd- yegisríki hins „vestræna frelsis“. Hjónimum Jó- , hönnu Nýborg Ja- jj"“' W — kobsson og Geir í ÆÍI ^ Þörleifssyni, Borg- M <. arnesi, fæddist 16- marka meybarn í gær, 20. þ. m. — Hjónunum Ólöfn D. Jóhannsdóttur og Guðmundi Sigurðssyni, Njálsgötu 48, fæddist 15 marka dóttir í dag 20. þ. m. Musica, 1, tbl. 1949, er komið út ög hefst á efniságripi Bláu kápúnnar eft ir Lárus Sigur- Yj- björnss., og fyigja margar myndir, Þá er grein um Erik Satie: ' Er hann faðir tón- listar nútímans?; Fréttabréf frá Italíu; Saga tónlistarinnar, 9. grein o. fl. Hverju hefti Musica fylgir lag á nótum, og að þessu sinni er það lagið: Nú skal ég fagna, eftir Karl Sigurðsson. 18.00 Framhalds saga barnanna: Úr sögunni um Árna og Berit eftir Ant on Mohr; VI. (Stef . án Jónsson nám- stjóri). 18.30 Dönskukennsla; XI. fl. — 19.00 Enskukennsla; I. fl. 19.25 Þingfréttir. — Tónleikar. . 20.20 Ávarp frá Rauða krossi Is- lands (séra Jón Auðuns). 20.30 Tónleikar: Brailowsky leikur á píanó (plötur). 20.45 Erindi: Nytj- ar jarðar: Um sement; I. (dr. Jón Vestdai). 2L10 Tónleikar: Létt hljómsveitai-lög (plötur). 21.25 Mál fundur í útvarpssal: Umræður um áburð, ræktun og heilbrigði. —• Fundarstjóri; Vilhjálmur Þ. Gísla- son. 22.10 Passiusálmar. 22.20 Vin- sæl lög (plötur). 22.45 Dagskrár- lok. Næturakstnr í nótt annast Hreyfill, sími 6633. Næturvörður er í Laugavegsapó- teki. — Sími 1616. Næturbeknlr er í - læknavarðatof- UBtU. — Bimi 6030.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.