Þjóðviljinn - 07.03.1950, Síða 8

Þjóðviljinn - 07.03.1950, Síða 8
Iðnnemar mótmæla gengislækkun- ríkisstjórnarínnar Stjórn Iðnnemasambands íslands samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum föstudaginn 3. marz s. 1.: „Þar sem stjórn I. N. S. í. álítur að geng- islækkun sú> sem ráðgerð er í frumvarpi rík- isstjórnarinnar mundi hafa í för með sér mikla rýrnun á kjörum iðnnema, sem nú búa við svo lág laun að þau mega ekki skerðast, þá mótmælir stjórnin frumvarpinu og heitir á Alþingi að fella það". Ályktunin var samþykkt einróma. Mann fekiir út af mk Fylki Tveir feátar írá Akranesi urðu íyrir áföllum í óveðrinu á iaugardaginn Frá fréttaritara Þjóðviljans á Akranesi í gær. Það slys varð í óveðrinu á laugardaginn. að oinn skipverja á mótorbátnum Fylki frá Akranesi tók út og náðist hann ekki aftur. Var það Kristján Kristjánsson 2. vélamaður. Hann var búsettur á Akranesi, 20 ára gamall, og lætur eftir sig unnustu og foreldra. Þjóðviljasöfnunin: Barónsdeild heldur enn 1. sætinu — Góður árangur í gær f gær bættust enn við nokkr ir áskrifendur og hækkuðu þrjár deildir sig all verulega ÍBarónsdeild þó mest. Þann 10. marz verður dregið um fyreta vinninginn í áskrifendahapp- drættinu. Fyrir þann tíma þurf um við að ná 100 áskrifendum og höfum við góða möguleika á að ná þeim. Herðið sóknina og t'lkynnið áskrifendur í skrif; stofu Þjóðviljans Skólavörðu- stíg 19 sími 7500 og í skrif- stofu Sósíali:tafélags Reykja- víkur Þórsgötu 1 sími 7511. Munið eftir að happdrættis- miði fylgir hverjum nýjum á- skrifanda. Náum 100 nýjum áskrifend- um fyrir 10. marz. Bandarískar kjaniorkuógnanir Louis Johnson, landvarnar- ráðherra, (sá sem nýlega hót- aði Rússum að „berja þá í plokkfisk") hefur látið ráðu- neyti sitt tilkynna, að fjöldi þeirra bandrísku flugvéla af gerðunum B-29 og B-3G, sem færar eru um að bera kjarn- orkusprengjur, hefði verið stór- aukinn. Tekið var fram að B-36 vélarnar ættu að geta flutt kjarnorkusprengju frá Bandarílíjunum á hvaða stað á hnettinum, sem vera skal. Tilkynning þessl var ekki gef- in út að neinu sérstöku tilefni og er því skoðuð sem enn ein tilraun Bandaríkjastjórnar tii að ógna öðrum þjóðum. Slysið vildi til er skipverjar voru að enda við að draga lín- una, en þá fékk báturinn á sig sjó. Tók þá manninn út. Bróðir Kristjáns, Einar, slasaðist er sjór gekk yfir bátinn, hlaut hann áverka á höfði og marðist víðar. Liggur Einar nú í sjúkra húsi og líður vel eftir atvikum. Annar bátur frá Akrane:i, Svanur, varð einnig fyrir áfalli á laugardaginn. Vélamaður á bátnum, Sigurður Magnússon, varð fyrir meiðslum en ekki al- varlegum. Allir Akranesbátarn- ir voru á sjó þennan dag. Veið- arfæratjón varð ekki mjög mikið. Bandarísk kágunarlög Dómsmálanefnd cildungadeild- ar Bandaríkjaþings hefur sam þykkt með átta akvæðum gegn einu og sendi deildinni til umræðu lagafrumvarp um, kúgunarráðstafanir gegn kom- múnistum. Eru í frumvarpinu ákvæði um að skylda alla kommúnista að viðlögðum þungum refsingum til að láta skrásetja sig opinberlega, um að hanna kommúnistum öll störf í þjónustu hins opinbera og að banna að veita þeim vegabréf til utanferða. Flitnskur démstéll dænrir II verk- fallsmsnn í fangelsi og sektir Dómstóll í Kemi í Finnlandi hefur dæmt 80 karla og konur í sektir og fjögurra mánaða til eins árs fangelsi fyrir þátt þeirra í verkfalli timburiðnað- armanna í Kemi s. 1. haust. í verkfalli þessu skaut vopn- uð lögregla tvo verkfallsmenn til bana. Ríkissfjórnin yfirtekur isykhéla Á fundi sameinaðs þings í gær var samþykkt, með 22 atkv. gegn 6, þingsályktunar- tillagan um að ríkisstj. heim- ilist „að yfirtaka fyrir hönd ríkissjóðs núverandi læknisbú- stað á Reykhólum í Reykhóla- sveit, ásamt landi, hitaréttind- um og beitarréttindum, með þeim skilmálum er um semst við hlutaðeigandi hreppa.“ Meirihluti fjárveitingarnefnd ar bar fram við tillögu þessa svohl jóðandi viðaukatillögu: „Jafnframt heimilast ríkis- stjórninni að yfirtaka á sama hátt fyrir hönd ríkissjóðs nú- verandi læknisbústað á Klepp- járnsreykjum ásamt hitaréttind um, landi og ö'llum byggingum, sem á því • eru, og með þeim skilmálum, sem um semst við viðkomandi aðila.“ — En við- aukatillaga þessi var felld með 15 atkv. gegn 14. ^ Þórdís Árnadóttir keppir í 200 m bringusundi og 100 m skriðsundi á sund- mótinu í kvöld. Sundmót í kvöld Súndmót I.R. og K.R. fer fram í ltvöld í sundhöllinni og hefst kl, 8.30. Á mótinú verð- ur keppt í 10 sundgreinum og eru skráðir keppendur 70. Keppt verðúr um fjóra bik- ara í eftirtöldum sundgreinum: 100 m skriðsundi kvenna, 200 m bringusundi kvenna, 100 m baksundi karla og 3X100 m boðsundi. Auk þessa verður keppt í 100 m skriðsundi karla, 200 m bringusundi karla, 50 m skriðsundi telpna, 100 m skriðsundi drengja, 50 m bringusundi telpna og 100 m bringusundi drengja. Egill SigfflrSssoM vdism 12 skákk ai 13 Akranesi í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Á sur.nudaginn vaj tefld fjöl skák innan Taflfélags Akrá- ness. Egill Sigurðsson telfdi á 13 borðam, vann haim 12 skák- ir, og gerði eitt jafntefli. ÚRRÆÐI SÓSÍALISTAFLOKKSINS III. AFNÁM TOLLA Ein helzta orsök sívaxandi dýrtíðar og verðbólgu og aukins framleiðslukostnaðar er tolla- og skattaþunginn. Á undanförnum árum hefur það verið meginstefna aftur- haldsfl. að bæta við nýj- um nefsköttum ár frá ári. Afleiðingin hefur orðið sí- hækkandi vöruverð, en laun- þegar hafa svo eftir á neyðzt til þess að snúast til varnar gegn verðbólgunni með grunnkaupshækkunum. Þann ig hefur hið opinbera með beinum aðgerðum sínum stór minnkað verðgildi krónunnar og hækkað framleiðslukostn aðinn. Sósíalistar hafa barizt gegn þessari þróim innan þings og utan og sýnt fram á að hún leiddi til öngþveitis. Þeir hafa borið fram á þingi sundurliðaðar tillögur um lækkun og afnám tolla, en ekki fengið neina áheyrn hjá afturhaldsflokkunum. Að hér er ekki um neitt smáatriði að ræða má sjá af því að 1947 komust hagfræð ingar ríkisstjórnarinnar að þeirri niðurstöðu að vísital- an myndi lækka um ca. 20 stig, ef tollar á vörum þeim sem inn í vísitöluna ganga yrðu afnumdir. Síðan hafa tollar verið margfaldaðir þannig að lækkun og afnám þeirra myndi samsvara mörg um tugum stiga. Sú stefna myndi stórauka verðgildi krónunnar og lækka fram- leiðslukostnaðinn að mun. í kosningastefnuskrá Sósí- alistaflokksins í haust var þessi stefna þannig mörkuð: „Tollar á almennum neyzluvörum verði stór- lækkaðir og afnumdir með öllu á nauðsynjavör- um þeim, sem vega mest til verðlagsmyndunar í landinu eða hafa mikil á- hrif á framleiðslukostnað innanlands." Fyrsta list mannsins. Isaldar- hellarnir miklu, Altamira og Lascaux Mjög oft er þeirri spurningu varpað fram, hvert sé eðli listarinnar, eða hvað list raunverulega sé. Fátt getur svarað greinilegar þessu margþætta vandamáli en einmitt athugun á því, hvernig list mannsins verði fyrst til, af hvaða orsökum og hvernig hún komi fram. Elstu listaverk, sem til eru munu vera frá síðasta skeiði ísaldarinnar, þeim tíma er nefndur er Aurignac-skeiðið, eða um 40—50000 ára gömul. Eru það ýmsar mótaðar leir- myndir en þó fyrst og fremst hin miklu og stórfenglegu mál- verk í ísaldarhellum Suður- Frakklands og Spánar. Það eru aðallega dýramyndir, villisvín og bisonuxar en einnig myndir þess, er menn berjast við dýr og leggja þau að velli. Til skamms tíma hefur Altamira á Spáni verið lang- frægastur þessara hellna, og hafa flestar listfræðilegar rann sóknir byggt á myndum hano. En nú á stríðsárunum fundu nokkrir franskir unglingar, með limir mótstöðuhreyfingarinnar, nýjan helli við Lascaux í Suð- vestur Frakklandi. Á veggjum og í hvolfi Las- caux eru málverk hundruðum saman, enn eldn og enn stór- brotnari en í Altamira, svo fund ur hans verður að teljast merki legasti listsögulegi viðburður þersarar aldar. Þetta, og ýmsar athuganir varðandi það, verður áðalefni næsta erindis Björns Th. Björnssonar listfræðings, sem hann flytur í Teiknisal Hand- íða- og myndlistaskólans nú á miðvikudag kl. 8.30. Með erindinu verður sýndur fjöldi skuggamynda, og m. a. margar myndir af málverkum hins nýfundna hellis í Lascaux. r Handíðaskólinn hefur nú fengið nýja og mjög fullkomna sýningavél, svo allar aðstæður eru stórum bættar. Að venju verður erindið opið fyrir al- menning, á meðan húsrúm leyfir. Schuman utanríkisráðherra Fralcklands lýsti í gær yfir van þóknun sinni á ummælum ráða manna í Vestur-Þýzkalandi vegna samnings Frakklands og Saar. Einkum kvaðst hann gramur ásökun Adenauer for- sætisráðherra um að Frakkar foeiti nazistaaðferðum. Sehu- man lét í ljós þá von að Þjóð- verjar þessir fengju vitið bráð- lega aftur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.