Þjóðviljinn - 11.03.1950, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 11.03.1950, Qupperneq 1
■ ■ íJ'saMWwiv 15. árgangur. Laugardagur 11. marz 1950 59. tölublað. Skálaferð c.k. laugardag — Skrlfið ykkur á listann. Ennþá vofir vantraust yíir Attlee Kemur til atkvæða í sambandi við húsnæðismálin strax eftir helgina Hin nýja ríkisstjórn Attlees, sem með naumindum slapp undan vantrausti við atkvæðagreiðslu um áfram- hald þjóðnýtingar stáliðnaðarins í brezka þinginu 1 fyrra kvöld, horfir nú fram á annað vantraust í næstu viku, þegar teknar verða fyrir tillögur íhaidsmanna váröandi ráðstöfun opinbers fjár annarsvegar og húsnæðismál hinsvegar. Ihaldsflokkurinn hefur gagn- rýnt nokkuð reikninga stjórn- arinnar yfir útgjöld til reksturs hinna ýmsu ráðuneyta á undan föraum1 árum, talið þá ófull- nægjandi. Út af þessu ber Churschill fram tillögu, sem, ef samþykkt verður, mun skoð- ast sem vantraust á stjórnina. Hefur Churchill mælzt til þess, að hún verði tekin fyrir í neðri deildinni strax á mánudag. Hin tillagan snertir húsnæðis málin, fram komin vegna þess, að Ihaldsmenn telja að málum þeim hafi verið óviðunandi lítill gaumur gefinn í hásætisræðu konungs, sem ávallt felur í sér stefnuyfirlýsingu hverrar Valdsvið ítölsku lögreglunnar Franska útvarpsstöðin Brazza viile skýrði frá því í gær, að fyrir ítalska þinginu liggi nú frumvarp, er miði að því að skerða allmikið valdssvið lög- reglunnar og innanríkisráðherr- ans. Frumvarpið hefur þegar gengið í gegnum neðri deildina. — I efri deildinni hefur innan- ríkisráðherrann hinsvegar bor- ið fram við það breytingartil- lögur, sem miða í þveröfuga átt, auka valdsvið hans og lög- reglunnar, kveða meðal annars svo á, að lögreglustjórar í ein- stökum héruðum og borgum Framhald á 7. síðu brezkrar ríkisstjómar. ■— Verði sú tillaga samþykkt mun það einnig skoðast skylda stjómar- innar að segja af sér. I gær urðu kunn úrslit í kjör dæmi því í Manchester, þar sem fresta varð kosningu vegna andláts eins frambjóðandans. Ihaldsflokkurinn sigraði þar, og eru endanleg úrslit kosning- anna því þau, að Verkamanna- flokkurinn hefur aðeins 6 þing- sæta hreinan meirihluta. Hvað er rætt í Stokkhólmi? Utanríkisráðherrar Dana, Norðmanna og Svía Ikomu í gær saman á fund í Stokkhólmi. Lundúnarútvarpið lét svo um- mælt í sambandi við frétt um þetta, að ráðherrarnir vildu ekkert gera uppskátt við blaða menn, hvað þeir mundu helzt ræða, en líklegast væri talið að þeir mundu taka fyrir spursmálið um tollabandalag milli ríkja sinna. — Útvarp í New York fullyrti hinsvegar að þeir mundu aðallega ræða hina stækkuðu landhelgi Rússa og af;kipti þeirra af sænskum, dönskum og norskum fiski- skipum, ssm hafa verið tekin á veiðum innan hennar í Eystra salti. — Jafnframt fylgdi það fréttinni frá New York, að ís- lenzkur fulltrúi ætti sæti á fundinum. Óeirðir í Berlín Frá því var sagt í norska útvarpinu í gærkvöld, að í gær hefði komið til óeirða nokkurrá á mörkum her- námssvæða Sbvétríkjanna og Bandaríkjanna í Berlín. Gerhard Eisler var að halda ræðu á útiiundi æskulýðs- samtaka austanmegin, þeg- ar skyndilega kvað við háv- aði mikill frá gjallahorni einu vestanmegin, og þannig reynt að yfirgnæfa rödd Eislers. Stóðu að trufl un þessari samtök sósíal- demókratískrar æsku. Nokkr ir fundarmanna reyndu að fá þaggað niður í gjallar- horhinu, eii þeim var svarað með grjóthríð. Urðu af þessu óeiríirnar, sem stóðu all- langa hríð, — en leiðtog- um æskulýðssamtaka þeirra, sem að fundinum stóðu, tókst loks að stilla til frið- ar. Utanþings- stjórn? Eftir að Heiðnabergsó- vætturin neitaði að þýðast Hermann Jónasson hefur forsetinn ekki séð ncina á- stæðu til að skýra þjóðinni frá stjórnarmyndunartilraun ununum. Þó fréttist á skot- spónum að har.n hefði fal- ið Vilhjálmi Þór að reyna stjórr-armyndun innan þings Vísir segir frá því í gær að sú tilraun sé nú „larin út um þúfur innan þingflokk- anna, með því að Framsókn arflokkurinn Iiefði endanlega hafnat- samvinnu við Sjáif stæðisflokkinn, jafnvel þótt boðið væri upp á slíkt sam- starf án sérstaks málefna- samnings. Áhrifamaður inn- an Framsóknarflokksins, Vilhjálmur Þór forstjóri, mun að undanförnu hafa reynt að miðla málum en þrátí fyrir ágætt r.tarf af hans hálfu kom aUt fyrir ekki.“ Vísir krefst þess síðan að mynduí. verði „utanþings- stjórn valinna manna“, og mun Vilhjálmur Þór nú einnig hafa hafizt handa um slíkar tilraunir. Blildksmiðir mótmæla gengislækkun Á fundi í Félagi blikksmiða í Reykjavíli í fyrra- kvöld var eftirfarandi ályktun samþykkt: ,,Fundur haldinn í Félagi blikksmiða í Reykjavík þann 9. marz 1950, lýsir yíir íyllstu andstöðu sinni við ba leið í dýrtíðar- og fjárhagsmálum þjóðarinnar að gengi ís- lenzku krónunnar verði lækkað í nokkurri mynd, þar eð slík ráðstöfun myndi hækka allt verðlag í landinu og rýra laun al- mennings.” \ En franska ríkisstjórnin kveðst munu vísa þeim mótmælum á bug Adenauer kanslari flutti í gær ræðu um nýgert sam- komulag milli Frakklands og Saar á aukafundi í vestur- þýzka þinginu. Lýsti hann því yfir; að vesturþýzka stjórnin teldi þetta samkomulag ólöglegt, og mundi hún bera fram út af því opinber mótmæli við ríkisstjórnir Bretlands, Bandaríkjanna og Frakklands. Adenauer sagði, að samkomu lagið bryti þvert í bága við lof orð þau, sem Vesturveldin hefðu gefið Þýzkalandi í Saar- málinu. Frá því yrði ekki hægt að ganga með rétti fyrr en um leið og gengið yrði frá friðar- samningum við Þýzkaland. Hann sagði, að v.þýzka stjórn- in mundi ásamt mótmælun um senda ríkisstjórnum Vestur veldanna tillögur sinar í mál- inu, en í þeim fælist það m. a. að alþjóðleg stjóm yrði fyrst um sinn sett yfir Saar. — Ræðu Adenauers var fagnað af þingmdnnum allra flokka. Opinber talsmaður frönsku stjórnarinnar hefur hinsvegar tilkynnt í þessu sambandi, að hún muni vísa á bug mótmæl- um Bonnstjómarinnar. Brezka stjórnin hefur gefið í skyn að hún styðji Frakka í málinu. Bonnstj. mun því byggja mest ar vonir um stuðning á banda- rísku stjórninni, enda kom það og fram í ræðu Adenauers. Nokkurt uppistand varð á þessum fundi vesturþýzka. þingsins í gær, þegar þingmað- urinn Wolfgang Hedler, sem liggur undir ákæru fyrir Gyð- inga-hatur og nazistískar skoð- anir, settist í sæti sitt í salnum. Þingforseti skipaði honum að fara út, en hann neitaði. Var þá gert klukkustundar hlé á fundinum, en þegar hann hófst aftur, sat Hedler enn sem fast- ast í sæti sínu. Eftir ítrekaðar skipanir forseta gekk hann loks af fundi, þó ekki lengra en út í anddyri þinghússins. En þar þyrptist svo að honum hópur þingmanna og drógu þeir hann út á tröppur. Kosið um Leopold Á morgun greiðir belgíska þjóðin atkvæði um það, hvort hún skuli aftur kveðja Leopoid konung til rikis yfir sig. Hef- ur mikill æsingur ríkt í kosn- ingaundirbúningnum, og valdið óeirðum víða, m. a. í borgun- um Brússel og Antwerpen. —■ En enda þótt svo færi, að þjóð- aratkvæðið gengi Leopold í vil, þá væri málið ekki þar með úr sögunni, því að sameinað þing verður einnig að samþykkja heimkumu hans. Stríðsfurstar á ferðalagi Stríðsfurstarnir frá Washington ferðast nú mikið um heiminn til að gefa leppríkjum Bandaríkjanna fyrírskipanlr um hern- iðarviðbúnað. Á myndinni sjást þrir þeirra í Frankfnrt. Forseti bandaríska herráðsins, Omar Bradley, er til hægri.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.