Þjóðviljinn - 11.03.1950, Síða 5
Laugardagur 11. marz 1950
1» J.ÓÐ V I L J,I N N
Hlíf í Hafnarfirði mótmælir því framferði að
Bæjarátgerðin vísi atvinnuleysingjum heim og
afgreiði togarana með bæjarvinnumönnum
Helgi Hannesson uppvís ésannindamaður á síðasta
bæjarstjé rnarfundi
Á síðasta fundi verkaniannafélagsins Hlifar í Hafnar-
firði voru eftirfarandi tillögur samþykktar:
„Fundurinn samþykkir að ítreka áskoranir Hlífar
til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að hefja tafarlaust
úrbætur á ríkjandi atvinnuástandi.“
„Fundur í verkamannafélaginu Hlif, haldimr 6. marz
.1950, samþykkir að fela stjórn félagsins að mótmæla
framkomu verkstjóra Bæjarútgerðarinnar við vinnu-
skiptingu er Bjarni riddari var afgreiddur s.I. sunnudag.
Þessi mótmæli verði tilkynnt bæjarstjóra og framkvstj.
Bæj arútgerðarinnar. “
Samþykktir þessar eiga sér
dálítið óvenjulega forsögu —
og athyglisverða frá bæ sem
stjórnað er af flokki sem kenn-
ir sig við alþýðuna.
Við atvinnuleysingjaskráning
una í Hafnarfirði í byrjun febr.
s.l. voru skráðir 40 atvinnu-
leysingjar. í þeim hópi voru
sérstaklega 5 fjölskyldumenn
sem mjög illa voru staddir
fengju þeir þá ekki einhverja
vinnu. *
Áskorun Hlífar
Á fundi sem Hlíf hélt 12.
febr. samþykkti hún eftirfar-
andi:
„Fundurinn skorar á bæjar-
stjórn að bæta nú þegar úr at-
vinnuástandi verkamanna og
vörubílstjóra. Telur fundurinn
heppilegt i því sambandi að
bæjarstjóm skipi nefnd til
framkvæmda við mál þetta og
hafi nefndin nána samvinnu við
verkamannafélagið Hlíf.“
Bæjarsáð ákveðus
að koma þeim í vinnu
Á bæjarstjómarfundi 20. feb.
gerði Eristján Andrésson at-
vinnuleysið og áskorun Hlífar
að umræðuefni. Upplýstist á
fundinum að bæjarráð hafði
ákveðið að gera ekkert í málinu
að sinni. Á þessum fundi hétu '
bæjarráðsmenn því að taka mál
ið fyrir aftur og á bæjarráðs-
fundi 22. febr. var samþykkt
að koma 5 verst stæðu fjöi-
skyldumönnunum í vinnu.
Ógert 6. marz
Á Hlífarfundinum 6. marz
beindi Kristján Andrésson þeirri 1
fyrirspurn til formanns Hlifar,
Hermanns Guðmundssonar,
hvað liði framkvæmd þessarar
samþykktar. Upplýsti hann að
enginn fyrnefndra manna hefði
fengið vinnu hjá bænum. Jafn-
framt upplýstist á fundinum að
3 menn hefðu verið teknir í
ibæjarvinnuna, en enginn þeirra
hefði verið skráður atvinnulaus.
Atvinnuleysingjainix
teknii heim
Á Hlífarfundimnn upplýstist
einnig fleira í þessu máli. Þegar
togarinn Bjarni riddari var los-
aður 4. marz voru, auk þeirra
sem átvinnulausir voru, teknir
menn úr vinnuflokki við vatns-
veitu bæjarins. Daginn eftir
(sunnudaginn) þurfti ekki við
afgreiðslu togaransi nema ca.
helming þeirra manna er unnu
við hana daginn áður.
Þá gerðist sá undarlegi hlut-
ur að vinnuflokkurinn frá vatns
lögn bæjarins var látinn vinna
áfram en menn sem höfðu ver-
ið atvinnulausir frá því fyrir
áramót vor'u reknir heim.
Móðgun við Hlíf
Þegar Hermann Guðmunds-
son formaður Hlifar vissi um
þetta snéri hann sér til verk-
stjóra Bæjarútgerðarinnar,
svaraði verkstjórinn því einu
til að Hermanni kæmi ekkert
við hvaða menn hann tæki í
vinnu á sunnudegi!
Slík afstaða verkstjóra Bæj-
arútgerðarinnar gagnvart at-
vinnuleysingjunum og fram-
koma hans við formann Hlífar
telja hafnfirzkir verkamenn
móðgun við Hlíf, og þannig eru
framanskráð mótmæli þeirra
til komin.
Helgi veikfallsbijótui
Hannesson uppvís
ósannindamaðui
Á bæjarstjórnarfundi í Hafn
arfirði s.l. þriðjudag gerði
Kristján Andrésson þá fyrir-
spurn til formanns skrifstofu
vinnumiðlunarstjórnar hvort
menn þeir er hefðu átt að sjá
um framkvæmd á samþykkt
bæjarráðs frá 22. febr. hefðu
komið fyrrnefndum mönnum i
átvinnu, og hvort bærinn hefði
bætt nokkrum mönnum í bæjar-
vinnuna.
Hann svaraði þvi að í raun-
inni væri ekki búið að ráðetafa
þessu ennþá, en forstjóri vinnu-
miðlunarskrifstofunnar hefði
lofað að ljúka því næstu daga.
Helgi Hannesson bæjarstjóri
fullyrti hinsvegar að búið væri
að útvega þessum mönnum
vinnu, og að bærinn hefði ekki
bætt neinum við í bæjarvinn-
una. Eftir að hafa ítrekað
hvort þetta gæti átt sér stað
óskaði Kristján að bæjargjald-
keri legði fram vinnuskýrslur
svo hægt væri að ganga úr
skugga um hvað rétt væri í
málinu. Kom þá í ljós að bær-
inn haffti bætt þrem mönnum
í bæjarvinnu — og jafnframt
áð enginn þeirra bafði verið
skráður atvinnulaus!!
Helgi Hannesson bæjarstjóri
stóð þannig uppi sem vísvitandi
ósannindamaður á bæjarstjórn-
arfundinum.
Sætta sig ekki við slíkt
Samþykktir Hlífarfundarins
um atvinnubótavinnu og mót-
mæli gegn íramkomu verkstjóra
Bæjarútgerðarinnar sýna greini
lega að Hlifarmenn ætla ekki að
sætta sig við slíka framkomu
gagnvart verkamönnum.
Verkstfóra-
námskeið
samþ. í M
Neðri deild alþingis sam-
þykkti í gær við 3. umr. frum-
varp til laga um verkstjóra-
námskeið.
Frumvarp þetta gerir ráð
fyrir að „árlega verði haldið
námskeið, ef nægileg þátttaka
fæst, til þess að búa menn
undir verkstjórapróf. Nám-
skeiðin skal halda á kostnað
ríkissjóðs, undir sömu yfir-
stjórn og iðnskólarnir. Hvert
námskeið skal vera allt að 6
mánuðir að meðtöldum próf-
tíma“.
Þátttaka skal vera háð þvi
skilyrði, að viðkomandi sé
fullra 22 ára að aldri, hafi unn-
ið 12 mánuði eða lengur við
þá starfsgrein, sem hann vill
taka verkstjórapróf í, hafi auk
þess verið flokksstjóri eða að-
stoðarverkstjóri í sömu starfs-
grein 4 mánuði eða lengur, og
að hann hafi lokið miðskóla-
prófi, eða tilsvarandi inntöku-
prófi.
Verkstjórar, sem lokið hafa
prófi af námskeiðum þessum,
skulu ganga fyrir öðrum um
verkstjórn í hlutaðeigandi
starfsgrein i opinberri vinnu.
Frumvarpið fer nú fyrir efri
deild.
JOHANN KRISTO
eftir Romain Rolland
*
II. bindi er komið út
FER
JÓHANN KRISTÓFER ei einhvei íeguista sháld-
saga sem nokkiu sinni heiui veiið lituð. Hún
kom út á fiummálinu í tíu bindum á áiunum
1905 — 1913, og hlaut höfunduiinn Nóbels-
verðlaim fyiii þetta verk. Höfuðpeisónan ei tón-
snillingux, og ei álitið að Beethoven sé aðalfyiii-
mynd skáldsins. Sagan ei boiin uppi af tiú höf-
undaiins á fullkomleik mannsins og sigui hins
góða sem lögmál fxamþióunaxinnai. Hún ei sem
heill heimux mannlegrai auðlegðax, feguiðai og
góðvildai.
I. BINBI ER ÞEGAR AÐ VERÐA UPPSELT
Bókabúð Máls og menningar
IAUGAVEGI 19 — SlMI 5055