Þjóðviljinn - 14.03.1950, Page 4
ÞJÖÐVILJINN
Þriðjudagur 14. marz 1950.
IHÓÐVILIINN
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sóaíalistaflokkurinn
Bltstjórar: Magnús Kjartansson, (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjórt: Jón Bjamason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi ólafsaon, Jónas irnason
'Auglýslngastjóri: Jónsteinn Haraldsson
Rltstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmlðja: Skólavörðu-
■tíg 19 — Siml 7600 (þrj&r línur)
Xskriftarverð: kr. 12.00 á m&n. — Lausasöluverð 60 aur. elnt.
Prentsmlðja Þjóðvlljana h.f.
Bóslaiistaflokkiirinn, Þórsgðtu 1 — Siml 7610 (þrjár Ifnur)
'•■ii ■ ' i -..... ... i. i .. .. i i i i.
Hermanni kippt í Heiðnaberg
Hermann Jónasson hefur allra íslenzkra stjórnmála-
manna mest verið kenndur við fþróttir. Fyrst og fremst
hefur glímumennsku hans verið viðbrugðið, en samkvæmt
fyrirmynd frægra íþróttamanna fornra hefur hann á
síðustu árum haft löngun til aö ástunda aihliða snilld.
Og fyrir rúmu ári lýsti hann yfir opinberlega að hann
hefði ákveðið að reyna manndóm sinn á nýju sviði, nú
skyldi hann verða mestur sigmaður íslenzkur síðan Guð-
mund góða leið.
Það berg sem Hermann ætlaði að síga í var Heiðna-
herg íhaldsins, bústaður forréttindastétta þjóðfélagsins,
þar sem loppan með sveðjuna hjó á alla viðleitni fram-
faraaflanna til umbóta í þjóðfélaginu. Hermann lýsti því
átakanlega hversu sigursæl loppan hefði verið í þessari
viðureign: „Ýmsum virðist, sem Sijálfstæðisflokkurinn,
íhaldsloppan, hafi í þessari viöureign fengið allt bergið
til umráða og gert að sínu Heiðnabergi". En nú skyldi
verða á þessu gagnger breyting, að sögn Hermanns, nú
ætlaði hann aö síga í bergið og þaö var á honum að
skilja að hann ætlaði að vera það haröskeyttari en Guð-
mundur góði, að enginn staður skyldi skilinn eftir handa
vondum að vera í.
Og hinn mikli sigmaöur lét dólgslega um skeið. Hann
lét flokk sinn rjúfa samninga viö loppuna, það var efnt
til kosninga og í kosningabaráttunni veifaði Hennann
vaönum framan í kjósendur með glímukóngslegum til-
burðum. Og honum var klappaö lof í lófa, hann og flokk-
ur hans fengu aukiö fylgi og þjóöin beið meö eftirvænt-
ingu eftir afrekum hins mikla íþróttamanns.
Síðan rann hin mikla stund upp. Forseti íslands
gaf Hermanni leyfi aö taka forustu í þjóðfélaginu; hinn
mikli sigmaöur batt vaöinn um sig miðjan — og seig.
Þjóöin beið og hélt niðri í sér andanum.
En þegar búizt var viö að hin miklu átök hæfust
hljómuðu allt í einu annarleg orð frá munni sigmannsins.
Hann ávarpaöi loppuna og bað hana auðmjúklega að
veita sér „hlutleysi eða stuðning“ til að hreinsa bergið,
til að útrýma „rangri skiptingu innflutningsins, svarta-
markaðsverzlun, húsnæðisokri og öðru því, sem skapar
einstökum fjáraflamönnum möguleika til að skerða kjör
almennings“, eins og hann komst að orði. •— Viðbrögð
in urðu snögg og afdráttarlaus, loppan með sveðjuna
skar á vaöinn og sigmaðurinn lá limlestur í fjörugrjótinu.
Síðan drottnaöi loppan ein um skeið meðan sigmað-
urinn greri sára sinna. En hann átti þann eiginleika
íþróttamannsins að gefast ekki upp. Fimm mánuöum
eftir hrapið mikla lýsti hann yfir.vantrausti á loppuna og
fékk þaö samþykkt. Enn á ný veitti forseti íslands hon-
um blessun sína, enn á ný batt sigmaðurinn vaðinn um
sig — og seig.
En í þetta sinn beið þjóðin ekki í neinu ofvæni og
í þetta sinn kom það engum á óvart þegar Hermann
ávarpaöi loppuna á nýjan leik blíöum rómi og bað í þetta
sinn um „samstarf um tillögur Framsóknarflokksins“.
Enn sem fyrr brá gráa loppan sveðjunni á vaðinn og
sigmaðurinn engdist í fjörugrjótinu og varð í viðbót við
þjáningarnar að þola miskunnarlausan hlátur þjóðar-
innar.
Eftirleikurinn varð síðan sá sem vænta mátti. Lopp-
an greip sigmanninn í fjörugrjótinu, vippaði honum upp
í Heiðnaberg og gaf honum örlitla sillu til umráða. Þar
Þörf 'lillaga um
tryggingahandbók
B. S. skrifar: „Ég sé í blað-
inu, að Finnbogi Rútur Valdi-
marsson ber, — meðal margs
ágæts í sambandi við almanna-
tryggingarnar, — fram tillögu
um að Tryggingastofnunin gefi
út handbók um tryggingamál.
Þetta er mjög þörf tillaga, því
að sannleikurinn er sá, að
tryggingamálefni eru svo marg
brotin, að almenningur hefur
ekki haft neina aðstöðu til að
afla sér fullkomins kunnug-
leika um þau, og af þessu hefur
síðan leitt það, að menn, sem
eiga rétt á bótum ýmiskonar og
styrkjum, fara á mis við þau
hlunnindi.... láta m. öl o. hjá
líða að leita réttar sins, af
þeirri ástæðu að þeir vita ekki
hver réttur þeirra er. — .. Það
hefur sem sé verið mikil þörf
almennra upplýsinga um þessi
mál og úr þeirri þörf mundi
einmitt hægt að bæta með út-
gáfu sérstakrar handbókar,
eins og Finnbogi leggur til....
— B. S “
□
Blekidngar gengis-
lækkunarfrumvarpsins
„Bjarni“ hefur sent bréf um
gengislækkunarfrumvarp aftur-
haldsins, og segir þar meðal
aunars: — „.... Þessari geng-
islækkun eiga að fylgja ráð-
stafanir, sem reynt er að telja
mönnum trú um, að hafi þau
áhrif að almenningur verði
hennar ekki var, hvað afkomu-
möguleika snertir, en um þá
fullyrðingu er vægast að segja
að hún sé ótrúleg, því til hvers
er verið að grípa til gengis-
lækkunar, sem allir virðast
sammála um að sé neyðarúr-
ræði, ef hún breytir engu um
kaupgetu og afkomuskilyrði
alls þorra manna í landinu ?
□
Verðhækkanir, sem
draga má lærdóm af
„Það vill svo til að einmitt
nú, um sama leyti og þetta
frumvarp kemur fram, er verið
að tilkynna verðhækkanir sem
stafa af gengislækkuninni gagn
vart dollar á síðasta ári. Sá
lærdómur, sem draga má af
þeim verðhækkunum, sem frá
þeirri gengisfellingu stafa, ætti
að vera nokkurskonar ábending
um, hvers vænta má af enn
stórfelldari og víðtækari geng-
isfellingu nú. — Það mun líka
reynast jafn satt hvorttveggja,
að almenningur verði gengis-
fellingarinnar ekki var eins og
það að til þess sé ætlazt, enda
gera fleiri og fleiri sér grein
fyrir því, að ef þetta frumvarp
öðlast líf, þá muni margar
vonir þeirra deyja.
□
Vonir og draumar
bregðast
„Margir, sem höfðu hug á
utanför til frekara náms, verða
að hætta við þá fyrirætlun,
fjöldi þeirra, sem dreymdi um
að eignast íbúð, uppgötva að
jafnvel draumar geta breytzt
með falli krónunnar og verða
aldrei að veruleika, og allir,
sem trúðu á áframhaldandi
tækniþróun í íslenzkum iðnaði
og landbúnaði með auknum af-
komumöguleikum, munu sjá þá
hugsun sína farast í svörtu-
giljum gengislækkunarinnar.
C
Kafli í „bjargráða“-
sögu íhaldsins
„Þetta frumvarp er kafli í
„bjargráða“-sögu sem íhaldið
hefur verið að skrifa und-
anfarin ár, með vísitölubinding-
unni, þátttdku í Marshall-áætl-
uninni, gengisfellingunni á síð-
asta ári og síhækkandi tollum
og sköttum. Og almenningur
óttast að sagan endi með alls-
herjar uppgjöf fyrir erlendu
auðmagni, sem hefur stöðugt
aukin áhrif á allt fjármálalíf
landsins. — Bjarni“.
).xa, KI i ZO.UU,
Höfnln
Neptúnus kom af veiðum í g:ær-
morgun og Jón Þorláksson frá
Englandi.
Skipadeild S.l.S.
Arnarfell er í New York. Hvassa-
fell er á Akureyri.
Einarsson & Zoega
Foldin fór frá Stöðvarfirði þann
11. þ. m. áleiðis til Hollands með
frosinn fisk. Lingestroom er í
Færeyjum.
Bíkisskip
Hekla er i Keykjavík. Esja á að
fara frá Reykjavík í kvöld vest-
úr um land til Akureyrar. Herðu-
breið var á Isafirði síðdegis í
gær. Skjaldbreið er i Reykjavík.
Þyrill var á Isafirði í gær. Ármann
á að fara frá Reykjavik í dag
til Vestmannaeyja.
Eimskip
Brúarfoss er i Reykjavík. Detti-
foss kom til Rotterdam 12 marz,
fer þaðan 14. marz til Hull og
Leith. Fjallfoss kom til Akureyr-
ar síðdegis í gær fer þaðan til
Húsavikur og Menstad i Noregi.
Goðafoss er í Reykjavík. Lagar-
foss fór frá Reykjavík kl. 22.00
í gær til New York. Selfoss kom
til Reykjavíkur 12. marz frá Men-
stad. Tröllafoss fór frá Halifax
7. marz til Reykjavikur. Vatna-
jökull er á Norðfirði, fer þaðan
til Hollands og Palestinu.
á hann nú. að nota íþróttahæfileika sína til að viðhalda
„rangri skiptingu innflutningsins, svartamarkaðsverzlun,
húsnæðisokri og öðru því sem skapar einstökum fjár-
aflamönnum möguleika til að skerða kjör almennings“.
Einhversstaðar verða vondir að vera — líka Hermann
Jónasson.
Vélstjóraféiag íslands heldur fund
í kvöld kl. 8 » Tjarnarcafé. Til
umræðu verða samningarnir og
fleiri mál.
Aðalfundur Náttúrulækningafé-
lags Reykjavíkur verður haldinn
í húsi Guðspekifélagsins, fimmtu-
daginn 16. marz hefst kl. 8.30
eftir hádegi.
Athugasemd
I texta kvikmyndarinnar Síð-
asti bærinn í dalnum hefur vegna
leiðinlegs misskiinings fallið nið-
ur nafn ungfrú Sigriðar Ármann,
en hún samdi og æfði álfádansana
í kvikmyndinni ásamt frú Sif
Þórz. — Athygii bíógesta er vin-
samlegast vakin á þessu.
1 fyrradag opinber
uðu trúlofun sina
Pálína Kjartans-
dóttir, verzlunar-
mær, Hraunteig 7
og Haraldur Her-
mansson, rafvirkjanemi, Holtsgötu.
41. — S. 1, laugardag opinberuðu
trúlofun síoa, Guðjóna Jónsdótt-
ir, hjúkrunarkona, Hraunteig 24
og Kristleifur Jóhannsson, trésmið
ur, SturJi«eykjum í Reykholtsdal.
Forseti lslands sæmdi i gær
dr. theol. Bjarna Jónsson vígslu-
biskup stjörnu stórriddara hinn-
ar islenzku fálkaorðu. — I gær
voru liðin 40 ár frá þvi að séra
Bjarni Jónsson var skipaður
prestur við dómkirkjuna i Reykja-
vík. (Frá orðuritara).
Áhelt til Þjóðviljans. Frá JónL
Guðmundssyni kr. 100. — Frá
S.B. kr. 25.00.
yy' 18.00 Framhalds-
saga barnanna:
„Eins og gerist og
gengur" eftir Guð
mund L. Friðfinns-
son; I. (Gúðmund-
ur Þorláksson kennari les). 18.25
Veðurfregnir. 18.30 Dönskukennsla
I. fl. 19.25 Þingfréttir. — Tónleik-
ar. 20.20 Erindi: Þættir úr sögu
Rómaveldis; II.: Skattlönd og
riddarar (Sverrir Kristjánsson
sagnfræðingur). 20.50 Tónleikar
(piötur) 20.55 Frásöguþáttur:
Gömlu lögin (Gunnar Stefánsson).
21.15 Útvarp frá tónleikum sinfón-
iuhljómsveitarinnar, sem fram
fóru i Austurbæjarbiói 9. þ. m.
— Róbert Abrahaði stjórnar —
(plötur). a) „Egmont“-forleikurinn
eftir Beethoven. b) Sjö rúmenskir
þjóðdansar eftir Béla Bartók. c)
Divertimento í B-dúr fyrir fimm
blásturshljóðfæri eftir Haydn
(Willy Bohring: flauta; Paul Pud-
elski: óbó; Egill Jónsson: klarín-
ett; Adolf Kern: fagott; Alois
Spach: horn 22.10 Passíusálmar.
22.20 Framhald sinfóníutónleik-
anna: d) Sinfónía nr. 8 í h-moll
(Ófullgerða hljómkviðan) eftir
Schubert. 22.45 Dagskrárlok.
WT Æfing í kvöld. Karl-
^* " * ar mætið kl. 8, konur
kl. 9. STUNDVISI.
£ Nýlega voru
gefin saman í
hjónaband á
Akureyri, ung-
frú Hólmfríður
* Þórlaug Hall-
grímsdóttir og Bragi Árnason, iðn
verkamaður. Heimili þeirra er að
Klettaborg 3.
Næturakstur i nótt annast Hreyf-
ill. — Sími 6633.
Næturvörður er í Ingólfsapóteki.
Simi 1330.
Næturlæknir er i læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum —
Sími 5030.
Kvöldbænir fara fram í Hall-
grimskirkju á hverju kvöldi nema
sunnudaga og miðvikudaga, kl. 8
stundvíslega.
S ö f n i n
Landsbókasafnið er opið kl. 1Ö
—12, L—7 og 8—10 alla virka
daga, nema laugardaga, þá kl.
10—12 og 1—7. — Þjóðskjalasafn-
ið kl. 2—7 alla virka daga. —
Þjóðminjasafnið kl. 1—3 þriðju-
daga, fimmtudaga og sunnudaga.
— Náttúrugripasafnið er opið
sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 2—3. —
Listasafn Einars Jónssonar kl.
1.30—3.30 á sunnudögum. — Bæj-
arbókasafnið kl. 10—10 alla virka
daga nema laugardaga kl. 1—4.