Þjóðviljinn - 14.03.1950, Page 8

Þjóðviljinn - 14.03.1950, Page 8
1 Ráðstefna verhatijðsféiaganna: vzmíwmgm >num 1WH Ráðstefna verkalýðsfélaganna hélt áfram störfum í gær. Forseti A.S.Í. kvað störfin myndu dragast nokkuð þar sem nú hafi verið mynduð ný ríkisstjórn og þurfi ráðstefnan að kynna sér fyrirætlanir hinnar nýju stjórnar. Lögð voru fram drög að ályktun frá stjórn A.S.Í., þar sem lagt er til að ráðstefnan lýsi yfir að hún telji dýr- tíðarfrumv. íhaldsins svo freklega árás á launa- og lífs- kjör alþýðu manna í landinu að ekki verði við unað, og skori ráðstefnan því á Alþingi að fella frumvarpið í þeirri mynd sem það er nú. í umræðunum var markverðust ræða Björns Bjarna- sonar um að öflun nýrra markaða væri nú brýnasta verk- efnið í atvinnu- og dýrtíðarmálum þjóðarinnar. Helgi Hannesson forseti setti fund ráðstefnunnar um kl. 2 og kvað störf hennar myndu dragast óhjákvæmilega vegna myndunar nýrrar ríkisstjórn- ar er ræða þyrfti við. Á fund- inum væri bezt að ræða hvaða ráðstafanir þau félög ættu að gera er væru með lausa samn- inga. Nefnd til að starfa með sambandsstjórn Eðvarð Sigurðsson taldi nauðsynlegt að ráðstefnan kysi nefnd til að starfa með sam- bandsstjórn að sameiginlegum ráðstöfunum verkalýðsfélag- anna. Hermann Guðmundsson kvað nauðsynlegt að reikna með þeim möguleika að dýrtíðar- frumvarpið yrði samþykkt með það iitlum breytingum að ekki yrði hægt við það að una, og yrði ráðstefnan að ákveða hvað þá ætti að gera. Kvaðst hann taka undir með Eðvarð að kjósa þyrfti nefnd til að starfa með sambandsstjórn, enda væri sambandsstjórnin ekki skipuð fulltrúum allra aðila og yrði því sterkari til raunhæfra að- gerða ef hún hefði slíka nefnd til samráðs og samstarfs. I sama streng tók Jóhannes Jósefsson frá Akureyri. Miklu glæsilegra að eiga súkkulaðigerð en .... Jón H. Guðmundsson frá Sjó- mannafél. Isfirðinga talaði af nokkrum sárindum um að Eð- varð Sigurðsson hefði notað orð Mjólkur- fræðingar semja • Nýr kjarasamningur var und- irritaður 1. þ.m. milli Mjólkur- fræðingfélags íslands og mjólk urbúðanna. Samkvæmt hinum nýja samn ingi hækkar grunnkaup full- gildra mjólkurfræðinga úr kr. 177.50 á viku i kr. 202,50 á viku og kaup mjólkurfræðinga er ekki eru fuilnuma, úr kr. 167.50 í kr. 192,50 á viku. — Samningurinn er uppsegjanleg- ur með ein; mánaðar fyrirvara. ■ ið ,,sameiningarmenn“ í ræðu sinni, vildi Jón gera orð þetta og hugtak útlægt af samkom- um verkalýðsins. Þá sneri hann sér að dýrtið- arfrumvarpinu: lltkoman úr reikningsdæmi hagfræðinganna — sé því lokið — verður herfi- legasta árás á fólkið í landinu. Þjóðartekjurnar eru nægar til að allir goji lifað sómasamlegu lífi. Það er skipting teknanna sem er í ólagi.... Verzlunar- stéttin þrífst vel í dag þrátt fyrir öll verzlunarhöft. Það er miklu glæsilegra að eiga skran- búð en 100 tonna nýsköpunar- bá»i, miklu glæsilegra að eiga sælgætisgerð en nýsköpunartog- ara. Það er alltof lítill hópur þjóðarinnar sem vinnur að framleiðslunni, alltof stór hluti sem lifir á henni án þess að \dnna við hana. Þrennt sem þarf að svara Björn Bjarnason form. Iðju talaði næstur. Það hefur verið talið dýrtiðarfrumvarpinu til gildis að það sé verk sérfræð- inga.... Það eru til fleiri hag- fræðingar en þessir tveir „Fiskur" ffýit tímarit er fjallar um matvælaframleiðslu Hafin er útgáfa á nýju tíma- rl'ii, er á að f jalla um matvæla- framleiðslu úr íslenzkum hrá- efnum. Nefnist tímarit þetta Fiskur, er Gísli Þorkelsson rit- stjóri þess, en Samband fiski- matsmanna íslands ú»igefandi. Auk formálsorða ritstjórans eru í fyrsta hefti ritsins þess- argreinar: Bergsteinn A. Berg. steinsson, fiskimatsstjóri: Á- varp. Jakob Á. Sigurðsson: Á- grip af sögu Félags fiskimats- manna. Arnlaugur Sigurjóns- son: Hugleiðingar um fyrir- komulag á frystigeymslum og við afskipun. Jónmundur Ólafs- son, k jötmatsformaður: Al- mennt yfirlit um kjötmat. Sveinn Árnason, fyrrv. fiski- matsst jóri: Saltfiskverkun fyrrum og upphaf fiskmats á íslandi. — Fleiri greinar eru í heftinu. (benjamínið og ólinn) og skoð- anir þeirra virðast jafnmargar á þessum málum og hagfræð- ingar í landinu, — þar með er sérfræðigildi frumv. fallið úr sögunni. Það er fyrst og fremst þrennt er við þurfum að athuga við frumvarpið: 1. Að hve miklu leyti það snertir samtakafrelsi verkalýðs ins. 2. Hvernig það skiptir byrð- unum. 3. Hvernig það leysir vanda- málin. Á að eyðileggja jafnóð- um allar kjarabætur Frumvarpið ákveður að gengi krónunnar skuli lækka með hverri nýrri kauphækkun. Landsbankanum er það ekki að- eins heimilt heldur skylt.... Afleiðingin yrði að ástandið hér yrði eins og í Þýzkalandi eftir fyrra stríðið. Frumvarp- ið ákveður að 'þau félög er semja um hækkað kaup skuli ekki njóta uppbóta samkvæmt vísitölu. Öll kjarabótabarátta verkalýðsins virðist harla lítils virði ef þetta yrði að lögum. Þeir fátæku verða fátækari — Þeir ríku ríkari Lífskjaraskerðingin er frumv. hefði í för með sér fyrfr al- þýðuna yrði 15—18% að fróðra manna áliti. —Verzlunarstétt- in hefur á undanfömum árum safnað meiri gróða en dæmi eru til. Frumv. skerðir þenn- an gróða að litlu eða engu leyti. í frumvarpinu eru engin ákvæði sem tryggja nægar vörur. Vöru skorturinn og þar með svarti markaðurinn og gróðamögu- leikar verzlunarstéttarinnar myndu því haldast. Hinsvegar á að svipta spari- f járeigendur stórum hluta. Það eiga að vera launin til þeirra alþýðumanna sem á nýsköpun- arárunum lögðu t. d. sparifé sitt í stofnlánadeild sjávarút- vegsins í því augnamiði að bæta hag þjóðarinnar. Bætir ekki úr þörfurn útvegsins Frumv. á að bjarga útvegn- um að sagt er. Freðfiskfram- leiðslan er um 28 þús. tonn á ári. Nú er talið að ekki muni seljast nema 15 þús. tonn. 1 frumv. eru engin ákvæði til að bæta úr því. Hinsvegar hækka rekstrarvörur bátanna, olía, veiðarfæri o. fl„ samkvæmt frv. Það bætir því ekki úr vandræð- um bátanna. Eins og markaðshorfur eru nú er það sami þvættingurinn að það bjargi afkomu togar- anna. . Meðalársafli togaranna Framhald á 3. síðu, FxamhaidssioísiSssndnr haldimi bmðlega S.l. sunnudag kl. 2 e.lí. var haldinn í Tjarnarkaffi stofn- fundur félagsskapar, sem ætlar sér að vinna að áukinni kynn- ingu og menningartengslum milli Islands og Ráðstjórnar- ríkjanna. Fundur þessi var boðaður af undirbúningsnefnd, sem í áttu sæti þeir Kristinn E. Andrés- son, Sigurður JóhannsiHon og Sigfús Sigurhjartarson. Kr. E. Andrésson setti fundinn og bauð gesti velkomna en Arn- finnur Jónsson var fundarstjóri. Ræður fluttu m.a. Kr. E. Andrésson og H. K. Laxness. Þá var og lagt fram uppkast að lögum fyrir félagið. Fundur- inn var mjög fjölsóttur, svo að húsrými reyndist alltof lítið og fjölmargir urðu frá að hverfa. Var samþykkt að efna hið bráð- asta til framhaldsstofnfundar í rýmri húsakynnum. ★ FramsÖguræða Kristins E. Andréssonar verður birt hér í blaðinu á morgun. Skíðamót Reykjavíkur Ingibjörg Árnadóttir Rvíkurmeistari í bruni og svigi kvenna en Ásgeir Eyjólfsson í svigi karla j Skíðamót Reykjavíkur hófst í Jósefsdal um síðustu helgi og var keppt í 7 flokltum í svigi og 5 flokknum í bruni. Ásgeir Eyjólfsson Á. varð Reykjavíkur meistari í svigi karla A-fl., og Ingibjörg Árnadóttir Á. í svigi |og bruni kvenna. Sveit Ár- manns sigraði í sveitakeppni í A-fl. karla í svigi. Mótið hófst síðdegis á laugar dag og stóð yfir til kl. 6. Veður og færi var hið bezta, en fresta varð keppni í bruni A og B-fl. karla vegna harðfennis. Árangur fyrstu manna í hverjum flokki varð þessi: Svig karla, A-fl.: Ásgeir Eyj- ólfsson Á. 147,2 eek. Svig kvennar A-fl.: Ingibjörg Árna- dóttir Á. 115,8 sek. Sveitakeppni í svigi karla A-fl.: Sveit Ar- manns 524,9 sek. Brun kvenna A-fl.: Ingibjörg Árnadóttir Á. 80,0 sek. Svig karla, B-fl.: Guð- mundur Jónsson K.R. 130,0 sek. Svig karla, C-fl.: Sigurður R. Guðjónsson Á. 138,3 sek. Brun kvenna B-fl.: Jóhanna Frið- riksdóttir Á. 90.1 sek. Brun kvenna, C_ fl.: Þórunn Björg- úlfsdóttir KR 86, 0 sek. Svig kvenna, B-fl.: Stella Hákonar- dóttir K.R. 120,5 sek. Svig kvenna, C-fl. Guðbjörg Vídalín Á. 95,6 sek. Brun karla, C-fl.: Stefán Hallgxámsson Val 58,0 Framh. á 3. síðu. Fyista guðsþjénusta óháð fiíkirkjusaínaðarins Á annað þúsund manns — fjöldi varð frá að hverfa Fyrsta guðsþjónusta óháða frílúrkjusafnaðarins var haldin í Stjörnubíói s.l. sunnudag og hófst hún kl. 11 f.h. Talið er að um 1200 manns hafi sótt guðsþjónustuna, en fjöldi varð frá að hverfa. Áður en guðsþjónustan hófst flutti formaður safnaðarstjórn- ar, Andrés Andrésson ávarp og bauð prestinn sr. Emil Björns- son, velkominn til starfa. iFríkirkjukórinn söng við þetta tækifæri. Meðhjálpari og dyraverðir • Fríkirkjunnar gegndu þessum störfum sínum við guðsþjónustuna. — Á sama tíma stóð Fríkirkjan ónotuð, harðlæst og tóm. Æ. F. R. Félagsfundur verður á Þórs- götu 1 n. k. föstudag kl. 8.30 stundvíslega. Á fundinum verður sýnd hin víðfræga rússneska kvikmynd, Þeir mæ‘ttust við Saxelfi. Tii Niemela syngui í Gamla bíó í kvöld Finnska söngkonan Tii Nie- melá syngur í Gamla bíó í kvöld og hefst söngskemmtun in kl. 7.15. Víð hijóðfærið verður Pentti Koskimies. Á söngskránni eru verk eftir Haydn, Schubert, Schuman, Edv. Grieg og loks Sangen om livet och döden eftir finnska tónskáldið Y. Kilpinen. Mesta slys í sögu flugsins, 80 farast Brezk farþegaflugvél af Tu- dor gerð fórst í fyrradag er hún ætlaði að lenda í Cardiff og fórust 80 af 83 er í henni voru. Vélin var að koma með fólk af rugbylandsleik milli Ir- lands og Wales. Brezka stjórn- in kom saman á fund í gær vegna þessa slyss, sem er hið mesta í sögu farþegaflugsins.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.