Þjóðviljinn - 15.04.1950, Blaðsíða 4
Láugafdagur 15. apríl 1950.
| ---- ^PJðDYILJINN
*■" i i i ■'■■■■ ■>.p™.nr",M- r—1 i '■ ........
---
(IIÓÐVILJINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árna-
son, Eyjólfur Eyjólfsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skölavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 12.00 á mán. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
■ - ■ - ...
ÁrásÍEi á iðnaðinn er þáttur í
stefnu ríkisstjórnarinnar
Iðnaðurinn er að stöövast. Atvinnuleysið stendur
við dyr iðnverkamanna, þúsundir Reykvíkinga horfa með
skelfingu fram á sívaxandi atvinnuleysi.
Örlög, segir einhver, eitthvað sem enginn fær að-
gert, segir afturhaldið. *
En stöðvun iðnaðarins er ekki ill örlög, ekki einu
sinni ill nauðsyn, hún er aðeins stefna ríkisstjórnarinn-
ar í framkvæmd, og stefnan, sem ríkisstjórnin er að
framkvæma er Marshallstefna, stefna ameríska auðvalds-
ins.
Hagfræðingur ameríska auðvaldsins, Benjamín, sem
hingað var sendtir til þess að kenna þjóðinni Marshall-
þjónustu, fór ekkert dult með þetta atriði stefnuskrár-
innar, hann og hjálparsveinn hans Ólafur Björnsson,
sögðu fullum fetum að draga yrði úr iðnaðarstarfseminni,
og stuðla að því aö fólkið flyttist til sjávarútvegsins.
Þessi stefna er ekkert nýmæli í viðskiptum auðvalds-
þjóöa, þvert á móti hafa allar auðvaldsþjóðir gert allt
sem þær hafa getað til þess að skapa sér sem mesta
sérstöðu á Sviði iðnaðarins á kostnað annarra þjóða. Sú
þjóð sem nær forustu á sviði iðnaðarins, og getur gert
aðrar þjóðir sér háðar um kaup iðnvöru verður auðug
þjóð og getur drottnað í heimi viðskiptanna og stjóm-
xnálanna f krafti auðlegöar sinnar. Þessa aðstöðu hafa
Bretar haft í auðvaldsheiminum um meira en aldar-
skéið, og einn veigamesti þátturinn í deilum Breta og
Þjóðverja, bæði fyrr og síðar, hefur verið baráttan um
forustu á sviði iðnaöarins. Nú hefur þessi aðstaða fallið
úr hendi Breta og Bandaríkin hafa tekið þá forustu meö-
al auðvaldsþjöðanna, sem þeir höfðu, og bandaríska auð-
valdið skilur hlutverk sitt álveg á sama hátt og brezka
auðvaldið áður, þaö gerir allt, sem í þess valdi stendur
til þess að knýja aörar þjóðir sem mest yfir í fram-
leiðslu hráefnis, og þoka þeim jafnframt burtu, eftir því
sem auðið er, af sviði iðnaðarins.
Þessi stefna er í alla staði sðlileg frá sjónarmiði auð-
valdsins. Sú staðreynd má aldrei gleymast, að auðvalds-
skipulagið byggir á grundvelli samkeppninnar, byggir á
þeim grundvelli að einn eigi að brjóta sér braut, á' kostn-
að arihars. Samkvæmt þessari kenningu byggjast við-
skipti þjóðanna á því að keppa um markaöi, keppa um
framleiðslu. Sá er bjáni í leiknum sem ekki reynir að
efla sinn hag á kostnaö annarra, og ráöamenn hins ame-
ríska auðvalds eru ekki bjánar.
Tilraunin, sem verið er að gera, til að eyöiieggja
vœntanlega frá Heroya í Noregi
18. þ. m. til Rvíkur. Tröllafoss
kom til N. y. 8. þ. m., fer þaðan
væntanlega 14. þ. m. til Balti-
more og Rvíkur. Vatnajökull fór
frá Tel-Aviv 11. þ. m., vænt-
anlegur til Palermo 15. þ. m.
Maður fótbrotnar
á skíðnm.
Einn gamall vinur minn ligg-
ur rúmfastur, fótbrotinn, og
fór ég um daginn að heimsækja
hann. — Hann var á skiðum
um páskana, datt í einni brekk
unni og braut aðra pípuna í
hægri fótlegg. Þetta var hjá
Skíðaskálanum, og bróðir
hins slasaða fór þangað inn
að sækja eitthvert deyfilyf til
að gefa honum og lina þannig
þjáningar hans. En þeir, sem
þarna ráða húsum, sögðu að
engin þesskonar lyf væru til.
Þeir gátu ekki einu sinni skaff-
að hinum slasaða jafn algengt
meðal eins og aspirin eða
magnyl! — Síðan var honum
ekið í bæinn, en í leiðinni kom-
ið við á Kolviðarhóli, og þar
tókst að útvega tvær magnyl-
töflur, — en ekki heldur
meira!
□
Sofaiidaháttur helzti
míkill.
Eg geri ráð fyrir að margir
muni undrast stórlega, er þeir
heyra þessa sögu. Því að það
er svo sannarlega enginn venju
legur sofandaháttur sem hún
vottar um þá aðila er húsum
ráða í Skíðaskálanum, — og
raunar líka að Kolviðarhóli.
Um páskana eru fleiri hundruð
manns á skíðum í næsta ná-
grenni þessara staða, og sam-
kvæmt margfenginni reynslu
má alltaf gera ráð fyrir fleiri
eða færri slysum undir slíkum
kringumstæðum, — en . það
vantar samt algengustu' lyf í
meðalaskápa húsanna, — rétt
aðeins hægt að útvega tvær
magnyltöflur með herkjum á
Kolviðarhóli! — Þess er að
vænta, að ráðamenn Skíðaskál-
ans verði að minnsta kosti bún-
ir að útvega sér nokkra aspirin
skammta fyrir næstu páska.
□
Hvergi hægt að
fá hækjur.
En fyrst ég er farinn að tala
um þennan gamla vin minn,
þá er rétt ég segi einnig frá
öðru merkilegu atriði, sem upp
lýstst hefur í sambandi við
meiðsli hans. — Eftir hálfs-
mánaðar legu í rúminu, verður
sett utan um brotna legginn
svokallað „göngugibs“, og hin-
um slasaða leyft að fara dá-
lítið á stjá, — þó ekki án þess
að styðja sig við hækjur. —-
Hann vildi vera búinn að út-
vega sér hækjurnar í tíma,
hringdi þessvegna á spítalana,
hringdi líka á Rauða krossinn,
og spurði, hvort ekki væri hægt
að fá leigðar hækjur hjá þess-
um stofnunum, — en það var
hvergi hægt. Yfirleitt skildist
honum á þeim, sem svöruðu,
Ríkisskip
Esja er í Rvík. Hekla var í
Vestmannaeyjum í gærkvöldi á
austurleið. Skjaldbreið var á
Hólmavík síðdegis í gær. Herðu-
breið var á Norðfirði í gærkvöldi
á suðurleið. Þyrill er í Rvík. Ár-
mann fer væntanlega til Vest-
mannaeyja í dag.
Næturakstur í nótt annaafi
Hreyfill, sími 6633.
Næturlæknlr er i læknavarð-
stofunni. —. Sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki, sími 1618.
að hækjur væru mjög torfeng-
in vara.
Rauði krossinn hafi
þær til leigu.
Telur hann réttilega, að
þetta ástand sé óþolandi. Það
sé skrambi hart, að þeir, sem
þurfa að nota hækjur einhvem
takmarkaðan tíma — kannski
ekki nema eina eða tvær vik
ur —verði að láta smíða þær
sérstaklega handa sér. í út-
löndum, þar sem hann þekkir
til, sé hægt ag fá leigðar hækj-
ur hjá spítölunum, og líka hjá
Rauða krossinum, og viíl hann
eindregið mælast til þess að
slíkt fyrirkomulag verði einnig
tekið upp hér á landi. Álítur
hann það mundi helzt tilheyra
verksviði Rauða krossins að
koma því í kring. — Er þess
að vænta, að málið verði tek-
Franih. á 7. síðu.
★
Isfisksalan
Togarinn Sævar seldi 1146 vætt-
ir fyrir 2922 pund í Pleetwood 13.
þ. m. Hinn 14. þ. m. seldi Bjarni
Ólafsson 3441 kits fyrir 8339 pund
í Grímsby.
Höfnin
Hvalfell og Akurey komu af
veiðum í gær. Ingólfur Arnarson
kom af veiðum í fyrrinótt og fór
til útlanda í gærkvöld.
EIMSEIF:
Brúarfoss er í Keflavík, væntan-
legur til Rvíkur 15. þ. m. Detti-
foss fór frá Rotterdam 13. þ. m.
til Hull. Fjallfoss fór frá Isafirði
í gærmorgun til Flateyrar, Þing-
eyrar, Stykkishólms og Reykja-
víkur. Goðafoss kom til Antwerp-
en 12. þ. m., fer þáðan væntanlega
15. þ. m. til Leith og Rvíkur. Lag-
arfoss fór frá Searsport 7. þ. m„
væntanlegur til Rvíkur aðfaranótt
sunnudags 16. þ. m. Selfoss fer
19.30 Tónleikar:
Samsöngur (plöt-
ur). 20.30 Útvarps-
tríóið: Einleikur
og tríó. 20.45 Leik-
rit: „Michael" eft-
ir Miles Mallison; samið upp úr
sögu eftir Leo Tolstoy (Leikstjóri:
Valur Gíslason). 21.15 Upplestur
og tónleikar. 20.05 Danslög (plöt-
ur). 24.00 Dagskrárlok.
Nýlega hafa op-
inberað trúlofun
sína ungfrú Sig-
ríður Þórðardóttir,
Snorrabraut 36 og
Magnús Smith,
Snorrabraut 87. — Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú Gerð-
ur Guðnadóttir, Drápuhlíð 5 og
Halldór Arinbjarnar, stud. med.,
Miklubraut 34.
Skátakaffi.
Á morgun verður hið árlega
Skátakaffi í Skátaheimilinu. Þar
verður á boðstólum kaffi, mjólk,
heimabakaðar kökur og brauð.
Auk þess ýmis^skemmtiatriði. Um
kvöldið verður svo dansað.
Laugarneskirkja.
Messað kl. 2 e. h.
(Ferming) — Séra
Garðar Svr.varsson
Barnaguðsþjón. kl.
10 f. h. — Dóm-
kirkjan. Messað kl. 11 f. h. _____
Séra Bjarni Jónsson. (Ferming).
Messað kl. 2 e. h. — Séra Jón
Auðuns. (Ferming). — Nespresta-
kall. Messa í Kapellu Háskólans
kl. 2. e. h. Séra Jón Thorarensen.
— Fríkirkjan, Messa kl. 2 e. h.
(Ferming). Séra Þorsteinn Björns-
son. — KFUMF fundur kl. 11 f. h.
FERMING
í Laugarneskirkju n. k. sunnu-
dag. (Séra Garðar Svavarsson).
Drengir: Einar Sveinbjörnsson,
Laugarnes. 50. Guðmundur Gestur
Kristjánsson, Múlacamp 1. Hauk-
ur Gunnarsson, Hrísat. 21. Hreinn
Björnsson, Hjallaveg 54. Jón Ein-
arsson, Seljalandsveg 13. Kristján
Pálmar Jóhannsson. Efstasundi 56.
Narfi Hjörleifsson, Hrisateig 7.
Óiafur Albertsson, Skúlagötu 76.
Ómar Sigurs Zophóníasson, Digra-
nesveg 8. Skúli Ágústsson, Lang-
holtsveg 47. Stefán Sigurmundsson,
Seljalandsveg 14. Þórir Þórðarson,
Áshól við Tunguveg. Þráinn Ei-
ríkur Viggósson, Grenimel 23. —
Stúlkur: Auður Jónasdóttir, Laug-
arnesveg 45. Erla Olgeirsdóttir,
Hlíðarveg 7, Kópav. Erla Dóro-
thea Magnúsdóttir, Hjallaveg 28.
Fjóla Guðmundsdóttir, Efstasundi
16. Guðmunda G. Guðmundsdóttir,
íslenzkan iðnaö, er örsmár þáttur í þessum leik banda-
ríska auövaldsins, sendimaður þess, og ríkisstjórn þess,
5egir viö okkur: Stundið þiö sjóinn, og verið þið ekki að
föndra viö iðnaö. Sömu bendingu gefur það Þjóðverjum
og fleiri þjóðum. Árangurinn er þegar farinn aö sýna sig.
Daglega fjölgar skipunum á fiskimiöunum, og allar lík-
ur benda til að nú þegar sé um offiski aö ræða, aö farið
sé að ganga á fiskistofninn svo aflaleysi hlýtur að fara
d hönd. Jafnhliða þessu fyllast fiskmarkaðir og sölu-
tregöa er þegar orðin alvarleg. Allt eru þetta afleiðingar
af stjómmálastefnu auðvaldsins, erlends og innlends, og
svona hlýtur þetta að vera, meðan viðskipti þjóða, stétta
einstaklinga grundvallast á samkeppni. Þessu verður ekki
viðbjargað nema horfið verði af óheilla brautinni yfir
á braut samvinnu í stað samkeppni, og áætlunarbúskap-
ar 1 stað gróðahyggjubúskapar.
Það eru ugglaust margir, sem sjá það nú hvert stefn-
ir með okkar hag, margir sem ekki sáu það fyrir fá-
um mánuöum, reynslan hefur kennt og hún er strangur
kennari. En þeir sem nú sjá hvert stefnir, verða að
gera sér ljóst, að sérhver stuðningur við íhaldið, Fram-
sókn og Alþýðuflokkinn, er stuðningur við Marshall-
stefnuna, það verður ekki snúiö af óheilla brautinni nema
hnekkja valdi þessara auðvaldsflokka.
Otrateig 4. Herta Wendel Jcns-
dóttir, Laugarnesv. 61. Ingibjörg
Aðalsteinsdóttir, Grensásveg 2.
Jensína Þórarinsdóttir, Höfðaborg
15. Jóhanna Þuríður Bjarnadótt.ir,
Stórholti 29. Jónína Þorsteinsdótt-
ir, Efstasundi 22. Katia Ólafsdótt-
ir, Baldursgötu 30. Ragnheiður
Konráðsdóttir, Laugateig 60. Rak-
el Ólafsdóttir, Háaleitisveg 22.
Rakel Björg Ragnarsdóttir, Sól-
landi, Reykjanesbraut. Rannveig
Pálmaclóttir, Sigtún 55. Sesselja
Guðmunda Ásgeirsdóttir, Efsta-
sundi 11. Sigríður Pétursdóttir,
Háteigsveg 4. Sigrún Einarsdóttir,
LaugarneSveg 65. Sigrún Hanneæ
dóttir, Laugarnesveg 65. Valgerð*
ur Pálsdóttir, Langholtsveg 22.