Þjóðviljinn - 22.04.1950, Qupperneq 4
Þ J Ó Ð V I L JINN
Laugardagur 22. apríl 1950.
t——i ' i i ■ i i’" 1 r
Útgefandi: Sameiningaxflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árna-
son, Eyjólfur Eyjólfsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skölavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 12.00 á mán. — Lausasöiuverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Það er ríkisstjórninni að kenna
Stjómarblööin eru öðru hvoru að bera sig upp und-
an þeirri ólgu reiði og fyrirlitningar, sem stjórnarflokk-
arnir nú hafa vakið hjá almenningi, og segja þá, að
rnenn megi ekki kenna ríkisstjórninni um allt, sem aflaga
íari.
Framsókn og íhaldinu er bezt að gera sér það ljóst
að þessir flokkar bera ábyrgð á mesíallri þeirri ógæfu
sem nú dynur yfir þjóðina, að svo miklu leyti, sem ekki
er aflaleysi eða öðrum óviðráðanlegum orsökum um að
kenna. Að vísu á Alþýðuflokkurinn sök með þeim, að
svo miklu leyti, sem núverandi ógæfa stafar af stjórn-
arstefnu undanfarinna ára, en þessir tveir núverandi
stjórnarflokkar taka á sig sökina af því að breyta ekki
frá þeirri stefnu, þegar I ljós kemur til hvers ófarnaöar
hún hefur leitt.
Ríkisstjórnin og flokkár hennar éiga sök á hinni
gífurlega vaxandi dýrtíð, af því þeir hafa lækkað krón-
una og hækkað þarmeð allar vörur. Það er ríkisstjóm
-rnni að kenna að almenningur verður nú að greiða kr.
5,75 fyrir kaffipakkann, meir en tvöfalt hærra verð en
áður. — Og ríkisstjórnin lækkaði ísenzku krónuna en
þrefaldaði dollarann 1 verði samkvæmt boði undirtyllu
einnar úr amerískum banka, og vegna skuldbindingar
sinnar um að halda því, sem amerísku auðdrottnar álitu
‘,,rétt gengi“, en sú skuldbinding var í Marshallsamning
íhalds, Framsóluiar og Alþýðuflokks frá 1948.
Það er ríkisstjórninni og flokkum hennar að kenna,
aö allur innflutningur til landsins kemur til með að
minka ægilega og skortur að skapast á öllum sviðum
af því útflutningurinn minnkar og- þarmeð geta okkar
til þess að geta keypt nauðsynjar til landsins. Og út-
flutningurinn minnkar, af því ríkisstjórnin og flokkar
hennar halda áfram að fórna viðskiptahagsmunum ís-
lands á altari þess „kalda stríðs“, sem Bandaríkin heyja
gegn Sovétríkjunum. Bezti markaður íslands hefur vérið
eyöilagður með þessari ofstækisstefnu, sem tekin var
upp méð Marshall-,,samstarfinu“, í júlí 1947 viö þær þjóð-
- ir,- sem nú traðka á öllum hagsmunum vorum, — eins
og Bretar og Þjóðverjar sýna bezt í fisksölu-, veiði- og
landhelgismálunum.
Það 'er ríkisstjórninni og flokkum hennar að kenna,
þegar það vantar nauðsynjavöru í landið eða ekki er
hægt að selja útflutningsvöru. Hún einokar undir sig
allan útflutning og innflutning og tekur þar með alla
ábyrgð á sig af því sem aflaga fer. Hún bannar lands-
. mönnum hvern snefil af verzlunarfrelsi. Þótt íslendingar
gætu með frjálsum samtökum selt útflutningsvöru sína
og keypt nauðsynjar í staðinn, eins og þingeyskir bændur
gerðu fyrir 70—80 árum, er þeir hófu baráttu gegn sel-
stöðuverzluninni, þá er þeim þetta nú bannáð af rík-
isstjórn, sem stendur 1 hlýðnisafstöðu til framandi stór-
veldis og hlítir fyrirmælum þess um verzlun íslendinga.
Það er rJkisstjórninni og flokkum hennar að kenna
- að þjóðin er að kikna undan þunga skriffinskubáknsins
og einokunarkerfisins. Samtímis því sem stjórnin dregur
úr mætti hvers alþýöuheimilis, til að standa undir ofur-
þiunga þeirra tolla, skatta og útsvara, sem á þau eru
lögð, þyngir stjómin ómagabyrði skriffinskunnar og
lierðir hengingaról einokunarinnar fastar að hálsi þjóð-
ariniíar.
Svar vegna bréfs
um bókaband
Ragnar Jónsson, forstjóri,
skrifar: — ,,H. G., Vestm.
gerir í blaði yðar að umræðu-
efni band okkar á bókum Hall-
dórs Kiljan Laxness og nefnir
þar sérstaklega sem dæmi um
það hvemig hlutur eigi ekki
að vera. — Það verður því
miður að viðurkenna að síð-
an hætt var að handsauma
bækur með gamla laginu er
band yfirleitt varla eins sterkt
og áður, sama má því miður
segja um marga hluti. En hand-
bundin bók er nú orðið munaður,
líkt og handgerð flík, sem fáir
geta veitt sér. Þó munu sum
bókasöfn enn handbinda bæk-
ur sínar. — Ég ætla mér ekki
að öðru leyti að taka H. G
svo hátíðlega að biðja hann að
benda mér á hvernig eigi að
binda - bók, því ég óttast að
honum reynist það ekki jafn-
auðvelt og að slá, fram þeirri
fullyrðingu að ’hann viti hvem-
ig eigi ekki að gera það.
•
Sérstaklega vandað
tO ntgáfunnar
landa iðnað hvað bandið snert-
ir, svona yfirleitt. Um teikn-
ingar á saurblöðum, spjalda-
pappír og gyllingu á verkum
Laxness er það að segja að
áður en tekin var ákvörðun um
þær voru þær bornar undir
marga dómbæra aðila, þar á
meðal höfundinn sjálfan.
Misheppnuð
gamansaga
H. G. tekur upp þá misheppn-
uðu gamansögu, að bækur hafi
verið verðlagðar hér af verð-
lagseftirlitinu eftir vigt. Ég
hefi á undanfömum árum feng-
ið verðlögð hundruð bóka og
vom þær flestar lagðar á vigt,
en ekki til verðlagningar, held-
ur til þess eins að vega pappír
bókarinnar, en hann er verð-
lagður eftir vigt og þykir eng-
in goðgá, og þvi síður nokkur
fyndni. Verðlagseftirlitið á bók-
um hélt irtjög niðri bókaverði
á stríðsárunum og oft um of,
að mínu áliti, og því ekki á-
stæða fyrir bókafólk að amast
við því.
Engum synjað
um fyrirgreiðslu
ill var á Vestfjörðum í gser á
norðurleið. Ármann átti að fara
frá P.vik í g-ærkvöld. til Vest-
mannaeyja.
Eimskip
Brúarfoss fór frá Vestmanna-
eyjum 18. þ. m. til Leith, Lysekil,
Gautaborgar og Kaupmannahafn-
ar. Dettifoss fór frá Hull 19. þ. m.
til Hamborgar og Rvíkur. Fjall-
foss fór frá Rvík 17. þ. m. til
Halifax, N. S. Goðafoss fór frá
Leith 19. þ. m., kom til Rvíkur
í gærkvöld. Lagarfoss er í Rvík.
Selfoss fór frá Leith 20. þ. m. til
Vestmannaeyja og Rvíkur. Trölla-
foss fór frá Baltimore 18. þ. m.
til Rvíkur. Vatnajökull kom til
Genova 21. þ. m.
Nýlega opinber-
uðu trúlofun sina
ungfrú Herdís
Birgisdóttir frá
Húsavík og Sig-
urður Hallmars-
son frá Húsavík, nemandi í Kenn-
araskóla íslands. — Nýlega hafa
opinberað trúlofun sína ungfrú
Kristin Guðjónsdóttir, Fremstu-
húsum í Dýrafirði og Samúel Har-
aldsson, Skúlagötu 70, Reykjavík.
— Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Sólrún Þorbjörnsdótt-
ir, Drápuhlíð 21 og Gísli Ferdin-
andsson, Grettisgötu 19A. ------ Á
sumardaginn fyrsta opinberuðu
trúlofun sína, ungfrú Hulda Bald-
ursdóttir og Páll Bergþórsson, veð-
urfræðingur.
g Nýlega hafa
verið gefin sam-
an i hjónaband
af séra Bjarna
Jónssyni, ung-
* frú Bára Guð-
mundsdóttir, Tjarnargötu 16, Kefla-
vík og Magnús Haraldsson, Skipa-
sundi 38, Reykjavík. Heimili brúð-
hjónanna er að Miklubraut 76. —
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
„Ég get ekki neitað því að
mér sámar dálítið þessi árás
fyrir það eitt að henni er beint
gegn þeirri útgáfu okkar, sem
við höfum lagt einna mest kapp
á að gera lýtalausa, þó það
hafi að nokkru mistekizt, því
miður, eins og flest annað á
voru landi. Að loknum lestri
bréfs H. G. sýndi ég nokkrum
mönnum, bókbindurum, bóka-
vinum og öðru fólki, sem talið
er dómbært um bókband og
bókaskreytingu síðustu verk
Laxness og voru allir á einu
máli að þau bæru af flestu
þvi sem hér hefur verið gert.
Ég tel það væga ástæðu til
svo harðrar árásar á ákveðna
tilgreinda útgáfu að hafa feng-
ið í hendur eina gallaða bók,
sem vitað ert að forlagið skipt-
ir orðalaust. Fyrirlitningarorð
hans um léreftsband er byggt
á einhverjum misskilningi.
•
Þorir að fara
í samanburð
„Eitt sinn gerði einn þekktur
bóksali mér og öðrum ís-
lenzkum útgefendum tiltal
fyrir óvandaðar útgáfur. Ég
fletti til gamans og í varnar-
skyni 10 erlendum bókum í
búðinni hjá honum og reyndist
engin þeirra heldur gallalaus.
Það er nefnilega dálítið vanda-
samt, ekki hvað sízt í fjölda-
framleiðslu, að gera gallalaus-
an hlut. Ég bið þó H. G. og
aðra, sem þessar línur lesa,
að skilja ekki orð mín svo, að
við eigum ekkert ólært í þessu
efni, en ég þori óhræddur að
senda bækur HKL til útlanda
til samanburðar við þeirra
„Það er rétt, að bókaútgáfa
hér á landi er nokkuð einþæf.
Á því er erfitt að ráða bót. Mun
alltaf verða nauðsynlegt að afla
sér erlendra fagrita, listaverka-
bóka og bóka um þau efni,
sem fáa snertir. Helgafell (og
Bækur og ritföng) nota þau
litlu leyfi, sem búðimar fá til
kaupa á erlendum bókum og
blöðum, til þess að panta fyrir
þá, sem þurfa slíkra bóka við.
Hefur engum, sem óskað hefur
að panta hjá okkur nauðsyn-
legar fagbækur, orðabækur,
kennslubækur, visindarit eða
listaverkabækur, verið synjað
um þær frá Norðurlöndum, Eng
landi eða Frakklandi. Með þeim
litla gjaldeyri, sem veittur er
til bókakaupa er hinsvegar ekki
unnt að liggja með slíkar bækur
og ég tel þess ekki bráða þörf,
að flytja inn tímarit, sem í
engu öðru en litprentun „glans-
m>-nda“ taka fram þeim sem
hér eru framleidd. — Með þökk
fyrir birtinguna. —
Ragnar Jónsson.
★
' V/ÍjKW.r.W'|
Elnarsson og Zoega
Foldin er á leið til Englands frá
Palestínu. Lingestroom er í Am-
sterdam.
Riklsskip
Hekla var væntanleg til Rvíkur
snemma I morgun að austan og
norðan. Esja er í Rvík. Herðu-
breið fer frá Rvík um hádegi í
dag til Breiðafjarðar og Vest-
fjarða. Skjaldbreið er í Rvik. Þyr-
band á Húsavík, ungfrú Þórunn
Elíasdóttir og Eysteinn Sigurjóns-
son, bókari. Á sumardaginn fyrsta
voru gefin saman í hjónaband í
Laugarneskirkju af sr. Garðari
Svavarssyni, ungfrú Hulda Gígja
og Einar Elíasson, verzlunarmað-
ur. Heimili þeirra verður að Skipa
sundi 56. — Á sumardaginn fyrsta
voru gefin saman í Laugarnes-
kirkju af sr. Garðari Svavarssyni,
ungfrú Sigurveig Kristín Jónsdótt
ir og Bergur Vilhjálmsson, verka-
maður, Helmil! þeirra verður á
Kleppsveg 102.
Ferming
í Laugarneskirkju á morgun kl,
2. (Séra Garðar Svavarsson). —
Drengir: Árni Jakobsson, Nökkva-
vog 11. Bjarni Sæberg Þórarins-
son, Seljalandi. Bragi Eiriksson,
Kirkjuteig 21. Bragi Guðjónsson,
Hlíðarveg 40. Geir Hjartarson,
Sogamýri 14. Guðmundur Grims-
son, Meðalholti 11. Haukur Her-
vinsson, Skipasund 17. Kristján
Ingimarsson, Langholtsveg 54.
Oddgeir Þorsteinsson, Borgarholts-
braut 56B Pétur M. Bjarnason,
Fossvogsbr. 5. Reynir Hreiðar
Oddsson, Nökkvavog 37. Sigur-
björn Guðmundsson, Álfabrekku
v. Suðurlandsbraut. Sveinn Matt-
hiasson, Hjallaveg 36. Sigurður
Breiðfj. Bragason, Ártúni. Úlfar
Sigurbjörnsson, Sigtún 35. — Stúlk-
ur: Andrea Eiísabet Kristjánsdótt-
ir, Skúlagötu 54. Bjarney Val-
gerður Tryggvadóttir, Syðra-Lang-
holti. Brynja Kolbrún Ólafsdóttir,
Hjallaveg 4. Edda Maria Sigurðar-
dóttir, Laugaveg 159A. Elín Sig-
ríður Aðalsteinsdóttir, Laugaveg
159A. Erla Sigurjónsdóttir, Lang-
lioltsveg 104. Guðleif Gunnars-
dóttir, Skúlagötu 61. Gunna Ólafsi-
son, Laugarnescamp 70. Gyða
Gunnarsdóttir, Hátún35. Herdís
Jónsdóttir, Gelgjutanga 1. Ingi-
björg Helgadóttir, Litla-Hvammi,
Engjaveg. Jóna Auðbjörg Guðný
Jónsdóttir, Hraunteig 8. Kolbrún
Guðmundsdóttir, Skipasund 37.
Lilja Þórarinsdóttir, Miðtún SO.
María Ólöf Magnúsdóttir, Lang-
holtsveg 71. Sigrún Jóhannsdóttir,
Samtún 38. Sólveig Jónsdóttir,
Skúlagötu 78. Sæunn Kolbrún
Steingrímsdóttir, Efstasund 37.
Valdís Ólafsdóttir, Kirkjuteig 16.
Framhald á 7. síðu.