Þjóðviljinn - 26.04.1950, Blaðsíða 6
6
Miðvikudagur 26. apríl 1950.
ÞJÓÐVILJINN
Carson brosti fyrir Ijósmyndarana, en hann
var óvenju rjóður í kinnum.
„Hvernig ætti ég að geta svarað spurningum ?“
sagði hann eymdarlega. Eg er ekki farinn að
títa á piltinn. Hlifið mér.“
Leynilögreglumaðurinn var þögull og þungbú-
inn og gekk á undan gegnúm hópinn.
„Þeir halda þá að það sé Dimmock,“ sagði
Morton þegar dyrnar höfðu lokazt á eftir Car-
Eon og fylgdarmanni hans. „Hamingjan sanna.“
Og hann hljóp af stað niður götima í áttina
að næstu búð til að síma og flestir blaðamenn-
irnir fylgdu á eftir.
Barney var þegar búinn að tilkynna blaði sinu
þessa mikilvægu frétt. Hann settist í eina
tröppuna og fór að dekra við myndavélina sína.
Holdafar Seamans leyfði engin spretthlaup, svo
að hann settist hjá honum.
„Stundum," sagði hann um leið og hann hristi
sigarettu út úr pakka og stakk henni upp í sig,
„stundum fæ ég hreinasta viðbjóð á starfsorku
mannfólksins. Það minnir mig á litlu vatns-
bjöllurnar, sem sjást oft á stöðuvötnum. Þær
eru alltaf að flýta sér en komast ekkert áfram.“
Barney samþykkti. «
„Þú þarft engar áhyggjur að hafa,“ sagði
hann óvildarlaust. „Þú hefur sjálfur frá miklu
að segja.“
Seaman glotti.
„Mig rámar í að hafa veðjað við Carson í gær-
kvöldi."
„Þú gerðir það. Þú varst fullur.“
„Það hlýtur að vera. Jæja, hann fékk samning-
inn.“ Hann reykti þegjandi. „Okkar á milli sagt
finnst mér nóg um merkilegheitin í honum. Mér
líkar ekki allskostar við þessa alvitru sérfræð-
inga.“
Barney rumdi.
„Það er ekki annað en auðvirðileg afbrýði-
semi,“ sagði hann og hugsaði til Muriel.
„Alveg rétt. Auðvitað afbrýðisemi. En hann
sparar mér mikinn eril í þessu máli. Það er ef
til vill tiu dala virði.“
Þeir reyktu þegjandi um stund.
„Eg vildi að ég hefði eitthvað að drekka,“
sagði Seaman nokkru síðar og andvarpaði.
Barney samsinnti. Þeir biðu enn.
Carson fór inn í bakherbergið. Hann Var í vel
sniðnum fötum, skegg hans var snyrtilega greitt
og hárið féll í lokkum eins og venjulega. Hann
virtist undarlega utangátta í þessu skuggalega,
óvistlega herbergi. Stundarkorn sagði enginn
neitt. Meisner virti hann fyrir sér svipbrigða-
lausum, dökkum augum.
„Annaðhvort hafið þér gizkað mjög rétt á,“
sagði hann, „eða þér hafið fengið góðar upplýs-
ingar.“
Carson leit í áttina að rúminu. Rödd hans var
alvarleg.
,,Eg vildi óska að ég hefði á röngu að standa."
Meisner starði enn á hann. Síðan gekk hann
að rúminu og tók ábreiðuna burt. Carson elti
hann. Hann starði á hinn látna. Þeir biðu og
horfðu á hann. Hann sneri sér undan, fölur í
andliti.
„Guð minn góður,“ tautaði hann. Hann horfði
ráðþrota á þá. „Það gæti verið Dimmock,“ sagði
hann. „En ég er ekki viss. Það gæti enginn ver-
ið viss um það.“
Meisner breiddi aftur yfir líkið.
rjrj
FERÐ AAÆTLU N
fyrir m.s. „Gullfoss" sumarið 1950
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Frá Kaupmannah. laugard. kl. 12 á hád. 10. júní 24. júní 8. júlí 22. júlí 5. ágúrat 19. ágúst 2. sept. 16. sept. 30. sept. 14. okt.
Frá Leith, mánud. síðdegis 12. — 26. — 10. — 24. — 7. — 21. '— 4. — 18. — 2. okt. 16. —
Til Reykjavikur, fimmudagsmorgun .... 15. — 29. — 13. — 27. — 10. — 24. — 7. — 21. — 5. — 19. —
Frá Reykjavík, laugard. kl. 12 á hád. .. 17. — 1. júlí 15. — 29. — 12 26. — 9. — 23. — 7. — 21. —
Frá Leith, þriojud. síðdegis 20. — 4. — 18. — 1. ágúst 15. — 29. — 12. — 26. — 10. — 24. —
Til Kaupmannah., fimmtudagsmorgun . . 22. — 6. — 20. — 3. — 17. — 31. — 14.. — 28. — 12. — 29. —
FARGJÖLD
A. Fargjöld með m.s. „Gullfoss"
Á I. farrými:
Ibúð á C-þilfari f. 1 mann ................
Ibúð á C-þilfari f. 2 menn ................
íbúð á C-þilfari f. 3 menn ................
íbúð á C-þilfari f. 4 menn ................
I eins manns herb. á C- og D-þilfari ..
1 2ja m. herb. á B- og C-þilf. f. hv. farþ.
I 2ja og 3ja m. herb. á D-þilf. f. hv. farþ.
Á II. farrými:
I 2-4 m herb. á D- og E-þilf. f. hv. farþ.
Á III. farrými:
Á D-þi]fari f. hv. farþ....................
Milli Reykja-
vikur og Kaup-
mannahafnar
Kr. 2.0S0.00
— 3.200.00
— 1.480.00
— 5.760.00
— 1.360.00
— 1.280.00
— 1.200.00
800.00
560.00
Milli Reykja-
víkur og
Leith
Kr. 2.010.00
— 3.020.00
— 4.070.00
— 5.120.00
— 1.140.00
— 1.050.00
— 9.15.00
— 620.00
390.00
B. Fargjöld með m.s. „Dettifcss", „Goðafoss", „Lagarfoss":
Á I. farrými: í 2ja manna herb. f. hvern farþ Milli Reykja- víkur og Kaup- mannahafnar og annarra megin- landshafna Milli Reykja- víkur og Bretlands
Kr. 1.200.00 Kr. 915.00
C. Fargjöld með e.s, „Brúarfoss“ og „Fjallfoss":
Á I. farrými:
í 2ja manna herb. f. hvern farþ.
Milli Reykja-
ví'kur -og Kaup-
mannahafnar og
ahnarra megin-
landshafna
Kr. 988.00
Milli Reykja-
víkur. og
Bretlands
Kr. 850.00
D. Fargjöld milli Rvíkur og New York: með m.s. „Tröllafoss", „Dettifoss", „Goðafos :“ og „Lagarfoss“: I. farrými: I 2ja og 4ra m. herb. f. hv. farþ. Kr, 2,500,00
I ofangreindu fargjaldi er innifalinn fæðiskostnaður og þjónúsíugjald, en 3% söluskattur bætist við.
Teitið á móti farpöntunum og nánari upplýsingar veittar á skrifstofu vorri.
H.F, EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
(FARÞEGADEILD, 2. KÆÐ)