Þjóðviljinn - 15.07.1950, Blaðsíða 4
Þ ’J’ÖÐVTLjl K lí
Laugardagur 15. júlí 1950.
ÞlÓÐVlLIINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Biaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson,
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 60 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Fjárgæzla bæjarstjórnaríhaldsins
Upplýsingarnar um hinar gífurlegu yfirvinnugreiðsl-
ur, sem eiga sér stað í skriístofu borgarstjórans í Reykja-
yík, hafa a'ö vonum vakið almenna og verðskuldaða at-
hygli. Skikkanlegir íha.ldsmenn, sem hafa staðið í þeirri
trú að núverandi flokksforusta þeirra hefði tekið í arf
eitthvað af fyrirhyggju og að vissu leyti skiljanlegri
íhaldssemi Jóns Þorlákssonar, hafa vaknað við vondan
draum og fara ekki dult með að slíkir starfshættir sem
þessir séu ekki að þeirra skapi. Og allur almenningur í
bænum, sem er ný búirrn að kynnast því hver hlutur hon-
um er ætlaður í útsvarsgreiðslum til bæjarins á þessu ári,
telur sig eðlilega illa svikinn á fjárgæzlu fhaldsins, þegar
það upplýsist að einstökum og örfáum gæðingum þess í
bæjarskrifstofunum er hyglað með stórfelldum auka-
vinnugreiðslum úr bæjarsjóði, án þess að nokkur tilraun
sé gerð tii að skýra eða sýna fram á fyrir hvaða verk
þessar greiðslur eru inntar af hendi. Mikið af þessari yfir-
vinnu er unnið í næturvinnu og kemst þá kaupgjaldið
til gæðinganna upp undir 30 krónur um tímann. Enda
eru dæmi þess að greidd yfirvinna til starfsmanns á skrif-
stofu bæjarins nam töluvert hærri upphæð en föst
laun hans.
En þetta er fjármálasiðferði íhaldsmeirihlutans. Og
svo er Morgunblaöiö látið lofa íhaldsmeirihlutann fyrir
góða fjárstjórn Á sama tíma hækka útsvörin á bæjar-
búum um 5—6 milljónir króna frá fyrra ári og þótti
flestum alþýðumönnum sinn hlutur ærinn þá. Atvinna
fer minnkandi með hverjum mánuði sem líöur, horfurnar
verða æ ískyggilegri hjá allri alþýðu, ekki sízt íyrir bein-
ar aðgerðir þeirra þjóðfélagsafla, sem ráða bæjarstjórnar
meirihluta íhaldsins í Reykjavík. Útsvörin sem íhaldiö
hefur úthlutað launþegum og láglaunamönnum Reykja-
víkur mun því reynast þyngri baggi og erfiðari á ár en
verið hefur um langt skeið.
Mörg af stærstu og þýðingarmestu fyrirtækjum bæj-
arins eru rekin með sívaxandi halla og mun þó almenn-
ingi finnast hann greiða þá þjónustu fullu verði sem
í té er látin. íhaldið sér aðeins eitt úrræði: að velta hall-
anum af sukkinu yfir á heröar bæjarbúa í liækkandi
gjöldum. Hitt kemur því ekki til hugar, sem lægi þó
beinast við, að endurskoða reksturinn og framkvæma
auðveldar og nauðsynlegar sparnaðarráðstafanir. Bæjar-
búar telja sér áreiðanlega ekki skylt né bænum hag-
kvæmt að standa undir kostnaði við flokksstarf íhaldsins
eóa bera kostnað af heræfingum þess í Holstein þegar
óróleg samvizka ásækir brodda íhaldsins.
‘ En eignir bæjarins hafa aukizt s.l. ár um 13 millj.
segir Morgunblaðiö og er stórhrifið. Ætli göturnar og
aðrar slíkar eignir reynist ekki léttar í vasa þegar til
þarf að taka, þótt nauðsynlegar séu og sjálfsagðar. En
^versvegna gleymdi(?) Morgunblaðið að fræða Reykvík-
inga um skuldir bæjarins, sem nema við síðustu áramót
nærri 25 milljónum króna, og það eftir mesta fjárhags-
lega góðæri sem yfir bæinn og landið hefur gengið?
Éf til vill hefur Morgunblaðinu ekki þótt slík smáupphæð
þess virði að hennar væri getið.
, Fjárgæzla bæjarstjórnaríhaldsins er sannarlega ekki
ta fyrirmyndar. Og á henni þarf aö verða mikil breyting
til batnaðar eigi Reykjavíkurbær að sinna skyldum sín-
BÆJARPOSTIRINN
MESSCR Á MORGUN:
f' Dónfklrkjan.
UHjrXI. k, 1;l fh _ géra
Jón Auðuns. Frí-
kirkjan. Messað kl.
2 e.h. — Séra
Þorsteinn Björns*
son. Laugarneskirkja. Messa kl.
11 f.h. — Séra Garðar Svavars-
Hæríngur á förum
Það var útlit fyrir það í gær,
að það yrði vætusamt hér í
Reykjavík nú um helgina, Verði
veðurútlitið ekki betra í dag má
búast við að fleiri bæjarbúar
sitji heima um helgina en ver-
ið hefur að undanförnu. Það
er heldur ekki ósennilegt að
sumir hugsi sér að vera við-
staddir þá gleðilegu athöfn, sem
búið er að auglýsa að fari
fram í kvöld hér niðri á höfn.
Hæringur er á förum. Það á
að reyna að sigla honum út úr
höfninni á flóði í kvöld, og
hefur mönnum orðið tíðrætt
um það þessa dagana, hvort
takast muni að koma honum
heilu og höldnu út úr hafnar-
mynninu. Reykvíkingar eru
fegnir að losna við þetta tal-
andi tákn marsjallviðreisnar-
innar, en spurt er: Hvers eiga
Seyðfirðingar að gjalda?
Hæringur er
talandi dæmi....
En þó tónn sá, sem við
hafður er í umræðum manna
á milli um Hæring, sé gaman-
samur og brandaramir fjúki
á alla bóga, þá ætti það ekki að
verða til þess að menn gleymi,
hvílík alvara liggur á bakvið
það mál. Hæringur er meira
en stórgallað skip. Hann er
aðeins eitt dæmi þeirra afglapa
sem afturhaldið hefur framið
gegn íslenzkri þjóð á seinni ár-
um. En hann er talandi dæmi
um þá fjötra örbirgðar og úr-
ræðaleysis sem verið er að
hneppa Islendinga í.
sérstaklega ef góð viðtæki eru
ekki við höndina. Finnst stöð-
in oft ekki fyrr en langt er
komið í fréttirnar, og farið að
þylja upp samþykktir hrossa-
ræktarfélaga og þvíumlíkt.
Væri nauðsynlegt, að útvarpið
sendi út kynnistón í a. m. k.
5 mín. áður en dagskráin hefst,
svo að menn gætu notað þann
tíma til að finna stöðina“.
Bæjarpósturinn beinir þess-
um tilmælum til réttra hlutað-
eigenda.
tJtvarpið til
útlanda
„Hafnarstúdent, nýkominn
heim“ skrifar blaðinu svohljóð-
andi. — Enda þótt samgöng-
ur við Island og frá íslandi
séu orðnar greiðari en áður og
póstur fáist nú jafnvel oft í
viku að heiman, er það svo,
að við íslendingar sem erlend-
is dveljumst erum ætíð fíknir
í fréttir að heiman. Sunnudags-
útvarpið á stuttbylgjum til út-
landa er því velþegið, þó cfft
sé lítið á því að græða. „Hlut-
leysi“ útvarpsins gerir það að
verkum að það minnist oftast
nær ekkert á þau mál, sem allir
vilja foi-vitnast um. En annar
er sá hængur á þessu útvarpi,
að það heyrist heldur illa.
Verða menn stundum að leita
lengi áður en stöðin finnst,
Kíkissklp
Hékla er væntanleg til Reykja-
víkur um hádegi í dag frá Glas-
gow. Esja fór frá Akureyri í gær,
vestur um land til Akureyrar.
Herðubreið er í Reykjavík. Skjald
breið var á Skagaströnd í gær.
Þyrill fór frá Hvalfirði í gærmorg
un vestur og norður. Ármann var
í Vestmannaeyjum í gærkvöld.
Skipadeild SiS
Arnarfell er í Hamina í Finn-
landi. Fer þaðan sennilega í dag
til Kotka. Hvassafell er á leið til
Bremen.
Eimsklp
Brúarfoss fór frá Reykjavík
12.7. til Xriands, Rotterdam og
Kiel. Dettifoss er í Rotterdam,
fer þaðan 15.7. til Antwerpen.
Fjallfoss fór frá Uddevalla í Sví-
þjóð, 13.7. til Húsavíkur.
Goðafoss fer frá Hamborg 15.7.
til Svíþjóðar og Islands. Gullfoss
fer frá Reykjavík kl. 12.00 í dag
15.7. til Leith og Kaupmannahafn-
ar. Lagarfoss kom til N. Y. 7. 7.
frá Reykjavík. Selfoss er á Siglu-
firði. Tröllafoss er í Reykjavík.
Vatnajökull fór frá Reykjavík 7.7.
til N.Y.
Kaldalónsþáttur:
a) Erindi um Sig-
valda Kaldalóns
tónskáld (eftir Arn
grím Fr. Bjarna-
son ritstjóra. —
Þulurflytur). b) Sönglög eftir Sig-
valda Kaldalóns. 21.10 Upplestur:
„Sálsjúklingur látinn laus til
reynslu," smásaga eftir Svein
Bergsveinsson (höfundur les).
21.40 Danslög. 22.05 Danslög. 24.00
Dagskrárlok.
Loftleiðir: \
Innanlandsf lug:
X dag er áætlað að
fljúga til Vestm,-
eyja kl. 13.30, til
Akureyrar kl. 15.30.
Auk þess til Xsafjarðar, Patreksfj.
og Hólmavikur. Á morgun er á-
ætlað að fljúga til Vestmannaeyja
kl. 13.30. Utanlandsflug: Geysir
er í Grænlandsflugi.
Næturlæknlr er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum, simi
5030.
I
Nýlega opinbaruðu
trúlofun sína ung-
frú Lára Hansdótt
jr, Seljavegi 3 A
og Hafsteinn Sig-
iv urðsson, Mímisv. 4.
— Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Málfríður Guðsteins-
dóttir, Laugaveg 34 og Ólafur Dið
riksson, Blönduhlíð 26.
Nýlega hefur verið undirritað
samkomulag um afnám vegabréfs-
áritana milli Xslands og Finnlands.
Samkomulagið mun ganga í
gildi hinn 15. þ.m.
(Frétt frá utanríkisráðu-
neytinu). )
^ X gær voru
gefin saman í
í hjónaband af
* sr. Jóni Auðuns
ungfrú Gunn-
* hildur Jóhanns-
dóttir, verzlunarmær og Björn
Mekkinósson, verzlunarmaður.
Heimili þeirra verður á Lauga*
vegi 33.
MæðrafélagiS efnir til skemmti
ferðar að Gullfossi, Geysi og Skál
holti á morgun (sunnudag). Uppl.
í simum 7808 og 5573.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki, sími 1616.
Húsmæðrafélag Beykjavíkur fer
skemmtiferð mánudaginn 17. júlí.
Ekið verður upp Hreppa að Gull-
fossi og um Þingvelli til baka.
Upplýsingar i símum 5972, 4190,
81449 og 4442.
vd.
IÞémurimn
um við íbúana, þegar auðvaldskreppan skellur yfir af
öllum þunga. Þá munu rísa hátt kröfur almennings um
að fúinn sé skorinn burt. En það mun reynast örðugt
viðfangs nema orsökin sjálf sé brott numin: Völd hinna
fáu og ríku yfir bæjarfélaginu, sem birtast í myndum
fhaldsmeirihlutans í tæjarstjóm Reykjavíkur.
um 30. marz
i
Tveir menn hafa fengið mig
dæmdan í meiðyrðamáli vegna
þess að þeirra var minnzt i
Þjóðviljanum í sambandi við
réttarhöldin eftir 30. marz, og
mætti ætla af frásögn Morgun-
blaðsins að hér hafi Þjóðvilj-
inn hlotið skell.
Lítilþægir gerast þeir, seku
mennirnir frá 30. marz! Morg-
unblaðsmenn hafa sjálfir borið
fram það álit innan Blaða-
mannafélags Islands, að meið-
yrðalöggjöfin íslenzka sé skerð
ing á prentfrelsi í landinu, og
annar Morgunblaðsritstjórinn.
vann meira að segja að því
fyrir félagið að semja ákveðn-
ar tillögur fer ætlað var að
sníða af löggjöfinni verstu van-
kantana. Svo er það talin stór-
frétt að tekizt hafi að dæma
ritstjóra Þjóðviljans eftir þess
ari löggjöf, — og það sem
spaugilegast er: sagt frá dóm-
unum með orðalagi sem sjálf-
sagt gæti varðað meiðyrðadómi.
Hitt vita þeir Morgunblaðs-
menn að dómurinn um 30. marz
og „réttarhöldin“ vegna þess
dags verður ekki kveðinn upp
sem meiðyrðadómur. Dómurinn
um 30. marz verður einungis
kveðinn upp af Islandssögunni.
Þjóðviljinn óttast ekki þann
dóm.
S. G. ,