Þjóðviljinn - 15.07.1950, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 15.07.1950, Blaðsíða 7
0&augard*guij» • 15.. júli^ , lg50. WlSSHiM ■ A M* .Ma - TILKYNNING um stóreignaskatt frá Skattstofu Reykjavíkur MeS skírskotun til bráðabirgðalaga nr. 68/1950 og eftir ákvörðun fjárrnálaráðuneytisins eru birt eftirfar- andi fyrirmæli varðandi álagningu stóreignaskatts samkvæmt lögum um gengisskráningu o.fl. nr. 22/1950, sbr. reglugerð um stóreignaskatt nr. 133/1950: 1. Samkvæmt ákvæðum 1 2. tölulið 12. gr. laga nr. 22/1950, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 133/1950, skal við ákvöröun stóreignaskatts telja skip og báta til eignar með vátryggingarverði, miöað við 31. des. 1949, nema eðlilegt söluverð sé talið annað að dómi sérstakrar matsnefndar, er skipuð verður sam- kvæmt hinni tilvitnuðu reglugérðargrein. Þeir eigendur skipa og báta, hvar sem er á land- inu, er óska þess að umrædd matsnefnd framkvæmi mat á þessum eignum þeirra í stað þess að fylgt sé vátryggingarverði, skulu hafa tilkynnt um það til hlutaðeigandi yfirskattanefndar eða skattstjóra í síðasta lagi fyrir 1. ágúst næstk., að öðrum kosti verður slíkri beiðni ekki sinnt. 2. í 3. tölulið 12. gr. laga nr. 22/1950, sbr. 7. og 9. gr. reglugerðar nr. 133/1950, er ákveðið að innstæður er skattgreiðendur kunna að eiga erlendis, eða aðr- ar slíkar erlendar eignahlutdeildir, miðað við 31. des. 1949, skuli taldar til eignar með skráðu kaup- gengi 20. marz síðastl., að því leyti sem þær eru þá óeyddar. Hafi umræddar innstæður rýrnað á þessu tímabili, þ.e. frá því síðasta skattframtal var gert tiT 19. marz sl., ber að gera hlutaðeigandi yfir- skattanefnd eða skattstjóra grein fyrir því í síðasta : ■ hvers einstaks eiganda miðað viö 31. des. 1949, skulu hafa afhcnt þessar skrár í síðasta lagi fyrir 1. ágúst næstk., að öðrum kosti fer skiptingin á eignum félaganna fram eftir áætlun. 8. Þau sameignaríélög verða talin að hafa skilað ófullnægjandi framtali, sem eigi hafa fyrir 1. ágúst næstk. gert hlutaðeigandi yfirskattanefndum eða skattstjórum fullnægjandi grein fyrir hvernig eignahlutföllum milli eigenda og ábyrgðarskiptingu er háttað, og sé þessum gögnum ábótavant, verða eignir eigenda áætlaðar. 9. Hverskonar innkaupa-, framleiðslu- eða sölusam- bönd, eða önnur sambönd eöa samlög einstaklinga, félaga eða fyrirtækja, þar sem skattskyldir aöilar kunna að eiga einhverjar eignarhlutdeildir, eru skyld til aö láta skattyfirvöldum í té rekstrar- og efnahagsreikninga sína ásamt skrá yfir eigendur sína og þátttakendur, með tilgreindum eignarhlut- deildum eða eignarhlutföllum miðað við 31. des. 1949. Sé þessari skyldu ekki fullnægt í síðasta lagi fyrir 1. ágúst næstkomandi, verða eignahlutdeild- ir þessara áætlaðar hjá hverjum ein^tökum. 10. Eignir félaga cg stofnana, sem njóta skattfrelsis samkvæmt sérstökum lögum, eru skattskyldar sam- kvæmt 4. málsgr. laga nr. 22/1950. Eru því slíkir aðilar krafðir um að senda skattstofu Reykjavíkur rekstrar- og efnahagsreikninga sina, ásamt skrá um eigendur og eignarhluta hvers einstaks, í síð- asta lagi fyrir 1/ágúst næstk. heild reiknuð til eignar eftir skráðu kaupgengi 20. marz síðastl. 3. í 4. tölulið laga nr. 22/1950, sbr. 8. og 9. gr. reglu- gerðar nr. 133/1950, er heimilað að skuldir í erlend- um gjaldeyri, sem skattgreiðandi skuldar erlendis, að því leyti scm þær eru ógreiddar 19. marz síðastl., skuli reiknaðar samkvæmt sölugengi 20. marz síðastl. Þetta nær þó aðeins til skulda sem stofnað hefur verið til vegna innflutnings á vörum eða skipum með leyfi gjaldeyrisyfirvalda, og að því er vörur snertir bundið því skilyrði að sönnur liggi fyrir um að útsöluverð vörunnar hafi verið ákveðið fyrir 19. marz 1950 og útsöluveröið miðað við gengi fyrir þann tíma. Öllum sem hér eiga hlut að máli ber því að láta 12. Til þess að samræmi verði komiö á í eignamati í té skrá um erlendar skuldir sínar miðað við 19. marz síðastl., ásamt greinargerð fyrir því aö þeir fullnægi þeim skilyrðum er að ofan greinir. Skulu gögn þessi komin í hendur hlutaðeigandi yfirskatta- nefnda eöa skattstjóra í síðasta lagi fyrir 1. ágúst næstk., ella mega aðilar vænta þess aö njóta eigi þeirrar ívilnunar, sem hér greinir. 4. Ákveöið hefur verið að þeim einstaklingum og fé- lögum, hvar sem er á landinu, sem eigi hafa skilaö1 framtali til tekju- og eignarskatts 1950, skuli gefinn 13. Aö gefnu tilefni er bent á, aö viö álagningu stór- kostur á að skila skattframtali vegna yfirvofandi stóreignaskatts. Veröi þessi sérstaka framtalsheim- ild notuð og framtölin ásamt tilheyrandi reiknings- skilum komin til hlutaðeigandi yfirskattanefndar eða skattstjóra fyrir 1. ágúst næstk., verður fallið frá sérstökum viöurlögum stóreignaskattslaga vegna framtalsvanrækslu, en að öðrum kosti viður- lögum beitt að fullu. 5. Þeim skattgreiðendum er eigi hafa enn fullnægt þeirri skyldu að láta fylgja skattframtali sínu full- nægjandi skrár yfir útistandandi skuldir og verð- bréfaeignir og skuldir við skuldheimtumenn, þar með taldar skuldir við handhafa og lánsstofnanir, er gefinn kostur á að’ senda þessar skrár i siðasta lagi fyrir 1. ágúst næstkomandi ella veröa framtöl hlutaöeigenda talin ógild eöa ófullnægjandi viö ákvörðun stóreignaskatts. 6. Þeim hlutafélögum, sem eigi hafa staðið skil á fullkomnum skrám yfir hluthafa sína miðað við 31. des. 1949, er gefinn lokafrestur til að skila þessum skrám til hlutaöeigandi yfirskattanefndar eða skattstjóra, í síðasta lagi 1. ágúst næstk., ella verða framtöl slíkra félaga eigi talin fullgild til stóreigna- skatts, og sérstckum aöferðum beitt viö ákvörðun á eignum og eignaskipting'u milli hluthafanna. 7. Kaupfélög. samvinnufélög og önnur félög með óskiptanlega sameignarsjóöi, sem ekki hafa látið skattyfirvöldum í té skrá um stofnsjóðseigendur sína eöa meölimi, með tilgreindri stofnsjóðseign lagi fyrir 1. ágúst næstk., ella verður innstæðan 1 11. Þar sem víðsvegar á landinu er allmargt félaga og fyrirtækja, sem talin eru hætt störfum, en hafa þó eigi gefið skattyfirvöldum lokaskilagTeinar um end- anlega upplausn, og eigi verið afmáð úr firma- og félagaskrá umdæmisins, er hér með skorað á þá aðila, sem síðast eru lögformlega tilkynntir fyrir- svarsmenn slíkra félaga og fyrirtækja, hvar sem er á landinu, aö gera hlutaöeigandi yfirskattanefnd eöa skattstjóra greinargerð þetta varðandi, í síð- asta lagi fyrir 1. ágúst næstkomandi. Að öörum kosti geta þessir aðilar átt á hættu að sæta eignaá- ætlun og viðurlögum, þar sem vitaö er um sum slíkra félaga og fyrirtækja aö þau eiga einhverjar óráöstafaðar eignir er til skipta eiga aö koma við álagningu stóreignaskatts. Söfnln v Landsbókasafnlð er opið kl., 10 —12, 1—7 og 8—10 alla virka daga, nema laugardaga, þá kl. 10—12 og 1—7. — Þjóðskjalasaín- ið kl. 2—7 alla virka daga. — Þjóðminjasafnið kl. 1—3 þriðju- daga, fimmtudaga og sunnudaga. — NáttúrugripasaJnið er opið sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju- daga og fimmtudaga kl. 2—3. — Listasafn Einars Jónssonar kU 1.30—3.30 á sunnudögum. — Bæj- arbókasafnið kl. 10—10 alla virka daga nema laugardaga kl. 1—i Bólusetning gegn barnavelki. Pöntunum veitt móttaka í síma 2781 kl. 10—12 f. h. fyrsta þriðju- dag hvers mánaöar. Fólk er á- minnt um að láta bólusetja börn sín. Minningarspjöld dvalarheimilis aldraðra sjómanna fást á eftir- töldum stöðum í Reykjavík, á skrifstofu Fulltrúaráðs sjómanna- dagsins í Edduhúsinu við Skugga- sund, opið kl. 11—12 og 16—17, sími 80788, og i bókaverzlunum Helgafells í Aðalstræti og Lauga- veg 100. 1 Hafnarfirði hjá V. Long. rekstrartækja og annars lausafjár víðsvegár á land- inu, sbr. 6. og 19. gr. reglugeröar nr. 133/1950, munu yfirskattanefndir og skattstjórar á hverjum stað láta öllum fyrirtækjum í té sérstakar fyrning- arskýrslur til útfyllingar. Er nauðsyn á að skýrslur þessar séu útfærðar eins og fyrir'er mælt og þeim skilað til hlutaöeigandi yfirskat.tanefndar eða skatt- stjóra, í síðasta lagi fyrir 10. ágúst næstk., ella verður eignarmatið áætlað. eignaskatts eru eignir einstaklinga og félaga á- kveðnar á óvenjulegan hátt, fasteignir meö þre- földu til sexföldu fasteig-namati, skip og bátar með vátryggingarveröi eöa áætluðu söluverði, en annaö lausafé og rekstrartæki er lögheimilt að meta hér til eignar með áætluðu söluverði, og hefur ekki enn verið t?kin ákvörðun um það af hálfu skatt- yfirvalda hvaða matshækkanir þar verði geröar. Þegar eignir einstaklinga og __ félaga hafa verið margfaldaðar eöa hækkaðar samkvæmt framan- sögðu, er eignum hvers félags. að meðtöldum hækk- uðum eignarhlutdeildum þess í öðrum félögum, bætt ofan á eignir einstaklinga. Þetta er tekið fram til að vara við þeirri hættu, að einhverjir telji sig fyrirfram örugga um að heildareignir þeirra nemi ekki það’ miklu að nái stóreignaskatti, hirði því ekki um að neyta þeirra réttinda eða fullnægja þeim skyldum, sem hér er ákveðið um, en komi þó síðar til aö greiða stór- eignaskatt og vera háöir viöurlögum hans. Enn- fremur til aövönmar einstökum félögum, er kunna aö skjóta sér undan hér ákveönum skyldum 1 þeirri trú, aö hluthafar þeirra eöa eigendur komi ekki til < greina í stóreignaskatti, en geta þar meö bakað sér ábyrgö cg viöurlög. Þetta er hér brýnt fyrir öllum aðilum og verður skoöaö af hálfu skattayfirvalda sem nógsamieg viðvörun, hvaö sem á eftir kemur. SKATTSTJÓRINN í REYKJAVÍK MorgunbítVÍS og . i friðurinn Framh. af 6. síðu. vilji láta beita kjarnorku- sprengjum og fremja múgmorð, og að það sé alþjóðleg glæpa- starfsemi að krefjast frioar. Og ég vil segja meira: aldrei hefur Morgunblaðið svívirt al- menna fylgjendur sína jafn freklega og með því að ætia þeim það að þeir vilji láta fremja múgmorð, að þeir séu alþjóðlegir glæpamenn ef' þeir vilji að fricur haldist í heim- inum. Eg get sagt Morgunblað- inu það í fullri meiningu að al- mennir Sjálfstæðismenn vilja frið í heiminum, og þeir eru því að dómi Morgunblaðsins al- þjóðlegir glæpamenn. Það er ónotalegt að vakna við slík skrif í blaði síns eigin flokks, flokksins sem maður hefur fylgt og treyst og barizt fyrir. Við Sjálfstæðismenn höf- um haldið að við þekktum Val- ■tý Stefánsson, ritstjóra' Mörg- unblaðsins, haldið að við þekki- um Ivar Guðmundsson höfund Daglega lífsins, þetta' góðmót- lega feita flón, og vanizt hon- um í bænum eins og t. d. Óla Maggadon hér áður fyrr, og við höfum skilio og fyrirgefio stima mýkt hans og dálæti á fínu fólki, en þessi skrif skiljum við ekki á sama hátt og fyrirgefum ekki, og okkur hefur aldrei dottið í hug að þessir menn vildu beita múgmorðstækjum, að þeir vildu heimsstrlð. Þessir menn hafa mcð skrif- um sínum í Morgunblaðinu sett svartan blett á okkur Sjálfstæð ismenn..Þann blett að við t.elj- um það glæp að heimta kjarn- orkusprengjuna bannaða, að við teljum það glæp að lcrefjast friðar í heiminum. Það er beinlínis skylda okkar Sjálfstæðismanna að þvo þenn- an blett af okkur. Það verð- ur ekki gert með öðru móti en að við sýnum í verki ao við viljum frið, að við erum á móti múgmorðsvopnum, og það ger- um við með því að undirrita Stokkhólmsávarpið. 12. júlí 1950 Gamall Vesturbæingur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.