Þjóðviljinn - 02.08.1950, Side 4

Þjóðviljinn - 02.08.1950, Side 4
■nsaw ÞJ'ÓÐVILJINS ÞlÓÐVILIINN Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíali3tafIokkurinn. Bitstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, á.5. Fréttaritstjóri: Jón Bjamason. Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. RitBtjóra, afgreiðsla, augiýsingar, prentsmiðja: Skóiavörðu- stig 19. — Simi 7500 (þrjár línur). Aakriftarverð: kr. 14.00 & mán. — Lausasöluverð 60 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans li. f. „Flokkur allra stéttau Sjálfstæðisflokkurinn er sem kunnugt er „flokkur allra stétta“. Hann er ekki síst „flokkur verkalýðsins", eins og komizt er að orði í Holsteini á tyllidögum. Þessi „flokk- um allra stétta“ sem fyrst og fremst er þó „flokkur verka- lýðsins“ á einnig nokkra fulltrúa í áhrifastöðum í verka- lýðshreyfingunni. Flestir þessir menn hafa fengið völd sín á síðustu árum fyrir atbeina Alþýðuflokksins, sem þannig hefur lagt fram getu sína til að auðmannaþjón- arnir í Holsteini gætu þeim mun meiri áherzlu lagt á hin fögru kjörorð sín. Einn þessara manna er Böðvar Steinþórsson, formað'- ur sambands matreiðslu- og framreiösiumanna. Hann hefur verið sauðtryggur Sjálfstæðismaður, frambjóðandi flokksins, ræðumaður í Holsteini 1. maí og einn helzti rit- höfundur á heimdallarsíðu Morgunblaðsins. Hefur eng- inn dregið flokkshollustu hans í efa. Böðvar Steinþórsson hefur nú forustu fyrir verkfalli Sambands matreiðslu- og framreiðslumanna. Hafði sam- bandið undirbúið kjarabaráttu sína um margra mánaða skeið og reynt eftir megni að koma á friðsamlegri lausn. Þær tilraunir báru þó engan árangur, þótt launakjörin á kaupskipaflotanum séu svo hörmuleg að engin tök séu á að lifa mannsæmandi lífi af þeim. Var því hafið verk- fall um mánaðamótin. Nú skyldi maður ætla að Böövar Steinþórsson hefði fengið öflugan stuðning hjá flokki sínum, „flokki allra stétta“ sem fyrst og fremst er „flokkur verkalýðsins11. En því fer víðs fjarri. Morgunblaðið birti s.I. sunnudag grein um verkfallið með stórri fyrirsögn: „Verkfall matsveina og þjóna ógnar atvinnulífi þjóðarinnar. Hætt við að olíuflutningai til síldveiðiflotans stöðvi3t.“ Síðan segir svo m. a. í greininni: „Verkfali 34 faglærðra matsveina og þjóna sem skella mun á á miðnætti aðra nótí ógnar nú um hábjargræðistímann öllu atvinnulífi þjóðarinnar. Kröfurnar sem félag þeirra gerir mun vera svo miklar að skipafélögin telja þær með öllu óaðgengilegar fyrir skipa- félögin og af þeim sökum er hætta á að allur verzlunar- flotinn stöðvist“. Þegar Böðvar Steinþórsson svaraði þessari hvatvíslegu árás í hógværri grein og leiðrétti verstu stórlygarnar var Morgunblaðið allt í einu lokað þessum ágæta flokksmanni. Afstaða Vísis er hin sama, glórulausar árásir á félag það sem Böðvar Steinþórsson hefur forustu fyrir. Það er alkunna að „kommúnistiísk verkalýðsfélög heyja baráttu sína samkvæmt fyrirskipunum frá Moskvu og telja það aðalhlutverk sitt að „ógna atvinnulífi þjóð- arinnar". Hafa þau vondu verk einmitt verið aðalrök- semdin fyrir því að verkamenn ættu að fela Sjálfstæöis- mönnum forustuna; þeir myndu eingöngu hugsa um hagsmuni launþega. En hvað þá um Böðvar Steinþórs- son? Er hann þá svikari við Stjálfstæðisstefnuna, erind- reki Moskvuvaldsins, kommúnisti í sauðargæru? Já, Böðvar Steinþórsson er svikari. Milljónararnir sem eiga Sjálfstæðisflokkinn ætlast ekki til þess að þjónar þeirra í verkalýðshreyfingunni heyi kjarabaráttu. Hlut- verk þeirra er þvert á móti að koma í veg fyrir kjara- baráttu, halda lífskjörunum niðri, tryggja auðmanna- stéttinni gróða og öryggi. Því hlutverki hefur Böðvar Steinþórsson brugðizt, nauðugur eða viljugur. Því fær hann nú óþvegnar sendingar í flokksblöðum sínum. En skyldu þeir verða margir sem trúa á áróðurinn um „fiokk alira stétta“ sem um fram allt sé „flokkur verkalýðsins“ eftir þessa ágætu kennslu í raun. Þakkir til S.Í.B.S. S.Í.B.S. hefur á þessu sumri aukið nýjum þætti í sitt ágæta starf, en sú nýbreytni var uþp- tekin, að í hálfsmánaðar sum- arleyfi vistmanua að Reykja- lundi var fyrverandi berkla- sjúklingum gefinn kostur á að dveljast þar sér til hvíldar og hressingar. Við, sem fyrir því happi urðum, viljum með þess- um línum færa lækni staðarins, herra Oddi Ólafssyni, yfir- hjúkrunarkommnni, fröken Val gerði Helgadóttur, vistmönnum, 3tarfsfólki og öðrum, sem að sumardvöl þessari stóðu, okkar alúðlegustu þakkir fyrir hug- kvæmni, góðvild og ágætan að- búnað. Megi Reykjalundur blómgast og blessast og starf S.I.B.S. upp skera eins og til er sáð með hugsjónaríku og dáðmiklu starfi og trú á inanngöfgi og líknarlund. Undir kjörorðinu: Styðjum sjúka tii sjáifbjargar, hafa á undanförnum árum ver- ið unnin þvínær einstæð afrek. Kærar þakkir. Sumargestir í Reykjalundi Nýja frímerkjaútgáfan. ÖIi skrifar bæjarpóstinum: „I „Vísi“ síðastliðinn laugar- dag kom fregu um undirbúning að útgáfu nýrra frímerkja. Seg ir svo í fréttinni: „Hin nýju frímerki sýna ýmsar greiuar af atvinnulífi landsmanna, svo sem nýtízku togara, Vest- mannaeyjahöfn, fjárhóp og dráttarvél við plægiugu." ★ ArðsamastS atvimrn- vegnrinn. Það vekur sannariega undrun hvað forsvarsmenn og eigendur þeirrar „atvinuugreinar,“ sem mestan arðinn ber, eru hógvær ir og vilja lítið láta bera á sinni starfsemi. Eftir öll þessi blóma ár heildsalanna, sem virðast nú hvað stæltastir á sama tíma sem aðrar atvinnugreinar eru í hnignun, hefði maður getað bú- izt við að fá minnsta kosti eina útgáfu af cóca-cólafrímerkjum eða heildsalafrímerkjum með mynd af pattaralegum heildsala eins og Ásbirni Ólafssyni eða harð pólitískum heiidsala eins og Coca-cola-birni. Venjulegt yfirlætisleysi. Engin mun bera brigður á að heUdverzlun (og reyndar alls kyns önnur verzlun) sé sú at- vinnugrein, sem með mestum blóma stendur. Hvers vegna ekki að sýna þetta á frímerki? Hví þessa hógværð um blóm- legustu atvinnugreinina ? Úr því verið er að gera frí- merkin að táknmyndum fyrir atvinnugreinarnar, þá nær ekki nokkurri átt að gleyma heild- verzlun. Þess vegna er tUlaga vor þessi: Gefiu 3kulu út fri- merki með mynd af feitum heild sala sitjandi á bakinu á horuð- um útgerðarmanni. ÓU.“ ★ Hekla til Kóreu! Sem betur fer eru nú horfur á að einuig verði um íslenzkt framlag að ræða í Kóreu. Það er Loftleiða-flugvélin Hekla sem mun vera á förum þangað austur til að annast birgðaflug tU hinna fótfráu Bandaríkja- manua ef þeir verða þá ekki hlaupnir út í sjó. Málavextir eru þeir að Hekla á senn að fara í alisherjarendurskoðun í Bandaríkjunum og kostar hún mikið fé. Loftleiðir munu hvorki hafa féð né gjaldeyr- inn, og því hefur sá kostur ver- ið tekinn að leigja bandarísku félagi vélina um 10 mánaða skeið til þess að fá upp í kostn aðinn við endurskoðunina. Bandaríska félagið mun hins vegar ætla að nota vélina í Kór eu. Hið íslenzka framlag er þannig harla einkennilega til komið og ber ekki vott um mikla reisn, frekar en aspirín- sendingar Dananna. Þó mun Bjarni geta hælt sér af þessu stríðsframíagi sínu í skorti á öðru meira. Miðvikudagur 2. ágúst 1950. I . Hjónunum Hönnu J / Aðalsteinsdóttur og f/ /jj ~ Fannar Marteins- ^ syni, Skipasundi 53 \.sW fæddist 16 marka sonur síðast liðínn sunnudag. — Áttræður er i dag Sigurður Þórðarson Njarðvík, Grund við Múlaveg. Sigurður er gamall og þekktur nótabassi á síldveiðiskipum. Fastir liðir eins og venjulega. — Kl. 19. 30 Tónl.: Óperu lög (plötur). 20.30 Útvarpssagan: „Ketillinn“ eftir William Heinsen; XVII. (Vilhjálm ur S. Vilhjálmsson rithöfundur). 21.00 Tónleikar: „Gayaneh", ball- ettmúsik eftir Khachaturian (plöt- ur). 21.25 Staðir og leiðir: Kring- um Lagarfljót (Ragnar Jóhann- esson skólastjóri.). 21.45 Danslög (plötur). 22.00 Fréttir og veður- fregnir. 22.10 Danslög (plötur). 22.30 Dagskrárlok. Pálmi fariim vestnr Vestur-íslendingar efna til hátíðar að Gimli mánudaginn 7. ágúst n. k. til að minnast 75 ára landnáms Islendinga í Manitoba. Bauð hátíðarnefndin ríkisstjórninni að senda fulltrúa frá Islandi á hátíðina og vald- ist Pálmi Hannesson, rektor, til fararinnar. Fór Pálmj og kona hans flugleiðis vestur um haf í gærkvöld. Afgreiðsla Laxfoss hefur sima 6420 og 80966. Fimskip Brúarfoss er í Kiel. Dettifoss fór frá Hafnárfirði 28. júlí til Irland3 og Rotterdam. Fjallfoss fór frá Reykjavík 30. júlí vestur og norður. Goðafoss fór frá Húsa- vík 30. júlí til Rotterdam og Sví- þjóðar. Gullfoss fór frá Leith i gær til Khafnar. Lagarfoss er í Reykjavik. Selfoss er væntanlega x Lysekil í Sviþjóð. Tröllafoss kom til NevvYork 28. júli frá Rvik. rSÍÍÖSV Ríkisskip Ilekla er i Thorshavn í Faer- eyjum og fer þaðan kl. 18 í dag til Glasgow. Ksja verður væntan- lega á Akureyri i dag á leið tii -Þórshafnar. Herðubreið er i Rvik. Skjaldbreið var á Skagaströnd i gærkvöld. Þyrill er í Reykjavik. Ármann fór frá Rcykjavík í gær- kvöld áleiðis til Vestmannaeyja. Sklpadeild S. 1. S. Arnarfell er í Reykjavík. — Hvassafell losar sement á Vest- fjörðum. Erlend mynt — Sölugengi. Bandaríkjadollar kr. 16.32 Sterlingspund — 45.70 Kanadadollar — 14.84 Danskar kr. 100 — 236.30 Norskar kr. 100 — 228,50 Sænskar kr. 100 — 315,50 Finnsk mörk 100 — 7,09 Franskir frankar 1000 — 46.63 Belgiskir frankar 100 — 32.67 Svissn. frankar 100 — 373.70 Tékkneskar kr. 100 — 32.64 HoU. gyllirii 100 — 429. W FAKFCGLAR Ferðir um næstu helgi verða. 1. Gönguferð uni Brttarár- skörð. Ekið að Úthlíð í Biskups tungum og gengið þaðan um Brúarskörð, Rótarsand, Hlöðu- velli, á Hlöðufell (1188 m) og Skjaldbreið (1160 m.) og um Eyfirðingaveg á Hofmanna- flöt. 2. Ferð um Borgarfjörð. Ek- in verður leiðin; Þverárhlíð, Húsafellsskógur, Lundarreykja- dalur, Uxahryggir, Þingvellir, Reykjavík. Allar upplýsingar á Stefáns Kaffi Bergstst. 7 kl. 9—10 í kvöld. Meisfaramótið Framhald af 8. síðu. því búizt. Margir þeir, sem skráðir voru til leiks mættu ekki til keppninnar, og var því ekki keppt í einni greininni 5,000 m hlaupi, þar sem aðeins einu mætti. Það bætti nokkuð úr skák að Gunnar Huseby, sem ekki var skráður til keppninu- ar, mætti. Hins vegar vantaði Hauk Clausen og Torfa Bryn- geirsson. Gunnar Huseby náði góðum árangri, einnig Jóel Sig- urðsson, Öm Clausen og Pétur Einarsson. Reykjavíkurmeista- arar urðu þessir í gær. (íslands met í svigum): 400 m grinda- hlaup: Ingl Þorsteinsson KR 56,5 (56,1). Kúluvarp: Gunnar Huseby KR 16,18 (16,41). Lang stökk: örn Clausen IR 6,95 (7,24). Spjótkast: Jóel Sigurðs- son ÍR 61,90 (66,99). 200 m hl.: Ásmundur Bjarnason KR 22,0 (21,5). 800 m hlaup: Pétur Ein. arsson IR 1,56,3 (1,54,0). Há- stökk: örn Clausen IR 1,83

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.