Þjóðviljinn - 24.08.1950, Qupperneq 1
15. árgangur.
Fimmtudagur 24. ágúst 1950.
186. tölublað.
Flokksfclagar, komið í skrif-
stofu Sósíalistafélagsins, Þórs-
götu 1 og greiðið flokksgjöld
ykkar. Skrifstofan er opin dag-
lega frá kl. 10 f.h. til tl. 7 e.h.
Stjórnin
Ágæt frammistaða Islend-
r
1
2.
inga á EM-motinu
Briissel í n*er
i 4x100 á eftir Rússum,
Haukur, Pirmbjörn og Gu<5-
mundur komusf i milliriSla
Evrópumeistaramótið í frjálsum íþróttum hófst í
gær á Heyselieikvanginum í Bruxelles. Um 25 þúsund
áhorfendur voru komnir til að horfa á um 500 keppendur
frá 22 löndrnn. Boudoin ríkiserfingi setti mótið. Rétt áður
en keppni skyldi hefjast í fyrstu greininni 110 m grinda-
hlaupi, gerði þrumuveður og úrhellisrigningu, svo að
fresta varð keppninni um 15 mínútur.
íslendingarnir sem kepptu í gær stóðu sig
framar beztu vonum, Haukur, Finnbjörn og Guð-
mundur komust allir í milliriðlakeppni, enníremur
íslenzka sveitin í 4x100 metra hlaupi.
Finnbjöni og Haukur urðu
báðir aðrir í riðlum sínum,
hlupu báðir á 11,0. Bezta tíma
í 100 metrum hafði Bretinn
Grieve 10,6. Guðmundur keppti
aðeins við annan mann í 400
metrum og hljóp á 49,8, Eng-
lendingurinn Pugh var hinn á
49,8. Bezta tíma í 400 m hafði
Wollbrant Svíþjóð 48,8. Pét-
ur Einarsson varð sjötti í sínum
riðli í 800 metrunum á 1,56,7.
Magnús er einnig úr leik. Bezt-
an tíma í 800 m hafði Han-
senne Frakklandi 1,50,8. Und-
anrásarkeppnin í 4x100 metr-
unum var mjög hörð. Rússar
voru lengi fyrstir, Islendingar
aðrir, en Bretar fóru fram úr
Framhald 4 7. síðu.
„Fyrir friði og
hagsæld . . . og
kjarnorku-
sprengjum"
Fulltrúar brezku kratanna
á hinu svonefnda Evrópu-
þingi í Strassburg hafa sam-
ið ávarp, sem aðrir krata-
fulltrúar á þinginu hafa sam
þykkt. Ávarpi þessu er beint
gegn Stokkhólmsávarpinu að
því sagt er af upphafsmönn-
um þess, og er ekki hægt að
skilja það nema á einn veg:
að það fari fram á að kjam-
orkusprengjunni sé varpað.
í þessu ávarpi, sem á að
kenna við Strassburg, er lýst
stuðningi við allt það sem
stuðlar að friði og aukinni
hagsæld í heiminum, og jafn-
framt við árásir bandarískra
flugvéla á varnarlaust fólk
í borgum Kóreu.
Engin síld — en
mikið af ufsa
Siglufirði í gærkvöld. Frá
fréttaritara Þjóðviljans.
Ekkert veiðiveður hefur verið
undanfarið fyrr en í dag. 1 dag
var sasmilegt veiðiveður á mið-
svæðinu, nokkuð bjart, en í
kvöld var kominn austan strekk
Ingur og ekki bátaveður eftir
klukkan 6.
Ekki er vitað að önnur síld
hafi sézt í dag en smápeðra
austur af Axarfirði, en hún
var komin niður áður en bátur-
inn náði að kasta á hana.
Á austursvæðinu var sæmi-
legt veður, en þó þoka fram
yfir miðjan dag, en enga síld
að sjá. 1 dag hefur hinsvegar
verið töluverð ufsaveiði og frá
því á hádegi í dag til kl. 8.30
í kvöld bárust S.R. á Siglufirði
3500 mál af ufsa. Vitað er að
Framh. á 4. siðu.
laflUjaianna á bæi
Kóreu bafa kostað 11.583 lífið
Utanríkisráéherra Méreu
seudir mótmmiitU $3*
Útvarpið í Pyongyang skýrir frá því, að 11.583 ó-
breyttir borgarar hafi farizt í morðárásum Bandaríkja-
ríkjamanna á varnarlausa bæi og þorp Norður-Kóreu,
og er þetta nær sjötti hluti þess f jölda, sem fórst í árásum
þýzku nazistanna á Bretland á fimm árum. 16.500 hús
hafa „vemdarar lýðræðisins” jafnað við jörðu og 11 stór
ar verksmiðjur.
Þessar tölur ná yfir tíma-
bilið frá 2. júlí til 3. ágúst,
en allt bendir til, að þær séu
miklu hærri nú.
Flugvirki af gerðinni B-26
gerðu í fyrradag loftárásir á
Inchon, Yongdok, Taejon og
10 aðra bæi í Suður-Kóreu. —
Risaflugvirki réðust á Pyong-
yang, vörpðu ,80 .Íestum af
sprengjum á hana og var ár-
angurinn „ágætur“, eins og
segir í tilkynningu MacArthurs.
Brezkar og ástralskar flugvél-
ar taka þátt í þessum morðá-
rásum.
8. ágúst sendi utanríkisráð-
herra alþýðulýðveldis Kóreu
mótmælaskjal til öryggisráðs-
ins vegna hinna villimannlegu
árása bandarisku flugvélanna,
sem ekki skirrast við að skjóta
á varnarlaust fólk á götum
þorpanna úr vélbyssum. —
, .Bandaríkjamenn hafa einsett
sér að eyðileggja iðnað Kóreu
og leiða þannig ólýsanlegar
hörmungar yfir kóresku þjóð-
ina, og senda í samræmi við það
flugvélar sínar til að eyðileggja
iðjuver oe verksmiðjur, sem
ekki hafa neina hernaðarlega
þýðingu. Þessir glæpir eru allir
látnir heita lögregluaðgerðir og
eru drýgðir í nafni sameinuðu
þjóðanna. Ef öryggisráðið neit-
ar að koma í veg fyrir þessi of-
beldisverk, mun ábyrgðin fyrir
þau ekki einungis hvíla á Banda
ríkjunum heldur einnig á öll-
um þeim rikjum, sem eiga sæti
í öryggisráðinu“.
Adenauer krefsf aukins
setuliðs og dulbuins hers
i Vesfur-Þýzkalandi i
Blaðaviðtal sem vekur furðu
Adenauer ríkiskanslari Vestur-Þýzkalands hefur látið hafa
það eftir sér í blaðaviðtali, sem vakið hefur mikla athygli og
furðu, að vestur-þýzka stjómin kysi að setulið vesturveldanna
í Þýzkalandi yrði aukið, jafnframt þvi sem Þjóðverjum yrði
leyft að koma sér upp „öryggislögreglu“, þ. e. dulbúnum her.
Þessar ráðstafanir væru nauðsynlegar, ef Þýzkaland og „önnur
lýðræðisríki" ættu að geta varizt „ógnuninni úr austuri“. Er
ekki fjarri því, að óljúfar minningar vakni upp hjá mönnum
við þessi orð kanslarans.
EL B ■
Þrioji
i Beikur
Þjéðuerjauna
Þriðji leikur þýzka liðsins
verður í kvöld kl. 7,30 og leik'ur
það þá gegn sameinuðu liði
Vals og K.K.
I gærkvöld var ekki ákveðið
hvor þeirra Helga Dan íelsson-
ar og Arnar Sigurðssonar yrði
í markinu, en að öðru leyti
verður liðið þannig skipað, tal-
ið frá hægri bakverði: Guð-
brandur Jakobsson Val, Guð-
björn Jónsson KR, Gunnar Sig-
urjónsson Val, Einar Halldórs-
son Val, Hafsteinn Guðmunds-
son Val, Hörður Óskarsson KR,
Sigurður Bergsson KR, Sveinn
Helgason Val, Halldór Hall-
dórsson, Val og Ellert Sölva-
son, Val.
Viðtalið hefur einnig sætt
harðri gagnrýni. Schumacher
leiðtogi sósíaldemókrata í
Vestur-Þýzkalandi hefur jafn-
vel ráðizt á Adenauer, þó einkum
fyrir það, að hann hafi farið
á bak við vesturveldin með
þessum yfirlýsingum.
Talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins lét þess getið í
tilefni af þessum ummælum
Adenauers, að franska stjórnin
væri því andvíg, að Þjóðverjar
fengju að koma sér upp her
eða hergagnaiðnaði.
McCloy hernámsstjóri Banda
ríkjanna skýrði frá því í sam-
bandi við viðtalið, að sameig-
inleg stjórn hermála Vestur-
veldanna væri gagnslítil ef
Þýzkaland væri ekki haft með
í ráðum, og framtíðaráætlanir
um hana næðu einnig yfir
Þýzkaland.
Kuomintang ræðir
árás á Kéna
Yfirmenn herafla Kuomin-
tangklíkurmar, sem situr á Tai-
van í skjóli bandarísks flota,
komu saman á ráðstefnu í
Taipe, höfuðborg eyjarinnar
um helgina. Fréttaritarar segja,
að þeir hafi rætt um mögu-
leikana á innrás á meginland
Kina. Er MacArthur, yfirmað-
ur herafla Bandarikjanna í
Austur-Asíu, var í heimsókn á
Taivan nýlega, lýsti Sjang Kai-
sék yfir, að bandarisk aðstoð
til baráttu gegn alþýðustjórn
Kína værj tryggð,
Pyongyang: Alþýðu-
herinn sækir fram á
öllum vígstöðvum
Tilkynningar styrjaldaraðila í Kóreu stangast nú mjög á.
Herstjórnartilkynning alþýðnhersins sem gefin var út í Pyongy*
ang í gær segir að alþýðuherinn sé í sókn á öllum vígstöðvum,
einkum þó á suðurströndinni. Öllum árásum bandarísku inn-
rásarsveitanna hafi verið hrundið við mikið mannfaii þeirra.
1 herstjórnartilkynningunni
var ennfremur skýrt frá því, að
herskip Bandaríkjamanna héldu
áfram árásum sínum á hafnar-
bæi og þorp Kóreu fyrir norð-
an 38. breiddarbaug. Banda-
ríski tundurspillirinn 726 gerði
þannig harðvítuga árás á smá-
bæ einn á austurströndinni sem
svarað var af strandvirkjum
alþýðuhersins með þeim afleið-
ingum, að tundurspillirihn var
hæfður 27 skotum og varð loks
að láta undan síga. Hann lét
illa að stjórn og er talið að
hann hafi solckið. Pyongyangút-
varpið skýrði frá því, að enn
hefðu skjöl fallið í hendur al-
(þýðuhersins, sem sönnuðu, að
Iklíka Syngman Rhees hefði
lengi undirbúið árásina á Norð-
ur-Kóreu. Sendinefnd frá Suð-
ur-Kóreu er nú komin til Py-
ongyang til að kynna sér þær-
miklu framfarir sem orðið hafa.
í landinu á síðustu ánim.
Herstjórnartilkynning Banda-
ríkjamanna segir að þeir vinni
að því að styrkja aðstöði', sína,
og sókn alþýðuhersins só h- \r-
vetna stöðvuð. Þó er við-
urkennt, að honum hafi tekizt
að koma talsverðum liVafla
yfir Naktongfljót í nágrenni
Waegwon, en þar helzt mrg'n-
styrkur hans austan fljótsins við