Þjóðviljinn - 29.08.1950, Blaðsíða 7
friSjudagur 29. ágúst 1950.
ÞJÓÐVILJINN
vj: í:.í>t>ri.-v
% V
”, ii ð'
Aljþýðusambandsst|óriiiii og
hagsmunamáflin
Á þessum stað tekur blaðið til birtingar smáauglýs
ingar um ýmiskonar efni. Þser eru sérstaklega
hentugar fyxir allskonar smáviðskipti, og þar sem
verðið er aðeins 70 aurar orðið eru þetta lang-
samlega ódýrustu auglýsingarnar sem völ er á.
Ef þér þuríið að selja eitthvað eða kaupa, taka á
leigu eða leigja, þá auglýsið hér.
Kaup-Sala
Frímerkjaskipti
Sendið mér 100 ísl. frí-
merki og ég sendi ykkur í
staðinn 200 erlend. Jónsteinn
Haraldsson, Gullteig 4, Rvík.
Húsgögnin frá okkur:
Armstólar, rúmfataskápar,
dívanar, kommóður, bóka-
skápar, borðstofustólar og
borð margskonar.
Húsgagnaskálinn,
Njálsgötu 112. Sími 81570
Kaupum hreinar
ullartuskur.
Baldursgötu 30.
M u n i ð
Kafíisöluna
í Hafnarstræti 16.
Kaupum tuskur
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Daglega
Ný egg
soðin og hrá
Kaffisalan Hafnarstræti 16.
Kaupum
húsgögn, heimilisvélar, karl
mannaföt, útvarpstæki, sjón
auka, myndavélar, veiði-
stangir o. m. fl.
Vöruveltan
| Hverfisgötu 59.—Sími 6922
Karlmannaföt —
Húsgögn
j Kaupum og seljum ný og
I notuð húsgögn, karlmanna-
j föt og margt fleira. Sækjum
— Sendum,
Söluskálinn
Klappastíg 11. —Sími 2926
Fasteignasölumið-
stöðin
Lækjargötu 10 B, sími 6530,
annast sölu fasteigna, skipa,
bifreiða o. fl. Ennfremur
allskonar tryggingar o. fl. í
umboði Jóns Finnbogasonar
fyrir Sjóvátryggingarfélag
íslands h. f. — Viðtalstími
alla virka daga kl. 10—5 á
öðrum tímum eftir samkomu
lagi.
Kaupum — Seljum
og tökum í umboðssölu alls-
konar gagnlega muni.
GOÐABORG
Freyjugötu 1 — Sími 6682
Lögfræðistörf
Áki Jakobsson og Kristján
Eiríksson, Laugaveg 27, 1.
hæð. — Sími 1453.
Skóvinnustofan
NIAISGÖTU 80
annast hverskonar viðgerðir
á skófatnaði og smiðar sand-
ala af flestum stærðum.
Nýja sendibílastöðin,
Aðalstræti 16 — Sími 1395
Ragnar ðlafsson
hæstaréttarlögmaður og lög-
giltur endurskoðandi. Lög-
fræðistörf, endurskoðun,
fasteignasala.
Vonarstræti 12 — Sími 5999
Húsgagnaviðgerðir
Viðgerðir á allskonar stopp-
uðum húsgögnum.
Húsgagnaverksmiðjan,
Bergþórug. 11. — Sími 81830.
Lokað til 31. ágúst
SYLGJA
Laufásveg 19. — Sími 2656
Látið okkur gera
gamlar sængur og
kodda sem nýja.
Fiðurhreinsun
Hverfisg, 52. Sími 1727.
Fpamhatj! af 5. siðu.
islækkunarinnar“, en hvað það
þýðir í reynd þekkja allir laun-
þegar. Kauprán gengislækkun-
arinnar er að leiða sárustu.fá-
tækt og allsleysi yfir þúsundir
alþýðuheimilá. Það er sú „vin-
samlega framkvæmd gengis-
lækkunarinnar" sem hvert laun
þegaheimili landsins þekkir af
reynslunni. Nú verður ekki
lengur komist af með fögur
fyrirheit og orðagjálfur sam-
bandsstjórnar, hversu fegin
sem hún vildi sættá alþýðuna
:áfram við slíkt.
Ekkert nema órofa eining
verkalýðsins og falslaus for-
ganga heildarsamtakánna í bar
áttunni fyrir því að rétta skert
an hlut launastéttanna getur
tryggt alþýðusamtökunum sig-
ur. Afturhaldið hefur skapað
sér þá vigstöðu með beinum
stuðningi og atfylgi sambands-
stjórnar að á öllu þarf að halda
eigi kaupgjaldsbarátta verka-
lýðsfélaganna að verða sigur-
sæl og skila þeim árangri sém
nauðsynlegur er eins og nú er
komið máliun.
Tækifæri sem verkalýðurinn má
ekki láta ganga sér úr greipum
Fari hinsvegar svo, sem
sterkar líkur benda til, að
stjórn afturhaldsins í A.S.I.
taki að nýju upp samninga við
gengislækkunarstjórnina um
„vinsamlega framkvæmd geng-
islækkunarinnar“, láti hún sér
nægja ódýr og loðin loforð rík-
isstjórnarinnar um „viðleitni í
þá átt að halda vöruverðinu í
skefjum“ (sbr. Alþbl.) og
semja við hana um einhverjar
gagnslausar smánarbætur á
þessum forsendum, þá kemur
til kasta sambandsfélaganna og
meðlima þeirra. Þá verður sam-
bandsstjórn svörtu samfylking-
arinnar frá 1948 orðin alþýð-
unni það 'kostnaðarsöm, að
raunhæfasta og nauðsynlegasta
átakið í hagsmunabaráttu
verkalýðsins verður það, að
gera ráðstafanir sem duga til
þess að losa heildarsamtökin
undan fargi atvinnurekenda-
þjónanna, í núverandi sam-
bandsstjórn, sem hafa stuðlað
að og liðið stórfeldari rýrnun
á kaupi og kjörum allra laun-
þega í landinu s.l. tvö ár en átt
hafa sér stað á nokkrum öðr-
um sambærilegum tíma frá því
að verkalýðssamtökin hófu
starfsemi sína. Þetta tækifæri
gefst alþýðunni í kosningunum
til 22. þings Alþýðusambands-
ins, sem fram eiga að fara í
haust. Velferð og framtíð verka
lýðssamtakanna og afkoma ís-
lenzkrar alþýðu um ófyrirsjá-
anlegan tima getur oltið á því
að íslenzkur verkalýður láti það
tækifæri, sem þá gefst til þess
að endurheimta yfirstjórn sam
taka sinna ekki ganga sér úr
greipum.
Guðmundur Vigfússon.
KvÓIdskó!iK.F.U.M.
Framhald af. 8. síðu.
kenndar: ísiehzlfa, ’ danska,
enska, kristin fræði, reikningur,
bókfærsla og handavinna
(námsmeyjum) í byrjunardeild-
unum, en í framhaldsdeildinni
er auk þess kenndur upplestur
(framsagnarlist) og íslenzk
bókmenntasaga.
Umsóknum um skólavist verð
ur eins og áður veitt móttaka
í nýlenduvöruverzluninni Vísi á
Laugavegi 1 frá 1. sept. og
þar til skólinn er fullskipaður
að því marki, sem hið takmark-
aða húsrúm hans setur hon-
um. Er fólki eindregið ráðiagt
að innrita sig sem allra fyrst,
því að ólíklegt er að unnt verði
að Verða við öllum inntöku-
beiðnunum, en nemendur eru á-
vallt teknir í skólann í þeirri
röð, sem þeir sækja.
Fólk er að gefnu tilefni beð-
ið að athuga, að kvöldskólinn
verður settur í húsi KFUM og
K við Amtmannsstíg mánudag-
inn 2. okt. kl. 8,30 síðd. stund-
víslega. Eiga allir þeir, sem
sótt hafa um skólavist, að
koma til skólasetningarinnar
eða aðstandendur þeirra, svo
og þeir, sem kunna að hafa ver-
ið skrifaðir á biðlista vegna
mikillar aðsóknar. Verða þeir
síðarnefndu þá teknir í skól-
ann, eftir því sem rúm leyfir,
ef enginn mætir við skólasetn-
ingu fyrir hönd þeirra, sem
fengið höfðu loforð fyrir skóla-
vist. Kennsla mun væntanlega
hefjast fimmtudaginn 5. okt.
Svik JII fiýðnfiokksbrsdtlanna
Framhald af 8. síðu.
framleiðslugjald o. fl. nr. 22
1950.“
Sigurður Guðgeirsson kvaðst
styðja tilmæli Alþýðusambands
stjórnarinnar um að samning-
um félagsins yrði sagt upp og
rökstuddi nauðsyn þess vegna
aukinnar dýrtiðar, launaráns o.
fl. Lagði hann sérstaka áherzlu
á einingu Alþýðusambandsfé-
laganiia í baráttu fyrir bættum
kjörum og að prentarafélagið
mætti undir engum kring-
umstæðum skerast úr leik og
veikja þar með aðstöðu ann-
arra sambandsfélaga í barátt-
unni fyrir bætíum kjörum.
Fulltrúar gengislækkunar-
stjórnarinnar fluttu dagskrár-
tillögu um að vísa tillögu Sig-
urðar frá og var dagskrártil-
lagan samþykkt.
Þeita gamla félag, Hið ís-
lenzka prentarafélag, sem löng-
um hefur verið litið á sem eitt
af forustufélögunuin, og sem á
sér glæsilega baráttusögu að
baki, hefur nú skorizt úr leik
í sameiginlegri baráttu vérka-
lýðsins. Með samþykktinni að
bregðast í sameiginlegri bar-
áttu verkalýðsins hefur verið
settur blettur á sögu þess.
Framkoma Alþýðuflokksfor-
ustumannanna í prentarafélag-
inu sýnir hinsvegar greinilega
að Alþýðuflokkurinn meinar
ekkert með fögrum orðum um
bætt kjör. Hann ætlar einungis
að tala fagurt, mótmæla vísi-
töluskerðingu, semja síðan við
gengislækkunarstjórnina um
„vinsamlega framkvæmd geng-
islækkunarlaganna" og setjast
síðan sjálfur inn í sjálfa gegns-
lækkunarstjórnina til þess að
Alþýðuflokksforustan geti á-
fram lifað prugg á bitlingun-
um hjá gengislækkunarstjórn-
inni — meðan kjör þess al-
mennings sem forustan hefur
svikið, fara hríðversnandi.
Sjómevm immu engan
bilbug sýna
Framhald af 3. síðu
en hásetinn, þó hann hafi unn-
ið 112 stundir sem er eins og
allir sjá upp undir þrisvar sinn
um lengri vinnuvika og finnst
mér að menn mættu gjarnan
ræða þetta mál meira á þess-
um grundvelli.
I þessari deilu munu sió-
'menn enga linkind sýna. Þeim
J er það öllum fullljóst að það er
vafasamur greiði viö þjóðfélag-
ið að láta hafa sig að ginning-
(arfíflum bæði hvað snertir að
láta þræla sér út með forneskju
legum vinnuháttum og í því
að láta bjóða scr lífskjör sem
ekki eru sambærileg við aðra
þegna þjóðfélagsins sem vinna
hliðstæð störf. Sé ekki hægt að
koma þessu saman svo að allir
megi vcl við una þá veroum
við að sætta okkur við þá stað
reynd að það borgar sig ekki
að vciða fisk til útflutnings
sem verkaður er í salt og ís
eins og undanfarið hefur verið
gert og verða þá hinir vísu
^ráðamenn okkar að leggja Iiöf-
uðin í bleyti og finna nýjar leið-
til gjaldeyrisöflunar fyrir þjóð
okkar.
i
G. Sigurðsson
Jaröarför mannsins míns, fööur og tengda-
fööur,
íóms íóbaimssoHas,
fer fram frá Kapellunni í Fossvogi fimmtudaginn
31. þ. m. kl. 1,30 e. h.
Rósa Finnbogadóttir,
Karlotta og Eggert ísdal.