Þjóðviljinn - 02.09.1950, Side 1
EF.R.
Skálaferð í dag klukkan 2 e. li.
Skálastjórn. 15. árgangor.
Laugardagnr 2. september 1950
194. tölublað.
milljónum króna í erlendum
gjaldeyri hefur nú verið
kastað á glæ vegna andstöðu
útgerðarauðvaldsins við rétt
lætiskröfur sjómanna um
mannsæmandi hvíld og sóma
samleg lífskjör.
Á sama tíma segja skýrsl-
ur að útflutningur Ivvfi
fyrstu sjö mánuði ársins
aðeins numið 208 milljónum
en var á sama tíma í fyrra
295 millj. og í hitteðfyrra
427 milljónir.
Á sama tíma liggja í
landinu 8000 tonn að hrað-
frystum þarskflökum sem
Bjarni Benediktsson hefur,
gefizt upp við að reyna að
selja, þótt hann banni öllum
öðrum að reyna sölu.
Á sama tíma stendur fs-
lendingum til boða frjáls-
marítaft'ur í Þýzkalandi fyrir
20.000 tonn af ísfiski.
Hversu lengi ætla fslend-
ingar að þola þessa glæp-i
samlégu óstjórn?
Frakkar vilja
ekki lengja
herskyldu
Fréttaritarar hafa eftir tals-
manni Frakklandsstjómar að
hún hafi alls ekki í hyggju að
fara að dæmi Breta og lengja
herskyldutímann, sem er nú
eitt ár. Sagði talsmaðurinn, að
vopnaverksmiðjur Frakklands
kæmust ekki yfir að framleiða
nema fyrir þarfir þess herafla,
sem fengist með núverandi her-
skyldutíma.
Kanada þvær
hendur sínar af
Taivan-ævintýri
Trumans
Lester Pearson utanrikisráð-
herra Kanadastjómar hefur
iýst yfir, að Kanadastjóri vilji
engan hlut eiga í hernámi
Bandaríkjamanna á kínversku
eynni Taivan og því síður
hjálpa til að reyna að hefja
Sjang Kaisék til valda í Kína
á ný. Pearson kvað Kanada
einnig andvígt bandarískum
kröfum um „fyrirbyggingar-
styrjöld" og myndi ckki láta
afskiptalaust er aðrir bæru þær
fram.
Formenn Dagsbrúnar, Þróttar og Verkamannaíélags Akureyrarkaupstaðar lysa yíir:
Alþýðusambandsstjóm ber ein alia ábyrgð á jrví ú kjararýmun
gengislækkunarmnar kefur ekki fengizt bætt
Feilum frá fulitrúakjön aila forsvarsmenn núver-
andi stjómar Alþýðusambandsins
Sigurður Guðnason formaður Dagsbúnar,
Gunnar Jóhannsson formaður Þróttar og
Björn Jónsson formaður Verkamannafélags
Akureyrarkaupstaðar hafa sent frá sér eft-
irfarandi Yfirlýsingu:
,,Vegna framkomu stjórnar Alþýðusam-
bands íslands í launamálum verkalýðsfélag-
anna undanfarið viljum við undirritaðir lýsa
yfir eftirfarandi:
Með bréfi dags. 22. júlí s.l. hvatti stjórn
ASÍ öll sambandsfélög til að segja upp
samningum ,,til þess að fá uppborna þá
kjararýrnun, sem alþýða manna hefur orð-
ið fyrir af völdum gengislækkunarinnar“.
Daginn áður hafði Helgi Hannesson, for-
seti ASÍ, lýsti yfir í Alþýðubl. baráttu verk-
lýðsfélaganna til þess að fá uppborna ,,alla
þá kjararýrnun, sem gengisfellingin hefur
orsakað* .
Þann 22. júlí barst stjórn ASÍ fyrsta
áskorunin um að halda ráðstefnu verkalýðs-
félaganna til þess að undirbúa þessa bar-
áttu á landsmælikvarða, móta kröfurnar,
tryggja samheldnina og velja sameiginlegan
tíma og yfirstjórn.
Þrátt fyrir samskonar áskoranir margra
helztu verkalýðsfélaga landsins hefur stjórn
ASI þverskallazt við þeim og ekki einu sinni
svarað viðkomandi aðilum.
I stað þess að vinna ötullega að því að
treysta einingu og baráttuþrótt verkalýðs-
ins, hefur stjórn ASÍ haldið að sér höndum
Með því að hundsa kröfuna úm ráðstefnu,
með aðgerðaleysi sínu, með því að hafa
ekkert samráð við félögin um sameiginleg-
ar kröfur né annað, lamaði hún baráttuvilja
verkalýðsins og tvístraði honum.
Þegar sýnt var að stjórn ASÍ ætlaði að
bregðast samstarfi félaganna, tilkjmntum
við henni það álit okkar- að ekki mætti
lengur dragast að ákveða aðalkröfur félag-
anna og að við teldum 30% kauphækkun
vera lágmarkskröfu.
En þvert ofan í allar fyrri yfirlýsmgar
sínar hefur stjórn ASÍ nú lýst vfir fullu sam-
þykki sínu við hin nýju bráðabirgðalög rík-
isstjórnarinnar, lýst, ástæðurnar fyrir samn-
ingsuppsögn brottfallnar og skorað á félög-
in að framlengja samninga sína óbreytta.
Þrátt fyrir alla þessa framkomu stjórnar
ASI er það skoðun okkar, að unnt hefði ver-
ið með samstilltu átaki allra þeirra rúmlega
40 félaga, sem sagt hafa upp samningum, en
í þeim hópi voru flestöll fjölmennustu og
þýðingarmestu verklýðsfélög landsins, að
heyja sigursæla kaupgjaldsbaráttu gegn
kaupráni gengislækkunarlaganna. Frá
þessu áliti okkar skýrðum við stjórn ASI á
fundi hennar 30. ágúst sL, en á þeim fundi
samþykkti hún að fallast á bráðabirgalögin
og aflýsa deilunum.
Af því, sem að framan greinir- er 1 jóst:
Að stjórn ASÍ hefur algerlega brugðizt
eigin yfirlýsingum um að fá uppborna
launaskerðingu gengisfellingarinnar.
Að stjórn ASI hefur með yfirlýsingu
sinni sætt sig við gengislækkunarlögin og
launaskerðingu þeirra og því raunveru-
lega samið um kauplækkun.
Að stjórn ASÍ hefur lamað samtökin,
vegið aftan að þeim með samningum sín-
um við ríkisstjórnina og hindrað sameig-
innlega kaupgjaldsbaráttu þeirra.
Að verkalýðurinn getur ekki treyst
slíkri sambandsstjórn til að fara áfram
með málefni heildarsamtakanna.
Við lýsum allri ábyrgð á hendur stjórnar
ASl á því, að verkalýðurinn hefur ekki að
þessu sinni fengið bætta kjararýrnun geng-
islækkunarinnar.
. . Enda þótt við álítum, að með þessum að-
gerðum sínum hafi sambandsstjórn hindrað
sameiginlega kaupgjaldsbaráttu verkalýðs-
félaganna eins og sakir standa, teljum við
óumflýjanlegt, að verkalýðurinn búi sig
undir nýja sameiginlega sókn til að rétta
hlut sinn gagnvart kaupráni gengislækkun-
arlaganna.
Við álítum, að fyrsta og nauðsynlegasta
sporið í þessa átt sé það, að verkalýðurinn
skipti um forystu í Alþýðusambandi íslands.
Við skorum því á verkalýð alls landsins
að undirbúa nú þessa sókn á vettvangi
verklýðsfélaganna um land allt. Við heitum
á alla einlæga verklýðssinna, á alla andstæð-
inga gengislækkunarinnar að gera næsta
þing ASl að barátfcuþingi íslenzka verka-
lýðsins með því að fella frá fulltrúakjöri alla
forsvarsmenn núverandi sambandsstjórnar,
en kjósa fulltrúa, hvar í flokki sem ^ir
annars standa, sem vil.ia skapa Alþýðn-
sambandinu nýja sambandsst jórn,
verkalýðurinn geti borið fullt traust '-1 ^rr
sem er fær um að leiða réttláta barátlu 1 i-
fyrir bættum Iífskjörum fram til sigurs.“