Þjóðviljinn - 28.09.1950, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.09.1950, Blaðsíða 1
15. árgangur. Fimmtudagur 28. sept. 1950. 215. töiublað. Æ. F. R. -• J -íl . '£.* ' Mjög áríðandi fundur á Þórsgötu 1 í kvöld kl. 8.30. 'rJ DIÐ SJOMONNUM TOGARANA! Ge//ð framleiBendum og neytendum frelsi til oð selja og kaupa nauSsynjar þjóðarinnar! Setjið lágmarksverð á út- flutningsvörurnar og há- marksverð á innfluttu vör- urnar - og sjáið um að það sé hgldið. Togarar þeir, sem sameinað afturhaldið ræður yfir, hafa nú legið bundnir i 3 mánuði. Tap þjóðarinnar skiptir nær sjö tugum milljóna og kemur fram í' vaxandi atvinnuleysi og vöruskorti. Þessi stöðvun er einvörðungu á ábyrgð hinnar svörtu samfylkingar, sem nú ræður landinu. Ríkisstjórn, togaraeigendur, Alþýðuflokkurinn eru samsekir um sam- særi gegn þjóðinni, samsæri, sem miöar að því að brjóta samtök sjómanna á bak aftur og eyðileggja efna- hag íslendinga, svo ísland verði auðveldari bráð fyrir það ameríska auðvald, sem mútar þessari samfylkingu, og segir henni fyrir verkum. Nýsköpunartogararnir voru keyptir fyrir það fe, sem sjómenn og verkamenn íslands unnu fyrir á stríðsárun- um. Þaö eru sjómennirnir og íslenzk verkalýðshreyfing, sem eiga siðferðilega réttinn til þessara togara. Það var íslenzka verkalýðshreyfingin undir forustu Sósíalista- flokksins, sem knúði fram kaup nýsköpunartogaranna og kom fram þeim lánskjörum, þrátt fyrir mótspyrnu aft urhaldsins, sem gerði það kleift aö kaupa þá. Nú hafa togaraeigendur og Marshallflokkarnir þrír sýnt það og sannað að þeir hafa hvorki vit né vilja til þess að reka nýsköpunartogarana og afla þjóðinni gjald- eyris og nauðsynja. Reynslan hefur dæmt þessa herra úr leik. Þeim er bezt að gefa upp taílið, svo þokkalega sem þeir hafa staðið sig, þegar þjóöin hefur treyst þeim til að reka dýrmætustu tæki sín. JUhendið sjémömtununi togaiana! Þa5 eru þeir, sem hafa unnið fyrir þeim. Þao eru þeir, sem vinna á þeim. Það eru þeir, sem hafa áhættuna af hvemig þeir ganga. Það er deilt um hvað togar- arnir beri mikið kaup. Fæst ekki bezt úr því skorið með því að láta sjómennina sjálfa reka þá á sína ábyrgð ? Þá þarf ekki að deila um kaupið. Islenzk sjómannastétt er ó- hrædd við að reka þá togara, sem nuðmannastéttin nú gcfst upp við að reka. Afturhaldið hefur verið að eyðile"gja markaðina fyrir fiskinn. Það eru síðust'u forvöð að, gripið sé í taumana, ef bjarga á íslenzkum sjávarút- vegi. Sjómannastéttin íslenzka myndi geta selt allan þann fisk, sem hún getur framleitt, ef hún aðeins fær að gera það • og ríkisstjórnin kemur þar hvergi nærri með einokunar- klær sinar. íslenzku þjóð'na vantar flest ar vörur. Sá vörtiskortur er á ábyrgð stjórnarvaidanna einna saman. Þau hindra þjóðina í því að framieiða útfiutnings- vörurnar og banna henni að kauna inn nauðsynjar sínar. Islenzka sjómannastéttin, sem framleiðir útflutningsvör- urnar, ef hún fær að gera það, og getur selt þær allar líka, ef hún fær að gera það, gæti í samstarfi við neytendur og alla þá, sem áhnga hafa fyrir fram- Framhald á 6. síðu. Þannig hafa mikilvirkustu framleiðslutæki þjóðarinnar legið bundin í 90 daga og þjóðin hefur verið svipt gjaldeyri sem nemur tæpum 70 milljónum króna. 1 dag svara málimir A. S.B. rógi AlþbL og MbL um fálagið og forystu bess og tryggja sigur A-listansj Kosningunni lýkur kl. Ið í kvöld AtvinDarekendablöðin Mbl. og Alþýðubl. birtu bæði í gær myndir af frambjóðsnd- um kauplækkunarlistans í A.S.B., félagi afgreiðsiu- stúlkna í mjólkur- og brauð- sölubúðum. Myndunum fylgdu óvenjulega rætnar svívirðlngar um félagið og stjórn þess og þó alveg sér- staklega um G'uðrúnu Finns- dóttnr formann félagsins, sem nýtur óveujulegra vin- sælda og virðingar allra fé- Iagskvenna, hvað sem stjórn málaskoðunum þcirra annars líður. Guðrún hefur gegnt formennsku í A.S.B. Um fjölda ára, og hel'ur ásamt meðstjórnendum sínum, sem skipa A-listann, lista stjórn- ar og trúnaðarmannaráðs félagsins í Alþýðusambands- kosningunum, haft alla for- ystu um hækkun káupgjalds og bætt kjör félagskvenna, með þeim árangri, að A.S.B.- stúlkur búa nú við betri samninga en nokkurt sam- bærilegt stéttarfélag. Þetta vita meðlimir A.S.B. og þess vegna er gjörsamlega til- gangsiaust að reyna að teija þeim trú um að Guðrún Finnsdóttir hafi „svikið hug- sjón verkalýðshreyfingarinn- ar“ og að atvinnurekenda- fulitrúarnir á B-listanum eigi að hefja „baráttu fyrir bættum kjörum hinna ilia launuðu starfsstúlkna“ eins og Alþbl. kemst að orði í rógsgrein siuni í gær. Það má segja að hræsni Alþýf ublaðsins séu lítil tak- mörk sett. Þeir sem til þekkja vita hvað á bak við býr. Aiþýðaflokksbroddurinn G'uðm. R. Oddsson, forstjóri Alþýðubrauðgerðarinnar h.f. er einn helzti samningsaðilji af hálfu atvinnurekenda við A.S.B. Þessum kratabroddi hefur því gefizt margt tæki- færið til jiess að sýna hug sinn til stéttarsamtaka af- greiðslustúlknanna. Og hvernig hefur hann reynzt? Forstjóri þessa einkafyrir- tækis bitlingabrodda Alþ.fl. hefur jafnan sýnt A.S.B. l'ulikominn fjaldskap í öllum samningum og gengið sýnu lengra en aðrir atvinnurek- endur í því að halda kacpi og kjörum afgreiðsluslúlk-'- anna niðri. Óskadraumur Gr‘v— R. Oddssonar og anr.ar^ atvinnurekenda er r ð lama stéttarfélag r'- greiðslustúlknanna rg Framhald á 7. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.