Þjóðviljinn - 28.09.1950, Page 6

Þjóðviljinn - 28.09.1950, Page 6
<0- a Afhendið sjómönnum togarana Framh. af 1. síðu förum og velmegun í landinu, trjrgt innflutning á heim nauð- sjrjavörum, sem nú vaníar. Islendingum getur I'ðið vel og liaft nægar vörur, ef hel- gre'par einokunarinnar eru Ios afar af þjóðinni og framleiðend w og nejtendur eru frjálsir að þyí að sclja afurðirnar og kaupa inn nauðsjrnjarr ?.r. Það er nægilegt verkefni fjrr- ir þá ríkisstjcrn sem nú situr, að hafa eftirfarandi afskifti af sö.a og kaupum á vörunum: 1. Setja lágmarlf verð á út- flutninginn m. a. tii að hindra gjaldeyrisflótta. 2. Sctja hámarksverð á all- ar innfluttar vörur, m. a. til að reyna að vinna gegn þeirri dýrtíð, sem nú vex m. a. vegna aðgerða ríkisstjórnav'mar. 3. Banna innflutning á öllu því sem þjóðin er e' !;i talin hafa efni á ao veita scr. E»egar ríkisstjórnin og afíur- haldsöflin í landinu eru búin að koma á atviiuiuleysi og vörú skorti, eins og nú, er sannarlega ekki nema eðlilegt að þjóðin segi að hún vilji fá að reyna að bjarga sér sjálf, án þess að stjórnarklíkan, gerspillt og of- stækisfull, bindi hendur hennar. Framleiðendum og nej’tend- um, — jafnt samtök þeirra sem dugandi einstaklingar — gætu áreiðanlega með betri árar-gri fj’rir þjóðina, en þeim sem nú blasir við, komið. sér saman um atvinnu- og verzlunarmál landsins, ef þeir erú látnir frjálsir til þess. En þeir, sem nota vald það sem þjóðln hefur veitt þeim jfir framleiðslutækjunum, eins og togaraeigendur nota það nú, verða að sætta sig við að þjóð- in taki valdið af þeim og fái það öðrum verðugri í hendur: sjómönnunum, sem hætta líf- inu til að afla þjóðinni verð- mætanna, — sjómönnunum, sem skapa þann auð, sem tog- araflotinn gefur þjóðinni, þeg- ar hann fæst starfræktur. 6. ketfti, Mpt—ckt. ei- kcwii út )M'bm vantar unglinga til að bera blaöið til kaupenda frá næstu mán- aðamótum 1 eftirtöldum hverfum: Vestusgaða Rára?c;aSa Sóha’lagöSu As/allagöiu Grlmssiaðaholt. Mlðhæ V©ga Krlir.glumýn Þárscfaia SelijarKames TALIÐ VID A7GREIÐSLUNA SEM FYRST. HÖWfUINN, sími 7500. | Flytur bráðskí ’ : ’tilegar sögur, skrítlur og kvaeði, | = frásögn af’ný; kvikmyndum, Bridgeþátt, kross- I | gátu o. m. fi. Prýtt fjölda mynda. | Af efni þessa heftis má einkum nefna viðíal við Guðmúnd = | Síverísen loftsiglingafræðing- um feröalag hans kringum = | hnöttinn. = f Fæst , bóka- og blaðasölum. I *'l*«llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll|ll||||||||||l|||||l|MiM|||||||,llllMl||||||,ll|l||liaill,llinilllll||,|||||||||ll||||li>C Menningarfií;iigs! Islands og Báðstjórnar- ríkjanna efnir til námskeiöa í '•písssnesku og hefjast þáu í október. Kennari verður GEIR KRISTJÁNSSON. — Upplýsingar gefnar í skrif- stofu félagsins, Lækjargötu 10 B, kl. 5—7.30 dagl. Stjórn MÍR. V! ÞJÓÐV ILJTNir ,' {■■ ■'■ Fimmtudagur 28. sept. 1950, Gertrud Lilja: Hamingjuleitin 61. BAGUR. „Jæja þá?“ Hilla horfði á hann eins og hann væri ókunn- ugur maður. Hvað kom honum þetta eiginlega við ? „Hvað sagði læknirinn?" spurði Þór, órólegur yfir þögn Hillu og stirnuðu andliti hennar. „Hann sagði að barnið mitt væri fáviti,“ sagði Hilla. Andlit hennar var svo gagntekið angist, augu hennar svo myrk af örvæntingu að hann hrópaði upp yfir sjg. „Hilla.“ Hilla stóð kyrr. Hún lagði vangann að höfði Lenu, þrýsti vöranum að dúnmjúku hári hennar, og andlitssvipur hennar breyttist, fylltist ó- endanlegri blíðu. Þór stóð höggdofa og horfði á hana. María við krossinn.....Móðir Jesú. .. flaug gegnum ráðþrota huga hans. SJÖTTI KAFLI. Jerk. Þegar Þór fékk bréf frá móður sinni í Dölun- um voru þau í vélrituðum umslögum, sem Þór hafði sent henni, samkvæmt ósk hennar sjálfrar: hún var feimin við ,að skrifa utan á þau. Það skipti minna máli hvemig hrafnaspark hennar leit út inni í bréfunum, því að þau las Þór einn. Þór tók á móti þessum bréfum með feimni og blíðu, sem komu við hjarta Hillu. Það leið á löngu áður en hann leyfði Hillu að lesa þau. Þau voru alltaf um hið sama, heilsufar, guð, og að drengnum liði vel. Sjálfsagt setti hún sóma sinn í það að fæða og klæða sonarsoninn. Þór þurfti aldrei að senda peninga honum til framfæris; hann sendi hon- um aðeins leikföng á jólum og afmælisdögum. Þegar drengurinn komst á skólaaldurinn var nægur tími að gera áætlanir um framtíð hans. Þór langaði til að fá drenginn til sín, en á það hafði hann aldrei þorað að minnast við móður sína. Einu sinni síðan Hilla giftist Þór hafði hann farið upp í Dalina og heimsótt móður sina og son sinn. Það var skömmu áður en Hilla átti von á barai sínu og það kom ekki til mála að hún kæmi með. Hún hafði líka óljósan grun um ’að Þór vildi helzt fara einn. Hún hafði því aldrei séð tengdamóður sína eða stjúpson. En Þór hafði komið hress í bragði heim úr feröa- lagi sínu með kærar kveðjur frá móður sinni til Hillu. Og þegar Lena fæddist hafði móðirin sent prjónaða sokka úr grófu, hvítu, heimaunnu garni, klunnalega, jmdislega sokka, sem tolldu ekki á fótum Lenu. Þeir voru sennilega gerðir fyrir kröftugri barnsfætur en fætur Lenu. Nú lá bréf með póststimpli úr Dölunum innan um bréf Þórs. En það var ekki í einu hinna venjulegu umslaga, endaþótt Þór hefði nýlega sent móðurinni birgðir. Það var ódýrt umslag, eins og hægt er að fá í hverjum söluturni, og skriftin var ljótari en skrift móðurinnar. Þór horfði kvíðinn og órór á bréfið áður en hann reif það upp. Hann kom inn til Hillu, sem var að leika við Lenu. „Mamma er dáin,“ sagði hann. Og andlit hans var eins og á litlum dreng. Þór fór burt til að vera við jarðarför móður sinnar. Nágrannar móðurinnar, sem höfðu skrif- að og tilkynnt honum dauðsfallið, höfðu tekið drenginn að sér fyrst um sinn, og svo átti hann að fara heim með föður sínum. Það þurfti ekkert að ræða það mál. Hann var sonur Þórs og Þór átti enga ættingja nema móðurina. En hann hefði þó til málamyndá getað spurt Hillu, hvort henni væri það nokkuð á móti skapi. Þegar Hilla giftist Þór hafði hún eiginlega ekki gert ráð fyrir stjúpsyni. En hún varð að viðurkenna fyrir sjálfri sér, að kring- umstæðumar við giftingu hennar höfðu verið þannig að eitt eða fleiri stjúpbörn hefðu ekki breytt neinu. Henni varð órótt þegar hún hugsaði um Lenu. Nú mundi Lena að minnsta kosti eignast syst- kini, bróður, sem allir gátu borið hana saman við og séð eymd hennar. Upp frá þessu ættu Þór og Hilla hvort sitt óarn. Og hvernig yrði þessi ókunni drengur? Slæmur viá Lenu, leið- inlegur, illa uppalinn, þrej’tandi? Bláókunnugur einstaklingur sem átti að rj'ðjast inn í líf henn- ar og setjast þar um kyrrt, hvort henni líkaði betur eða ver......... Og hvar átti að hola honum niður? Átti hann að sofa í svefnherberginu þar sem hún sjálf, Þór og Lena voru fyrir ? Fleiri en þau þrjú gátu með engu móti komizt fyrir í þessu litla her- bergi. Hún ákvað að hann svæfi í setustofunni. Og væri hann myrkfælinn var hægt að láta svefnlierbergisdyrnar standa opnar. En hann var fimm ára og ekkert smábarn. Daginn fyrir heimkomu Þórs var Hilla full eftirvæntingar. Eftir nokkra klukkutíma hitti hún ókunnugt barn, yrði neydd til að lifa lífi sínu í návist þess, vinna fyrir það, fóstra það og helzt elska það — hvernig væri hægt að þvinga hana til alis þess, ef hjarta hennar segði nei ? Það var fjarstæða að krefjast þess að maður ætti að elska mannveru, vegna þess eins að hún var hjálparlaus. Það voru til yndisleg börn og óþolandi börn, alveg eins og til voru skemmtilegir hundar og andstj’ggilegir hundar. Það var hvorki barninu né hundinum að kenna að náttúran liafði gert þau illa úr garði — eu það var ekki hægt að élska þau.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.