Þjóðviljinn - 04.10.1950, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 4. október 1950.
ÞJÓÐVILJIN N
Lærdómur Alþýðusambands-
kosninganna
Afturhaldsblöðin klifa nú
mjög á því í áróðursskyni að
úrslit Alþýðusambandskosning-
anna til þessa sýni „fylgishrun
og hrakfarir kommúnista", en
því nafni nefna þau allt stétt-
víst verkafólk. Þessi áróður
styðst þó ekki við nein rök.
Samciningarmcnn hafa nú að
heita má nákvæmlega sömu full
trúatölu og þeir höfðu fyrir
tveimur árum í þeim félögum
sem kosið hefur verið í, þeir
hafa misst fulltrúa í fáeinum
félögum en unnið það upp í
öðrum. Atkvæðatölur samein-
ingarmanna eru yfirleitt hærri
en ;þær voru fyrir tveimur
árum. Eru þó þessar kosning-
ar sóttar af eindæma ofsa af
hálfu afturhaldsins og öllum
þeim ráðum beitt sem tiltæk
eru; einkum beitir Ihaldið nú
atvinnukúgun í skjóli atvinnu-
skortsins.
Nei, það er vissulega ekki
„hrakfarir kommúnista" sem
móta þessar kosningar heldur
allt önnur þróun, sem sé sú
að Alþýðuflokkurinn er að af-
sala ítökum sínum í verkalýðs-
hreyfingunni í hendur íhalds-
ins, atvinnurekendaflokksins. I
öllum þeim félögum þar sem
harðast hefur verið barizt hef-
ur íhaldið haft forustuna, AI-
þýðuflokkurinn fengið að hafa
einn frambjóðanda af sjö, átta
eða níu fyrir náð. Afleiðingin
verður sú að íhaldið mun hafa
mjög öflugan hóp á næsta Al-
þýðusambandsþingi, en Alþýðu-
flokkurinn að sama skapi veik-
an. Nái hin svarta samfylking
völdum á ný fær íhaldið því
enn meiri völd í forustu hennar,
þannig að Alþýðusamband ís-
lands yrði eins konar undirdeild
atvinnurekendasambandsins.
Það er þessi þróun sem
mótar Alþýðusambandskosning-
arnar til þessa. Sameiningar-
menn munu verða lang fjöl-
mennastir á þinginu, en atvinnu
rekendaagentarnir verða auð-
sjáanlega næstfjölmennastir. —
Ætti öllum að vera Ijóst hversu
geigvænleg þessi þróun er. En
Alþýðuflokksbroddarnir eru ef-
laust ánægðir; þeir munu fá
sína umbun fyrir svikin.
Námskeið íyrir leikstj. utan af landi
Bandalag íslenzkra leikfélaga,
sem stofnað var hér í bænum
í ágústmánuði s.l. í þeim til-
gangi að vinna að eflingu leik-
listarinnar í dreifbýlinn, hefur
ákveðið að halda námskeið fyr-
ir leikstjóra utanaf landi þ.
15.—30. okt. n.k.
Ævar Kvaran annast tilsögn
í leikstjórn, þar sem tekin
verða til athugunar m.a. eftir-
farandi atriði: Skipulagning
verkaskiftingarinnar á leik-
sviðinu; 2. leikritavalið; 3. und-
irbúningsvinna leikstjóra við
handritið; 4. hlutverkaskipan;
5. æfingarnar, og 6. sýningin.
Magnús Pálsson mun kenna
grunnflatarteikningu og út-
skýra ýmis tæknileg atriði í
sambandi við leiksviðið og bygg
ingu og fyrirkomulag leiktjalda.
Magnús hefur stundað nám í
Birmingham í Englandi í þess-
um efnum.
Þá mun Haraldur Adolfsson,
starfsmaður við Þjóðleikhúsið,
kenna andlitsförðun.
Kennslustundir verða á tíma-
bilinu 15.—30. okt. nlc. dagl. kl.
8—12 f.h. og kl. 4—7 e.h. í
teiknisal Handíðaskólans í húsi
Egils Vilhjálmssonar við Lauga
veg 118; forstöðumaður skól-
ans Lúðvíg Guðmundsson, hef-
ur vinsamlegast lánað salinn til
þessara afnota. Kennsla í and-
litsförðun fer hins vegar fram
í Þjóðleikhúsinu, en Guðlaugur
Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri,
hefur vinsamlegast veitt leyfi
sitt til þess.
Námskeið þetta, sem er hið
fyrsta í þessari grein hér á
landi, er ókeypis fyrir félaga
Framhald á 6. sííhi
iírlit í shélum
Menntamálaráðuneytið hefur
ritað skólastjórum, er undir það
heyra svohljóðandi bréf:
„Ráðuneytið telur nauðsyn-
legt, að strangt bindindiseftir-
lit sé haft í skólum landsins.
Er því lagt fyrir skólastjóra í
skólum, sem fræðslumálastjórn'
inni lúta, að sjá um að eftir-
farandi fyrirmælum sé hlýtt:
1. I skólabyggingum, sem
reistar eru með styrk af al-
mannafé og / eða standa undir
eftirliti fræðslumálastjómar,
má ekki hafa áfengi um hönd á
skemmtunum eða fundum, sem
nemendur eða aðrir halda í skól
unum. Eigi má heldur áfengi|
um hönd hafa í skemmtiferð-
um nemenda, sem farnar eru
á vegum skólanna eða fyrir
þeirra atbeiria.
2. Nemendum skal gefin
ströng áminning, ef þeir koma
í kennslustundir undir áhrifum
víns eða neyta áfengis í hí-
býlum skólans. Sé endurtek-
inni áminningu ekki sinnt, skal
hinum brotlega vikið úr skóla.
3. Komi kennari í kennslu-
stund undir áhrifum víns eða
vanræki kennslu eða önnur
skyldustörf í skólanum sakir
áfengisneyzlu, ber hlutaðeig-
andi skólastjóra þegar í stað
Ekkert sleifarlag framar
FRÉTTAMAÐUR íslenzka
Ríkisútvarpsins hjá Sam-
einuðu þjóðunum lét þess
getið í lok einnar heimsend-
ingar sinnar nýlega að héðan
í frá mundi ekki ríkja það
sleifarlag þeirrar virðulegu
stofnunar gagnvart árásar-
seggjum sem átt hefði sér
stað að undanförnu — og
það var þetta yndislega flug
í rödd hans sem er einkenni
æskumannsins þegar hann
veit sig boða mikilsháttar
tíðindi.
Það er ekki ónýtt fyrir
okkur, þessar hræður hér
norður við heimskautsbaug-
inn sem einu sinni vorum
svo fáar, fátækar, smáar, að
fá slíkan gleðiboðskap inn
í nýju stofurnar okkar beint
að vestan — beint út úr
. hinu unga hjarta sjálfs
,' vestursins. Hvílíkur unaður
til þess að hugsa að vera
nú loksins kominn í hinn
friðsæla faðm öryggisins,
þar sem óamerísk — og þá
auðvitað jafnframt óíslenzk
— uppreisn gegn dollara og
atómsprengju skal nú loks
kveðin niður fyrir fullt og
allt.
Það er dásamlegt að vera
ungur Islendingur i dag —
ekki sizt ef maður er nú
fyrir vestan að þjóná ör-
ygginu. Skyldi það vera mun
ur ellegar þegar við Helgi
Hjðrvar, sem nú erum báðir
orðnir sköllóttir, vorum að
þjálfa raddir okkar fyrir
sunnan tún til árásar á allt
það sem okkur fannst móðg-
un við heiður okkar heilögu
íslenzku fátæktar — og
tungu.
En tímarnir breytast og
mennirnir með.
0G nú skal sleifarlagið sem
sagt afnumið. Á sama
tíma sem verið er að keyra
gegnum Bandaríkjaþing
lagabálk um fangabúðir fyr-
ir óamerískar skoðanir flyt-
ur Acheson tillögur á þingi
Sameinuðu þjóðanna um
grundvallarbreytingar á
starfstilhÖgun Allsherjar-
þingsins — meðal annars
um heimild til að kalla það
saman með eins sólarhrings
fyrirvara ef vanda ber að
höndum, einnig um myndun
fastahers á vegum samtak-
anna. Eins og allt er í pott-
inn búið er þetta úrslitatil-
raun til að gera stofnunina
að þægu verkfæri í höndum
amerísku heimsveldisstefn-
unnar. Sleifarlagið sem
hverfa skal er með öðrum
crðum allt áhrifavald hins
sósíaliska heims á þessum
þýðingarmesta tilraunavett-
vangi til alþjóðasamkomu-
lags sem skapaður hefur
verið til þessa hér á jörð-
unni.
að gera fræðslumálastjórninni
aðvart, og mun slík hegðun
kennara látin varða stöðumissi.
Sama gildir, ef kennari verður
sannur að hneykslanlegri fram-
komu á almannafæri sakir vín-
neyzlu.
Skólastjórar bera ábyrgð á,
hver í sínum skóla, að farið
Þessu gerræði til réttlæt-
ingar er því linnulaust hald-
ið fram að Sovétríkin séu
ekki samvinnuhæf vegna
„hinnar rússnesku útþennslu-
stefnu“. Þó ætti það að vera
hverjum manni kunnugt að
forystumenn sósíalismans
hafa margsinnis lýst yfir
þeirri skoðun sinni að frið-
samleg samskipti milli sósí-
alískra þjóða og kapítal-
ískra séu ekki einungis æski-
leg og möguleg, heldur blátt
áfram lífsnauðsynleg —
engu síður nú en á styrj-
aldarárunum gegn fasisman-
um. Og í samræmi við þessa
skoðun höguðu þeir sér í
hvívetna, þar til hinn vest-
ræni auðvaldsheimur hóf
kalda stríðið á hendur þeim.
Hitt leiðir svo af sjálfu
sér að sé allur viðgangur
sósialiskrar lífshyggju víðs-
vegar um heim talinn
glæpsamleg rússnesk út-
þennslustefna, þá er sjálfur
grundvöllurinn að eðlilegri
þróun mannlegra samskipta
algerlega rofinn. Annar aðil-
inn hefur þá verið sviptur
frumrétti alls lífs, vaxtar-
mðguleikanum. Sé persónu-
leg þjóðfélagsskoðun mín
gerð að rússneskri út-
þennslustefnu, þá eru öll rök
þess frelsis og lýðræðis sem
hinn vestræni heimur þykist
berjast fyrir þar með úr
sögunni.
KÍNVERSKA alþýðubylt-
ingin er í rauninni sá
þyngdarpunktur sem heims-
viðburðirnir hvíla nú á. Með
sigri hennar röskuðust hlut-
föllin milli stríðsgróðavalds-
ins og hins vinnandi fólks
svo skyndilega að amerísku
dollarabófarnir ærðust. Sið-
ferðilegt hrun Sjangkajsélc-
klikunnar var þó svo algert
að klókara þótti fyrst um
sinn að þreifa fyrir sér um
hina nýju kínversku lýð-
stjórn og herða heldur einu
sinni enn á lygunum um
rússnesku útþennslustefn-
una. Tekinn var upp tvíleik-
ur eins og stundum fyrr:
Bretar ásamt nægilegum
minnihluta viðurkenndu hina
nýju stjórn, Bandaríkin með
sinn nægilega meirihluta
stóðu á móti.
Á si5mu lund fór í Ör-
yggisráði og varð það til
þess að fulltrúi Sovétríkj-
anna lagði niður störf uni
sinn í mótmælaskyni. Þar sá
ameríska stríðsgróðavaldið
sér brátt leik á borði: undir
leiðsögn bandarískra hernað-
arfræðinga lætur það lepp-
stjórn sína í Suðurkóreu
egna til átaka við 38. breidd-
arbauginn og 25. júní er
kóreska borgarastyrjöldin í
fullum gangi með hraðri
sókn norðanhersins í suður-
veg. Hin vestræna Kóreu-
nefnd Sameinuðu þjóðanna
sendir þegar skeyti um þessa
„kommúnistaárás" með al-
þýðuböðulinn Syngman Rhee
að heimildarmanni. Tveim
dögum síðar er ólöglegur
fundur haldinn í Öryggis-
ráði, þar sem það „fyrirskip-
ar“ Bandaríkjunum ólöglega,
vopnaða íhlutun í borgara-
styrjcíldina — sem Truman
var raunar búinn að setja
í fullan gang f jórum klukku-
stundum áður. Þar með var
spilið unnið um sinn: banda-
rískum her gert kleift að ná
fótfestu við bæjarþröskuld
hinna sósíalísku meginrikja
í Asíu.
AMERlSKÁ atómstjórnin
veit vel að ef Öryggis-
ráð hefði verið löglega skip-
að þann 27. júní s. 1. þá
hefði innrás Bandaríkjahers í
Kóreu verið hindruð með
neitunarvaldi Rússa og Kín-
verja. Og nú finnst stríðs-
æsingafíflunum það óþolandi
sleifarlag að eiga þetta svi-
virðilega neitunarvald leng-
ur yfir höfði sér. Þessvegna
skal nú íhlutunarvald Sam-
einuðu þjóðanna fært úr
Öryggisráði yfir til Alls-
herjarþingsins, þar sem tveir
þriðju hlutar atkvæða ráða
úrslitum slíkra mála. Við
vitum að sá meirihluti er
sem stendur fyrir hendi —
einnig hitt hver stjórnar
honum.
Það er því deginum ljós-
ara hvert stefnir. I stað
þess að vera öryggisstofn-
un heimsfriðarins þar sem
samkomulags sé leitað um
deiluatriði með gagnkvæm-
um skilningi á höfuðskilyrð-
um mannlegrar þróunar
skulu nú Sameinuðu þjóð-
irnar gerðar að miskunnar-
lausu meirihlutavígi auð-
valdsheimsins undir forustu
'Bandaríkjanna. Þannig skal
skapa „löglegt“ skálkaskjól
til að brjóta niður með
vopnavaldi hverskonar frels-
ishreyfingar alþýðunnar í
heiminum, á sama hátt og
verið er að gera með afnámi
stjórnmálafrelsis í Banda-
ríkjunum sjálfum.
Mun þá eigi á löngu líða
þar til hinn ungi fréttamað-
ur útvarpsins þar vestra
getur með margfölduðu
stolti tjáð oss hér heima að
nú sé hinu gamla sleifarlagi
loksins að fullu lokið. Og
segja mætti mér að ef við
Helgi vinur minn Hjörvar
höldum þá mjög fast við
heiður okkar gc'mhi fátækt-
ar og tungu munum vér
áður langt líður verða að
strjúka skallann í öllu harð-
ari sessi en þeim er nú sitj-
um vér.
sé eftir fyrirmælum þessum,
og skulu námsstjórar einnig
hafa eftirlit með því, að þeim
sé hlýtt.
Björn Ólafsson (sign.)
Birgir Thorlacius (sign.)
Ráðuneytið tekur fram, að
bréfið er ekki ritað að gefnu
sérstöku tilefni, enda kunnugt,
að kennarastéttin er ein hin
bindindissamasta í landinu,
heldur til að gera ljósar þær
kröfur er ráðuneytið gerir í
þessum efnum. (3. okt. 1950).
(Frétt frá menntamáia-
ráðuneytinu).