Þjóðviljinn - 04.10.1950, Page 8
Listi starfandi sjómaima í Ilafnarfiiði við fulltrúa-
liosningarnar i Sjómannafélagi Hafnarfjarðar er skipað-
ur þessum mönnum:
Markús B. Þorgeirsson, Vitastíg 6, sjómaöur á
Tryggva gamla.
Guðni Jónsson, Kirkjuteig 10, sjómaður á Hvalfelli.
Krisján Eyfjörð, Merkurgötu 13.
Varamenn þcirra eru Benedikt Viggó Jónsson, Vest-
urgötu 7, sjómaður á Ilafbjörgu; Magnús Þórðarson,
Skúlaskeiði 36, sjómaður á Eggerti Ólafssyni og Andrés
Guðbrandsson, sjómaður á Bjarna riddara.
jaliorg kýs íulltróa á Alþýðu-
sþiiig I dag og á morgun
Tveir lisiar í kjöri: A-!it..,
borinn fram af stjérií sg
trúiiaðarmannaráði féðagsins, og
á Alafossi o.fl. atvinnurekendum
Kosning I félaginu Skjaldborg á tveim aðalfulltrú-
um og tveim varafulltrúum á 22. þing Alþýðusambands-
íslands fer fram I dag og á morgun í skrifstofu félags-
ins að Hverfisgötu 21 og stend'ur yfir frá kl. 2—10
e. h. báða dagana.
Listi stjórnar- og trúnaðarmannaráðs félagsms er
A-LISTI og skipa hann: Helgi Þorkelsson, formaður fé-
lagsins og Gunnheiður Guðjónsdóttir. Til vara: Mar-
grét Sigurðardóttir og Hrefna Dagbjartsdóttir. Allt
þetta fólk hefur staðið fremst í hagsmunabaráttu fé-
lagsins árum saman og reynzt hið tra'ustasta í hví-
vetna. Helgi Þorkelsson hefur t.d. verið formaður Skjald
borgar um nærfellt 30 ára skeið og notið í því starfi
óskipts fylgis allra stéttarþroskaðra meðlima félagsins.
Atvinnurekendur hafa mikinn hug á að lama Skjald
borg og sundra félaginu i því trausti að þá verði áuð-
veldara að lækka kaupið og rýra kjörin, sem félagið
hefur fært meðlimum sínum, oftast í strangri og erfiðri
baráttu við atvinnurekendur, sem jafnan vilja hafa
káupið sem lægst. Til þess að freista að koma þessari
hugsjón sinni í framkvæmd hafa atvinnurekendur, UND
IR FORUSTU SIGURJÓNS A ÁLAFOSSI, komið sam-
an kauplækkunarlista í Skjaldborg nú við fulltrúakosn-
ingarnar, skipaðan þægustu þjónum þeirra, Guðgeiri
Þórarinssyni og Reinhardt Reinhardtsyni — og til vara
Helgu Karlsdóttur og Ottó Guðjónssyni. Ekkert þess-
ara atvinnurekendaþjóna hefur átt nokkurn þátt í að
byggja upp félagið, nc lagt fram nokkurt starf í rétt-
inda- og hagsmunabaráttu félagsmeðlimanna. Eitt þeirra
hefur aldrei komið á fund í félaginu!!
Atvináurekendurnir og flokksþý Stefáns Jóhans
hafa nokkrum sinnum áður farið á stúfana í Skjald-
borg, en jafnan farið hinar mestu hrakfarir. Svo mun
einnig verða nú.
Félagar Skjaldborgar eru áreiðanlega ráðnir í að
reka atvinnurekendalistann svo ærlega af höndum sér í
þessum kosningum að káupi þeirra og kjörum sé borg-
ið og félag þeirra skipi áfram þann heiðurssess sem það
lengi liefur skipað í verkalýðssamtökunum.
Skjaldborgarfólk fjölmennir því á kjör-
stað STMX 1 DAG. kýs A-listann og vinnnr
síðan ótrauðlega að glæsilegum sigri hans.
Á lista afturhaldsins í Sjó-
mannafélagi Hafnarfjarðar eru
þeir Pálmi Jónsson, Borgþór
Sigfússon og Pétur Óskarsson,
— tveir þeir fyrrnefndu frægir
að endemum fyrir að ganga
beint gegn samþ. síns eigin fé-
lags og hagsmunum sjóm. á
Nýtt lyfvið
magasari
Fyrst reynt af syni
Guðmundar Grímssonar
dómara
I síðasta .Fréttabréfi um heil
brigðismál* er frá því skýrt að
ungur læknir í Bandaríkjunum,
Keith S. að nafni, sonur Guð-
mundar Grímssonar dómara,
sem hér var á ferð í fyrra, hafi
gert tilraunir með nýtt lyf við
magasári og hafi það reynzt
ágætlega. ’
Segir þar að byrjað hafi ver-
ið að gefa fyrstu sjúklingunum
lyf þetta, sem nefnist Banthine,
á timabilinu maí til febrúar
1950, en að lengri tíma þurfi til
þess að fullnaðarreynsla fáist.
Af 100 sjúklingum er höfðu
opin magasár hefði eftir vana-
legum reglum um meðferð
magasárs þurft að gera upp-
skurð á helmingi þeirra en 95
batnaði meira og minna og eft-
ir röntgenmyndum að dæma
gréru sárin á þeim öllum nema
þremur. Uppskurð þurfti því
ekki að gera nema á 5. I frétta
bréfinu segir svo orðrétt:
,,Mörg lyf hafa komið fram til
iækninga á magasári og þótt
ágæt fyrst, en hafi síðan rým-
að og visnað fyrir köldum gusti
reynslunnar. En hér virðist
svo sem eitthvað merkilegt sé
á ferðinni."
síðasta Alþýðusambandsþingi,
en eins og sjómenn muna sam-
þykkti Sjómannafélag Hafna-
arfjarðar kröfu um 12 stunda
hvíld á togurunum, en Pálmi
og Borgþór greiddu báðir at-
kvæði GEGN því að Alþýðu-
sambandsþingið tæki þá kröfu
upp.
1 gær ætluðu fulltrúar
sjónxannalistans að fá kjör-
skrá Sjómannafélags Hafn-
arfjarðar, en meirihluti kjör
stjórnarinnar, þeir Pálmi
Jónsson og Þórarinn Guð-
mundsson (eitt sinn formað
ur félagsins, nú gjaldkeri)
neitaði harðlega að láta kjör
skrána af hendi við starf-
andi sjómenn.
Sá þriðji í kjörstjórninni,
Jóhann Tómasson, sagði hins-
vegar að sjómannalistinn ætti
rétt á kjörskránni og hefði
li% kjörsókn
í Von á Hnsavck
I fyrrakvöld voru talin at-
kvæði í verkakvennafélaginu
Von á Húsavík. Frambjóðendur
sameiningarmanna, þær Þor-
gerður Þórðardóttir og Guðrún
Pétursdóttir, voru kosnar af
A-lista með 67 atkvæðum. Vara
fulltrúar þeirra eru Katrín Sig
urðardóttir og Sigríður Arnórs
dóttir.
Listi afturhaldsfylkingarinn-
ar fékk 52 atkvæði.
Kjörsókn var 100%, þ. e. all-
ar félagskonur sem voru heima
á Húsavík þegar atkvæða-
greiðsla fór fram grciddu at-
kvæði, — nema tvær, en þær
lágu báðar á sæng.
heimild til að fara með hana
hvert sem hann óskaði.
Þeir Pálmi og Þórarinn þver
tóku fyrir að kjcTskráin væri
hreyfð út úr herberginu, en
kváðu sjómenn mega taka af-
rit af henni!!
Sjómenn sneru sér þá til
Jóns Sigurðssonar frahxkvæmda
stjóra Alþýðusambandsins og
ltvað liann þeim heimilt að fá
kjörskrána, cn í gærkvöldi sat
afturhaldsmeirihlutinn enn fast
við sinn keip og heítaði að láta
kjörskrána af hendi.
Fulltrúakjör til Alþýðusam-
bandsþings hefst í Sjómannafé-
lagi Hafnarfjarðar á fimmtu-
daginn kemur kl. 1 e.h. og
Framhald á 7. síðu.
Tvö umíerðaslys:
Gamall maður og
barn slasasf
I fyrradag urðu tvö umferðar
slys hér í bænum. Maður á átt
ræðisaldri, Jón Guðmundsson,
til heimilis að Nökkvavogi 4,
varð fyrir jeppabifreið á
Kleppsmýrarvegi. Bifreiðar-
stjórinn skýrir svo frá, að Jón
hafi snúið sér til hliðar á veg-
inum og um leið hafi hann
lent á bifreiðinni og fallið á
andlitið í götuna. Hlaut Jón
talsvert mikla áverka á höfði.
Var hann fluttur í Landsspít-
alann til læknisskoðunar, en
síðan heim til sín.
Hitt slysið varð á Skúlagötu
er 7 ára drengur, Helgi Vil-
hjálmsson, Lindargötu 11,
hljóp yfir götuna og lenti á
bifreið er ók þar um. Drengur-
inn var fyrst fluttur heim til
sín en síðan í Landsspítalann,
og kom þar I Ijós að hann
hafði fótbrotnað.
Smálandabúar
vilja fa gotu-
lýsingu og strætis
vagnaferðir
fbúar í Smálöndum, bústaða-
hverfi fyrir innan Eiliðaár,
skrifuðu bæjarráði i byrjun
septembermánaðar og óskuðu
eftir strætisvagnaferðum og
götuljósum í hverfið.
1 hverfi þessu er nú búið allt
árið en þar er engin götulýsing
og ekki aðrar strætisvagnaferð-
ir en Mosfellssveitarvagninn,
enda þótt íbúarnir séu Reyk-
víkingar.
Erindi Smálandabúa var vís-
að til Jóhanns Ólafssonar stræt
isvagnaforstjóra og rafmagns-
stjóra til umsagnar — á bæj-
arráðsfundinum 29. sept. eða
þrem vikum eftir að Smálanda-
búar sendu bæjarstjóm mála-
leitan sína.
Ingólfskaffi
endurskreyft
Ingólfskaffi hefur verið mál-
að og skreytt að nýju og í til-
efni af því var blaðamönnum
boðið að líta á endurbætumar
í gær.
Nýr forstöðumaður hefur tek
ið við stjórn þar, Steingrímur
Jóhannsson, en hann hefur
starfað 28 ár í faginu, hjá Ros-
enberg, Hótel Island og síðast
á Kaffi Höll.
Veitingar, kaffi og heitur
matur, verða seldar frá kl. 9.30
á morgnana til kl. 8 á kvöldin.
Máltíðin á að kosta kr. 9,75.
Knattspyrnumóti
Suðurnesja lokið
Knattspyrnumót Suðurnesja
fór fram í Keflavík dagana
16.—22. september, og var
keppt í 1. 2. 3. og 4. flokki.
Þessi félög tóku þátt í mótinu:
Ungmennafélagið „Garðar",
Ungmennafélag Keflavíkur og
Knattspyrnufélag Keflavíkur.
Úrslit urðu sem hér segir:
U.M.F.K. — K.F.K. 2:1, II. fl.
U.M.F.K. K.F.K. 1:0, K.F.K.
— U.M.F. Garðar 2:1, U.M.F.K.
— UMF Garðar 3:1. III. fl.
UMF Garðar — KFK 1:0. VI.
fl. KFK — UMFK 6:0.
1 ræðu þeirri sem Björn
Ólafsson, viðskiptamálaráð-
herra hélt áður en hann fór
til útlanda (í gjaldeyris-
sparnaðarskyni) skýrði haim
frá þvi að vísitalan myndi
komast upp í 121 stig fyrir
október. Hinn „mikli slgur
Alþýðusambandsstjórnar“ er
hins vegar fólginn í því
að menn fá kaup greitt sam-
kvæmt vísitölunni 115. Það
er sem sé stolið af öllum
Iaunþegum 6 stigum, miðað
við hina margfölsuðu gengis
lækkunarvísitölu. Fyrir
mann með 2000 kr. grunn-
laun á mánuði nemur þessi
þjófnaður 120 kr. á mánuði
eða sem svarar kr. 1440 á
ári.
„Sigurinn mikli“ var sem
kunnugt er túkall á dag!